Morgunblaðið - 04.03.1995, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 04.03.1995, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MARZ 1995 49 MIIVIIMINGAR Mikill er söknuðurinn. Mikil er sorgin. Margar eru minningarnar. Nú kveðjum við þig Hilmir en minningin um þig lifír alltaf í hjört- um okkar og þakklætið fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Harmið mig ekki með tárum, þó að ég sé látinn. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri, að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur, en þegar þér hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. ók.) Vinamargur varst þú og hafðir alltaf tíma fyrir vini þína. Það er nú stórt skarð höggvið í vinahópinn og mikill er missirinn fyrir litlu fjölskylduna þína. Elsku Jóhanna, Guðrún María og Ingibjörg Aldís, megi algóður Guð gefa ykkur styrk í sorginni. „Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran). Vikar, Unnur, Sunneva og Sylvía. Elsku Himmi minn. Það voru hörmulegar fréttir sem ég fékk símleiðis, þegar Ólafía hringdi í mig 14. febrúar og sagði mér að þú værir dáinn. Þvílíkt óréttlæti. Að hrifsa ungan mann, í blóma lífsins, burt úr þessu lífi. Ég vildi að ég hefði svör við öllum þeim spurningum sem koma upp í huga manns á svona stundum. En því miður getur enginn svarað þeim. Ég kynntist þér fyrir tíu árum. Ég man alltaf hvar það var. Við fórum út að borða með Jóa og Mæju. Síðan höfðum við verið góð- ir vinir, og þó við höfum hist lítið undanfarin ár, var alltaf jafn auð- velt að taka upp þráðinn að nýju, þar sem frá var horfíð, þegar við hittumst eða töluðum saman í síma. Þú hafðir einstakan persónu- ljóma sem best kom fram gagn- vart vinum þínum, sem voru marg- ir. Ég minnist þeirra tíma með söknuði, þegar við bjuggum í sama húsi á Seyðisfírði. Ég og Lóa niðri og þú og Halli uppi. Þá var nú ýmislegt brallað. Fyrir það þakka ég þér. Alltaf þegar þú komst í land gafstu þér tíma til að líta inn til okkar. Börnin okkar sóttu í þig enda varst þú mjög bamgóður maður. Þú sagðir alltaf að ég væri svo grobbinn með litlu stelpuna mína. Þegar ég svo sá þig með hana Ingibjörgu Aldísi, gat ég sagt slíkt hið sama við þig, elsku vinur minn. Þarna varstu kominn með þá lífsfyllingu sem þú sóttist eftir. Að ganga barni í föðurstað er ekki öllum kleift, en þú leystir það af stakri prýði varðandi Guðrúnu Maríu. Jóhanna konan þín var greini- lega sú eina rétta fyrir þig, á því lék ekki nokkur vafi. Það er sárt að hugsa til þess, að loks þegar þú varst orðinn sannarlega ást- fanginn og ráðsettur, skuli þetta hörmulega slys taka þig burt frá öllum þeim sem elskuðu þig. Jó- hönnu og ykkur öllum, sem syrgið yndislegan dreng, sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um góðan vin lifir í hjarta okkar. Sigurður Þór Kjartansson og Lóa M. Pétursdóttir. HENRÝ KRISTINN MATTHÍASSON + Henrý Kristinn Matthíasson fæddist í Reykjavík 21. júní 1961. Hann lést á heimili sínu' 6. febrúar sl. og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 13. febrúar. Ó Guð Hvergi er nema stuttur svefn, í manninum, gróðrinum, í kaleik vindanna. Sérhver snýr heim í hjarta sitt dáið. - Ég kysi að ennþá væri veröldin bam - og sagt mér gæti frá andardrættinum fyrsta. Forðum var trúrækni mikil á himni háum, höfðu stjömur Biblíuna til lestrar. Að mér gæfist að halda í hönd Guði eða horfa á mánann á fingri hans. Ó Guð, ó Guð, hve iangt er frá mér til þín! (Þýð. H. Pétursson) Elsku Henrý minn, hvem skyldi hafa órað fyrir því að þú, yngsti bróðirinn, yrði allt í einu ekki leng- ur á meðal okkar? Ég gæfi allt sem ég á til að endurheimta þig. En ekkert dugar. Þú ert horfinn sjónum okkar, við eigum aðeins dýrmætar minningar um þig. Sem lítinn dreng man ég þig, stóra systirin, sem passaði þig og Helga. Það var ljúft verk og var ég hreykin af þessu ábyrgðarmikla hlutverki sem mér var falið. Æsku- árin