Morgunblaðið - 23.05.1995, Page 40

Morgunblaðið - 23.05.1995, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elskuleg móðursystir mín, FRÚ SVAVA FELLS, Freyjugötu 6, Reykjavík, sem lést þann 15. maí síðastliðinn verð- ur jarðsungin frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 24. maí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Guðspekifélag fslands eða líknar- stofnanir. Ingvi Rafn Jóhannsson. t Ástkær móðir okkar, ÞÓRDÍS BJÖRG JAKOBSDÓTTIR, Spítalavegi 9, Akureyri, lést laugardaginn 20. maí. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju föstudaginn 26. maí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar, er bent á Kvenfélagið Hlíf. Jakobfna Kjartansdóttir, ÓlafurTr. Kjartansson. t Innilegar þakkir sendum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall systur okkar, GUÐNÝJAR ELÍSDÓTTUR, Halldóra Elísdóttir, Díana K. Kreyer. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR VALDIMARSDÓTTUR, Brimnesbraut 39, Dalvík. Sérstakar þakkirtil alls starfsfólks Hornbrekku, dvalar- og hjúkrun- arheimilis Ólafsfjarðar, fyrir góða hjúkrun og aðhlynningu. Björn Gunnlaugsson, Guðlaug Björnsdóttir, Hilmar Danielsson, Erla Björnsdóttir, Sigurður Haraldsson, Rikarður Björnsson, Hallfriður Þorsteinsdóttir, Arna Björnsdóttir, Morten Haveraaen, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför INGVARS MAGNÚSSONAR, Hrismóum 6. , Þórey Ingvarsdóttir, Halldóra Ásgeirsdóttir, Ásgeir Þorvaldsson, Pétur Ásgeirsson, Hendrikka Alfreðsdóttir, Gunnar Asgeirsson og barnabarnabörn. t Þökkum innilega samúð, hlýhug og vináttu við fráfall KRISTÍNAR INGIBJARTARDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir frábæra umönnun og vinsemd hinni látnu til handa á ævikvöldi hennar. Sesselja Guðnadóttir, Guðmundur Ibsen, Kristín Guðmundsdóttir, Kristján Sigurgeirsson, Dröfn Guðmundsdóttir, Sigurður Magnússon, Þórir Ibsen Guðmundsson , Dominique Ambroise og barnabarnabörn. t Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför STEINÞÓRS ÞÓRÐARSONAR, Skuggahlfð, Norðfirðl. Guð blessi ykkur öll. Herdís V. Guðjónsdóttir, Sigursteinn Steinþórsson, Hugrún Svavarsdóttir, Guðjón Steinþórsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Steinunn B. Steinþórsdóttir, Önundur Erlingsson, Jón Þ. Steinþórsson, Valgerður Steinþórsdóttir, Jóna J. Steinþórsdóttir, Sigurður Kristjánsson og barnabörn. EYSTEINN GUNNARSSON + Eysteinn Gunn- arsson, sjómað- ur og vigtarstjóri á Húsavík, fæddist í Flatey á Skjálf- andaflóa, 15. októ- ber 1921. Hann lést 30. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Gunnar Guðnason í Garðs- horni, f. 24. ágúst 1899, d. 13. nóvem- ber 1940, og kona hans Kristín Gísla- dóttir, f. 29. mars. 1902. Eftirlifandi eiginkona Eysteins er Álfheið- ur Eðvaldsdóttir, f. 4. nóvem- ber 1918. Börn þeirra eru Krist- ján Gunnar Eysteinsson, f. 25. febrúar 1945, Hreinn Jónsson, f. 16. desember 1946, Fréyja Eysteinsdóttir f. 8. ágúst 1958, og Sigfús Eðvald Eysteinsson, f. 23. september 1962. Utför Eysteins fór fram frá Húsavíkurkirkju 6. maí. ELSKU afi minn. Nú er komið að skilnaðarstund hjá okkur, of fljótt að mínu mati, því það var margt sem við áttum eftir að gera. Eins og alltaf þegar við kveðjum ættingja, vini og félaga í hinsta sinn, hellast minningarnar yfir. Undanfarna daga hafa rifjast upp fyrir mér allar góðu minningarnar sem ég á um þig. Það var alltaf svo gott að koma til þín og ömmu á „Iðó“. Þú varst alltaf tilbúinn til að gera allt fyrir okkur barnabörn- in. Þú hlustaðir á gleði okkar og sorgir og tókst þátt í þeim með okkur ef eitthvað var að komstu okkur alltaf til að brosa, þú lékst við okkur og spilaðir með okkur, þú fræddir okkur um allt milli himins og jarðar, þú sagðir okkur sögur úr Flatey, af sjónum o.fl. og sama hvað var, alltaf varst þú til staðar, traustur sem klettur, og hugsaðir alltaf fyrst um hina og síðast um þig sjálfan. Flateyjarferðirnar með þér eru ógleymanlegar. Öll vor og sumur voru hálfómöguleg ef ekki var farið í Flatey með afa og vorum við þeg- ar farin að ræða næstu ferð sem átti að fara í vor, en nú verður ekkert af. