Morgunblaðið - 01.04.1995, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 47
AÐSENDAR GREINAR
Tilvistarkreppa
þjóðríkisins
Böðvar Eðvarð T.
Jónsson Jónsson
ALVARLEG mann-
réttindabrot, hörm-
ungar og hungursneyð
af mannavöldum víða
um heim leiða hugann
enn á ný að þeirri til-
vistarkreppu sem
steðjar að hinu frjálsa
og fullvalda ríki sem
skipulagsformi í sam-
félagi þjóðanna. Lengi
hefur verið ljóst að
þjóðir heims geta ekki
einar og óstuddar, og
jafnvel ekki fáeinar
saman, tekist á við
vandamál eins og
mannréttindabrot,
umhverfísmengun,
hungursneyð, útbreiðslu kjamorku-
vopna og alþjóðlega glæpastarfsemi
svo eitthvað sé nefnt. Hver á að
sjá til þess að ríki standi við gerða
samninga meðan alþjóðlegt valds-
umboð skortir til að koma lögum
yfir þá sem bijóta þá? Þeim níðings-
verkum virðast engin takmörk sett
sem vinna má innan landamæra
þjóðríkjanna með alla heimsbyggð-
ina sem hjálparlausan áhorfanda.
Óskorað fullveldi þjóðríkisins er
hættuleg tímaskekkja. Upplausn og
örvænting á alþjóðavettvangi mun
aukast meðan ekki er reynt að reisa
því skorður. Breski stjórnmálamað-
urinn Denis Healy benti á þetta
með þegar hann kom hingað til
lands á síðasta ári, en viðhorf hans
er að við þjóðum heims blasi tími
einingar, samvinnu og samruna. í
nýlegri bók sinni, „Global Paradox",
bendir John Naisbitt á þá staðreynd
að því stærra sem hagkerfí heims-
ins verður, þeim mun voldugri verði
minnstu þátttakendumir í því. Þetta
dregur úr hættunni á því að litlar
einingar hverfi í skugga hinna stóru
og tryggir að alþjóðavæðing ógni
ekki ijölbreytileika mannlífs. Breski
sagnfræðingurinn Amold Toynbee,
sem skrifaði um þessa þróun af
mikilli skarpskyggni og nánast spá-
mannlegu innsæi um miðbik þessar-
ar aldar, gengur enn lengra og
tengir hana saman við einingarvið-
leitni innan trúarbragðanna.
Þótt landfræðilegar einingar
stækki em þeir margir sem vilja
halda í hugmyndina um óskorað
fullveldi þjóðríkisins - ekki síst
þeir valdamenn og leiðtogar, sem
þráfaldlegast hafa vanrækt þær
skyldur og misnotað þau réttindi,
sem það gefur. Eftir manníjöldar-
áðstefnuna í Búkarest 1974 ritaði
blaðamaður eftirmæli hennar:
„Sumar þjóðir vilja heldur tortímast
sem frjáls og fullvalda ríki en fóma
hinu minnsta í þágu heildarinnar."
í frægri skýrslu, sem var lögð fyrir
Rómarklúbbinn fýrir 20 árum segir
að vandamál heimsbyggðarinnar sé
aðeins hægt að leysa með samvinnu
á alþjóðlegum gmndvelli. Þetta fel-
ur í sér slíka breytingu á hefð-
bundnum viðhorfum að menn
kveinka sér við tilhugsunina. Höf-
undar skýrslunnar, Mesarovic og
Pestel, segja til dæmis að leggja
verði gmndvöll að nýju heimsskipu-
lagi „þar sem sérhver einstaklingur
upplyllir sitt hlutverk sem meðlimur
alþjóðlegs samfélags". Þetta þýðir,
að dómi þeirra félaga að mannfellir
af völdum þurrka í Súdan myndi
vekja sömu áhyggjur og viðbrögð í
Þýskalandi og hungursneyð í Bæj-
aralandi.
Ef ekki tekst að bræða saman
heiminn í sameiginlegt hnattrænt
hagsmunakerfí, blasa við ennþá
meiri átök, hatur og eyðilegging.
