Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Aðild að Svalbarða- samkomulagi Ríkisstjórnin samþykkti _ á fundi í síðustu viku að ís- land skuli gerast aðili að Sval- barðasamkomulaginu og hefur fulltrúum norskra og rússneskra stjórnvalda verið tilkynnt um þessa ákvörðun. Ekki þarf sam- þykki annarra þjóða fyrir aðild og geta Islendingar því einfald- lega afhent tilkynningu þar sem aðild er lýst yfir. Mikið hefur verið rætt um það undanfarin tvö ár hvort við eig- um að gerast aðilar að Sval- barðasamkomulaginu, vegna hugsanlegra möguleika á fisk- veiðiheimildum. Þjóðréttarleg staða Svalbarðasamkomulags- ins er mjög flókin. Lengi vel var Svalbarði umdeilt einski^manns- land og í upphafi aldarinnar tóku Svíar, Rússar og Norðmenn upp viðræður um yfirráð yfir eyjunum. Þær leystust upp er fyrri heimsstyijöldin hófst og varð deilan um Svalbarða eitt af úrlausnarefnum friðarráð- stefnunnar í Versölum árið 1919. Á grundvelli þeirra við- ræðna, sem þar fóru fram, var Norðmönnum veittur fullveldis- réttur yfir eyjunum með Sval- barðasamkomulaginu árið 1920. Öll aðildarríki að samningnum eiga þó að hafa jafnan rétt til að nýta auðlindir Svalbarða- svæðisins, þar með talið fiski- stofna. Um túlkun þess ákvæðis samkomulagsins er þó deilt. Árið 1977 lýstu Norðmenn einhliða yfir fiskverndarsvæði, sem nær 200 mílur út frá strönd- um Svalbarða og vísuðu meðal annars til hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna í því sam- bandi. Réttur þeirra til þess hef- ur þó verið dreginn í efa af mörgum þjóðum og hafa ein- ungis Finnar viðurkennt fisk- verndarsvæðið til þessa. Sovét- menn mótmæltu til dæmis fisk- verndarsvæðinu harðlega en þeir hafa löngum deilt við Norð- menn um yfirráð í Barentshafi. Vegna kalda stríðsins stilltu vestrænar samstarfsþjóðir Norðmanna því mótmælum sín- um í hóf. Árum saman hafa Norðmenn gefíð út kvóta innan fískvernd- arsvæðisins og hafa Norðmenn og Rússar veitt megnið af aflan- um þó að „þriðju ríki“ hafi einn- ig fengið kvóta. Hefð er fyrir veiðum Evrópusambandsríkja auk þess sem Færeyingar hafa þarna kvóta. Norðmenn telja sig hafa fulla lögsögu yfír fisk- verndarsvæðinu og hefur norska strandgæslan eftirlit með mið- unum. Þeir hafa hins vegar ekki treyst sér til að færa togara, sem verið hafa að veiðum á miðun- um, til hafnar og lögsækja fyrir landhelgisbrot. Ríki þau, sem stunda veiðar á svæðinu, hafa þó að mestu virt ákvarðanir Norðmanna, til dæmis varðandi lokanir á svæðum. Norðmenn gera sér grein fyrir því að réttar- staða þeirra í málinu er mjög óljós og hafa þeir ekki viljað að deilumálum vegna Svalbarða yrði vísað til Alþjóðadómstólsins í Haag. Nokkur deilumál hafa komið upp varðandi veiðar á Sval- barðasvæðinu á undanförnum árum. Árið 1991 hófu græn- lenskir togarar veiði á fiskvernd- arsvæðinu og lýstu því yfir að þeir teldu sig hafa rétt til þess samkvæmt Svalbarðasamkomu- laginu. Eftir harðar deilur og hótanir sjómanna í Norður-Nor- egi um „þorskastríð" náðist samkomulag um skipti Græn- lendinga og Norðmanna á veiði- heimildum. Fengu Grænlending- ar blandaðan kvóta í Norður- sjónum gegn því að grænlenska heimastjórnin bannaði veiðar grænlenskra togara við Sval- barða. í fyrra hófu svo nokkrir dóminískir togarar, i eigu Fær- eyinga, veiðar við Svalbarða og lönduðu meðal annars afla hér á landi. í nóvember í fyrra