Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995
LISTIR
MÓRGUNBLAÐIÐ
Ný blómaverslun
Verið velkomin í nýja blómaverslun í
húsnæði Blóma og Ávaxta íHafnarstræti
Aldrei meira úrval af blómum,
blómaskreytingum og gjafavörum
Kynnið ykkur vikuleg tilboð okkar!
^aíoáiBLój^
Hafnarstræti 4 4f
551
-21^
Gleðilega páska
GLEÐILEGT SUMAR
Píta með buffí, frönskum og sósu kr. 490,-
Hamborgari, franskar og sósa kr. 400,-
HUGURINN starfar best
þegar líkaminn er vel
hvíldur og fullur af
náttúrulegri orku.
GINSANA G 115 styrkir
þessa þætti; eykur úthald
og eflir andlegt og líkamlegt
þrek sem gerir þér betur
kleift að standast álag.
GINSANA G 115
inniheldur vísindalega
prófað ginseng þykkni úr
völdum ginseng rótum.
Efldu huga og hold
með GINSANA G 115
Élh
Eilsuhúsið
Skólavörðustíg & Kringlunni
MYNDLIST
Gallcrí Sævars Karls
BLÖNDUÐ TÆKNI
SAMSÝNING
Opið mánud.-föstud. kl. 10-18 og
laugard. kl. 10-14 til 3. maí.
Aðgangur ókeypis
PÁSKAR eru mikil helgitíð í
hugum kristinna manna um allan
heim, og myndlistin hefur vissu-
lega leitað mikið í þann örlaga-
þrungna brunn
kristnisögunnar um
myndefni sem tengjast
lífi Krists. En í lista-
sögunni er einnig til
önnur tenging við
páska, sem minnir
öðru fremur á and-
stæða þætti — verald-
legan munað, ríki-
dæmi og spillingu, sem
um síðir átti sinn þátt
í að móta tuttugustu
öldina meir en flest
annað.
Hér er átt við hin
keisaralegu páskaegg,
sem gullsmiðurinn og
listamaðurinn Carl Fa-
bergé smíðaði fyrir ,
rússnesku keisarana Alexander III
og Nikulás II frá 1884 allt til 1917.
Sú hefð skapaðist að keisarinn
færði frú sinni á páskadagsmorgun
nýtt egg gert af Fabergé, en þessi
listaverk áttu eftir að lifa í listasög-
unni — að nokkru fyrir eigin list-
ræna verðleika, en ekki síður fyrir
að vera gyllt og glæsileg tákn um
þá fjarlægð sem var orðin milli
alþýðu Rússaveldis, sem barðist
daglega fyrir lífi sínu, og þeirrar
ógnarstjórnar valdhafa, sem mátu
slíkt glingur öllu meira en velferð
þegna sinna. Lengi eftir að þessi
firrta valdstjóm féll loks 1917 var
ekki síður litið á Fabergé-eggin
sem pólitísk tákn en listaverk, og
svo mun víst enn.
Páskaeggið er vissulega eldra í
sögunni en sem þessu nemur. Egg-
Sævar
Karl Ólason.
^ af fallegum fötum w
^ og skóm ^
J - Fötin sem börnin vilja -1
S EN&LABÖRNÍN ®
Bankastrœtl 10 síml 552-2201
/////////y/a
ið hefur í aldanna rás orðið sígilt
tákn fyrir ftjósemi (og þar með
endurfæðingu vorsins), hreinlífi og
upprisuna í kristinni trú; egg
strútsins hefur jafnframt verið
notað sem tákn meyfæðingarinnar,
hinnar guðlegu sköpunar. Súkkul-
aðið sem flestir hafa verið að borða
undanfarið á sér þannig ríka sögu,
sem rétt er að minna á annað veif-
ið.
Það er gert með þessari litlu
sýningu, sem stendur vel fyrir sínu
þó páskar séu liðnir. Hugmyndin
er bæði einföld og árangursrík; hér
hefur Sævar Karl
kallað til tuttugu og
sjö listamenn sem
hafa sett upp einka-
sýningar í galleríinu
undangengin fimm ár,
og hver leggur til lítið
verk í tilefni pá-
skanna.
Hér er samankom-
inn stór hópur ólíkra
listamanna, og það er
óvenjulegt að listunn-
endur fái tækifæri til
að bera saman nálgun
þeirra við jafn þröngt
markað viðfangsefni.
Niðurstaðan er afar
fjölbreytt, og verkin
bera oftar en ekki með
sér að umtalsverðar bollaleggingar
liggja að baki, bæði hvað varðar
tákngildi og útlit verkanna. Það
er t.d. langur vegur á milli hins
einfalda gulleggs Hólmfríðar Sig-
valdadóttur og samlímingar Sigur-
borgar Stefánsdóttur, þar sem þeir
eru hlið við hlið, Jesú Kristur frá
gamla heiminum og guðir æsku
okkar tíma, hinir fræknu körfubol-
takappar frá nýja heiminum.