Saman fer tvennt: hin sjálfstæða
eining þjóðríkins og forræði
„sterkra einstaklinga" og hags-
munahópa, sem hanga á hverfulu
valdi eins og hundar á roði. Stærri
ríkjasambönd kreijast meiri sam-
vinnu og umfram allt samráðs, þar
sem leiðarljósið er hagsmunir heild-
arinnar. Þannig hyllir undir það,
Valið stendur annars-
vegar á milli meiri
öngþveitis og glundroða
á alþjóðavettvangi,
segja þeir Böðvar
Jónsson og Eðvard T.
Jónsson, og hinsvegar
alþjóðahyggju.
að með eðlisbreytingu þjóðríkisins
hverfí flokka- og sérhagsmunapóli-
tík með þeirri spiliingu og skrum-
skælingu mannlegs samfélags, sem
henni fylgir. Naisbitt bendir einmitt
á þetta í bók sinni - í stað vinstri
og hægri stefnu koma svæðisbund-
in sjónarmið annarsvegar og hins-
vegar alþjóðleg, tvær hliðar á einni
og sömu mynt. Fjöldi þjóða hefur
viðurkennt þessa staðreynd, ef ekki
í orði þá á borði. Hinar gömlu, stoltu
og fijálshuga menningarþjóðir Evr-
ópu hafa tekið upp samstarf sem
ef að líkum lætur leiðir til sam-
einaðrar Evrópu, sem lýtur jrfirþjóð-
legu dóms-, löggjafa- og fram-
kvæmdavaldi í mikilvægum mála-
flokkum.
Valið stendur annarsvegar á
milli meiri öngþveitis og glundroða
á alþjóðavettvangi og hinsvegar
alþjóðahyggju, sem byggir á heils-
hugar viðurkenningu á sameigin-
legum hagsmunum, einingu og
bræðralagi allra manna. Kjami
þessa sjónarmiðs var settur fram á
síðustu öld af Bahá’u’lláh, höfundi
bahá’í trúarinnar, í eftirfarandi orð-
um: „Jörðin er eitt föðurland og
íbúar þess mannkynið." Þessi orð
eru ekki síst merkileg fyrir það að
þau voru sögð fyrir meira en hund-
rað árum, á gullöld þjóðríkisins.
Bahá’u’lláh spáði á síðustu öld
um sameiningu þjóða heimsins og
trúarbragða þess. Það sem er
merkilegast við sýn hans er að hann
sér alla mannlega viðleitni sem '
hluta af einu þroskaferli sem hefur
aðeins eitt markmið: allsheijar-
bræðralag þjóða heims, einingu í
fjölbreytileika hinnar mannlegu
flölskyldu. Þróunin hefur sýnt að
þetta er ekki aðeins fróm ósk-
hyggja eða draumórar. Lýðræði og
þingræði hafa leyst einveldi og
harðstjórn af hólmi - þjóðir heims-
ins byijuðu síðan að sameinast og
renna saman í stærri einingar. Bah-
á’u’lláh sagði tæpri öld fyrir stofnun
Sameinuðu þjóðanna, að sá tími
mundi koma að þjóðir heims fórn^-
uðu hluta af óskoruðu forræði sínu
til að tryggja sameiginlegt öryggi
til alþjóðlegrar stofnunar. Öll ríki
heims ættu aðild að henni og hún
færi fyrir þeirra hönd með alþjóð-
legt framkvæmdavald sem m.a.
fæli í sér að koma lögum yfír þá
sem ógnuðu heimsfriðnum. Þessu
ferli er hvergi nærri lokið. Lítið og
ófullkomið þjóðabandalag eins og
Evrópusambandið er ekki fylling
þessarar þróunar heldur upphafíð á
ferli, sem leiða mun til friðsamlegr-
ar sameiningar allra þjóða heims.
Spádómum Bahá’u’lláh um
hnignun og fall konungsvelda, gjör-
breytta stjórnarhætti, heimsstyij-
aldir, hnignun siðferðis og allsheij-
arumbrot, sem í fyllingu tímans
fæða af sér nýja sameinaða veröld
friðar og réttlætis hefur verið lítill
gaumur gefinn hingað til. En það
er full ástæða til að taka þá alvar-
lega því þeir eru að rætast fyrir
augum okkar.
Böðvar Jónsson er lyfsali á
Akureyri og Eðvarð T. Jónsson
er starfsmaður Pósts og síma í
Reykjavík.
