Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAI 1993 49 Gíslína Lóa Þórðar- dóttir - Minning Fædd 3. október 1907 Dáin 9. maí 1993 Það er íslenskt vor í lofti, komið fram í maímánuð og gróðurinn um I það bil að vakna til lífsins þegar komið er að leiðarlokum jarðlífs heiðurskonunnar Lóu Þórðardóttur ömmu minnar. Við afkomendur hennar kveðjum nú síðasta hlekk þeirrar kynslóðar er að okkur stendur og löngum hefur verið nefnd aldamótakynslóðin. Amma Lóa, en svo var hún jafn- , an nefnd hvort heldur af börnum sínum, barnabörnum eða barna- barnabörnum, var fædd í Reykjavík hinn 3. október 1907. Foreldrar hennar voru þau Gísli Gíslason, löngum kenndur við ReykHolt í Vatnsmýrinni í Reykjavík, og Sig- ríður Olafsdóttir frá Akranesi. | Samband foreldra ömmu varð skammvinnt og erfiðleikar Sigríðar miklir þar sem hún átti þrjú börn fyrir. Sigríður vann um þessar mundir við holdsveikrasjúkrahúsið í Laugarnesi og átti það eftir að ráða örlögum ömmu. A sjúkrahús- inu var ungur maður, Kjartan Guðnason, fæddur 1882 austur í Holtahreppi í Árnessýslu. Kjartani var kunnugt um hagi Sigríðar og rann til rifja umkomuleysi hinnar einstæðu móður. Kjartan var þegar þarna var korpið sögu orðinn langt leiddur af sjúkdómi sínum. Setti hann sig í samband við móður sína og hlutaðist til um að hún tæki ömmu í fóstur. Kjartan var einká- barn móður sinnar, en faðir hans, Guðni, lést er Kjártan var barn að aldri. Sú öndvegiskona er hér um ræðir var Vilborg Jónsdóttir, fædd í Árnessýslu 19. desember 1857. Varð úr að hún ásamt síðari eigin- manni sínum Þórði Bjarnasyni, frá Miðengi í Grímsnesi, fæddur 16. ágúst 1860, ættleiddi ömmu með konungsbréfi, svo sem lög þessa tíma buðu. Ekki gafst ömmu tækifæri til að þakka Kjartani þá góðmennsku er hann sýndi henni hvítvoðungn- um, því að hann lést hinn 29. júlí 1908. Þau hjónin Vilborg og Þórður reyndust ömmu ákaflega vel þrátt fyrir lítil efni. Ég hygg að með eftirbreytni sinni hafu þau Vilborg og Þórður lagt grunninn að þeim sérstaka persónuleika sem amma var, er öðru fremur einkenndist af trúmennsku og fórnfýsi. Það er komið fram á árið 1927 er amma Lóa hittir mannsefni sitt, var það Guðmundur Jóhannsson, fæddur í Reykjavík hinn 16. ágúst 1907. Þau trúlofast sama ár, en hjónaband er látið bíða þess að afi útskrifist sem blikksmíðameistari 1931. Það er jafnframt 1931 sem þau eignast sitt fyrsta barn, Sig- ríði, í kjölfarið kom faðir minn Borgþór (látinn), þá Jóhann og loks Svava. Þau amma og afi hófu sinn búskap á heimili þeirra Vilborgar og Þórðar og römm var sú taug er tengdi ömmu foreldrum sínum því að heimili héldu þau saman fram á dánardægur þeirra beggja. Ekki fannst ömmu annað koma til greina en að annast foreldra sína í ellinni og önduðust þau bæði á heimili þeirra á Hringbraut 58, í Reykjavík, Vilborg 1941 ogÞórður 1947. Frá blautu bamsbeini ólumst ég og bræður mínir upp i nánu sam- neyti við þau ömmu Lóu og afa Guðmund. Þær voru óteljandi sunnudagsheimsóknirnar til, að því er við töldum þá og teljum raunar enn, bestu ömmu í heimi. Amma var ákaflega sérstakur persónu- leiki. Hún var kona mjög vel gefin, gat verið skapstór og fylgin sér í þeim málum er hún taldi einhverju skipta. Hún reyndist afa traustur lífsförunautur og var ávallt reiðubúin að styðja í verki þau mál er hann tók sér fyrir hendur, en afi var mikill félagsmálamaður alla. tíð. Efst er mér í huga er afi gerð- ist sporgöngumaður AA-samtak- anna hér á landi fyrir rétt tæpum 40 árum. Þá var amma óþreytandi í sínum stuðningi, það vita kannski fáir hennar þátt í þeirri uppbygg- ingu sem varð á