hófu skip þriggja íslenskra útgerða veiðar á fiskverndarsvæðinu en fóru þaðan eftir að ríkisstjórnin beindi þeim eindregnu tilmælum til þeirra að þau létu af veiðum án tafar og tilkynnti að íslensk stjórnvöld myndu ekki veita skipunum neina vernd. Nokkr- um dögum síðar samþykkti rík- isstjómin að fela utanríkisráðu- neytinu að leita eftir viðræðum við Norðmenn um Svalbarða- málið áður en endanleg ákvörð- un yrði tekin um það, hvort ís- lendingar gerðust aðilar að sam- komulaginu. Nú hefur verið tek- in ákvörðun um slíka aðild. Það veitir ekki sjálfkrafa rétt til fiskveiðiheimilda þó að ís- lendingar gerist aðilar að Sval- barðasamkomulaginu. Það er hins vegar mun skynsamlegri leið en að hefja þar veiðar í trássi við vilja Norðmanna í þeirri von að niðurstaðan verði fiskveiðik- vótar líkt og gerðist í deilu Norð- manna og Gragnlendinga árið 1991. Ef við sækjumst eftir fisk- veiðiheimildum á þessu svæði eigum við að reyna að sækja þær með samningum. Þó að Norðmenn hafi vissulega ekki efnahagslögsögu yfir þessu svæði er það í samræmi við stefnu íslendinga varðandi út- hafsveiðar að veiðum sé stjórnað og reynt að vernda fiskistofna. Það væri andstætt hagsmunum Islendinga að sýna tvískinnung í þessum efnum. Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynna tíu lykla að nýjum tímum m „ ' 'sMto . 4 “j; s; S. ", ini ' .ití : Morgunblaðið/Kristinn Atvinnustefnan kynnt ÁRNI Sigfússon, borgarstjóri, kynnir blaðamönnum stefnu frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í atvinnumálum í Kaffivagninum á Granda í gær. Atvmnan grunniir ör- yggis fjölskyldunnar ÁRNI Sigfússon, borgarstjóri, kynnti í gær tillögur þær í atvinnumál- um, sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnar- kosningarnar hafa lagt fram. Tillögurnar eru undir yfirskriftinni Atvinna fyrir alla og byggjast á tíu lyklum að nýjum tímum, eins og Árni orðaði það. Helstu tillögur lúta að því að styðja smáfyrirtæki í borginni, frísvæði í Reykjavík, ýmsum fjárfestingarkostum í borg- inni, skattfrelsi í þróunarverkefnum og hvatningu til fjárfestingar. Til þess síðastnefnda telst að leggja niður skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, sem sjálfstæðismenn vilja gera á komandi kjör- timabili. Árni lagði áherslu á að öryggi væri ijölskyldunni mikilvægast og grunnur fjárhagslegs öryggis hvíldi á atvinnunni, sem væri stærsta hagsmunamál fjölskyldunnar, þótt hið félagslega öryggi væri ekki síð- ur mikilvægt. Hann sagði, að í Reykjavík þyrfti um 6 þúsund ný störf fram til ársins 2000 til að mæta árlegri fjölgun fólks á vinnu- markaði og koma í veg fyrir viðvar- andi atvinnuleysi. Borgarstjórinn nefndi fyrst átáksverkefni þau, sem borgin réð- ist í á næstunni, en þá fá 1200 atvinnulausir störf, sem að mestu felast í ýmsum viðhaldsverkefnum. Þá hefði Reykjavík lagt mikla fjár- muni til fræðsluverkefna í þágu atvinnulausra og ynni Atvinnu- málanefnd borgarinnar að því að gera atvinnulausum kleift að stunda nám sem byggði upp sjálfstraust þeirra. Fram kom, að sjálfstæðis- menn vildu greiða fyrir starfsemi smærri fyrirtækja með því að haga útboðum þannig að þau ættu í auknum mæli kost á verkefnum hjá borginni. Ekki ætti að einkavæða þjónustufyrirtæki í eigu Reykjavík- ur, en leita leiða til að ná fram aukinni skilvirkni í rekstri fyrir- tækja og stofnana. Tíu Iyklar að nýjum tímum