Morgunblaðið - 28.03.1995, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 28.03.1995, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐW, KRINGIAN 1, 103 REYKIAVtK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 28. MARZ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sáttatillagan samþykkt í kennaradeilunni í nótt Verkfalli ekki aflýst nema sam- komulag náist um vinnu kennara í vor — Laun hækka um 19-20% á tveggja ára samningstímabili FULLTRÚARÁÐ kennarafélaganna sam- þykktu í gær sáttatillögu ríkissáttasemjara í kennaradeilunni. Tillagan felur í sér um 15% beina kauphækkun á samningstímanum gegn auknu vinnuframlagi. Jafnframt var samið um lækkun kennsluskyldunnar um eina kennslustund. Eftir er að ná samkomulagi um vinnu kennara á þessu skólaári og ætla kennarafélögin ekki að aflýsa verkfalli fyrr en samkomulag næst um hana. Samningsaðilar tilkynntu ríkissáttasemj- ara um miðnættið að þeir samþykktu sátta- tillögu hans. „Ég er afskaplega ánægður með þessa niðurstöðu. Ég hafði bara eina hleðslu í byssunni og mér tókst að skjóta í mark,“ sagði Þórir Einarsson ríkissáttasemj- ari í gær. 15% bein launahækkun Sáttatillagan felur í sér um 15% beina launahækkun til kennara á samningstíman- um. Til viðbótar lækkar kennsluskylda kenn- ara, en það má meta til 4-5% kjarabóta. Launaútgjöld ríkisins til kennara munu hækka um 1.400 milljónir miðað við eitt ár. Samninganefnd ríkisins hafði áður boðið kennurum hækkanir sem fólu í sér um 1.200 milljóna króna útgjöld á ári. Kennarar eiga eftir að ná samkomulagi við fjármálaráðuneytið um vinnu kennara það sem eftir lifir þessa skólaárs. Mennta- málaráðherra hefur sett fram tillögur um hvernig kennslu verði hagað í vor en eftir er að ná samkomulagi við kennara um hvernig verði greitt fyrir hana. Elna K. Jónsdóttir, formaður HIK, sagði að kennar- ar myndu ekki fresta verkfalli fyrr en sam- komulag hefði tekist um þetta mál. Hún sagðist gera sér vonir um að samkomulag tækist í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vilja kennarar að þeir fái greitt sérstaklega fyrir þá yfirvinnu sem þeir koma til með að þurfa að vinna í vor til að bjarga skólaárinu. Andstaða er við kröfur kennara í fjármála- ráðuneytinu. Stjómir kennarafélaganna ætluðu sér að taka afstöðu til tillögunnar áður en fulltrúa- ráð félaganna komu saman til fundar. Það tókst ekki vegna ágreinings innan stjórn- anna. Mjög skiptar skoðanir voru innan full- trúaráðanna á tillögunni. Elna sagði að þó að kennarar hefðu sam- þykkt tillöguna væru þeir ekki fyllilega ánægðir með niðurstöðuna. Sáttatillagan væri þó betri en það sem ríkið hefði boðið. Þorsteinn Geirsson, formaður SNR, sagðist ekki telja að þessi niðurstaða skapaði for- dæmi fyrir samninga við aðra hópa opinberra starfsmanna. Kennaradeilan hefði snúist um skipulagsbreytingar og breytingar á vinnu- tíma kennara. Samningar við aðra hópa myndu snúast um aðra hluti. Ástæða tU að gleðjast „Ég tel ástæðu til að gleðjast yfir því að samningur sé í höfn og treysti því að aðilar séu tilbúnir til þess að bjarga önninni en verkfalli hefur valdið kvíða og óöryggi hjá fjölda námsmanna og aðstandendum þeirra. Það er sérstakt fagnaðarefni að með þessum samningum hefur sú stefna verið staðfest að efla og treysta skólastarfið með fleiri kennsludögum," sagði fjármálaráðherra. ■ Kennararfá/6 Morgunblaðið/Kagnar Axelsson HRÖNN Þórarinsdóttir fagnar syni sínum, Stefáni Jóhannssyni, þegar hann var kominn heill á húfi til Grindavíkur í nótt. Tvær trillur sukku suður af Krísuvíkurbjargi í gærkvöldi Fimm mönnum bjargað FIMM mönnum var bjargað um borð í Farsæl GK 142 frá Grindavík um hálfellefuleytið í gærkvöldi, eftir að trillumar Særún GK 64 og Gaui Gísla GK 103 höfðu sokkið um átta sjómílur suður af Krísuvíkur- bjargi. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni barst neyðar- kall frá mönnunum tíu mínútur fyrir tíu í gærkvöldi. Þegar slysið varð var Gaui Gísla að draga Særúnu, sem orðið hafði vélarvana, að landi. Báðar trillumar voru með fullfermi þegar óhappið varð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og einnig fór Oddur V. Gíslason, björgunarbátur Slysa- varnafélagsins í Grindavík, mönn- unum til hjálpar. Farsæll og Gígja VE 340 vom stödd í grenndinni og var mönnunum fimm bjargað um borð í Farsæl. Komst sá síð- asti um borð tuttugu mínútur fyr- ir ellefu, rétt í þann mund sem þyrlan kom á vettvang. Grétar Þorgeirsson skipstjóri á Farsæli sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi að tilviljun hefði ráðið því að hann var stadd- ur á þessum slóðum. Hafði hann ætlað að vera löngu farinn í land en tafíst vegna smávægilegrar vélarbilunar. Hraktir en fyótir að ná sér Farsæll var um þijár og hálfa mílu frá þeim stað þar sem trill- urnar sukku og þegar hann kom á vettvang um hálfellefu var Gaui Gísla sokkinn og Særún komin á hliðina. Tveir menn sem voru um borð í Gauja Gísla höfðu þá kom- ist um borð í gúmbjörgunarbát eftir að hafa verið nokkum tíma í sjóaum.- Að sögn Grétars gekk vel að ná mönnunum um borð í Farsæl og komust skipveijarnir þrír á Særúnu þurrum fótum um borð. Sagði hann að mennirnir á Gauja hefðu verið nokkuð hraktir þegar þeir komu um borð en þeir hefðu verið fljótir að ná sér. Fimm vind- stig voru á, þeim slóðum sem bátarnir sukku á að sögn skip- stjórans. Farsæll kom með skip- brotsmennina til Grindavíkur klukkan 24.15 í nótt. Sjór komst í olíuna Stefán Jóhannsson, tvítugur skipveiji á Særúnu, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að senni- lega hefði komist sjór í olíuna og trillan orðið vélarvana af þeim sökum. Gaui Gísla tók Særúnu í tog um sjöleytið, og sagðist Stef- án ekki gera sér grein fyrir því hvers vegna Gaui hefði sokkið. Hefðu þeir á Særúnu verið að leita að gúmbjörgunarbátnum frá Gauja þegar henni hvolfdi skyndilega. Þegar síðast spurðist var Reykjafoss kominn á slysstað og búinn að ná Særúnu að hlið skips- ins en trillur í hálfu kafí skapa slysahættu fyrir minni báta. Samningafundir ^ Landsbankans og SÍS Hundruða millj. mun- ur á verð- mati eigna Á FYRSTA samningafundi forystu- manna Landsbanka Islands og Sam- bands íslenskra samvinnufélaga, um yfírtöku eignarhaldsfélags Lands- bankans, Hamla hf., á eignum Sam- bandsins, þann 13. október 1992, kom fram afar mismunandi verðmat aðila á hlutabréfum Sambandsins í ESSO, Samskipum og Regin. Mun- urinn á verðmati aðila skipti mörg hundruð milljónum króna. Þetta kemur fram í þriðju grein af fjórum, sem Morgunbíaðið birtir þessa dag- ana, um endalok Sambandsins. Þar kemur m.a. fram, að for- stjóri Sambandsins, Guðjón B. Ól- afsson, vildi reyna til þrautar að selja bréf Sambandsins í Olíufélag- inu hf. erlendis, þar sem Nomura Bank hefði talið að Sambandið gæti fengið 1,5 til 1,8 milljarða króna fyrir hlut sinn í Olíufélaginu. Landsbankinn hafnaði frekari til- raunum í þá veru, sem engan árang- ur höfðu borið í tæpt ár. Mikið ágreiningsefni aðila að því er varðaði verðmat á eignum 'var matið á Holtagörðum, sem voru í eigu Regins hf. Landsbankinn vildi meta eignina á 1,1 milljarð króna, en Sambandsmenn á 1,7 milljarða króna. Þar kemur einnig fram að ofmat eigna í Samskipuin var mikið hjá Sambandsmönnum, sem upphaflega vildu fá gengið 1,12 fyrir bréfin í Samskipum. Þegar Landsbankinn féllst á að yfírtaka Samskip á geng- inu 0,9, var gengi bréfanna að há- marki 0,65, samkvæmt mati starfs- hóps Landsbankans. ■ Sambandið leiddi/14—16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.