þessum vettvangi, en hann var hreint ekki lítill. Það var aldrei hin sterka hlið ömmu að láta á sér bera, hún lét verkin tala og leit á alla greiðasemi af sinni hálfu gagnvart öðrum sem sjálf- sagðan hlut. Ég held að samband afa og ömmu hafi í raun alla þeirra tíð verið að styrkjast og tala ég af þekkingu þar því að fyrir tæpum 20 árum æxluðust hlutir þannig að ég eignaðist þau að trúnaðarvin- um. Það varð ömmu mikið áfall er afi lést í kjölfar aðgerðar hinn 7. maí 1989. Um líkt leyti veiktist amma og dvaldi frá því haustið 1989 á hinum ýmsu sjúkrastofnun- um og hafði er hún lést dvalið tæp tvö ár á hjúkrunarheimilinu Selja- hlíð í Reykjavík. Þrátt fyrir að lík- aminn væri farinn að bila vottaði ekki fyrri ellihrörnun á andlega sviðinu. Eitt sinn skal hver maður deyja, segir máltækið. Við þessa óhagganlegu staðreynd sætti amma sig og skildi sátt við þessa jarðvist. Minningin um einstaka konu mun ætíð lifa í hugum okkar afkomenda hennar. Birgir Þór Borgþórsson. Sigríður Þorgríms- dóttir - Minning Fædd 29. október 1921 Dáin 3. maí 1993 Mig langar að minnast með nokkrum orðum ástkærrar föður- systur minnar Sigríðar Þorgríms- dóttur, Keflavík, sem lést 3. maí sl. Hún fæddist 29. október 1921 á Ormsvelli Fljótshlíð, sjötta í röð 14 barna Ágústs Þorgríms Guðmunds- sonar frá Háamúla í Fljótshlíð og konu hans Guðnýjar Pálínu Pálsdótt- ur frá Hlíðarenda í Fljótshlíð, en nú eru aðeins þijú á lífi af þeim stóra barnahóp. Sigga, eins og hún var ávallt köll- uð, var tekin í fóstur á öðru ári af móðursystur sinni Þuríði Sigurð- ardóttur og manni hennar Halldóri Þorleifssyni á Gaddstöðum. Þar ólst Sigga upp sem eitt af börnum þeirra hjóna. Hún settist að í Keflavík þar sem hún giftist Sölva Ólafssyni kaupmanni hinn 4. desember 1943, en Sölvi lést hinn 12. ágúst 1987. Þau hjón eignuðust eina dóttur, Þur- íði, þjónustufulltrúa íslandsbanka í Mjódd. Maður hennar er Bergsveinn Alfonsson, varðstjóri í Slökkviliði Reykjavíkur. Einnig ólu þau upp elstu dóttur Þuríðar, Sigriði. Maður hennar er Rúnar Þórmundsson og eiga þau einn son, Bergsvein Al- fons. Þuríður og Bergsveinn eiga einnig Lindu Björk, kennaraskóla- nema, unnusti hennar er Guðfínnur Guðnason; og yngstur er Sölvi Þór. Margar minningar koma upp í hugann þegar Siggu frænku er minnst. Þegar þau Sölvi voru vænt- anleg í heimsókn til Eyja var það öllum mikið tilhlökkunarefni, ekki síst hjá okkur systkinabörnunum þar, því að alltaf var hægt að ganga að því vísu að þau hjónin kæmu með glaðning með sér í litla munna. Á þeim dögum sást sælgæti ekki á hvetjum degi og var því ánægjan mikil. Það var sama hvað munnarn- ir voru margir, aliir fengu jafnt og það var ríflega útilátið. 1973-1974 bjó ég í Keflavík og þá var gott að geta komið á Hring- brautina til Siggu og Sölva. Höfð- ingsskapurinn var ávallt sá sami hjá þeim hjónum. Dæmi um það var að ég lét skíra elsta son minn í Kefla- vík og þá kom ekki annað til greina Skilti á lelði Póstsendum Sími 91-688513 Skiitil Síðumúla 23, Reykjavík hjá Siggu en að halda veglega skirn- arveislu fyrir barnið, en ég bjó þá í litlu leiguhúsnæði sem bauð ekki upp á veisluhöld. Hún hélt nú að plássið væri nóg á Hringbrautinni. Aldrei fékk ég að borga neitt fyrir þau veisluhöld, því að þetta var bara gjöf til barnsins frá skírnarvottum þess, var svarið þegar ég ætlaði að gera upp reikningana. Oft var setið á þessum árum og spiluð vist fram á nótt á Hringbraut- inni, en þaðan mátti enginn fara heim hvað sem klukkan var orðin margt án þess að setjast fyrst að hlöðnu kaffiborði. Það var því oft hlegið og gantast með „þijú