Tillögur sjálfstæðismanna í at- vinnumálum felast í tíu atriðum, sem þeir kalla tíu lykla að nýjum tímum. Fyrsti Iykillinn lýtur að því, að skapa ímynd af Reykjavík sem heilsuborg, þar sem hreinleiki lofts og lagar sé í fyrirrúmi. „Þetta er sterkasta Iausnin og hún kajlar á samstarf sveitarfélaga, því ísland allt þarf að hafa þá ímynd að hér sé hreinasta land í heimi. Þannig getum við komið til dæmis sjávar- og landbúnaðarafurðum okkar á markað erlendis sem hágæðavöru," sagði Árni. Hann benti á, að nú væri einnig unnið að athugun á Reykjavík sem alþjóðlegri heilsu- miðstöð og aukinni nýtingu Nesja- vallasvæðisins til útivistar og heilsuræktar. Þá legðu sjálfstæðis- menn áherslu á að komur erlendra farþegaskipa hingað tvöfölduðust fram til aldamóta. í því sambandi þyrfti að auka þjónustu hafnarinn- ar, svo sem með fríhafnarverslun. Annar lykill sjálfstæðismanna að nýjum tímum er stuðningur við smáfyrirtæki. „Það þarf að efla lít- il fyrirtæki í borginni og sjálfstæðis- menn vilja útbúa nýja aðstöðu fyrir slíkan atvinnurekstur, sem gæti starfað í samstarfsneti_ við önnur smáfyrirtæki," sagði Árni. Hann sagðr að nú væri verið að kanna hvernig best yrði staðið að sköpun slíkrar aðstöðu, m.a. með nýtingu húsnæðis í eigu Reykjavíkurborgar eða einkaaðila. Þriðji lykillinn lýtur að því að borgarstjóri hefur ákveðið að koma á starfshópi, sem marki stefnu til að innkaup borgarinnar taki_ mið af eflingu innlends iðnaðar. í síð- ustu viku samþykkti borgarráð til- lögu borgarstjóra um að við útboð og verðkannanir hjá borgarssjóði og fyrirtækjum borgarinnar verði tryggt að hlutur innlendra framleið- enda og þjónustuaðila verði hvergi fyrir borð borinn og núgildandi fyr- irmæli og starfshættir verði endur- skoðaðir í samræmi við þetta. Fjórða áhersluatriðið er að Reykjavík verði þjónustumiðstöð í Norður-Atlantshafi. Árni sagði að nú vantaði aðeins herslumuninn á að íslendingar tækju forystu í flestu sem viðkomi aðferðum við veiðar og vinnslu sjávarfangs í Norður- Atlantshafí. „Grundvallaatriði í þessu er að skipum bjóðist olía á samkeppnishæfu verði,“ sagði Árni. „Þá er brýnt að ráðast í endurupp- byggingu skipasmíðaiðnaðarins í Reykjavík." Sjálfstæðismenn leggja fram sem fimmta áhersluatriði sitt að Reykja- víkurhöfn vinni áfram að þróun áætlana um frísvæði með tilliti til vöruflutninga á milli Evrópu og Ameríku, svo og aukinna flutninga til og frá Grænlandi. í sjötta lagi vilja sjálfstæðismenn vekja athygli á borginni sem eftirsóknarverðum kosti fyrir erlend fyriurtæki. Þar kemur fram, að forvinna til kynn- ingar á Reykjavík fyrir erlendum fjárfestum sé hafin, en sú vinna sé m.a. byggð á ítarlegri starfsskil- yrðaúttekt og mati á samkeppnis- stöðu íslands. í sjöunda lagi vilja sjálfstæðismenn svo styðja verk- efnaútflutning og benti borgarstjóri á að reynslan hefði sýnt að mörg fyrirtæki ættu fullt erindi á erlend- an markað. Áttunda atriðið lýtur að samstarfi Reykjavíkurborgar, atvinnulífsins og Háskólans, en þar vilja sjálfstæðismenn frekari upp- byggingu tækni- og iðngarða. Skattfrelsi og fjárfestingar Árni Sigfússon sagði að sjálf- stæðismenn stefndu að því að fella niður skatt á skrifstofu- og verslun- arhúsnæði á næsta kjörtímabili. „Lækkun skatta á fyirtæki þýðir að þau fjárfesta meira og ráða til sín fólk. Við viljum gera fyrirtækj- um og einstaklingun kleift