Morgunblaðið - 17.10.1995, Side 7

Morgunblaðið - 17.10.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 7 FRETTIR Talsverður áhugi er á íbúðum Ger í Þýskalandi Tvær af tuttugn íbúðum eru seldar GER GmbH, sem er hlutafélag í Þýskalandi í eigu Ármannsfells og Islenskra aðalverktaka, hefur selt tvær af þeim tuttugu íbúðum sem fyrirtækið hefur reist í nágrenni við Stuttgart. Fyrsti íbúinn flutti inn í gær. Helgi Sæmundsson, framkvæmdastjóri Ger, sagði að sala á íbúðarhúsnæði í Þýskalandi hefði hrunið á þessu ári, en hann sagðist þó vera þokkalega bjart- sýnn á að takist að selja íbúðirnar á næstu vikum. Vinnu við íbúðirnar er að ljúka um þessar mundir. Þær voru aug- lýstar til sölu fyrir 10 dögum og kynning á þeim fór fram um síð- ustu helgi og helgina þar á undan. Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnu- maður var viðstaddur upphafs- kynninguna og tókst hún mjög vel. Helgi sagði að talsverður áhugi væri á íbúðunum og margir væru búnir að skoða oftar en einu sinni. íbúðirnar, sem reistar eru með permaform aðferð, þættu mjög fallegar. Mestur áhugi væri á stærri íbúðunum. Helgi sagði að sala á íbúðum -gengi hægt fyrir sig í Þýskalandi því að kaupendur yrðu sjálfir að sjá um alla ijármögnun húsnæðis- ins. Hann sagðist vita að þó nokkr- Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson GER hefur reist tvö hús með samtals 20 íbúðum í Þýskalandi. ir væru að skoða íjármögnun íbúðarkaupanna. Hrun á sölu íbúða í Þýskalandi Helgi sagði að sala á íbúðarhús- næði í Þýskalandi hefði hrunið á þessu ári. Ástæðan væri m.a. auk- in skattheimta og hækkun opin- berra gjalda. Talsverð óvissa væri um þróun efnahagsmála og at- vinnumála, sem leiddi til þess að fólk héldi að sér höndum. Helgi nefndi sem dæmi um samdráttinn að af 210 íbúðum sem væru tilbún- ar eða að verða tilbúnar á svæðinu væri aðeins búið að selja 14. Hlut- ur Ger í þessari sölu væri því ekki slæmur. Helgi sagði að undirbúningur væri hafinn fyrir frekari húsbygg- ingar á vegum Ger. Hann sagði að framkvæmdir myndu þó ekki hefjast fyrr en búið væri að selja helming af þeim 20 íbúðum sem búið væri að reisa. Engin ákvörðun hefði verið tekin um hvar yrði byggt. Framkvæmdir myndu heíj- ast í vor ef salan á íbúðunum gengi vel. Flestir af þeim 20 íslensku starfsmönnum sem unnið hefðu við byggingu íbúðanna myndu því halda heim á næstu vikum. Tómas A. Tómasson með rekstur •• Ommu Lú að nýju Yill reka næturklúbb SKEMMTISTAÐURINN Amrna Lú verður opnaður að nýju næsta föstudagskvöld eftir að rekstur hef- ur legið þar niðri um hríð. Tómas A. Tómasson veitingamaður, sem átti staðinn upphaflega, hefur aftur tekið við rekstrinum og ráðið nýjan rekstrarstjóra, Kristján Þór Jóns- son. Þegar hefur verið auglýst eftir starfsfólki og verða um 40 manns ráðnir. Kristján, eða „Kiddi Big Foot“, segir að staðurinn sem nú kallast Danshús Ömmu Lú, muni reyna að höfða til ungs fólks í kring- um 25 ára aldur. „Diskó og salsa munu setja svip sinn á tónlistina og stemmninguna, auk þess sem nú er að opnast markaður fyrir næturklúbba og staðsetning Ömmu Lú er tilvalin til slíks reksturs,“ segir Kristján. Hann segir að í þessari viku verði lögð inn umsókn um að starfrækja næturklúbb í húsakynnum Ömmu Lú, í kjölfar umræðu um breyttan opnunartíma skemmtistaða. Heppileg staðsetning „Ég er bjartsýnn á að staðurinn fái jákvætt svar, því að ef einhver staður ætti að fá slíkt leyfi eða búi yfir möguleikum á að reka nætur- klúbb, er það hiklaust Amma Lú. Staðurinn er ekki í miðbænum og ekki í miðju íbúðarhverfi, auk þess sem Tómas hefur getið sér orð fyr- ir traustan rekstur í gegnum tíðina, þannig að hann hefur alla burði til að standast þær kröfur sem eru gerðar til forkólfa næturklúbba," segir Kristján. Hann kveðst samt telja að stað- urinn hafi traustan rekstrargrund- völl þótt leyfi fyrir næturklúbb fáist ekki. AÐ GRENNAST ORUGGLEGA! Citri Max™ er nýtt náttúrulegt megrunarefni sem inniheldur HCA ávaxtasýrur. \/ Minni matarlyst \/ Minni ásókn í sætindi \/ Minni fitumyndun \/ Óskert orka Nú ó kynningarverði oóeins kr. 2.490 Opið virka daga kl. 13-18 • Laugardaga kl. 13-Jét1 HYunoni ... til framtíðar Hyundai Accent, 84 hestöfl, með beinni innspýtingu,samlæsingum og vönduðum hljómflutningstækjum. Fallegur, rúmgóður og nýtískulegur bíll, hannaSur meS þaS aS leiSarljósi að gera aksturinn ónægjulegan ó öruggan hótt. AukabúnaSur á mynd, álfelgur og vindskeiÖ. 949 000 ygyg^ Jjy|| ii KR. A GOTUNA ÁRMÚLA 13 SÍMI: 568 1200 BEINN SlMI: 553 1236

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.