kaffið“ hjá Siggu frænku og margar góðar minningar eru til frá því. Fyrir jólin ’73 vorum við Sigga að ræða um ýmsa jólasiði og þá kom upp að hvorug okkar hafði bakað laufabrauð. Ákveðið var því að gera nú prufu og baka saman laufabrauð fyrir þessi jól. Byijuðum við á verk- inu á laugardagseftirmiðdegi og vor- um við fram á sunnudagsmorgun, það þýddi ekki að vera að gera eitt- hvað „smotterí" fyrst byijað var á annað borð, fannst henni frænku minni. Mikið spjölluðum við og hlóg- um þessa laufabrauðsnótt og stafl- arnir af laufabrauðinu urðu stórir. Ekki veit ég hvort Siggu hlutur klár- aðist, en hitt man ég að þegar ég fluttist frá Keflavík í lok næsta sum- ars, átti ég ennþá til laufabrauð. Sigga átti við vanheilsu að stríða um langt árabil, en það lét hún ekki aftra sér frá því að fara á manna- mót og rækta vináttu við ættingja og vini. Ekki var hún mikið fyrir að kvarta þó að oft væri full ástæða til. Þegar hún var spurð hvernig heilsan væri, þá svaraði hún kannski: „Skrokkurinn gæti nú verið betri.“ Dugnaður hennar var aðdáunarverð- ur því að oft virtist hún komast ein- göngu á viljanum eða Háamúla- þtjóskunni einni saman og með góðri hjálp frá Þuru og Svenna eða Siddý og Rúnari. En öll fjölskylda Siggu annaðist hana með einstakri ást og umhyggju til hinstu stundar. Ég hitti Siggu síðast er hún kom í fermingu sonar míns hér á Sel- fossi 4. apríl sl. Hún var þá hin hress- asta að vanda og kvartaði ekki þó að líkaminn væri löngu búinn að vera. Viljinn var samur við sig og hún var sú sem hvað ákafast hvatti til að við ættingjarnir drifum nú í að hittast í sumar og var það ákveð- . ið þarna á staðnum. Það verður gert, en Siggu mun verða sárt saknað í hópnum. Hafi hún innilega þökk fyrir samfylgdina. Alda. Blómmtofa Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. * Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Ákjósanlegast er að fá greinarnar sendar á disklingi. Minning Þóranna Lilja Þórbergsdóttir Fædd 30. janúar 1993 Dáin 20. apríl 1993 Barnið litla, blítt þú sefur, blessun guðs nú fundið hefur. Lífið flaug til ljóssins heima ljúfa minning skulum geyma. Af hvörmum streyma tregatárin tíminn getur hulið sárin. Þá verða brosin bráa þinna að björtum perlum minninganna. Ég votta foreldrum og systkinum innilega samúð. Vertu ætíð guði falin, elsku litla frænka. Torfhildur frænka og fjölskylda. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA ÁSTRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR, Lyngholti, Sandgerði, sem lést þriðjudaginn 18. maí, verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju í dag, þriðjudaginn 25. maí, kl. 14.00. Armann Guðjónsson, María Ármannsdóttir, Marel Andrésson, Helgi Ármannsson, Michela Jespersen barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNDÍS KRISTLEIFSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavik, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju í dag, þriðjudaginn 25. maí, kl. 13.30. Kolbeinn Guðmundsson, Marteinn Guðlaugsson, Kristleifur Kolbeinsson, Stefanía Erla Gunnarsdóttir, Kjartan Kolbeinsson, Helga Stefania Haraldsdóttir, Guðmundur Kolbeinsson, Kolbrún Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför dóttur minnar, eiginkonu, móður okkar, tengda- móður og ömmu, JÓHÖNNU GUÐRÍÐAR ELLERTSDÓTTUR, Tangagötu 4, Stykkishólmi. Guðrún Ólafsdóttir, Finnbogi Ólafsson, Helga Finnbogadóttir, Reynir Gísli Hjaltason, Kristín Finnbogadóttir, Andrés Kristjánsson, Ellert Finnbogason, Sigurlina Ragúels, Anna Finnbogadóttir, Smári Steinarsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.