ímyndir Stefáns Geirs Karlssonar
og Æju Þ. Magnúsdóttur minna á
pínu Krists með áberandi hætti,
en Sæmundur Valdimarsson sýnir
að það er einnig hægt að gera á
hógværari máta.
Þannig mætti halda áfram að
benda á gildi framlags hvers um
sig, en rétt að láta gestum eftir
að njóta sýningarinnar, sem þrátt
fyrir fjölda verka nýtur sín nokkuð
vel á þessum fáu fermetrum.
Nafnalisti sýnenda er einnig góð
upprifjun á, hveiju þetta litla gall-
erí hefur fengið áorkað á undan-
förnum árum, á meðan stærri sýn-
ingarstaðir hafa komið og farið.
Um leið er sýningin áminning um
að það er ekki endilega stærð slíkra
staða sem ræður mestu, heldur
skipta þrautseigja, úthald, vandað
val á sýnendum og góð samvinna
við listafólk sköpum.
Það er alveg óhætt að þakka
slíkt öðru hveiju.
Eiríkur Þorláksson
[v¥ ¥¥ V »y»Vt»UlryT V V 'Ý v y v v y V
Viljir þú skila
vönduðu
verki þá
velur þú
ESAB
J=SAB
Allt til rafsuðu
== HÉÐ3NN ==
VERSLUN
SEUAVEGI 2 SÍMI 562 4260
Útí
vorið
SÖN GKV ARTETTINN Út í vorið
heldur tónleika dagana 20. - 23.
apríl norðan heiða og sunnan.
í kvöld 20. apríl verður sung-
ið í Deiglunni (Listagilinu) á
Akureyri kl. 20.30, á morgun í
Skjólbrekku í Mývatnssveit kl.
21 og sunnudagskvöldið 23.
apríl verður sungið í Islensku
óperunni, Gamla bíói í Reykja-
vík, kl. 20.30. Miðar á tónleika
í íslensku óperunni eru til sölu
frá kl. 15-19 daglega.
Kvartettinn var stofnaður
1992 og hélt fyrstu opinberu
tónleika sína í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar 1993. Síðan hef-
ur kvartettinn haldið tónleika í
öllum landsfjórðungum, nema
Austurlandi. S.l. sumar kom
hann fram á sex tónleikum víða
á Englandi. Efnisskráin mótast
mjög af þeirri hefð, sem ríkti
meðal íslenskra karlakvartetta
fyrr á öldinni og hefur helst ver-
ið sótt í sjóði Leikbræðra og
M.A. kvartettsins.
Kvartettinn skipa þeir Einar
Clausen, Haildór Torfason, Þor-
valdur Friðriksson og Ásgeir
Böðvarsson, sem allir hafa verið
félagar í Kór Langholtskirkju.
Við hljóðfærið er Bjarni Þ. Jóna-
tansson, sem jafnframt er aðal-
þjálfari og leiðbeinandi kvart-
ettsins. Bjarni starfar sem
píanókennari og organisti í
Reykjavík og hefur starfað með
fjölda einsöngvara og kóra.
Grafík í
útvarps-
húsinu
ELÍN P. Kolka, Gréta Mjöli
Bjarnadóttir og Gréta Ósk Sig-
urðardóttir hafa opnað grafík-
sýningu í Útvarpshúsinu, Efsta-
leiti 1.
Myndirnar eru unnar í kopar
og ál og þrykktar á pappír. Sýn-
ingin stendur yfir í 180 sólar-
daga.
BJARNI Ingvarsson og
Gunnar Helgason í hlut-
verkum sínum í Umferð-
arálfinum Mókolli.
Astarsaga
og umferðar-
álfur
TVÆR leiksýningar fyrir börn
verða í dag, sumardaginn fyrsta,
í Möguleikhúsinu við Hlemm,
Ástarsaga úr fjöllunum og Um-
ferðarálfurinn Mókollur.
Ástarsaga úr fjöllunum bygg-
ist á sögu Guðrúnar Helgadótt-
ur. Þar segir frá tröllskessunni
Flumbru.
Sýningar á Umferðarálfinum
Mókolli hafa legið niðri um nokk-
urt skeið, en hefjast nú að nýju.
Verkið sem er unnið í samvinnu
við Umferðarráð, var frumsýnt
fyrir rúmu ári síðan og hefur
verið sýnt víðsvegar um landið.
í leikritinu er bömunum kennt
að varast þær hættur sem helst
kunna að verða á vegi þeirra í
umferðinni.
Ástarsaga úr fjöllunum er
sýnd kl. 15 og Umferðarálfurinn
Mókollur kl. 17.