Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 48
.'MORffilMBIiAÐIÐ (ÞMÐJtUOAGUiK /253 MAÍ);lð9S Hulda Vilhjálms- dóttir - Minning Fædd 31. júlí 1932 Dáin 19. maí 1993 Nú þegar við heilsum sumri, kveðjum við Huldu Vilhjálmsdóttur. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hinn 19. maí, sextug að aldri. Þótt ég tregi Huldu er mér ljúft að minnast hennar og svo held ég að verði um alla sem kynntust henni. Okkar kynni hófust er við fórum að vinna saman fyrir nokkrum árum og sá kunningsskapur þróaðist í góða vináttu. Hún var þá frísk og kát, en fyrir um það bil tíu árum barðist hún fyrst við þann sjúkdóm sem nú varð henni að falli. Hulda var glæsileg kona og það geislaði frá henni góðvild og hlýju. Hún var vönduð til orðs og æðis og lét sér aldrei ógætileg orð um munn fara. Áhugamál hennar voru bók- lestur og ferðalög. Hún var sílesandi og áttu þau hjónin gott bókasafn. Hulda og Gunniaugur ferðuðust mikið. Fóru þau þá oftast til útlanda og var það mikið tiihlökkunarefni, enda báðar dæturnar búsettar er- lendis á tímabilinu og þá heimsóttar um leið. Hulda átti margar vinkonur og hún ræktaði vel vináttuna. Hún tók daginn snemma meðan hún var enn frísk. Einn var sá siður hennar, að hafa af og til morgunkaffi eða skjót- ast í morgunkaffi til vinkvenna sinna áður en hún kom til vinnu kl. 10. Þetta fannst mér nú fráleitt, að rífa sig upp til að fara út í morgunkaffi áður en farið var í vinnuna. Það fór þó svo að ég „ánetjaðist" morgun- kaffinu og lagði á mig að vakna nokkru fyrr, þetta tók nú stuttan tíma, spjallað aðeins og hlegið svolít- ið. Allt varð að ævintýri kringum Huldu, henni tókst svo vel að varð- veita barnið í sér. Hún var mikið jólabarn. í nóvember fór hún að undirbúa fyrir jólin, hún þurfti helst að vera búin að öllu áður en jóla- fastan byrjaði, til þess að geta notið hennar í kyrrð og ró á heimili sínu. Eins og hjá öllum ömmum áttu barnabörnin mikið rúm í huga Huldu og það er þakkarvert að hún skyldi fá að hafa tvö þeirra hér á staðnum og nálægt sér síðustu mánuðina. Síðast þegar ég heimsótti Huldu á heimili hennar var verið að láta sumarhúsgögnin út á sólpall. Þá lét t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA S. STEINGRÍMSDÓTTIR húsfreyja, Helgafelli, Mosfellssveit, lést að kvöldi 23. maí í Landspítalanum. Jarðarförin verður auglýst síðar. Haukur Nfelsson, Marta Hauksdóttir, Haukur Högnason, Nfels Hauksson, Steinunn Elíasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR JÓHANNESSON frá Skálholtsvík, Trönuhólum 14, verður jarðsunginn frá Fella- og Hóla- kirkju miðvikudaginn 26. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Guðríður Einarsdóttir, * Magnús Ingólfsson, Björg Björnsdóttir, Guðríður Erna Magnúsdóttir, Ásta Lilja Magnúsdóttir, Ingólfur Már Magnússon. t Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HARÐAR FRIÐBERTSSONAR, Bogahlið 20, fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 27. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á S.V.F.Í. Bára Danfelsdóttir, Hafdfs Harðardóttir, Haukur Harðarson, Jórunn Harðardóttir, Guðmundur Helgi Christensen og barnabarn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 25. maí, kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Jóhann Óskarsson, Erna Guðlaugsdóttir, Sigurbjörg Edda Óskarsdóttir, Hörður Gíslason, Sjöfn Óskarsdóttir, Kristján Pétur Ingimundarson, Jóhanna Axelsdóttir, Þorsteinn Ingimundarson, Álfdfs Gunnarsdóttir, Inga Ólöf Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. hún þau orð falla, að hún vonaði að veðrið yrði gott svo hún gæti farið að sitja úti. Svo varð nú ekki, hún var flutt á sjúkrahús stuttu seinna og innan fárra daga var hún látin. Ég vil að lokum