Morgunblaðið - 17.10.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995 35
MIIMNING
var afburða orðhagur og kom því
sem hann vildi segja glöggt til skila
með sínum hjómfagra norðlenska
framburði. Góður og frambærilegur
þjónn Drottins. Mér er því séra
Þórhallur eftirminnilegur sem
glæsimenni á velli og skörungur í
verki.
Þegar maður minnist látins sam-
ferðamanns verða hinar hlýju og
alvarlegu myndir í forgrunninum.
En nú kemur hin glaðlega og kank-
vísa hlið séra Þórhalls einnig sterkt
upp í hugann, ekki síst brosið, hlát-
urinn og kímnin. í góðra vina hópi
gat hann verið hrókur alls fagnað-
ar. Og ég á margar skemmtilegar
minningar frá sambýli okkar á
Möðruvöllum. Mér er enn í fersku
minni er við lékum fjölskyldufót-
bolta og séra Þórhallur, sem ævin-
lega var snyrtilega klæddur, jafnvel
við bústörfin, mætti í svörtu jakka-
fötunum sínum og támjóu blank-
skónum. Og líklega man Höskuldur
sonur hans, þá smástrákur, enn
eftir skoti föður síns eftir endilöng-
um vellinum og í bláhornið á marki
okkar keppinautanna. Aðdáunin
skein þá úr litlu andliti drengsins.
Og þannig vil ég einnig minnast
glaðlyndis séra Þórhalls og minnast
hans sem fjölskylduföður sem öll
fjölskyldan getur dáðst að líkt og
Höskuldur gerði forðum.
Ég og fjölskyida mín vottum
aðstandendum séra Þórhalls samúð
okkar og þakklæti. Munum eftir
orðum Jesú sem séra Þórhallur tal-
aði oft um, að: „Sá sem trúir á mig
mun lifa þótt hann deyi.“
Bjarni E. Guðleifsson,
Möðruvöllum.
Sr. Þórhallur Höskuldsson var
stjórnarmaður í Norðurlandsdeild
SAÁ. Hann hafði verið beðinn að
taka sæti í stjórninni fljótlega eftir
stofnun deildarinnar, tók hann
þeirri bón vel og var okkur styrkur
félagi. Ávallt var Þórhallur eins
þegar leitað var til hans, hlýr, úr-
ræðagóður og fylginn sér. Aldrei
gerði hann mannamun, kom eins
fram við alla.
Að leiðarlokum eru Þórhalli
Höskuldssyni færðar innilegar
þakkir fyrir störf sín í okkar þágu
og ástvinum hans sendar okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Félagar í Norðurlandsdeild
SÁÁ.
Guð helgur andi, á hinstu stund
oss hugga þú með von um Jesú fund.
Þá er þrautin unnin.
Þá er sigur fenginn,
sælusól upp runnin,
sorg og þrenging engin.
Streymi þú líknarlind.
(Þýð. Helgi Hálfdanarson.)
Þó að hverjum og einum sé það
ljóst að allir eigi sitt skapadægur,
kemur það alltaf jafn mikið á óvart
þegar menn á besta aldri falla í
valinn. Það var hnípinn skóli sem
hóf störf að morgni 11. október
Blómastofa
Fríöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opiðöllkvöld
til kl. 22,* einnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.
síðastliðinn þegar sú frétt hafði
borist að séra Þórhallur Höskulds-
son hefði látist suður í Reykjavík
aðfaranótt laugardagsins á undan.
Enginn gat látið sér það til hugar
koma að hann legði næstur upp í
þá ferð sem allir fara og enginn fær
umflúið.
Séra Þórhallur hóf störf við
Gagnfræðaskóla Akureyrar haustið
1982 er hann gerðist sóknarprestur
á Akureyri og kenndi kristin fræði
við skólann eins og fyrirrennarar
hans hafa gert. Einnig vékst hann
alltaf vel við að kenna í veikindafor-
föllum kennara enda var hann boð-
inn og búinn að rétta hjálparhönd
þar sem hennar var þörf.
Starfsfólk Gagnfræðaskólans
þakkar séra Þórhalli samfylgdina
og sendir Þóru Steinunni Gísladótþ-
ur, eiginkonu hans, börnum þeirra
og öðru venslafólki innilegar sam-
úðarkveðjur.
Starfsfólk Gagnfræðaskóla
Akureyrar.
