Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Ægir fer
700 mílur
eftir skipi
ALVARLEG bilun í aðalvél varð
í lciguskipi Eimskipafélagsins,
Europe-Feeder, um 700 sjómílur
suðvestur af Reykjanesi á sunnu-
dag. Fimmtán manns eru um
borð, tveir íslendingar, auk
Þjóðverja, Pólveija og Filippsey-
inga. Varðskipið Ægir hélt í gær
áleiðis á móti skipinu til þess að
draga skipið inn til hafnar.
í fréttatilkynningu frá Eimskipa-
félaginu segir að engin hætta sé á
ferðum og engar skemmdir hafi
orðið á farmi skipsins. Skipið er
statt um það bil miðja vegu milli
íslands og Nýfundnalands og er
áætlað að Ægir komi inn með skip-
ið í togi 4. apríl.
Europe-Feeder er nýtt gáma-
flutningaskip sem Eimskip tók á
leigu til að annast flutninga milli
Islands og N-Ameríku ásamt
Skógafossi.
í frétt Eimskips segir að ljóst
sé að viðgerð muni taka nokkurn
tíma og sé unnið að því að fínna
annað hentugt skip til þess að ann-
ast þessa flutninga meðan á við-
gerð stendur þannig að lágmarks-
röskun verði á siglingaleiðinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Útför Alfreds Jolsons biskups gerð í gær
ÚTFÖR Alfreds Jolsons, biskups kaþólskra á íslandi, var gerð frá Landa-
kotskirkju í gær. Alfred Jolson, sem meðal annars var af norskum og
íslenskum ættum, varð biskup kaþólskra hérlendis árið 1987. Hann
fæddist 18. júní árið 1928 í Fairfield í Connecticut í Bandaríkjunum og
var á 66. aldursári þegar hann lést. Móðir Alfreds, Justine E. Jolson,
af írskum ættum, hvílir einnig hérlendis. Fjölmenni var við útförina.
Aldrei hafa fleiri laxar
borist á land en í fyrra
Fiskifræðingar spá miðlungs góðu veiðisumri í ár
HEILDARFJÖLDI veiddra og endurheimtra laxa á íslandi 1993
var 217.649 laxar, sem er mesti fjöldi frá upphafi og munar
mest um aukningu í hafbeit. „Þetta hefur verið gríðarleg aukn-
ing síðustu árin og var met í hafbeitinni 1993. Þetta er í fyrsta
sinn sem heildarfjöldi laxa fer yfir 200.000. Alls endurheimtust
168.427 laxar úr hafbeit, 39.025 laxar veiddust á stöng og 6.946
laxar veiddust í net í ám. Þá hafa alls fimm jarðir á Vesturlandi
rétt til netaveiða í sjó og í lagnir þeirra veiddust 3.251 lax,“ sagði
Guðni Guðbergsson fiskifræðingur á ársfundi Veiðimálastofnunar
og árlegum formannafundi Landssambands stangaveiðifélaga sem
haldinn var í gærmorgun.
í fréttabréfí Veiðimálastofnunar
sem dreift var á fundinum eru horf-
ur fýrir sumarið 1994 skoðaðar, en
sérfræðingar stofnunarinnar hafa
að undanfömu verið að stilla saman
strengi sína í þeim efnum. Þar seg-
ir m.a. að smálaxagöngur 1994
geti aldrei orðið nema í meðallagi
og eru rökin þau að sjóganga
gönguseiða hafí verið rýr vegna
kulda, en á móti komi að þau seiði
sem fóru út hafi verið væn og góð
og ástand sjávar gott. Þar stendur
einnig: „Síðasta sumar var smá-
laxagengd í meðallagi góð sunn-
an-, vestan- og norðvestanlands og
all mikil norðaustanlands. í sam-
ræmi við það ætti stórlaxagengd
að vera í meðallagi sunnan og vest-
an til á landinu, en í góðu meðal-
lagi norðaustanlands. Af framan-
sögðu má ráða, að veiði sunnan-
og vestanlands ætti að vera nærri
meðallagi, en í slöku meðallagi
norðanlands, en þó betri vestan til
en austan. Stórlax ætti hins vegar
að vera mjög áberandi í veiði á
norðanverðu landinu.