með skattkerfisbreytingum að leggja fé í þróunarverkefni og atvinnuupp- byggingu. Þá viljum við leyfa flýti- fyrningar, sem hvettu fyrirtæki til að hraða fjárfestingum. Þannig mættu þau afskrifa hraðar þær fjár- festingar sem ráðist verður í næstu eitt eða tvö árin. Það er hins vegar ljóst að niðurfelling á sköttum á verslunar- og skrifstofuhúsnæði þýðir verulegt tekjutap fyrir borg- ina. Við þurfum svigrúm til að kanna hvernig við mætum þessu tekjutapi, en við viljum fella þennan skatt niður á kjörtímabilinu. Það mun þó ekki þýða hækkun útsvars." Tíundi og síðasti lykillinn, sem sjálfstæðisrnenn kynntu, tengist menningu. Árni Sigfússon benti á að sjálfstæðismenn í Reykjavík hefðu sýnt frumkvæði í menningar- lífi borgarinnar með öflugum stuðn- ingi við margvíslega lsitræna starf- semi. Hann sagði, að menning væri útflutningsvara og bæri að líta á hana sem hugsanlegan vaxtarbrodd í atvinulífinu. Árni Sigfússon sagði í lok kynn- ingarinnar að Reykjavíkurborg hefði framkvæmt fyrir 35 milljarða króna á undanförnum 4 árum. Þó mikið væri talað um kostnað við Perluna og ráðhúsið væri sá kostn- aður aðeins brot af þessari upphæð, eða um 4,8 milljarðar og hafa bæri í huga að þessar byggingar vektu athygli útlendinga jafnt sem íslend- inga. Þá hefðu þessar framkvæmd- ir skapað atvinnu og eflt íslenskt handverk. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994 33 Sigfús Halldórsson, tónskáld og listmálari, nýkjörinn heiðursborgari Kópavogs Morgunblaðið/Kristinn Heiðursborgarar SIGFÚS Halldórsson á tali við Huldu Jakobsdóttur sem einnig er heiðursborgari Kópavogs, en hún og eiginmaður hennar, Finnbogi Rútur Valdemarsson, voru kjörin heiðursborgarar 8. október 1976. Kjörinu lýst BRAGI Mikaelsson, forseti bæjarstjómar Kópavogs, tilkynnir um kjör Sigfúsar Halldórssonar sem heiðursborgara Kópavogs og af- hendir honum skjal þar að lútandi. Þykir vænt um þennan heiður KJÖR Sigfúsar Halldórssonar tónskálds og listmálara sem heiðurborgara Kópavogs var formlega tilkynnt síðastliðinn sunnudag við hátíðlega athöfn í Félagsheimili Kópavogs. Sigfús er þriðji heiðursborgarinn sem kjör- inn hefur verið i Kópavogi, og sagði hann í samtali við Morgunblaðið að sér þætti ósköp vænt um þann heiður sem honum hefði verið sýndur með kjörinu. „Það felst í þessu viss heiður, en þetta breytir ekki mínum högum að einu eða neinu leyti, öðrum en þeim að mér þykir óskaplega vænt um þetta. Þetta yljar manni,“ sagði Sigfús. Viðstödd athöfnina þegar tilkynnt var um kjör Sigfúsar sem heiðursborgara Kópavogs var Huída Jakobsdóttir ekkja Finnboga Rúts Valdemarsson- ar, en þau hjónin voru kjörin fyrstu heiðursborgar- ar Kópavogs 8. október 1976. Sagði Sigfús að það hefði glatt sig mjög að Hulda hafi verið við- stödd þegar tilkynnt var um kjör hans. Sífellt að mála og semja Sigfús sagðist sífellt vera að mála myndir og semja tónlist. Þannig hitti á að sama dag og til- kynnt var um kjör hans sem heiðursborgara var opnuð sýning í Gallerí Listanum, Hamraborg 20a, á verkum Sigfúsar sem hann hefur tileinkað Kópavogsbæ. Um er að ræða 12 vatnslitamyndir af umhverfi Kópavogslækjar sem Sigfús málaði í fyrra. „Þegar ég varð sjötugur hélt Kópavogs- bær mér stærðar veislu og gaf út nótnahefti með 34 lögum eftir mig. Eg vildi sýna einhvern þakklætisvott fyrir þetta, og þegar ég gekk eitt sinn meðfram