ísland og hafið
Hugmynd um menningarmiðstöð
sj ávarútvegsins í Reykjavík
HÉR VERÐUR
reynt að draga upp
mynd sem gæti orðið
til þess að vekja
áhuga borgaryfir-
valda, fyrirtækja,
stofnana og samtaka
í sjávarútvegi, ferða-
þjónustu og öðrum
gi-einum til að taka
höndum saman, t.d. í
formi hlutafélags- eða
styrktaraðildar, en þó
undir forystu borgar-
innar. Lagt er til að
Reykjavíkurborg og
Reykjavíkurhöfn
freisti þess að fá til
liðs við sig aðila í sjávarútvegi _og
ferðaþjónustu í borginni t.d. LÍU,
Granda, Eimskip, Samskip, Sö-
lusamtök fískiðnaðarins og fleiri,
til að koma á fót eins konar menn-
ingarmiðstöð sjávarútvegsins. Við
getum kallað hann ísland og hafið.
Tímabær hugmynd
íslendingar lifa á því sem sjórinn
gefur og það er löngu tímabært
að Reykjavík eignist myndarlega
stofnun sem gerir skil þessum þátt-
um í þjóðlífinu fyrr og nú og undir-
striki mikilvægi Reykjavíkur fyrir
íslenskan sjávarútveg. ísland og
hafið mun höfða til breiðs hóps og
vera allt í senn sögusýning og lif-
andi safn, upplýsingamiðstöð um
nýjustu tækni í sjávarútvegi, fróð-
leiksnáma um lífríki hafsins og
sjávarréttamiðstöð.
Húsnæði
Auðvitað væri æskilegt að teikna
og byggja slíka miðstöð frá grunni
og vitað er um unga
arkitekta sem hafa
haft slíkar stofnanir
að prófverkefnum. Sá
tími mun koma, en
fyrst um sinn mætti
nýta eitthvað af því
húsnæði sem nú
stendur meira og
minna autt vestur við
bátahöfn, þ. á m. eru
hús í eigu Granda hf.,
sem gætu hentað til
þessarar starfsemi.
Aðkoma og
útísvæði
ímyndum okkur að
við séum komin niður að höfn á
góðum degi til að skoða ísland og
hafíð. Á athafnasvæði utanhúss er
lítið síldarplan þar sem stelpur salta
síld á sunnudögum og syngja sjó-
mannalög, hér er hjallur með grá-
sleppunetum, skreið hangir á trön-
um, saltfiskur til breiðslu, gamall
vörubíll með tunnum og kall að
dytta að trillubát og taka í nefið.
Hann býður gestum upp á dorg-
ferðir um höfnina þegar vel viðrar
og hver veit nema hann spili líka
á harmonikku. Bátar standa uppi
og bátasmiður sinnir viðgerðum.
Hér er fískbúð með fersku sjávar-
fangi og allt minnir á raunverulegt
vinnu-umhverfi í sjávarplássi hvar
sem er á íslandi.
Sögusýning
Innandyra er einföld en áhrifa-
mikil sögusýning um siglingar nor-
rænna manna og landafundi íslend-
inga í vestri, um sjósókn á opnum
bátum, veiðarfæri og fískverkun,
um skreiðarsölu á miðöldum,
Björn G. Björnsson
skútuöld og saltfisk um aldamót,
um síldarævintýri og hvalveiðar,
um sögu fiskverndar, fískifræði og
hafrannsókna og sögu þorska-
stríða, sem hófust á 15. öld og eru
víst orðin tíu. Framsetningin er
nútímaleg með stórum myndum,
kortum, textum og vel völdum
munum, og skýringartextar eru á
íslensku og 3-4 öðrum tungumál-
um.
Lífríki hafsins
Kjami þessara merku stofnunar
og helsta aðdráttarafl er glæsileg
sýning um lífríki hafsins umhverfis
landið og þær skepnur sem þar lifa
- og við lifum á. Lifandi fiskasöfn
eru vinsæl um allan heim og hér
er loks komið veglegt íslenskt sjó-
dýrasafn þar sem undirstaða þjóð-
lífsins, þorskurinn, syndir um í
makindum og helstu fískitegundir
sem lifa í hafinu umhverfís Island
eru til sýnis. Hér eru einnig upp-
stoppaðir fiskar, safn skelja, kuð-
unga og annarra sjávardýra og
stærsta skepna jarðarinnar, steyði-
reyðurinn, teygir út sér á rúmum
30 metrum, holur að innan eins og
langur, dimmur gangur, og þar eru
lítil búr með smærri sjávardýrum.