+ • •
Ibúðir byggðar fyrir um 1 Vi milljarð í Kópavogi \
Reiknað með að íbú-
um fjölgi um fjög-
ur þúsund á 5 árum t
GERT er ráð fyrir að byggðar verði rúmlega 1.500 íbúðir á næstunni |
í Kópavogsdal og eru 7-800 þegar í byggingu eða við það að komast
í gagnið. Gunnar I. Birgisson forseti bæjarstjórnar Kópavogs segir,
að íbúðirnar kosti milli átta og tíu milljónir hver og kostar bygging
þeirra því um 1 Vi milljarð króna. Nú þegar eru um 700 einstakling-
ar fluttir í dalinn og segir Gunnar, að reiknað sé með að íbúum í
bænum muni fjölga um 6-800 á ári næstu fimm árin.
Uppbyggingin er einkum gerð á
fjórum stöðum, það er Nónhæð,
botni Kópavogsdals, hluta Digra-
neshlíða og Fífuhvammslandi.
Gunnar I. Birgisson segir, að inn á
svæðið séu þegar komnar allar
stofnbrautir og götur, flestallar
malbikaðar, auk húsnæðis fyrir
skóla, leikskóla og íþróttastarf. „Nú
þegar eru 6-700 einstaklingar flutt-
ir í dalinn, bæði Kópavogsbúar og
fólk úr nágrannasveitarfélögum,
sem þýðir að 7-800 íbúðir eru þeg-
ar í byggingu eða að komast í gagn-
ið,“ segir Gunnar. Reiknað er með,
að í dalnum sjálfum verði um 1.200
íbúðir og síðan er búið að úthluta
300 íbúðum í Fífuhvammslandi.
Framkvæmdirnar hófust 1992 og .
hafa haldið áfram af fullum krafti
fram á þennan dag, að sögn Gunn- j
ars. Búið er að byggja íþróttahús |
og fyrsta áfanga grunnskóla lokið.
Leikskóli verður opnaður 30. apríl
og fyrirhugað er að opna annan á
næsta ári. „Reiknað er með, að á
næstu fímm árum verði aukning
íbúa um 6-800 manns á ári í bænum
en þunginn af byggingafram-
kvæmdum á höfuðborgarsvæðinu
er í Kópavogsdalnum." Gunnar seg- k
ir jafnframt, að meðalverð íbúðar .
sé um 8-10 milljónir, þannig að um »
er að ræða Wi milljarð króna. j
Annað starfsár Orkester Norden
17 íslensk ungmenni
valin í hljómsveitina |
SAUTJÁN íslensk ungmenni voru valin til að taka þátt í Orkester
Norden í sumar en það er norrænt samstarfsverkefni fyrir unga
tónlistarmenn. Alls voru 100 ungir hljóðfæraleikarar valdir til þátt-
töku úr hópi 500-600 sem sóttu um frá öllum Norðurlöndunum.
„Þetta er stórglæsilegur árangur
og frábært dæmi um góða tónlistar-
kennslu og hæfileikaríkt tónlistar-
fólk á íslandi," sagði Katrín Árna-
dóttir fíðluleikari og stjórnarmaður
í Orkester Norden í samtali við
Morgunblaðið.
Orkester Norden var stofnað af
Sambandi Norrænu félaganna á
Norðurlöndum, Norðurlandaum-
dæmi Lionshreyfíngarinnar og
Jeunesses Musicales á Norðurlönd-
um. Fjárhagslegur bakhjarl verk-
efnisins er Norræni menningar-
málasjóðurinn og Lionshreyfingin
veitir öllum þátttakendum styrki til
þess að standa undir hluta útgjalda
vegna þátttökunnar. Um er að ræða
sumamámskeið, sem að þessu sinni
verður í Svíþjóð 2.-10. júlí og að
því loknu tekur við níu daga tón-
leikaferð um Norðurlöndin undir
stjórn finnska tónskáldsins og
hljómsveitarstjórans Leifs Seger- j
stams.
