Morgunblaðið - 15.10.1994, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
MESSUR
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1994 37
HANSKR.
EYJÓLFSSON
í DAG er níræður öð-
lingurinn Hans Kr.
Eyjólfsson fyrrum
bakarameistari á
Vesturgötu og síðar
móttökustjóri í Stjórn-
arráði.
Hann er fæddur í
Bjarnaeyjum á
Breiðafirði 15. októ-
ber 1904. Foreldrar
hans voru Guðrún
Hansdóttir og Eyjólf-
ur Eyjólfsson, sem þar
bjuggu.
Hálfs árs gamall
var hann tekinn í fóst-
tugs.
isráðherra. Hann vann
með tveimur forsetum
og átta forsætisráð-
herrum og enn fleiri
ríkisstjómum þessi rúm
tuttugu ár sem hann
var móttökustjóri og
hafði jafnvel einn for-
sætisráðherrann á orði,
að hann væri hæfasti
maðurinn í húsinu.
Þegar Hans kom til
starfa í Stjórnarráðinu
var hann 65 ára gam-
all og hefði undir venju-
legum kringumstæðum
átt að vera þar til sjö-
En starfslokum Hansa var
samt frestað hvað eftir annað og
ur af Margréti Magnúsdóttur og
Sigurvin Hanssyni sem var skip-
stjóri á ísafirði. Hjá fósturforeldrum
dvaldist hann til 4 ára aldurs. Flutt-
ist fóstra hans þá til Reykjavíkur
til dóttur sinnar Steinunnar Sigurð-
ardóttur sem gift var Sveini Hjart-
arsyni bakarameistara að Bræðra-
borgarstíg 1. Þar ólst Hans upp
með fósturbörnum þeirra hjóna.
Minnist hann jafnan þessara ára
með mikilli ástúð til þessa fólks.
Þegar hann var 13 ára hóf hann
störf í bakaríi Sveins og nam þar
bakaraiðn. Að námi loknu í Iðn-
skóla Reykjavíkur fór hann til frek-
ara náms í kökugerð og dvaldist
hann í Kaupmannahöfn í 3 ár hjá
viðurkenndu brauðgerðarhúsi sem
var í eign Aage Hansen sem einnig
var aðalkennari hans við skólann.
Námið gekk mjög vel og hann braut-
skráðist úr skólanum með 1. verð-
laun, en verðlaunin voru forláta silf-
urbikar áletraður. Að námi loknu
kom hann aftur til starfa í bakaríi
Sveins og starfaði eingöngu við
kökugerð. Þegar Hans minnist á
Vesturbæinn glaðnar jafnan yfir
honum og dylst engum, hve mjög
hann ann því afbragðsfólki, sem
hann átti samleið með.
Eftir að Sveinn lést í nóvember
1944 stjórnaði Hans bakaríinu og
starfaði þar sem bakarameistari.
Eftir langan og strangan vinnudag
við brauðgerð tókst honum að auka
„degi í æviþátt" og hóf starf sem
móttökustjóri í forsætisráðuneytinu
og vann þar til ársins 1990. Hann
hefur tekið virkan þátt í félags-
starfi iðngreinar sinnar. Arið 1942
gerðist hann félagi í Oddfellow-regl-
unni og reyndist hann þar sem ann-
ars staðar hollur félagi.
Hinn 24. maí 1930 kvæntist hann
Ólöfu Jónsdóttur frá Isafirði og
eignuðust þau þrjú böm. Árið 1991
fluttust þau að Droplaugarstöðum
og leið þeim þar vel í umsjá þess
góða fólks sem þar starfar, uns
Ölöf andaðist 9. september sl. og
er söknuður hans sár.