Hér má fræðast um ástand fiski-
stofna, mengun sjávar, umhverfis-
mál og fleira sem snertir ísland og
hafið á lifandi og áhrifaríkan hátt.
Sj ávar útvegssýning
ísland og hafið er einnig fasta-
sýning fyrirtækja, stofnana og
samtaka í sjávarútvegi og sjávar-
iðnaði þar sem sýnt er á einum
stað allt það nýjasta í tækni, upp-
finningum og framförum í veiðum
og vinnslu, veittar upplýsingar og
ráðgjöf. Hér er aðstaða fyrir kynn-
ingar, fundi og litlar sýningar á
tækjum og framleiðsluvörum til
sjávarútvegsins.
Sjávarafurðir
Hér er áherslan lögð á sjávarafl-
ann sjálfan og þann fjölbreytta
varning sem íslendingar framleiða
úr sjávarfangi og hér má fræðast
um mismunandi aðferðir við fisk-
verkun fyrr og nú; þurrkun, söltun,
frystingu, niðurlagningu, bræðslu
og hvað eina, og greint er frá sölu
og dreifingu sjávarafurða fyrr og
nú og umbúðir sýndar, allt í sam-
vinnu við fyrirtæki og samtök sjáv-
arútvegsins.
Sjávarréttamiðstöð
í tengslum við sjávarafurðadeild-
ina er sjávarréttamiðstöð, eins og
heitir á ensku „Seafood center“,
og hjarta hennar er notalegur veit-
í þessari grein fjallar
Bjöm G. Björnsson um
menningarmiðstöð sjáv-
arútvegsins í Reykjavík.
ingastaður með útsýn yfir báta-
bryggjurnar þar sem færustu kokk-
ar bjóða upp á það besta í íslensk-
um sjávarréttum.
Líf og menning
í gamla bæinn
ísland og hafíð er hugmynd sem
hlýtur að verða að veruleika fyrr
eða síðar. Hver þáttur í starfsem-
inni hefur sitt sérstaka aðdráttar-
afl og saman mynda þeir eina
spennandi heild. Island og hafið
mun verða lyftistöng fyrir mannlíf-
ið í gamla bænum, til upplýsingar,
skemmtunar og fróðleiks innlend-
um og erlendum ferðamönnum á
sumrin, skólafólki yfír vetrartím-
ann og íslenskum fjölskyldum í
sunnudagsbfltúr árið um kring.
Atvinna og aðsókn
Þegar velt er upp hugmyndum
eins og þessari þarf að skoða hlut-
ina í stóru samhengi, allt helst í
hendur, ekki síst menningarmiðlun
og ferðaþjónusta. Og öll mál eru í
raun atvinnumál. Sé vel að öllu
staðið í slíkri stofnun sem hér hef-
ur verið lýst, fræðilegum grunni,
sýningum, fiskasafni, veitingastað,
minjagripaverslun og aðstöðu til
kynninga og sérsýninga má vel
gera ráð fyrir að lsland og hafið
dragi til sín dijúgan meirihluta
þeirra erlendu gesta sem heim-
sækja landið á ári hveiju (1994:
180.000) og þá eru heimamenn og
skólanemendur ótaldir.
Ef einhver dugur er í okkur
ætti slík sjávarútvegsmiðstöð hér
úti í miðju Atlantshafi að vera svo
glæsileg og einstök að menn legðu
leið sína yfír hafið langa leið gagn-
gert til að beija hana augum.
Þeir, sem hafa áhuga á að leggja
þessari hugmynd lið, eru beðnir að
gera það við menningarmálanefnd
Rey kj avíkurborgar.
Höfundur er leikmyndahönnuður
og dagskrárgcrðarmaður.
STEINAR WAAGE
f SKÓVERSLUN
Stœrðin 19-24 • Litir: Blár, rauður, grænn.
Verð kr. 1.995
5% Staðgreiðsluafsláttur
Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519
Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212
V
Toppskórinn, Veltusundi, sími 21212
J