þakka Huldu fyr- ir vináttuna og bið henni blessunar á nýjum slóðum. Við Björn sendum Gunnlaugi og ijölskyldu, Eddu systur Huldu og öðrum ættingjum innilegar samúð- arkveðjur. Ástrún. Hulda Vilhjálmsdóttir fæddist 31. júlí árið 1932, dóttir hjónanna Vil- hjálms Árnasonar skipstjóra á Hjalt- eyri við Eyjafjörð og Svanhildar Sig- mundsdóttur húsmóður. Hún ólst upp í föðurgarði, meðal annars þar sem heitir Arnarholt. Æskuáranna minntist hún glöð í bragði og hafði góðar taugar til Hjalteyrar. Eldri systir Huldu var Gígja, sem nú er látin. Yngri systir hennar er Edda Vilhjálmsdóttir, búsett á Akureyri eins og þær allar. Árið 1951 giftist Hulda eftirlifandi eiginmanni sínum, Gunnlaugi Fr. Jóhannssyni raf- virkjameistara. Þau eignuðust þtjú börn, Helenu, sem er meinatæknir og býr í Svíþjóð; Gunnhildi, sem er þroskaþjálfi og býr nú á Akureyri; og Þorstein, sem er matreiðslumaður og hefur til skamms tíma búið í Reykjavík. Öll eru þau systkini í hjónabandi og eiga börn. Hulda gekk í Gagnfræðaskóla Akureyrar og lauk þar prófí. Ein- hvern tíma sagði hún — kannski í gamni en kannski í nokkurri alvöru — að hefði tækifæri gefíst hefði hún lært fornleifafræði og sérhæft sig í Egyptalandi Faróanna. Af því varð ekki en þessi áhugi á fornum fræðum kom fram í ýmsu vali á lesefni og í ferðalögum til útlanda, eitt sinn til Egyptalands. Hulda gegndi ýmsum störfum um dagana, hún var hús- móðir, vann við afgreiðslustörf og fór í síld. Öll þau störf vann hún vel af dugnaði og alúð. Hinn síðari ár starfaði Hulda við afgreiðslu í fata- verslun, það þótti henni skemmtilegt starf. Stórborgir með almennilegum verslunargötum, fatabúðum og kaffihúsum fannst henni einhveijir bestu staðir heim að sækja, þykist ég vita. Hulda hélt fólkinu sínu stór- veislur á merkisstundum í lífi þeirra. Hafði þar örugg tök á allri matar- gerð og framreiðslu. Hún hafði mót- aðar skoðanir á málum lands og þjóðar. Þær einkenndust af mannúð og tilfínningu fyrir réttlæti gagnvart þeim er ganga skertir til leiks. Það voru góðar stundir er við ræddum pólitík yfír kaffíbolla í eldhúsinu hjá henni og hallmæltum stjómarstefn- unni. Ég kynntist Huldu Vilhjálms- dóttur fyrir liðlega áratug, hún reyndist mér ákaflega vel. Það var gefandi að þekkja hana og þykist ég þar mæla fyrir munn margra. Því fylgir sorg og söknuður að Hulda skuli nú látin fyrir aldur fram. Sorg yfir því óréttlæti sem sjúkdómar og dauði gjalda góðu fólki, söknuður vegna þeirra samverustunda sem svo margir vildu að orðið hefðu fleiri. Minningar um Huldu eru þeim kær- ar sem kynntust henni. Á þessum erfíðu stundum vil ég sérstaklega votta samúð mína þeim ættingjum er næstir henni stóðu, eiginmanni, börnum og systur. Daginn sem lítil stúlka í hópi ömmubarna Huldu frétti andlát hennar fann barnið til nokkrar höf- uðslæður sem Hulda hafði lofað henni að eiga. Þar sem stúlkan týndi fram þessar gersemar, mælti hún þau orð sem hér skulu gerð að loka- orðum; „Takk fyrir, þú varst góð amma.“ Þorlákur Axel Jónsson. Minning Olafía Ástríður Þórðardóttir Fædd 22. júlí 1906 Dáin 18. maí 1993 Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hún amma okkar er dáin. Okkur langar til að minnast hennar í fáum orðum. Amma sofnaði svefninum langa að kvöldi þriðjudags 18. maí eftir langvarandi dvöl á Sjúkrahúsi Keflavíkur. í hjarta okkar er söknuður en við eigum fullt af góðum minningum um gleðistundir sem við áttum með ömmu. Við vissum að við gátum alltaf farið til hennar og hún tók alltaf vel á móti okkur og gerði það sem hún gat til að við værum ánægð- ar. Þegar við vorum litlar var alltaf best að vera hjá ömmu og vildum við hvergi annars staðar sofa. Það er skrýtið að geta ekki farið og hitt hana og erfítt að sætta