Kveðja frá Stefáni Valgeirs-
syni og íjölskyldu
Það grúir nú sorg yfir sveitinni minni,
séra Þórhallur Höskuldsson látinn er.
í návist hans höfðum af kærleika kynni,
kom oft til þeirra, sem þjáningu ber.
Þá verður fátækum mest það í minni
að misréttið átaldi’ hann alstaðar hér.
• Fleirí minningargreinar um
Sr.Þórhall Höskuldsson bíða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.
t
Systir okkar,
HULDA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Eiríksbakka,
Biskupstungum,
lést á dvalar- og hjókrunarheimilinu Kumbaravogi 13. október.
Ágústa Guðjónsdóttir,
Ingvar Guðjónsson.
t
Eiginmaður minn, .
JÓNJÓHANNESSON
mynd- og
handmenntakennari,
Tómasarhaga 23,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 19. október kl. 13.30.
Selma Kristiansen.
t
Elskulegur eiginmaður minn, sonur,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓSVALD GUNNARSSON,
Fannafold 46,
sem lést 8. október, verður jarðsung-
inn frá Háteigskirkju í dag, þriðjudaginn
17. október kl. 13.30.
Svanhildur Traustadóttir,
Margrét Pétursdóttir,
Trausti Þór Ósvaldsson, Sif Kristjánsdóttir,
Margrét Árdís Ósvaldsdóttir, Véstejnn Marinósson,
Arni Þór Ósyaldsson, Ásta Ósvaldsson,
Silja Dögg Ósvaldsdóttir, Valgeir Magnússon
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
REIMAR SIGURÐSSON,
Úthlið 33,
Hafnarfirði,
sem lést 11. október sl., verður jarð-
sunginn frá Víðistaðarkirkju fimmtudag-
inn 19. október kl. 13.30.
Gíslína Jónsdóttir,
Jón Ingvi Reimarsson,
Jóhann Þ. Jóhannsson, Guðný Pálsdóttir
og barnabörn.
t
Elskuleg dóttir mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
BRYNDÍS RÚN BJÖRGVINSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
áður Suðurgötu 64,
Hafnarfirði,
lést í Landspítalanum sunnudaginn
15. október.
Áslaug Theódórsdóttir,
Erlendur Gunnar Gunnarsson, Andrea Ólafsdóttir,
Áslaug Gunnarsdóttir, Þröstur Guðnason,
Selma Kristin Erlendsdóttir, Gunnar Erlendsson,
Bergþór Þrastarson.
t
Faðir okkar tengdafaðir og afi,
ÓSKAR EIRÍKSSON
Holtsgötu 9,
Hafnarfirði.
lést af slysförum laugardaginn 14. október.
Börnin.
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
KRISTÍN JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Holtsgötu 9,
Hafnarfirði.
lést af slysförum laugardaginn 14. október.
Börnin.
t
Konan mín,
JÓHANNA BJARNADÓTTIR,
Gljúfraseli 5,
er látin.
Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna,
Jón S. Guðlaugsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fóstur-
faðir og afi,
DAÐI GUNNLAUGUR
GUÐBRANDSSON
húsgagnasmíðameistari,
Skúlagötu 40a,
lést í Landspítalanum 3. október sl.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Við þökkum af alhug allan þann hlýhug
og samúð sem okkur hefur verið sýnd.
Eygló Halldórsdóttir,
Daði Daðason,
Elínborg Tryggvadóttir
og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
ÓLAFUR HERMANN JÓNSSON
flugumferðarstjóri,
Smárarima 102,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 2. október sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum sýnda samúð.
Herþrúður Ólafsdóttir,
Guörún B. Ólafsdóttir, Þór Jes Þórisson,
Anna M. Ólafsdóttir, Sturla Arinbjarnarson,
Steinunn Þ. Ólafsdóttir, Sigurður Geirsson,
barnabörn,
Gunnar Á. Jónsson, Hertha W. Jónsdóttir.
t
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
ELÍN OLIVER
(KRISTJÓNSDÓTTIR)
frá Ólafsvik,
andaðist á heimili sínu í Atlanta, USA,
þann 13. október sl.
Jack Oliver,
Mark Oliver,
Sigurður V. Sigurðsson, Kristín B. Marisdóttir
og barnabörn.
Islenshur efniviður
lslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
KAlWN
onmiv
Áralöng reynsla.
Leitið
uppiýsinga.
BSS. HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SlMI 557 6677