Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994 47 8 hlutir - á aðeins 5.490 kr. Glæsilegt pottasett, 8 hlutir, á aðeins kr. 9.880. Kaffi- og matarstell á aðeins kr. 6.790 ALLAR VÖRUR TIL AFGREIÐSLU STRAX - PAIUTIÐ EÐA KOMIÐ Ghielle VERSLUN, HJALLAHRAUNI8, HAFNARHRÐI ÞYSK GÆÐI PÖMTUMARSÍMI 50200 aðarkvenfólk, sem hafði kynnst hörmungum, hungri, dauða og kreppu eftirstríðsáranna. Árið 1954 var Sonnenfeld gerður að þýzkum kjörræðismanni og gegndi hann því ólaunaða sjálfboðastarfi allt fram til ársbyijunar 1980. Var hann sæmdur „Bundesverdienstkreuz I. Klasse" fyrir þau störf sín. Eins og áður var sagt voru þau hjón miklir unnendur útivistar, stunduðu fjallaferðir, skíða- og hestamennsku. Blómarækt var einnig stunduð í frístundum. Sumarbústað byggðu þau í Vagla- skógi og áttu þar margar næðis- stundir. Sonnenfeld var einn stofn- enda Svifflugfélags Akureyrar og Þýzk-íslenzka félagsins á Akureyri. Ursula dóttir þeirra hefur starfað á Veðurstofu íslands eftir stúdents- próf. Hún átti tvo syni með fyrri manni sínum, Kristjáni Grétari Sig- valdasyni kennara, þá Grétar Kurt, sem látinn er, og Álfgeir Loga. Seinni. maður hennar er Jón Kristinsson búfræðingur og vélstjóri. Ég hygg að hin síðari árin hafi verið þeim gömlu hjónunum fremur erfið, en frú Elisabeth var lengi heilsulítil. Hún lézt 4. nóvember síð- astliðinn. Gamli maðurinn stundaði veika konu sína af mikilli vænt- umþykju uns yfir lauk. Ung vanda- laus hjón hér í bæ, þau Árni Harðar- son og María Tryggvadóttir, sýndu þeim Sonnenfeld-hjónum fádæma ræktarsemi hin síðari ár og voru þeim til aðstoðar í öllu er þau van- hagaði um í heimilishaldi. Aldinn höfðingi hefur nú kvatt þetta vort jarðlíf. Hann, sem var ætíð föðurlandi sínu til sóma og ekki síður nýja landinu, sem tók svo vel við honum og sem hann unni svo mjög. Minningin um þennan ætíð svo brosmilda og glaðlega samborgara og sanna íslending mun lifa meðal okkar, sem eftir stöndum. Svanur Eiríksson. Kurt Sonnenfeld tannlæknir—Minnmg Fæddur 3. ágúst 1909 Dáinn 28. febrúar 1994 Kurt Gustav Sonnenfeld fæddist í Köln-Lindenthal í Þýzkalandi. Foreldrar hans voru Sigmund Sonnenfeld kaupmaður (f. 1. janúar 1869 - d. 27. desember 1945) og kona hans Meta Sonnenfeld, fædd Schenck (f. 2. nóvember 1875 - d. 28. september 1958). Stúdent varð Sonnenfeld frá Menntaskóla í Berlín- Luisenstadt árið 1930 og lauk tann- læknanámi frá Friedrich-Wilhelm- háskólanum í Berlín í febrúar 1935, en sökum þess að faðir hans var gyðingur voru honum meinuð störf í Þýzkalandi nazismans. Hildarleik- urinn mikli, sem átti eftir að leiða ógn og skelfingu yfir alla heims- byggðina, var í burðarliðnum. Nærri má geta hvílíkt áfall starfsbannið hafði á ungan mann, sem stóð nú uppi með gagnslaust prófskírteinið í höndunum. Sonnenfeld brá þá á það ráð að flytjast til Danmerkur, þar sem hann gat fengið vinnu i starfs- grein sinni. En skömmu síðar frétti hann að tannlækni vantaði á Is- landi, en þar væru einar átta tann- læknastofur. Varð það úr að hann hélt til ís- lands og steig á land í