sig við að hún er ekki hjá okkur leng- ur. En við trúum því að nú sé amma laus við þrautir þær sem hún hefur haft og sé ánægð og glöð, og að við hittum hana aftur þegar okkar tími kemur. Þá taki hún á móti okkur, en auðvitað fylgist hún með okkur. Við vorum heppnar að fá að njóta samvista við ömmu öll þessi ár og það var dýrmætt fyrir börnin okkar að fá að kynnast langömmu sinni. Amma fæddist á Skriðnafelli á Barðaströnd árið 1906 og dvaldist þar hjá ömmu sinni og afa til 12 ERFIDRYKKJUR Verð frá kr. 850- P E R L A N sími 620200 ára aldurs. Hún var næstelst af 12 systkinum. Árið 1942 giftist amma Ármanni afa og eignuðust þau tvö börn, Maríu og Helga. Síðustu tvö og hálft árið dvaldist amma á sjúkrahúsinu í Keflavík og var afi óþreytandi við að heimsækja hana á hveijum degi. Þrátt fyrir öll veikindin var hægt að ræða við ömmu um alla hluti og hún vissi alveg hvað var að gerast í kringum hana. Hún gat sagt frá löngu liðnum atburðum eins og þeir hefðu gerst í gær. Amma var mjög sterk og ákveðin manneskja sem átti fullt af hlýju til að gefa öðrum. Elsku amma, við viljum þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Þótt líkaminn falli að foldu og felist sem stráið í moldu þá megnar Guðs miskunnarkraftur af moldum að vekja hann aftur. (Stef. Thor.) Kolbrún og Ólafía Marelsdætur. Elskuleg æskuheimilisvinkona okkar, hún Lóa í Lyngholti, kvaddi þennan heim hinn 18. þ.m. eftir langa og stranga sjúkralegu. Stór hlekkur úr endurminningakeðju okk- ar systkinanna er nú brostinn. Á öllum merkisstundum í uppvexti okkar kom Lóa við sögu. Lóa fæddist að Skriðnahelli á Barðaströnd og þangað leitaði hug- urinn oft og þaðan sagði hún okkur oft sögur af fólkinu sínu og um- hverfi. Patreksfjörður var henni líka hjartfólginn því að þar bjó móðir hennar sín elliár, hún amma á Patró, og fleiri ættingjar. Lóa kom ung til Sandgerðis og var ráðskona á bát sem faðir okkar var formaður á. Þegar stund gafst hjálpaði hún móður okkar við heim- ilisstörfín og stóra barnahópinn á Flankastöðum. í Sandgerði kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Ármanni Guðjónssyni frá Enda- gerði. Þau eignuðust tvö börn, Mar- íu og Helga, sem bæði eru gift. Barnabörnin og barnabarnabörnin dáði hún mjög og þreyttist aldrei á að sýna okkur myndir af þeim eða tala um þau. í uppvexti okkar var Ármann alla tíð stýrimaður hjá föður okkar, á Muninn og Muninn II. Seinna fór hann á millilandaskip og fór Lóa oft í siglingar með honum. Sigldi hún til margra landa og hafði ávallt frá mörgu og merkilegu að segja frá ferðalögum sínum því að hún hafði einstaka frásagnarhæfileika. Foreldrar okkar og Lóa bundust tryggðaböndum við fyrstu kynni. Hún var næstum daglegur gestur á heimili okkar og alltaf var hægt að leita til hennar ef aðstoðar var þörf, hvort sem var í gleði eða sorg. Hún var svo innilega hjálpsöm og úrræða- góð. Lokaár starfsævi sinnar var Lóa ráðskona hjá hf. Miðnesi í Sand- gerði, alveg þar til heilsan brast. Við systkinin höfum fylgst með og dáðst að Ármanni í einstakri umhyggju hans fyrir velferð og líðan konu sinnar. Undanfarin ár var hún rúmföst á Sjúkrahúsi Keflavíkur. Hvem einasta dag var hann við beð hennar. Frá Sandgerði til Keflavíkur eru um 9-10 km og hjólaði Ármann þessa leið ef veðurfarið mögulega leyfði það. Lóa var mjög trúuð kona og full- viss um að líf er eftir dauðann. Nú, er þrautum hennar lokið, biðjum Við þess að trú hennar hafi ræst og að hún sé nú meðal genginna, elskaðra ástvina sinna. Við biðjum góðan guð að vernda og blessa sál hennar um alla eilífð. Ármanni, Maju, Helgu og fjöl- skyldum þeirra sendum við innilegar samúðarkveðjur. Systkinin frá Breiðabliki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.