Morgunblaðið - 04.03.1995, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.03.1995, Qupperneq 2
9 f 2 LAUGARDAGUR 4. MARZ 1995 FRÉTTIR Hundrað starfsmönnum í átaksverkefni sagt upp RUMLEGA 100 starfsmörmum í átaksverkefn- um við grunnskóla Reykjavíkur hefur verið sagt upp störfum frá og með 1. mars síðastliðn- um og var þeim tilkynnt um uppsögnina í gær, 3. mars. Að sögn Kristínar Amadóttur aðstoðarkonu borgarstjóra, var bréf sent til skólastjóra í gærmorgun, þar sem fram kemur að það sex mánaða tímabil sem átaksverkefn- ið náði til væri runnið út. í bréfí skólaskrifstofu Reykj avíkurborgar, til skólastjóra grunnskóla Reykjavíkur, segir að 1. mars sL hafi runnið út það sex mánaða tímabil sem átaksfólk í grunnskólum hafi ver- ið ráðið tfl. Fyrir mánuði hafí skólaskrifstofa ritað borgaryfirvöldum bréf og óskað eftir að atvinnuátakið yrði framlengt til 31. maí 1995. Fram kemur að borgaryfirvöld hafi þegar sent stjóm atvinnuleysistryggingasjóðs beiðni um framhald verkefnisins en að svar hafi enn ekki borist. Þær upplýsingar hafi fengist að beðið sé reglugerðar sem væntanleg sé á.hvérri stundu. Þá segin „Á meðan svo er biður Skólaskrifstofa Reykjavíkur skólastjóra að tilkynna viðkom- andi starfsmönnum þetta og jafnframt að gera þeim grein fyrir að þeir mæti ekki til vinnu fyrr en lausn hefur fundist á málinu." Kristín sagði að samþykki atvinnuleysis- tryggingasjóðs þyrfti ef endurráða ætti fólkið tfl starfa en erindi þess efnis biði afgreiðslu ráðherra. Sagði hún jafnframt að enginn upp- sagnarfrestur væri þegar um átaksverkefiii væri að ræða. Einungis væri um tímabundna ráðningu að ræða á meðan bótaréttur starfe- manna væri endumýjaður. „Okkur er það rnikið kappsmál að á þessu finnist lausn og vorum að vonast eftir að það yrði í dag,“ sagði Kristín. Skautað á Tjöminni ÞAÐ hefur viðrað vel til skauta- iðkunar um sunnanvert landið að undanfömu og bömin hafa not- fært sér það óspart enda ekki skólagöngu fyrir að fara meðan verkfall stendur. Nú er hins vegar útlit fyrir að veðrið breytist því spáð er lægð upp að landinu með austan hvassviðri og ofankomu. ------------- Maður með leikfanga- byssu hand- tekinn VÍKINGASVEIT lögreglunnar var kvödd tfl um kvöldmatarleytið í gærkvöldi vegna manns sem talinn var vopnaður f Skeifunni, en hann hafði haft f hótunum við konu sem var farþegi í bíl sem hann ók. Eftir að maðurinn var handtekinn kom f ljós að hann var með leikfangabyssu í bílnum. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar hafði maðurinn ekið bíl sínum smávægilega utan í annan bíl f Skeif- unni og horfið af vettvangi. Hafði hann í hótunum við konuna sem var farþegi í bíl hans, en hún vildi tál- kynna lögreglunni um atburðinn. Að sögn lögregiunnar óttaðist konan um lff sitt og þegar maðurinn fór inn í hús við Skeifuna hringdi hún á lögreglu og sagði manninn vopnaðan. Víkingasveitarmenn handtóku manninn, sem er búsettur í Svíþjóð, í húsinu þar sem hann var gestkomandi og kom þá í Ijós að í bílnum var leikfangabyssa. Morgunblaðið/Kristinn Samtök fiskviimslu án útgerðar Meintri mismunun vís- að til samkeppnisráðs SAMTÖK fiskvinnslu án útgerðar, SFÁÚ, hafa leitað til samkeppnis- ráðs og óskað eftir því að ráðið taki til athugunar samkeppnismismun- un sem samtökin telja að viðgangist í fiskvinnslu. Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttarlögmaður rekur málið fyrir hönd SFÁÚ. í bréfi sem hann hefur ritað samkeppnisráði segir að aðalmismununin felist í því að þau fyrirtæki sem bæði reka fískvinnslu og útgerð og fengið hafa úthlutað kvóta endurgjaldslaust frá ríkinu fénýti þessar heimfldir og geti síðan flutt þá fjármuni beint og óbeint frá útgerð til fisk- vinnslu, þó að í raun sé um tvær atvinnugreinar að ræða. Samtök fiskvinnslu án útgerðar telja að niðurstaða þessa máls kunni að hafa úrslitaþýðingu um skilyrði tfl frjálsrar verðmyndunar á fiski og því sé hér um stórmál að ræða. Úrslit málsins kunni einnig að ráða mjög miklu um eflingu íslenskra fiskmarkaða og framtíðarþróun fiskvinnslunnar í landinu. I samtökunum eru 654 Meintur ræningi einnig grunaður um sprengjuhótun fyrirtæki með samtals um 1.400 starfsmenn. Varðhald til 13. mars HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr- skurðaði í gær 31 árs gamlan mann í gæsluvarðhald til 13. mars vegna rannsóknar RLR á ráninu í Lækjar- götu síðastliðinn mánudag. Dómari hafnaði kröfu RLR um gæsluvarðhald yfir konu á þrítugs- aldri, sem handtekin var ásamt manninum á Keflavíkurflugvelli í fyrradag. Þá hefur Morgunblaðið fengið staðfest að grunur lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli beinist að því að sami maður og grunaður er um að- ild að ráninu, hafi verið að verki þegar hringt var í afgreiðslu Flug- leiða í fyrramorgun og tilkynnt um sprengju um borð í Flugleiðavélinni á leið til Amsterdam. Sá grunur styðst m.a. við það að tekist hefur að rekja í sama síma- númer þrjú tiltekin símtöl við Kefla- víkurflugvöll f fyrramorgun. Maðurinn og konan komu of seint tfl flugsins tfl Amsterdam, en þang- að höfðu þau keypt miða. Þau voru þá handtekin af tollgæslu þar sem grunur hafði vaknað um að þau væru við ránið riðin. í fórum þeirra fundust um 700 þúsund krónur f reiðufé, að mestu Ieyti í erlendum gjaldeyri. Grunur leikur á að maðurinn hafi fyrst hringt á Keflavíkurflugvöll til að biðja um að vélinni yrði seinkað og þegar það bar ekki árangur hafí hann hringt að nýju og tilkynnt um sprengju í vélinni. Sprengjuhótunin er til rannsóknar hjá lögreglunni á Keflavfkurflugvelli en þess hefur verið óskað að RLR, sem fer með rannsókn Skeljungs- ránsins, yfirheyri manninn einnig vegna þess. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er þetta í fyrsta skipti sem sprengjuhótun gagnvart Flug- Ieiðum hefur leitt tfl þess að grunur beinist að ákveðnum manni og er því tahð að um prófmál verði að ræða komi málið fyrir dóm. í fyrrakvold voru þau færð fyrir dómara sem f gær ákvað að úr- skurða manninn í gæsluvarðhald til 13. mars en kröfu RLR um að kon- an yrði einnig höfð í haldi var hafn- að. Maðurinn skaut úrskurði dómara til Hæstaréttar. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins liggja engar játningar fyrir í málinu og ekkert sérstakt kom fram við húsleit á heimili mannsins, sem á að baki talsverðan feril í af- brotamálum, og hefur komið við sögu í fikniefnamálum síðustu ár. Beinist ekki að stjórnkerfinu í bréfi Jóns Steinars til sam- keppnisráðs segir ennfremur að erindið beinist ekki að stjómkerfi fiskveiðanna svo sem því hafi ver- ið komið á með lögum. Það sé hins vegar afstaða SFÁÚ að unnt sé og raunar skylt að tryggja að fylgifiskar þessa stjómkerfis valdi ekki þeirri mismunun milli aðila sem stunda fiskvinnslu í landinu sem raun ber vitni. Lögbundið stjómkerfi leiði ekki til samkeppnistruflunar Það sé meginatriði að lögbundið stjómkerfi í atvinnuh'fí eigi ekki að leiða til samkeppnistruflunar milh fyrirtækja hvort sem slík löggjöf kann að varða bankastarf- semi, starfsemi vátryggingafé- laga, iðnað, blaðaútgáfiii, útfarar- þjónustu eða fiskvinnslu, svo ein- hver dæmi séu tekin. MORGUNBLAÐIÐ Askorun til forsætisráðherra Breytingar á ákvörðun loðnuverðs AHAFNIR þijátíu og fjögurra Ioðnuskipa hafa sent forsætisráð- herra áskorun þess eftús að hann beiti öhum ráðum tfl þess að koma í veg fyrir áframhaldandi einhhða verðákvörðun kaupenda á Ioðnu, þannig að sjómenn og fuhtrúar þeirra fái eðhlega aðild að ákvðrð- un loðnuverðs í framtíðinni. í áskoruninni segir meðal ann- ars: „Undirritaðir vilja vekja at- hygli forsætisráðherra á því ófremdarástandi sem ríkir vegna verðmjmdimar á loðnu upp úr sjó um þessar mundir. Þetta ástand einkennist af einhliða verðákvörð- un og verðsamráði milli kaupenda, sem hafa á undanfömum árum stig af stigi lækkað hlutfallslegt verð á Ioðnu miðað við verð á loðnuafurðum. Troðið á hagsmunum sjómanna Við fullyrðum að kaupendur misnoti gróflega með þessu hátta- lagi sínu gfldandi reglu um frjálsa verðmyndun á sjávarfangi og út- koman er að troðið er á hagsmun- um sjómanna, þar sem laun þeirra eru að stærstum hluta undir því verði komin sem aflinn er seldur á. Dæmi um yfirgang kaupenda er að fyrir skömmu höfnuðu full- trúar þeirra í Verðlagsráði gávar- útvegsins að verðleggja loðnu að beiðni fuhtrúa sjómanna.“ ♦ » ♦--- Rúta valt niður Hval- nesskriður BILSTJÓRI slapp naumlega þegar rúta sem hann ók fór út af vegin- um í Hvalnesskriðum í gærdag. Henti maðurinn sér út úr bílnum, sem valt 150 metra niður í íjöru. Maðurinn rann um tvo um metra þar til hann stöðvaðist á steini, að sögn lögreglunnar á Homafírði. Slysið vfldi þannig til að steinn lenti á hhðarrúðu við sæti bflstjór- ans og brotnaði með þeim afleið- ingum að manninum fípaðist við aksturinn. Hann er ómeiddur en rútan, sem er fjögurra tonna, er talin ónýt. Fegnrðar- drottIling, Norðurlands SIGRÍÐUR Ósk Krist- insdóttir bar sigur úr být- um í Feg- urðarsam- keppni Norður- lands, sem haldin var í Sjallanum á Akureyri i gær- kvöldi. Sigriður Ósk er 19 ára nemi í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Jóhanna Erla Jóhannesdóttir, 19 ára nemi í Menntaskólanum á Akureyri, var kosin sport- stúlkan og einnig var hún valin b^sta. ljósmyndafyrirsætan. Vinsælasta stúlkan í hópi þeirra átta stúlkna, sem þátt tóku í Fegurðarsamkeppni • Norður- lands, var valin Antonía María Gestsdóttir, 19 ára nemi í VMA.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.