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stnð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku afi minn, minning þín mun lifa í huga mínum og hjarta um alla eilífð. Mínar bestu þakkir fyrir allt sem þú gafst mér og kenndir mér. Elsku amma, langamma, mamma, Kristján, Hreinn og Sig- fús, megi góður Guð styrkja ykkur og varðveita á þessum sorgartím- um. Kveðja. Helena Eydís. Elsku besti afi. Hvað getur maður annað en hugsað um þig og minnst þín? Allt- af varst þú stoð og stytta,- heyrðist aldrei brýna raust né rífast, varst alltaf rólegur og yfirvegaður, tókst öllu með jafnaðargeði. Eg vil þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, elsku afi, ég mun sakna þess að koma í Iðavelli til ömmu og geta ekki talað við þig og hlustað á sögurnar þínar, en ég hugga mig við minningarnar og minnist þeirra með gleði og þakk- læti í huga. Við tvö vitum hvað rétt er. Nú finn ég angan löngu bleikra blóma, borgina hrundu sé við himin ljóma, og heyri aftur fagra, forna hljóma, finn um mig yl úr bijósti þínu streyma. Ég man þig enn og mun þér aidrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Blessað sé nafii þitt bæði á himni og jörðu. (D. Stef.) Þitt Hildu tetur. ARl GÍSLASON + Ari Gislason, kennari og ættfræðingnr fæddist að Syðstu-Fossum í Andakíls- hreppi 1. desember 1907. Hann lést 10. maí sl. og var jarðsung- inn frá Akraneskirkju 17. maí sl. FÁA ELDRI menn hef ég hitt sem geislað hafa af jafn miklum þrótti og æskufjöri og Ari Gíslason. Skarplegt augnaráð hans, kvikar hreyfíngar, hnyttin tilsvör og leiftrandi frásagnargleði vöktu strax athygli mína þegar leiðir okkar lágu saman sumarið 1993 í tilefni 70 ára afmælis sumarbúð- anna í Vatnaskógi. Ari var þá á 87. aldursári en ég rúmri hálfri öld yngri. Þessi dtjúgi aldursmun- ur hvarf þó eins og dögg fyrir sólu þegar við fórum að ræða sam- an því ég varð þess fljótt áskynja að ég var að ræða við mann sem var bæði ungur og ferskur í anda og virtist hafa meiri starfsorku en margur á mínu reki. Sem ungur drengur kynntist Ari starfí KFUM í Reykjavík. Sjálfur leit hann á þau kynni sem eitt af sínum mestu gæfusporum í lífinu og þá ekki síst að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í starfinu í Vatnaskógi. Ari var m.a. í hópi þeirra sem fór í fyrstu ferðina í Vatnaskóg sumarið 1923. Sú ferð var í hæsta máta söguleg þvi farið var á pallbíl upp í Mos- fellssveit en gengið þaðan upp í yatnaskóg og tók ferðin tvo daga. Á leiðinni var gist í hlöðu á Þor- láksstöðum í Kjós. Unun var að heyra Ara rifja upp þessa ferð. Mundi hann glöggt eftir mörgum drengjanna sem voru samferða honum og sá fyrir sér selina sem spókuðu sig í sólinni í Hvalfirðin- um. Ymsu spaugilegu kunni Ari einnig að greina frá úr ferðinni eins og þvi þegar einn félaga hans steyptist í Laxá í Kjós þegar Ari hoppaði á bak sama hesti sem feija átti þá báða yfir ána. Sumarið 1993 þegar 70 ár voru liðin frá fyrstu ferðinni í Vatna- skóg var þess m.a. minnst með því að efna til hliðstæðrar ferðar í Vatnaskóg og tóku rúmlega 20 ungmenni þátt í ferðinni ásamt fararstjórum. Þá kom Ari í Vatna- skóg, rifjaði upp brot úr fyrstu ferðinni frá 1923 og brýndi jafn- framt fyrir þreyttum göngugörp- um og öðrum tilheyrendum, sem saman voru komnir á afmælishá- tíðinni, að mest um vert væri þó að fá að ganga lífið á enda í fylgd Jesú Krists, Drottins okkar og frelsara. Ari Gíslason var valinn fyrsti formaður Skógarmanna árið 1929 þegar Skógarmannafiokkurinn var stofnaður og sinnti hann því starfi af miklum skörungsskap fyrstu brautryðjendaárin. Árið 1930 hleypti hann af stokkunum Lindinni, blaði Skógarmanna KFUM, ásamt nokkrum ungum Skógarmönnum, en blaðið var jafnan handskrifað fyrstu árin og efni þess notað til upplestrar á Skógarmannafundum á veturna. Enn þann dag í dag kemur Lindin út a.m.k. einu sinni á ári og er þá dreift til þeirra rúmlega 13.000 Skógarmanna sem dvalið hafa í Vatnaskógi og enn eru á lífi. Kynni mín af Ara Gíslasyni urðu því miður styttri en ég hefði viljað. Við höfðum áformað að fara sumarið 1994 í skoðunarferð um nágrenni Vatnaskógar og ætlaði hann að fræða mig um örnefni þar í grennd, en um þau mál var Ari sérfróður. Því miður gat ekki orðið af þeirri ferð því heilsu hans hrakaði skyndilega. Eg átti þó því láni að fagna að hitta hann nokkrum sinnum að máli og minnist ég þeirra sam- funda með mikilli gleði. Hann skammaði mig að vísu fyrir að fá ekki að taka þátt í að styðja Skálasjóð Skógarmanna eins og yngri Skógarmennirnir en ég lof- aði að bæta úr því og báru fram- lög hans ótvíræðan vott um hlý- hug hans til starfsins í Vatna- skógi. Fyrir hönd Skógarmanna KFUM færi ég einlægar þakkir fyrir liðveislu hans fyrr og síðar og bið góðan Guð að gefa eftirlif- andi eiginkonu hans og ástvinum öllum huggun og styrk í sorg þeirra. í Guðs friði. Þórarinn Björnsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR málarameistara, Sléttuvegi 13. Ingunn Jónsdóttir, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Guðmundur Jónsson, Mattfna Sigurðardóttir, Sigurjón Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Crfisdrykkjur A Vsitingohú/ið cnn-inn Síflli 555-4477

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.