Reykjavík 30. ágúst 1935, slyppur og snauður. Var hann með fímmtíu krónur í vasanum, en skuldaði eitt hundrað krónur úti í Kaupmannahöfn. Jón Benediktsson tannlæknir réð hann til starfa á stofu sinni og reynd- ist honum afar vel á þessum fyrstu og erfiðu árum í ókunnu landi. Starf- aði hann næstu fimm árin hjá Jóni. Sonnenfeld hreifst strax mjög af náttúru íslands og ferðalögum um nýja landið sitt. Hann kynntist konu- efni sínu tæpum tveim árum síðar. Um hvítasunnuhelgina 1937 gekk hann ásamt öðrum á Snæfellsjökul. Þar hitti hann stúlku og tóku þau tal saman, — á íslenzku. Dágóð stund mun hafa liðið þar til þau uppgötv- uðu hvað þau áttu sameiginlegt, — sjálft tungumálið. Stúlka þessi var Elisabeth Ulrich, ættuð frá Goslar í Þýzkalandi, Ijósmyndari að mennt. Hún hafði komið hingað árið 1926 til þess að vinna í hálft ár hjá Lofti Guðmundssyni ljósmyndara, en land- ið hafði einnig heillað hana þannig að dvölin h'afði orðið lengri. Þau gengu í hjónaband 2. septemer 1939, en daginn eftir lýstu Bretar og Frakkland yfir stríði gegn Þýzka- landi, sem hafði tveimur dögum áður hafið innrás í Pólland. Sonnenfeld var orðið ljóst að hann ætti ekki afturkvæmt til ættjarðar- innar á næstunni, þar sem hann átti foreldra og bróður. Skömmu áður hafði hann farið til Dnamerkur og ætlaði að komast inn í Þýzkaland til að ná sambandi við þau, en Gestapó- maður nokkur réði honum frá því að reyna slíkt, þar sem hann yrði strax að handtaka hann er yfir landa- mærin væri komið. Foreldramir og bróðirinn, Sigmund, þraukuðu til stríðsloka. Faðirinn lézt nokkrum mánuðum síðar, en móðir og bróðir fluttust til íslands og bjuggu hér til dauðadags og hlutu hinstu hvílu í Akureyrarkirkjugarði. Þegar Bretar hemámu ísland vorið 1940 var fjöldi Þjóðveija fluttur á skip í enskar fangabúðir og er þar af mikil örlaga- saga og hin átakanlegasta. Um haustið fluttu Sonnenfeld-hjónin til Siglufjarðar, þar sem Kurt rak tann- læknastofu næstu fimm árin, en þá fiuttu þau til Akureyrar með kjör- dóttur sína, Ursulu Elisabeth, sem þá var tveggja ára að aldri. Þau komu sér upp fögru heimili í Munka- þverárstræti 11 og bjuggu þar til æviloka. Tannlæknastofu rak Sonn- enfeld lengstum í Hafnarstræti 90 og allt fram til 1989, síðasta áratug- inn að vísu aðeins nokkrar stundir á dag. Sonnenfeld var hverjum manni hjálpsamari og leituðu því ýmsir til hans á árunum eftir styijöldina og báðu hann liðveizlu í samskiptum við hið nýja Þýzkaland, sem nú var að rísa úr rústum undir stjórn lýðræðis- sinna. Árið 1949, þ.e. áður en sendi- ráð tók til starfa á íslandi, leituðu þarlend stjómvöld til þessa týnda sonar og báðu hann að taka að sér aðstoð við Þjóðveija á íslandi. Á því ári komu hundmð ungmenna til landsins, aðallega stúlkur, á vegum íslenzkra landbúnaðarsamtaka, til að vinna við sveitastörf. Skortur var orðinn á ungu fólki í hinum dreifðu byggðum landsins. Straumurinn hafði þá um árabil legið á mölina fyrir sunnan, en þar var næga at- vinnu að fá og þar voru peningamir og lífsgæðin. Mikill meirihluti þessa unga aðkomufólks festi hér rætur, gerðust íslendingar, jafnvel meiri og betri íslendingar í hjartanu en við innfæddir. Mörgu býlinu munu ungu húsfreyjurnar hafa bjargað frá því að fara í eyði, enda var þetta dugn- 4 Pottasett - Gæðastál, orkusparandi tvöfaldir botnar. Pottasett - Gæðastál ^ Orkusparandi tvöfaldir botnar - Sterk glerlok 4 Arcopal 44 hlutir. Sérlega fallegt hvítt kaffi- og matarstell. 