Morgunblaðið - 23.05.1995, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DANSKIR verslunareigendur og
aðrir með debetkortastöðvar hafa
hingað til ekki þurft að greiða fyrir
stöðvamar. Á því gæti orðið breyt-
ing á næstunni. Dönsku bankamir,
sem reka debetkortakerfíð Dankort
í sameiningu, hafa nú hug á að
þeim verði gert kleift að taka gjald
fyrir, en til þess þarf lagabreytingu.
Per Ladegárd, framkvæmdastjóri
Pengeinstituttemes Betalings
Service, PBS, er rekur Dankort-
kerfíð, segir í viðtali við Morgun-
blaðið að danska fyrirkomulagið
með ókeypis stöðvar þekkist hvergi
annars staðar. Lagabreytingar sé
einnig þörf, því eins og lögin séu
nú hindri þau verslun í gegnum
tölvunet og aðra verslunarhætti,
sem nútíma tölvutækni bjóði upp
á. Forsvarsmenn verslana hafa lýst
mikilli óánægju með hugsanlegar
breytingar og á endanum verði það
neytendur, sem greiði fyrir þær.
Dankortið kom fram árið 1983.
Hugmyndin af hálfu bankanna þá
var einkum að stemma stigu við
ávísananotkun, sem þótti óhóflega
dýr, án þess að bankarnir gætu
innheimt allan kostnaðinn. Það tók
USAir
dregur
úr hagn-
aðiBA
London. Reuter.
FLUGFÉLAGIÐ British Airways
skilaði 61% meiri hagnaði á síðasta
fjárhagsári en árið áður, en gjald-
færsla upp á 125 milljónir punda
vegna eignarhlutar félagsins í USA-
ir skyggði á ánægjuna.
Hagnaður fyrir skatta jókst í 452
milljónir punda til loka rjárhagsárs-
ins 31. marz úr 280 milljónum
punda.
Vegna breytinga á bandarískum
bókhaldsreglum gat BA ekki af-
skrifað 251 millj. punda hlut sinn
í USAir að því marki, sem það eðli-
legt, og Sir Colin Marshall, for-
stjóri BA, segir, að um sé að ræða
tæknilegt atriði, sem ekki ætti við
í Bretlandi. Hagnaður fyrir skatta
til 31. marz var því 327 milljón
punda miðað við um 280 milljónir
fyrir ári.
Farþegum félagsins fjölgaði um
6,7% og sætanýting jókst í 71.6%.
Arður á hlutabréf var aukinn um
11.7%. Rekstrarhagnaður jókst um
32% í 618 milljónir punda. Hluta-
bréf lækkuðu um níu pens í 416
eftir birtingu ársreikninga.
------» ♦ ■»-----
Ný Alcatel-
rannsókn
París. Reuter.
FORMLEG rannsókn er hafín í máli
annars af yfirmönnum iðnfyrirtækis-
ins Alcatel Alsthom, Francoise Sam-
permans, sem er gefíð að sök að
hafa notað fé frá fyrirtækinu til
þess að koma fyrir öryggiskerfi á
heimili sínu.
Talsmaður fyrirtækisins hefur
staðfest að Jean-Marie D’Huy rann-
sóknardómari hafi yfirheyrt Sam-
permans, sem stjórnaði fjölmiðla-
deild Alcatels, Générale Occidentale.
Sampermans hefur auk þess verið
gert að greiða 50,000 franka sekt.
D’Huy hefur rannsakað ásakanir
um að Alcatel hafí krafíð France
Telecom um of háar greiðslur og
Pierre Suard var vikið úr stöðu
stjórnarformanns í marz.
Að sögn Alcatel komst D’Huy að
því að Alcatel-fyrirtækið Intervox
kom fyrir öryggisbúnaði í húsi Sam-
permans í Vincennes fyrir 70,000
franka 1990.
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1995 15
VIÐSKIPTI
Dönsku bankamir
vilja gjald af debet-
kortastöðvum
nokkur ár, áður en kortið sló í gegn.