Kópa- vogslæk fannst mér upplagt að gera þessa mynd- aseríu. Það var hins vegar alveg óháð kjöri mínu sem heiðursborgara, og tilviljun réð því að sýning- in var opnuð sama dag og tilkynnt var um kjör- ið,“ sagði hann. Endurgreiðslur til olíufélaganna úr flutningsjöfnunarsjóði sL 3 ár ESSO fékk 131 milljón króna til baka nmfram greiðslur Á LIÐNU ári fékk Olíufélagið hf. (ESSO) endurgreitt úr flutningsjöfn- unarsjóði rúmum 60 milljónum króna hærri upphæð en félagið greiddi í sjóðinn á árinu, og lækkaði þannig dreifingarkostnað sinn um rétt rúmar 60 milljónir króna. Skeljungur hf. greiddi á liðnu ári rúmlega 32 milljónum króna meira í sjóðinn en nam endurgreiðslum úr honum. Þannig hækkuðu greiðslur Skeljungs í sjóðinn dreifingarkostnað fé- lagsins á árinu sem nam 32,7 milljónum króna. Sambærileg tala hjá OLIS á liðnu ári var til hækkunar sem nemur 2,3 milljónum króna. Líkur á hlaupi í Tungna- árj ökli Jökullinn er orð- inn varasamur yfirferðar LÍKUR benda til að hlaup hefjist brátt í Tungnaárjökli. Helgi Björnsson jöklafræð- ingur hjá Raunvísindastofn- un Háskólans segir að jökull- inn hegði sér á allan hátt þannig og hann eigi allt eins von á því að jökullinn hlaupi fram þá og þegar. Sprungur hafa myndast um miðbik Tungnaárjökuls, þó langt sé í að hann líti út eins og Síðu- jökull, en hlaup hófst í honum í janúar. Því sé Tungnaáijök- ull orðinn mjög hættulegur yfirferðar. Helgi segir að fram til ársins 1992 hafi Tungnaáijökull skriðið fram um 30 metra á ári, en hefði í raun þurft að skríða 60 metra til þess að bera fram þann snjó sem á hann settist. Við það verði jökull- inn stöðugt brattari og þar kæmi að hann missti jafnvægið, hraðinn ykist og hlaup hefðist í jöklinum. Frá árinu 1992 hafi hraðinn auk- ist jafnt og þétt og hafi um síðustu áramót mælst um 200 metrar á ári. Til samanburðar má geta þess að þegar hraði .Síðujökuls var hvað mestur færðist hann fram um 100 metra á dag. Tungnaárjökull er í vestanverðum Vatnajökli. Hann er fyrir norðan Síðujökul, en á milli þeirra liggur Skaftárjökull. Helgi segir að hreyfingin í Tungnaárjökli sé mest í um 1.100 til 1.200 metra hæð og þar sé hann orðinn talsvert sprunginn og úfinn og stórvarasamur yfirferðar. Jaðar Síðujökuls færst fram um 1.140 metra Hreyfing Síðujökuls hefur minnkað verulega undanfarið og segir Helgi jökulinn hreyfast mest um miðbik hans. Er hreyfingin um 6 metrar á dag. Síðastliðinn laugar- dag hafði jaðar jökulsins færst fram um 1.140 metra frá því að hlaupið hófst í janúar. Þegar litið er á ársreikninga olíu- félaganna undanfarin þijú ár, og færslur á dreifingarkostnaði í rekstr- arreikningi, þá kemur á daginn að um lækkun á dreifingarkostnaði hef- ur verið að ræða hjá ESSO, ár hvert, sem skiptist þannig að árið 1991 lækkar dreifingarkostnaður ESSO um 46 milljónir króna, vegna endur- greiðslu úr sjóðnum, árið 1992 um 24,4 milljónir króna og árið í fyrra um 60,3 milljónir króna. Sambærilegar tölur hjá Skeljungi voru þessi ár ávallt til hækkunar á drefingarkostnaði: Árið 1991 hækk- aði hann um 41,6 milljónir króna, árið 1992 hækkaði hann um 53,7 milljónir króna og á liðnu ári um 32,8 milljónir króna, eða samtals á þriggja ára tímabili um 128 milljónir króna. Þessar greiðslur urðu einnig til hækkunar á dreifingarkostnaði hjá OLÍS: Árið 1991 hækkaði dreifingar- kostnaður OLÍS vegna greiðslna i sjóðinn