44 hlutir úr höggþolnu Opalgleri á ótrúlega hagstæSu verði. Má nota í örbylgjuofni, þolir mikinn hita og má þvo í uppjDvottavél. Arcopal þolir allt. Samanstendur af: 6 bollar, undirskálar og kökudiskar, 0 19 cm, 6 matardiskar, súpudiskar og desertskálar 0 12 cm, 6 eggjabikarar, 6 glös og 2 skálar 0 13 cm og 24 cm. Við ábyrqjumst að bú getur bætt í settiS næstu 3 árin. Verð kr. 6.790 EF ÞÚ KAUPIR EDA PAIUTAR FÆRDU STÓRA QUELLE-LISTAIUIU ÓKEYPIS! QUELLE Þýðingarlisti - Inneignarávísun Vöruúrval á 1300 bls. Allt sem fjölskyldan og heimilið þarfnast. Fatnaður, skór, búsáhöld, gjafavara, heimilisvara, nytjavara, ratmagnstæki stór og smá, myndavélar, verkfæri. Listinn kostar 700 kr. og honum fylgir íslenskur þýðingarlisti og inneignarávisun fyrir verði listans. MADELEINE TÍSKULISTINN Glæsilegur tískufatnaður fyrir kvenfólk. Fatnaður, skór og fylgihlutir í algjörum sérflokki. Þetta er einstakur listi fyrir konur sem vilja fatnað eins og hann gerist bestur. Listinn er 160 bls. og kostar kr. 500. ICH MAG'S ICH TRAG'S STÓR NÚMER Konur sem þurfa stór númer geta nú valið úr fallegum fatnaði skv. nýjustu tisku. I þessum lista eru númer a.m.k upp I stærð 54. Einnig undirfatnaður, baðfatnaður o.fl. Listi sem verður sífellt vinsælli. Listinn er 84 bls. og kostar kr. 300. Ef þú kaupir Quelle listann færðu þennan ókeypis. EURO KIDS BARNALISTI Barnalisti með skemmtilegum barnafatnaði, rúmfatnaði og margs konar aukahlutum og spennandi hugmyndum fyrir börn. Listinn kostar kr. 200. Fylgir Quelle listanum ókeypis. ,L I S T A khxjp Pottasett úr ryðfríu gæðastáli. Slær í gegn í öllum góðum eldhúsum um allan heim. Handföngin eru úr hitaeinangrandi efni og Ivöfaldur botn styttir suðuna og tryggir orkusparnað. Pottarnir henta á allar gerðir eldavéla og þá má þvo í uppþvottavél. I settinu eru: 1 hár suöupottur 0 16 cm, 2 lágir suðupottar 0 16 og 20 cm, 1 mjólkurpottur 0 14 cm og 3 skálar, 0 14, 16 og 18 cm. Verð kr. 5.490 5 pottar og 3 skálar. Sterk glerlok, hitaeinangrandi handföng, orkusparandi tvöfaldir botnar. Nú getur (oú látið Ijós (oitt skína i eldhúsinu meS eldhúsáhöldunum frá Practica úr háglansandi rySfríu gæöastáli. Svört handföng úr hitaeinangrandi efni og meS fallegri gyllingu. Oll áhöldin má (ovo í uppjovottavél og (oau passa fyrir allar gerSir eldavéla. Tvöfaldir botnar tryggja hagkvæma orkunotkun og bestu mögulega eldunareiginleika. Þetta eru 8 hlutir: 2 lágir pottar meS lokum, (overmál 16 og 20 cm, 1 hár pottur meS loki, (overmál 16 cm, 1 skaftpottur, (overmál 16 cm, 1 hár mjólkurpottur og 3 skálar, (overmál 18, 20 og 22 cm. VerS kr. 9.880
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.