Morgunblaðið - 20.04.1995, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Silli
ÞÓRARINN Vigfússon við mokstur fyrir framan heimili sitt.
Eg moka nú samt
„ÉG moka nú samt þó alltaf snjói,“
sagði 85 ára gamall Húsvíkingnr,
Þórarinn Vigfússon, áður þekktur
skipstjóri og aflamaður.
Þórarinn hefur í allan vetur
haldið gangstéttinni framan við
hús sitt á Mararbraut 11 snjólaúsri
þó mikið hafí snjóað og beggja
megin við hafí oft verið illfært.
„Þetta hafa verið morgunverkin í
vetur og margar eru skóflurnar
sem ég hef kastað frá mér út á
götuna en hana hreinsa bæjar-
starfsmenn með stórvirkari tækj-
um.“
Það myndi mikið sparast í snjó-
mokstri ef allir hreinsuðu frá dyr-
um sínum eins og Tóti í Jörfa gerir.
Nýjung fyrir aldraða á Höfn í Hornafirði og nágrenni
Líknarfélög bjóða
fólki neyðarhnappa
f Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjömsdóttir
VILBORG Valgeirsdóttir sýnir dótturdóttur sinni, Áróru Snorra-
dóttur, verndarann.
Höfn - Líknarfélögin Lion, Kiwanis
og Rauði krossinn á Homafirði
hafa í samvinnu við þjónustuhóp
aldraðra á staðnum sett í umferð
neyðarhnappa fyrir fólk sem hugs-
anlega þyrfti á neyðaraðstoð að
halda.
Kerfið vinnur á stafræna síma-
kerfínu en ef handhafi tækisins
verður ósjálfbjarga ýtir hann á
rauðan hnapp á tækinu sjálfu eða
á hnapp sem er í festi um hálsinn
á viðkomandi og er fjarstýrður inn
á sama kerfi.
Neyðarkallið setur af stað hring-
ingar í fyrirfram ákveðin símanúm-
er, í mörgum tilfellum hjá vanda-
mönnum en hringing stendur yfir
í 40 sek. í hvert númer og ef ekki
er svarað eða einhverra hluta vegna
ekki kvittað fyrir móttekin skilaboð
þá flyst hringingin yfir í næsta
númer. Algengt er að fjögur síma-
númer séu notuð, þrjú hjá ættingj-
um en síðast hringir hjá Öryggis-
vörslunni hf. en það fyrirtæki er
með opinn síma allan sólarhringinn.
Ef svo ólíklega vildi til að enginn
væri við símann á þeirri stundu
þegar hringir heldur ferlið áfram
næstu 24 klst.
Þegar slíku kalli er svarað er
hægt að tala við þann sem biður
um aðstoðina beint án þess að sím-
tól sé hreyft á þeim enda línunnar,
en kvitta þarf fyrir móttekin skila-
boð til að stöðva hringferlið.
Lánað að kostnaðarlausu
Þessi tæki eru keypt af fyrr-
nefndum líknarfélögum, tvö tæki á
hvert félag, og eru lánuð út til not-
enda þeim að kostnaðarlausu, en
þjónustuhópur aldraðra á Horna-
firði sér um að ákveða hvar þörf
þeirra er mest þegar deilt er út.
Tryggingastofnun ríkisins tekur
ekki þátt í kostnaði við uppsetningu
eða vöktun á þessu kerfi líkt og er
á suðvesturhorni landsins en einka-
leyfissamningur Securitas við þá
mun koma í veg fyrir það næsta
árið.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
BJARNI ásamt tveimur af samstarfsmönnum sínum við flugvöll-
inn, Einari Steingrímssyni, til vinstri og Ingibergi Einarssyni,
starfsmanni flugmálastjórnar við flugvöllinn, í miðið.
Hættir eftir 40 ár
í flugturninum
Sorphirðu
ábótavant
á Austur-
landi
Egilsstöðum - Verkfræði-
atoHönnun og ráðgjöf á Reyð-
arfirði hefur gert úttekt á
stöðu sorphirðumála á Austur-
landi.
Sorphirða er verkefni sveit-
arfélaga og hafa 5 hreppar á
Austurlandi leyfi til móttöku
og förgunar á úrgangi. í þess-
um 5 hreppum búa um 35%
íbúar svæðisins, en í öðrum
sveitum Austurlands telst
ástand þessara mála ekki við-
unandi. Kom fram einróma
álit sveitarstjómarmanna um
að koma þurfi þessum málum
í viðunandi horf.