Eins og nærri má geta er vini
okkar farið að förlast, en mér er
sagt af nærgætnum ástvinum hans,
að enn séu honum hugleiknar sióðir
þær í Kaupmannahöfn, þar sem
hann átti jafnan góðar stundir í
broddi lífsins sem hann minnist
ávallt með trega. Börnin hans og
makar þeirra hafa nú sýnt honum
þá sæmd að fara með honum á forn-
ar slóðir í Kaupmannahöfn og engan
mann hef ég heyrt tala hlýlegar um
þá borg en Hans Kr. Eyjólfsson og
eiga þó ýmsir ljúfar endurminningar
um hana. Við hérna á miðloftinu
sendum þér hlýjar kveðjur, góði
drengur, úr útnorðri til landsuðurs.
Guðmundur Benediktsson.
Hartnær sautján ár unnum við
Hansi saman í Stjórnarráðshúsinu,
þar sem hann var móttökustjóri á
árunum 1969 til 1990. Það hafði
ekki lítið að segja að koma til vinnu
á hveijum morgni og hitta fyrir
þennan elskulega og „elegant“ full-
orðna mann, sem alltaf var mættur
fyrstur allra, í góðu skapi og fagn-
aði samstarfsfólkinu. Hans einstaka
viðmót hafði ósjálfrátt áhrif á okkur
öll sem með honum unnum. Hansi
hafði sérstakt lag á að taka virðu-
lega á móti gestum sem erindi áttu
í húsið við forseta íslands og forsæt-
meira að segja sérstakar bókanir
gerðar í ríkisstjórn um að hann
mætti halda áfram starfi sínu eins
og heilsan leyfði. Enginn gat hugsað
sér Stjórnarráðshúsið án Hansa svo
sérstakur er hann og vel metinn.
Margir eru þeir sem leið hafa átt
um miðbæinn, sem kannast við
þennan virðulega, hvíthærða, full-
orðna mann sem stóð löngum á
tröppum Stjórnarráðshússins og
naut þess að púa stóran vindil.
Hann átti það einnig til að standa
á stéttinni fyrir framan húsið og
gefa dúfunum. Þær biðu á Útvegs-
bankahúsinu og vöktuðu dyrnar á
Stjórnarráðshúsinu og hreyfðu sig
ekki nema Hansi kæmi út á tröpp-
urnar með poka í höndum, þá flaug
skarinn yfir Lækjartorgið. Gamli
maðurinn hafði lúmskt gaman af
þessu og alltaf átti hann brauðmola
handa þessum fiðruðu vinkonum
sínum. Þær hurfu þegar Hansi hætti
að vinna en áttu það til að mæta á
stéttina ef hann var gestkomandi í
húsinu.
Hansi, ásamt konu sinni Lóu,
hefur ávallt verið hrókur alls fagn-
aðar þegar starfsfólk hússins kemur
saman og hefur við slík tækifæri
ævinlega sungið fyrir okkur bakara-
sönginn „Kan du lave kager“ (á
dönsku að sjálfsögðu) og hefur hann
á öllum árshátíðum reynt að kenna
okkur „Charleston" með misjöfnum
árangri þó, og aldrei hefur hann
getað skilið að við „ungar stúlkurn-
ar“ skulum ekki kunna að dansa
Lancier og Charleston.
Hansi starfaði með okkur þar til
fyrir íjórum árum, þá orðinn 86 ára
gamall. Honum fannst að hann
þyrfti að sinna henni Lóu sinni dálít-
ið meira en heilsu hennar hafði þá
hrakað nokkuð. Þau fluttu skömmu
síðar af Rauðalæknum, þar sem þau
bjuggu lengst af, í þjónustuíbúð á
Droplaugarstöðum. Við söknum Lóu
öll mikið en hún lést fyrir skömmu
eftir erfið veikindi.
Það var gaman að heyra Hansa
segja frá ýmsu sem á daga hans
hafði drifið áður en hann byijaði að
vinna í Stjórnarráðinu. Hann hafði
til dæmis verið bakari í hálfa öld.