Ávísananotkun náði hápunkti 1986,
þegar gefnar voru út 230 milljónir
ávísana. 2,6 milljónir Dankorta eru
í notkun, færslur á ári eru 200
milljónir og ávísanaijöldi er nú und-
ir 100 milljónum á ári. Um fjörutíu
þúsund kortastöðvar eru á hinum
ýmsu viðskiptastöðum og hér er
vart til sá staður, þar sem ekki er
hægt að greiða með Dankortinu.
Þegar Dankortakerfínu var kom-
ið á þurftu viðskiptaaðilar ekki að
greiða neitt fyrir kortastöðvamar
og uppsetningu þeirra. Ýmsir for-
mælendur verslunareigenda segja
nú að þá hafí bönkunum verið mik-
ið í mun að draga úr ávísananotkun
og því séð sér hag í að bjóða þessa
þjónustu og taka sjálfír á sig kostn-
að. Rekstur PBS á Dankortakerfinu
stendur á jöfnu og því segja and-
stæðingar nýja fyrirkomulagsins að
með þessu séu bankarnir að velta
einhverjum öðrum kostnaði yfír á
Dankortakerfið. Þeir benda einnig
á að öll gjaldtaka af þeim muni
óhjákvæmilega hafa áhrif til hækk-
unar á verðlag þeirrar vöru og þjón-
ustu sem þeir selji. Á endanum sé
því reikningnum vísað til neytenda
og engra annarra.
Breyta þarf lögum um
debetkort
I viðtali við Morgunblaðið sagði
Per Ladegárd framkvæmdastjóri
PBS að þó rekstur Dankortakerfis-
ins stæði á jöfnu fyrir PBS, bæru
bankarnir eftir sem áður kostnað
af Dankortakerfínu. Hver færsla
kostaði þá 91 eyri danskan, eða um
tíu krónur íslenskar. Ladegárd
sagði að frumkvæðið um greiðslu
fyrir stöðvarnar kæmi ekki frá
PBS, heldur frá Fjármálaráðinu,
sem eru samtök bankanna. Ráðið
hefði gert tillögu um lagabreytingu,
sem heimilaði gjaldtöku fyrir stöðv-
arnar.
Eins og lögin eru núna er óheim-
ilt að krefjast greiðslu fyrir rekstur
debetkortakerfísins og þeim lögum
vill ráðið fá breytt. Slíkt bann segir
Ladegárd hvergi vera til í heiminum
nema hugsanlega í Albaníu. Með
tækniframþróun gætu þessi ein-
stæðu lög verið hemill á nýja við-
skiptahætti og það væri einnig rök-
semd fyrir að fá þeim breytt, auk
þess sem bankamir vildu gjarnan
að þeir sem hefðu kortstöðvamar
greiddu eitthvað fyrir hagræðið af
notkun þeirra. í kjölfar nýrrar tækni
væri einnig augljóst að koma þyrfti
til frekari fjárfestingar í uppbygg-
ingu sjálfs kerfisins og þá ekki óeðli-
legt að þeir sem hefðu hag af því,
tækju einnig þátt í kostnaðinum.
<SPSeagate
Seagate® er skrásett
vörumerki Seagate Technology Inc.
Hágæðadiskar
á betra verði
SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVlK .
SfMI: 91-627333 - FAX: 91-628622 C3t_<t__I
Verðlækkun á GSM
farsímum
MOTOROLA
'OROLA 7200
Viðurkennd Motorola gæði. Lítill og léttur
GSM farsími sem vegur aðeins 240 grömm.
Flipi er á símanum sem lokar takkaborðinu.
100 númera skammvalsminni. Símanum
fylgir fullkomið hleðslutæki og tvær
rafhlöður. Islenskar leiðbeintngar fylgja.
■980-&
63.137-
...T
Beocom
BEOCOM 9500
Beocom frá Bang & Olufsen.
Úrvals hönnun og gæði.
Beocom vegur aðeins um 225 gr og
hentar því einstaklega vel í vasa og veski.
Síminn er einfaldur í notkun og með
10 númera endurvalsminni.
Hleðsluspennir fyrir rafhlöður og
íslenskar leiðbeiningar fylgja.
69.980-;iD
73.663
POSTUR OG SIMI
Söludeild Ármúla 27, sími 550 6680
Söludeild Kringlunni, simi 550 6690
Söludeild Kirkjustræti, sími 550 6670
og á póst- og simstöðvum um land allt.
‘Afborgunarverð