41 sótti um
Hljómsveitina skipa ungmenni á
aldrinum 15-25 ára. Umsækjendur
þurftu að senda inn segulbandsspól-
ur með leik sínum á fýrirfram
ákveðnum verkum og valdi dóm-
nefnd úr án þess að vita hveijir
flytjendumir vom eða frá hvaða
landi. 41 íslendingur sótti um og
28 sendu inn spólur. Þetta er annað |
starfsár Orkester Norden en í fyrra
voru 7 íslenskir tónlistarmenn með-
al þátttakenda. Fimm þeirra verða »
aftur í hljómsveitinni í sumar.
í dag
Afkoma ÚA
Afkoma Útgerðarfélags Akur-
eyrar hefur batnað til muna 27
Heiðursborgari
Sigfús Halldórsson, tónskáld, er
nýkjörinn heiðursborgari Kópa-
vogs 33
Úkraína
Úrslit kosninganna á sunnudag
áfall fyrir forsetann 30
Leiðari_____________________
Aðild að Svalbarðasamkomulagi
32
► Elva Rut vann brons á NM
- Kristinn sjötti á norska
meistaramótinu í stórsvigi —
Allt opið í körfuboltanum -
Drengjaliðið stendur sig vel á
Ítalíu
Rúmlega sextugur maður lést þegar vélsleði féll niður í snjógil í Skálavík
Konu bjargað
eftir 11 stundir
Bolungarvfk.
BANASLYS varð í Skálavík um hádegisbil á sunnudag er 61 árs
gamall maður lést þegar vélsleði sem hann var á féll ofan í snjó-
gil. Eiginkona mannsins, sem var með honum á sleðanum, slasað-
ist og var orðin mjög köld og hrakin eftir að hafa legið í um
ellefu klukkustundir á slysstað.
Hjónin, sem búsett eru í Bolung-
arvík og eiga sumarbústað í Skála-
vík, höfðu farið þangað deginum
áður. Vitað var að þau áætluðu að
fara aftur til Bolungarvíkur um
hádegisbil á sunnudag. Um tuttugu
til þijátíu mínútur tekur að fara
þessa leið á vélsleða í góðu færi.
Þegar leið á daginn var farið að
grennslast fyrir um þau og um
kvöldmatarleytið fór maður á vél-
sleða út í Skálavík til að svipast
eftir þeim. Þegar honum varð íjóst
að þau voru ekki þar og höfðu ekki
skilað sér til Bolungarvíkur ákvað
hann að óska eftir aðstoð og var
björgunarsveitin Ernir þá kölluð út
og hófst skipulögð leit kl. 21.45.
Fundust eftir
klukkustundar leit
Leitarmenn fóru á sjö vélsleðum
og auk þess var farið á snjóbíl
sveitarinnar. Leitað var upp Hlíð-
ardal og yfír Skálavíkurheiði og
niður Breiðabólsdal.
Eftir um klukkustundar leit
fundust hjónin ofan í snjógilinu
sem myndast hafði þar í árfarvegi
Breiðabólsár, sem ekki er vatns-
mikil á þessum árstíma.
Talið er að maðurinn hafí iátist
samstundis, en konan slasaðist
nokkuð. Bjó hún um sig á slysstað
og má það teljast mikið þrekvirki
að þrauka allan þennan tíma með-
an hún beið þess að hjálp bærist.
Gunnar Leósson
Þar sem vélsleðinn fór fram af
gilbrúninni er um sjö til átta metra
fall, en ljóst er að hann hefur ekki
verið á mikilli ferð er óhappið varð.
Hjónin eru þaulkunnug á þess-
um slóðum, þar sem þau hafa far-
ið þessa leið oft á vetri mörg und-
anfarin ár.
Þau voru vel búin til ferðarinn-
ar, en slæmt skyggni var á þessum
slóðum, slyddumugga og snjó-
blinda.
Maðurinn sem lést hét Gunnar
Leósson og var pípulagningameist-
ari í Bolungarvík. Hann var fædd-
ur 26. janúar 1933 og lætur eftir
sig eiginkonu og fimm uppkomin
börn. Gunnar
1