Hann byrjaði að vinna í Sveinsbak-
aríi 13 ára gamall og eftir nám í
Iðnskólanum sigldi hann til kóngsins
Kaupmannahafnar þar sem hann
lærði fínni köku- og konfektgerð.
Honum líkaði afar vel í Kaupmanna-
höfn og talar um þá borg með sér-
stakri hlýju. En Lóa beið hans heima
og einnig starf í Sveinsbakaríi, fyrir-
tæki fóstra hans, þar sem hann vann
lengst af og rak svo sjálfur frá árinu
1944. Um tíma á síldarárunum var
hann bakari norður í Djúpuvík á
Ströndum. Það þótti honum ævin-
týralegur timi. Hann vann sem bak-
ari um skeið á Gullfossi þegar hann
var í siglingum milli íslands, Kaup-
mannahafnar og Leith og flestir
„sigldu“ í þá daga. Þau hjónin ferð-
uðust töluvert ytra og héldu t.d. upp
á silfurbrúðkaupsafmælið „með
elegans" í Monte Carlo. Hann kynnt-
ist mörgu og mörgum og er sannur
heimsmaður. Hann hefur svo sann-
arlega lifað timana tvenna.
Ég óska Hansa vini mínum inni-
lega til hamingju ineð afmælið og
vona að hann eigi góða daga.
Vigdís Bjarnadóttir.
ASKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsjónusta kl, 14 á vegum
Kirkju heyrnarlausra.
HRAFNISTA: Guðsþjónusta kl.
14. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermdar verða Karólína Jóhann-
esdóttir og Kristín Dagmar Jó-
hannesdóttir, Aðallandi 2. Ein-
söngur: Hanna Björg Guðjóns-
dóttir. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Basar Kvenfélagsins
verður að lokinni guðsþjónustu í
safnaðarheimilinu. Pálmi Matthí-
asson.
DÓMKIRKJAN: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Kór Vesturbæjar-
skóla syngur. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu eftir messu.
Bænaguðsþjónusta kl. 14. Hjalti
Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Sveinbjörn
Sveinbjörnsson messar. Organisti
Kjartan Ólafsson. Félag fyrrver-
andi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Barnakór og kórskóli
Grensáskirkju syngja. Messa kl.
14. Altarisganga. Kammerkór
ungs fólks í Garðakirkju syngur.
Kórstjóri Margrét Pálmadóttir.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
morgunn kl. 10. Viborg G. Guðna-
dóttir hjúkrunarfræðingur flytur
erindi, sem hún nefnir: Út úr ein-
semdinni. Messa og barnasam-
koma kl. 11. Organisti Hörður
Áskelsson. Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Org-
anisti Pavel Manasek. Sr. Ingólfur
Guðmundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kór Langholtskirkju (hóp-
ur I) syngur. Barnastarf á sama
tíma. Molasopi að guðsþjónustu
lokinni.
LAUGARNESKIRKJA: Á sunnu-
dag er kirkjudagur í Laugarnes-
kirkju. Barnaguðsþjónusta kl. 11
verður að vanda með fjölbreyttu
sniði. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Þar verður m.a. helgaður og tek-
inn í notkun nýr altarisdúkur sem
Kvenfélag Laugarneskirkju hefur
gefið kirkjunni. Sigrún Hjálmtýs-
dóttir leiðir söng og Jónas Þórir
annast orgelleik. Að guðsþjónustu
lokinni fer fram kaffisala Kvenfé-
lagsins í safnaðarheimilinu. Þeir
sem þurfa akstur til og frá kirkju
láti vita í s. 889422 sunnudag kl.
10-12. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
1.1. Munið kirkjubílinn. Messa kl.
14. Orgel- og kórstjórn Reynir Jón-
asson. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónustunni
verður útvarpað. Þuríður Sig-
urðardóttir og Svava Kristín Ing-
ólfsdóttir syngja stólvers. Organ-
isti Viera Gulasciova. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Barnastarf á sama tíma í umsjá
Elínborgar Sturludóttur og Sigur-
línar ívarsdóttur.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organleikari Sigrún Stein-
grímsdóttir. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra.