Aukinn kostnaður
Mælt er með því að úrgang-
ur verði urðaður eftir að hann
hefur verið flokkaður og end-
urnýtanlegur hluti hans verði
fluttur til þess aðila sem getur
endurnýtt úrgang. Gert er ráð
fyrir að kostnaður við meðferð
úrgangs hækki og verði á bil-
inu 5.800-6.900 kr. á íbúa á
ári.
Vestmannaeyjum - Eftir að hafa
starfað sem flugumferðarstjóri í rúm
40 ár lét Bjami Heijólfsson, flugum-
ferðarstjóri í Eyjum, af störfum fyrir
skömmu vegna aldurs, en flugumferð-
arstjórar mega ekki vinna lengur en
til 63 ára aldurs.
Bjami, sem er fæddur og uppalinn
Eyjamaður, hóf störf við flugumferð-
arstjóm í Reykjavik árið 1954, en til
Eyja kom hann árið 1966 og hefur
starfað í flugtuminum þar síðan, eða
í 29 ár. Stærsta hluta starfsævinnar
hefur hann því starfað í flugtuminum
í Eyjum og hefur þess vegna oft ver-
ið kenndur við vinnustað sinn í dag-
iegu tali í Eyjum og kaliaður Bjami
í flugtuminum.
Eftir að Bjami lauk sinni síðustu
vakt voru honum þökkuð góð og
heilladijúg störf við flugvöllinn í 29
ár. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
færði Bjama bókargjöf og blóma-
skreytingu frá Vestmannaeyjabæ
sem þakklætisvott fyrir vel unnin
störf. Flugmálastjóm sendi Bjama
blóm og samstarfsmenn hans þökk-
uðu honum fyrir samstarfíð.
Samsýning fyrirtækja og handverka-
fólks á Austurlandi undirbúin
Sýningin Drekinn
95 í fjórða skipti
á Egilsstöðum
Egilsstöðum - í und-
irbúningi er samsýn-
ing fyrirtækja og
handverksfólks á
Austurlandi undir yf-
irs'kriftinni Drekinn
95. Það eru Atvinnu-
þróunarfélag Austur-
lands og Egilsstaða-
bær sem standa að
sýningunni, en þetta
er í fjórða sinn sem
slík sýning er haldin
á Egilsstöðum.
Markmið Drekans
95 er að kynna fjöl-
breytt atvinnulíf á
Austurlandi í þeim til-
gangi að auka sam-
keppnishæfni fyrirtækja og sam-
kennd atvinnurekenda og neyt-
enda. Ennfremur að auka skilning
almennings á vægi öflugs at-
vinnulífs á lífskjör. •
Um eitt hundrað
sýnendur
Aðalsýningarsvæði
Drekans 95 er íþrótta-
húsið á Egilsstöðum
og verður skipulagt
sýningarsvæði utan-
dyra. Að auki verða
sýningarbásar í
kennsluhúsnæði
menntaskólans. Fjöl-
breytt skemmtidag-
skrá verður á öllum
sýningarsvæðum fyrir
alla aldurshópa. Mikil
aðsókn er að sýning-
unni og er að verða
fullbókað í sýningar-
bása í íþróttahúsi. Gert er ráð fyr-
ir að um 100 aðilar verði þátttak-
endur. Framkvæmdastjóri Drekans
95 er Hrefna Hjálmarsdóttir og er
hún að ljúka námi í markaðsfræði.
Hrefna
Hjálmarsdóttir
Ertu með bólur eða óhreina
Krem sem verndar og nærir
Aromatherapy protective moisturing lotion
Fitulaust krem sem vinnur á móti
myndun baktería
Formule B er ilmolíumeðferð
þar sem vinna saman 3 einingar
FORMUI. niB
arnRE
FOBSPOÍS
Éúmmmi
rwówes the futune
K* SPCH5
Fæst í apótekum
APOAAT HE fíAPV
PfíOTECirvE &
MOtSUJRlSING
IOTON
Atnr pmei
AíKDMAFHERAP'f
PRE'ÆNTfíÆ
FACE WASH
Fyrirbyggjandi andlitshreinsun
Aromatherapy preventive face wash
Sápa sem vinnur gegn bólum
og verndar húðina
Bólupenni
Aromatherapy blemish pen
Penni sem eyðir bólum
og fílapenslum
rwfatrmps
Ífíffl , aL'« pjjj
; •Á‘‘