um 18,2 milljónir króna, árið 1992 hækkaði hann um 28,3 milljón- ir króna og á liðnu ári um 2,3 milljón- ir króna, eða samtals á þremur árum um 48,8 milljónir króna. Heilbrigðisráðuneyti um auglýsingar lyfjaframleiðenda Osmekkleg herferð um- boðsaðila erlendra lyfja „AUÐVITAÐ eiga fyrirtækin mikilla hagsmuna að gæta og þau beita sinum ráðum til að tryggja þá. Ráðuneytinu fannst þessi aðferð hins vegar fremur ósmekkleg og var því ákveðið að fara út í þetta kynning- arátak,“ segir Einar Magnússon, skrifstofustjóri í lyfjamáladeild heil- brigðisráðuneytisins, um auglýsingar umboðsaðila erlendra lyfja í Læknablaðinu og kynningarátak heilbrigðisráðuneytis og Trygginga- stofnunar í kjölfar þeirra. Auglýsing sem hrinti atburðarás- inni af stað birtist í fyrsta sinn í des- emberhefti Læknablaðsins í fyrra. Yfirskrift auglýsingarinnar er Rétt skal vera rétt og er hringur dreginn utan um r-ið í síðasta orðinu. Með því móti eru mynduð skilaboð lækTíis á lyfseðli um að aðeins skuli afhent tiltekið lyf. Bókstafurinn s sem á sama hátt er dreginn hringur utan um merkir hins vegar að afhent skuli ódýrasta samheitalyf í sama lyfja- flokki. Auglýsingin hefur birst þrisvar með þrenns konar texta undir yfir- skriftinni. Einn þeirra hljóðar svo: „Læknar! Tryggið að sjúklingar fái þau lyf sem ávísað er. Ritið R [hring- ur utan um] við sérheiti frumlyfja." Fyrir neðan eru nöfn lyfjafyrirtækj- anna Ciba og Roche (umboðsaðili Stefán Thorarensens hf.) og Glaxo, (umboðsaðili Glaxo á íslandi)! Viðbrögð Auglýsingarnar höfðu birst þrisvar í Læknablaðinu þegar heilbrigðis- ráðuneyti og Tryggingastofnun svör- uðu þeim með auglýsingu í Morgun- blaðinu. í henni er mynd af fyrri auglýsingunni, án nafna lyfjafyrir- tækja, og texti þar sem segir: „Svona auglýsingar hafa ítrekað birst í síð- ustu tölublöðum Læknablaðsins. Þær eru frá þremur tilgreindum erlendum lyfjaframleiðendum. Ekki er heimilt að birta nöfn þeirra hér, vegna ákvæða í siðareglum um auglýsing- ar.“ Til hliðar er bent á gífurlegan lyfja- kostnað, tæpan 5,1 milljarð árið 1993, og sagt að hægt sé að lækka veru- lega upphæðina án þess að draga úr gæðum eða magni lyfja. Slíkt sé ein- faldlega gert með því að læknar heim- ili afgreiðslu ódýrustu samheitalyfja Auglýsingarnar Meðfylgjandi myndir eru fengnar úr Læknablaðinu, fréttabréfi lækna. og merki S í stað R við lyfj'aheiti, ætíð þegar mögulegt er. Fyrir siðaráði Einar sagði að auglýsingarnar í Læknablaðinu hefðu þótt fremur ós- mekklegar og hefði átakinu verið hrint af stað sem eins konar svari við þeim. „Auglýsingarnar voru born- ar undir Lyfjaeftirlit og Samkeppnis- stofnun og hafa þeir aðilar ekki talið þær stangast á við lög. Hins vegar gæti verið spurning hvort auglýsing- arnar væru siðferðilega réttar. Því vísaði ráðuneytið málinu til siðaráðs lækna í janúar en svar hefur ekki borist,“ sagði Einar og gat þess að átakinu væri einnig ætlað að hvetja lækna til að nota táknin S og R sam-- kvæmt reglugerð frá því 1. ágúst 1992. I könnun Lyfjaeftirlits ríkisins í nóvember 1993 kom í ljós að rúmlega 34% lyfseðla voru með táknið R en aðeins 17,6% með táknið S. Engu að síður hefur verið reiknað út að með þessum merkingum hafí um 100 millj- ónir sparast á ári. Af þessu sagði Einar að sjá mætti að miklir fjármun- ir væru í húfi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.