Fundur með foreldrum fermingar-
barna eftir guðsþjónustuna. Kaffi-
veitingar.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Daníel Jón-
asson. Samkoma Ungs fólks með
hlutverk kl. 20.30. Gísli Jónasson
DIGRANESKIRKJA: Barnasam-
koma í Digraneskirkju kl. 11.
Guðsþjónustak kl. 14. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma í umsjón Ragn-
ars Schram. Guðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 18. Prestur í guðs-
þjónustunum sr. Hreinn Hjartar-
son, organisti Lenka Mátéova.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Valgerður,
Hjörtur og Rúna aðstoða. Guðs-
Guðspjall dagsins:
(Matt. 22.). BrúðkaupS'
klæðin.
þjónusta kl. 14. Organisti Bjarni
Þór Jónatansson. Fundur með for-
eldrum fermingarbarna gr Hamra-
og Rimaskóla eftir guðsþjón-
ustuna. Vigfús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Oddný
Jóna Þorsteinsdóttir. Kristján Ein-
ar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Örn Falkner.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Fundur
og kaffi með þeim í Borgum að
lokinni guðsþjónustu. Barnastarf
í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Yngri og eldri deild
barnakórs Seljakirkju syngja.
Stjórnandi Margrét Gunnarsdótt-
ir. Guðsþjónusta kl. 14. Valgeir
Ástráðsson predikar. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Sóknar-
prestur.
FRI'KIRKJAN í Rvík: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.15. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cec-
il Haraldsson.
KVENNAKIRKJAN: Messa í Hall-
grímskirkju sunnudag kl. 20.30.
Guðfræðinemarnir Inga Hanna
Guðmundsdóttir, Karítas Krist-
jánsdóttir og Guðrún Karlsdóttir
fjalla um máltíðina, fyrirgefning-
una og samfélagið í altaris-
göngunni. Eydís Franzdóttir leikur
á óbó. Sönghópur Kvennakirkj-
unnar leiðir almennan söng við
undirleik Laufeyjar Ólafsdóttur.
Kaffi á eftir í safnaðarheimilinu.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK við Holtaveg:
Samkoma sunnudag kl. 16.30.
„Vertu trúr allt til dauða." Sr. Ólaf-
ur Jóhannsson er ræðumaður.
Gospelkvartettinn syngur. Barna-
stundir og barnagæsla á sama
tíma. Léttur kvöldverður eftir sam-
komu.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelf-
la: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Mike Fitzgerald. Almenn
samkoma kl. 16.30. ræðumaður
Hafliði Kristinsson. Barnasam-
koma og barnagæsla á sama tíma.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Hátíðar-
guðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Kirkjudagurinn er árviss hjá Óháða
söfnuðinum og er hann ávallt
haldinn hátíðlegur á sunnudegi í
októbermánuði. Guðsþjónustan
er þungamiðja hátíðarinnar. Guð-
rún Lóa Jónsdóttir, sópransöng-
kona, syngur einsöng og ferming-
arbörn lesa ritningarlestra. Kirkju-
kór safnaðarins syngur undir
stjórn Péturs Máté organista.
Sunnudagaskólinn verður á sama
tíma. Kaffisala Kvenfélagsins
verður í Kirkjubæ eftir guðsþjón-
ustuna. Þórsteinn Ragnarsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Dagur
heimilasambandsins. Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Heimilasam-
bandssystur mæta í Garðastræti
40 kl. 17. Hjálpræðissamkoma kl.
20. Anna Voldhaug, Anne Gurine
og Daníel Óskarsson og Heimila-
sambandssystur taka þátt í sam-
komum dagsins.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Jón Þprsteinsson.