liðu, öll Ijúf í minningunni. Þér gekk vel í skóla, því að allt sem þú tókst þér fyrir hendur, leystirðu vel og af mikilli vandvirkni. Það var ekki hægt að gera hlutina betur. Þegar ég kom í fyrsta sinn heim til íslands á námstíma mínum í Þýskalandi, hafðir þú breyst mikið, fannst mér. Þú hafðir stækkað heil ósköpin, greinilegt var að þú varst að breytast í fullorðna manneskju. Þú gast líka verið höfðingi í lund, er þú réttir mér álitlega upphæð og sagðir við mig að þetta skyldi ég hafa með mér til Þýskalands. Mér þótti óskaplega vænt um, þeg- ar þú ásamt foreldrum okkar komst að heimsækja mig til Þýskalands, sumarið 1980. Eg kynnti ykkur fyrir vinum mínum og einnig fjöl- skyldu tilvonandi mannsins míns. Dvöldum við á heimili tengdafor- eldra minna við mikla gestrisni þeirra. Við tvö og foreldrar okkar áttum yndislegar vikur saman í Þýskalandi og Danmörku þetta sumar. Enn þann dag í dag fæ ég bréf frá vinkonu minni í Eistlandi, sem ég hef ekki séð síðan 1981. Alltaf biður hún um kærar kveðjur til móður okkar og til þín, kæri bróðir. Fleiri minningar streyma fram í hugann. Þú varst ætíð aufúsugestur hjá okkur Villa. Við fórum saman til Þingvalla ásamt erlendum gest- um okkar hjónanna. Við fórum þrjú saman á næturtónleika og héldum jól oftar en einu sinni saman, ásamt móður okkar. Helgi og Gitta komu einu sinni frá Færeyjum til að halda jól með okkur. Er þú hafði kynnst Sam, konu þinni, vonuðum við öll í fjölskyldunni að þið yrðuð ham- ingjusöm saman. Hamingja ykkar var í hámarki er sonur ykkar, Andri, fæddist fyrir tæpum þremur árum. Sameiginlegt líf ykkar þriggja var því rétt að hefjast, þegar ótíma- bært andlát þitt bar svo skjótt að, að við eigum nánast engin orð tií að lýsa hryggð okkar og sorg. En lífið heldur áfram, við munum hlú að litlu fjölskyldunni þinni, nú er hún hefur mesta þörf fyrir hjálp okkar. Því máttu treysta. Mig langar til að þakka þér allar samverustundirnar og fyrir það sem þú varst okkur öllum. Ég mun varð- veita það allt í hjarta mér. Megir þú livíla í friði og minningin um þig ætíð lifa með okkur. Þín elskandi systir, Guðrún. BRIDS____________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Silfurstiga- tvimenningur SÁÁ JÓN Stefánsson og Sveinn Sigurgeirs- son sigruðu í silfurstigatvímenningn- um, sem haldinn var laugardaginn 25. febrúar sl. 22 pör spiluðu Barómeter með forgefnum spilum. Keppnisstjórn og útreikningur var í góðum höndum Jakobs Kristinssonar. Lokastaðan: Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 111 MuratSerdar-ÞórðurBjömsson 108 YngvarSighvatsson-OrriGíslason 50 Guðmundur Sigurbjömss. - Þorsteinn Karlss. 24 Jóhann Jóhannsson - Jón Eyvindur Bjamason 23 Óskar Kristinsson •- Kristinn Óskarsson 19 Mótið var æsispennandi barátta milli Jóns og Sveins annarsvegar og Murats og Þórðar hinsvegar. Jón og Sveinn notfærðu sér sína miklu keppn- isreynslu og rétt náðu að síga framúr í lokin. Bridsfélag SÁÁ Þriðjudaginn 28. febrúar var spilað- ur einskvölds tölvureiknaður Mitchell með forgefnum spilum. 18 pör spiluðu 9 umferðir með 3 spilum á milli para. Meðalskor var 216 og efstu pör voru: NS Sigmundur Hjálmarss. - Hjálmar Hjálmarss. 245 GesturPálsson - Nicolai Þorsteinsson 231 Birgir Ólafsson - Fannar Dagbjartsson 223 AV HlynurMapússon-MagnúsTorfason 256 Tryggvi Guðmundsson - Óskar Kristinsson 245 Gunnlaugur Karlss. - Guðm. Sigursteinss. 237 Bridsfélag SÁÁ spilar einskvölds kejipnir öll þriðjudagskvöld. Spilað er í Ulfaldanum og mýflugunni í Ármúla 17a. Spilamennska hefst stundvíslega kl. 19.30 og eru allir spilarar hjartan- lega velkomnir. Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríksson. Opin silfurstiga- sveitakeppni Helgina 11. og 12. mars verður haldin opin silfurstigasveitakeppni. Spilaðar verða 10 umferðir með Monrad-fyrirkomulagi og 10 spila leikjum. Spilað verður með forgefnum spilum. Spilamennska byijar kl. 11.00 báða dagana og er spilamennska búin um kl. 20.00 á laugardaginn og um kl. 17.00 á sunnudaginn. Keppnisgjald er 8.000 kr. á sveit og fer helmingur- inn af því í verðlaunafé. Annar af- gangur af mótinu fer til styrktar yngri spilara sem fara á heimsmeistaramót yngri spilara í tvímenningi í Belgíu í ágúst á þessu ári. Allir spilarar eru velkomnir og vert er að minna á að þetta er ein af fáu æfingunum sem spilarar geta notfært sér fyrir undan- keppni íslandsmótsins í sveitakeppni. Tekið er við skráningu hjá BSI s. 5879360. Bridsfélag Hornafjarðar Nýlokið er aðalsveitakeppni félags- ins og vann sveit Hótel Hafnar örugg- an sigur,_ hlaut 108 stig. í sveitinni spiluðu: Árni Stefánsson, Jón Sveins- son, Baldur Kristjánsson, Ágúst Sig- urðsson og Skeggi Ragnarsson. í öðru sæti lenti Gestur Halldórsson með 78 stig og rétt á hæla þeirra kom Örn Ragnarsson með 75 stig. Hreindýramóti BN lauk í síðustu viku, lokastaðan: Þorsteinn Sigjónsson - Gestur Halldórsson 561 Sigurpáll Ingibergsson - Valdemar Einarsson 543 Sverrir Guðmundss. - Ragnar B./Kolbeinn Þ. 537 Næstá sunnudagskvöld verður spil- aður tvímenningur þar sem pör verða dregin saman á staðnum. Bridsfélag Akureyrar Nú eru aðeins 2 umferðir eftir í Akureyrarmótinu í sveitakeppni og er baráttan um efstu sætin mjög hörð, en staðan er nú þessi: Sv. Ormarrs Snæbjörnssonar 192 Sv. Grettis Frimannssonar 187 Sv. Páls Pálssonar 174 Sv. Sigurbjöms Haraldssonar 169 Sv.ÆvarsArmannssonar 164 10. og næst síðasta umferð verður spiluð í Hamri þriðjudaginn 7. mars kl. 19.30. 13 pör mættu í Sunnuhlíðarbrids síðasta sunnudag. Úrslit urðu þessi: PéturGuðjónssonogStefánRagnarsson 191 Jón Sverrisson og Ragnheiður Haraldsdóttir 184 Tryggvi Gunnarsson og Reynir Helgason 17 5 Bridsdeild Víkings Spilaður var eins kvölds tvímenn- ingur sl. mánudag og urðu úrslit þessi: ÁrniNjálsson-HeimirGuðjónsson 125 Sveinn Sveinsson - Tómas Einarsson 124 Elías Ingimarss. - Guðmundur Hansson 121 Spilaður verður tvímenningur í Vík- inni kl. 19.3= nk. mánudagskvöld. Bridsdeild Félags eldri borgara, Kópavogi Spilaður var tvímenningur föstu- daginn 24. febrúar. 20 pör mættu og var spilað í tveim riðlum A og B. Úrslit í A-riðli: Siguijón H. Siguijóns. - Þorleifur Þórarinsson 122 Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórsson 117 BergurÞorvaldsson-ÞórarinnÁmason 116 B-riðiil: Ásta Erlingsdóttir - Gunnar Pálsson 126 Bragi Salómonsson - Hannes Alfonsson 126 Jensína Stefánsdóttir - Siguijón Guðröðarson 125 Þriðjudaginn 7. febrúar hófst sveitakeppni með þátttöku 11 sveita. 16 spila leikir eru spilaðir við tvær sveitir á kvöldi. Eftir fjögur kvöld er staða efstu sveita þessi: SveitÞorleifsÞórarinssonar 164 Sveit Eysteins Einarssonar 141 SveitBergsÞorvaldssonar 130 SveitÁmaJónassonar 119 Bridsfélag Kópavogs Staðan eftir 12 umferðir af 15 er æsispennandi í aðalsveitakeppni Bridsfélags Kópavogs: ÁrmannJ.Lárusson 214 Landssveitin 214 RaparJónsson 206 HelgiViborg 202 ÞórðurJörundsson 202 MagnúsTorfason 199 Sveitakeppninni lauk sl. fimmtudag. Opna afmælismótið Minnt er á skráninguna í Opna af- mælismót Lárusar Hermannssonar, sem spilað verður laugardaginn 4. mars. Skráð er á skrifstofu BSÍ (587 9360) og hjá Ólafi Lárussyni (16538). Einnig skráð í mótið á laugardags- morgun ef mætt er tímanlega. Mótið hefst kl. 11 árdegis og lýkur fyrir kvöldmat. Góð verðlaun og silfur- stig. Frítt kaffí allt mótið og veitingar í hiéi. pr MAGNARI ^ 2x60W 1 240W P.M.P.O Matrix Surround Extra bassi ofl. ÚTVARP 30 stöðva minni FM/MW Klukka „Smart Program" minni KASSETTUTÆKI Auto Reverse, Dolby B High Speed Dubbing ofl. GEISLASPILARI 1 bita og ^ 8x oversampling 20 laga minni ofl. / Sherwood og bolur fyi hverri stæ Heimilistæki hf SÆTÍIN8 5ÍMI 5681500 Umboðsmenn um land allt LEJÉHzgj DB TIL ALLT AÐ 36 MANAOA 77/ ílt RAOGREIOSLUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.