GARÐASÓKN: Fræðslustundir
verða laugardagana 15., 22. okt.
og 5. nóv. nk. kl. 13-14. í dag
mun dr. Gunnar Kristjánsson flytja
erindi í safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli um efnið: Myndlist og tákn-
fræði kirkjunnar. Sunnudaginn 6.
nóv. kl. 14 mun dr. Gunnar préd-
ika við guðsþjónustu í Garðakirkju.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Fermingarbörn að-
stoða. Barnakórinn syngur.
Organisti Helgi Bragason. Prestur
sr. Þórhildur Olafs. Gunnþór Inga-
son.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Sigurður Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Á
sunnudag er Kirkjudagur Fríkirkj-
unnar. Barnaguðsþjónusta kl. 11
og guðsþjónusta kl. 14. Geir
Waage prestur í Reykholti og for-
maður Prestafélags Islands mun
prédika og þjóna fyrir altari. Við
guðsþjónustuna verður sunginn
og kynntur gregorískur messu-
söngur. Að lokinni guðsþjónustu
hefst svo hin árlega kaffisala
Kvenfélagsins, að þessu sinni í
Álfafelli, sal íþróttahússins við
Strandgötu. Allur ágóði rennur til
starfsins í kirkjunni en þess má
geta að kvenfélagskonur bera all-
an kostnað af endurbótum sem
nú fara fram á lóð kirkjunnar. Ein-
ar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
BESSASTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta kl. 14. Kirkjudagur. Nemend-
ur úr Álftanesskóla og Tónlistar-
skóla Bessastaðahrepps taka
þátt í athöfninni. Kaffisala í hátíða-
sal íþróttahússins að athöfn lok-
inni. Bragi Friðriksson.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkju-
skóli í dag laugardag í Stóru-
Vogaskóla kl. 11. Bragi Friðriks-
son.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabíl-
inn. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur
Ólafur Oddur Jónsson. Ræðuefni:
Stefnumót trúar og listar. Konur
í Kvenfélagi Keflavíkur, sem halda
upp á 50 ára afmæli félagsins um
þessar mundir, fjölmenna til kirkju
og lesa lestra dagsins. Kór Kefla-
víkurkirkju syngur. Organisti Einar
Örn Einarsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Biblíulestur
mánudagskvöld kl. 20.30. Tómas
Guðmundsson.
KOTSTRANDARKIRKJA: Messa
kl. 14. Tómas Guðmundsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Fræðslukvöld um
hjónaband og sambúð mánu-
dagskvöld kl. 20.30 í kirkjunni. Sr.
Þorvaldur Karl Helgason flytur
erindi og svarar fyrirspurnum.
Bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni
alla miðvikudaga kl. 17.30. Svavar
Stefánsson.
HJALLAKIRKJA, Ölfusi: Messa
sunnudag kl. 14. Rúta fer frá
grunnskólanum í Þorlákshöfn kl.
13.30 og til baka að messu lok-
inni. Svavar Stefánsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL:
Fjölskylduguðsþjónusta verður í
Ólafsvallakirkju sunnudag kl. 14.
Axel Árnason.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprest-
ur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kristján
Björnsson.
BLÖNDUÓSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Barnasamvera á sama
tíma í safnaðarsal kirkjunnar í
umsjá barnafræðara. Fundur með
fermingarbörnum og foreldrum
þeirra strax eftir guðsþjónustuna.
Kristján Björnsson.
HÓLANESKIRKJA, Skagaströnd:
Messa kl. 17. Fundur með ferm-
ingarbörnum og foreldrum þeirra
að henni lokinni. Egill Hallgríms-
son.
REYNIVALLAKIRKJA: Messa kl.
14. Gunnar Kristjánsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í dag laugardag í kirkj-
unni kl. 11. Stjórnandi Sigurður
Grétar Sigurðsson. Kirkjuskóli
yngstu barnanna í safnaðarheim-
ilinu sama dag kl. 13. Stjórnandi
Axel Gústafsson. Messa í kirkj-
unni sunnudag kl. 14. Björn Jóns-
son.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11.15. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Árni Pálsson.