Morgunblaðið - 21.12.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 1995 15
h
NEYTENDUR
Menn og skepnur
úr trölladeigi
í OFNINUM í cldhúsinu heima hjá sér bakar
Sesselja Jónsdóttir í Ljósavatnshreppi í S-Þin-
geyjarsýslu bændur, fiskverkafólk, sjó-
menn, pijónakonur, stúdenta og fólk
úr ýmsum starfstéttum úr trölladeigi.
Verkið segir hún ekki flókið, deigið
sé sama magn af hveiti og salti bland-
að með köldu vatni þar til deigið verður
hæfilega þétt. Bökunartíminn er 8-14 klukku-
stundir eftir stærð hlutanna og hitinn hafður
lOOo.
Oft Iitar Sesselja deigið áður en hún stingur
því í ofninn því þannig segir hún að fáist fal-
legri áferð en þegar lakkað er
með húsgagnalakki úr úðabrús-
um eftir bökun. Augu trölla-
deigsfólksins eru negulnaglar
og hárið er mótað með lauk-
pressu.
Sesselja hefur búið til fjölda
gripa frá því hún fór á trölla-
deigsnámskeið á vegum kvenfé-
lagsins í fyrra. Einnig hefur
hún sjálf haldið námskeið víða
um land og leiðbeint áhuga-
fólki.
Sesselja segir að töluvert hafi
selst af trölladeigsfólki í Hand-
verkshúsinu við Goðafoss, einn-
ig selji hún heima hjá sér og í
Skemmunni í Hafnarfirði. Ann-
ars segist hún aðallega hafa
framleitt eftir pöntunum.
Trölladeigsfólkið sé vinsælt til
gjafa og oft sé hún beðin um
að hafa myndirnar sem líkastar
þeim sem gjöfina á að fá.
Trölladeigsfólkið er yfirleitt
20-25 cm á hæð og algengasta
verðið er 1.500 krónur. Veiðimaður
Bóndi
Kennslu-
kona
Fyrir síðustu jól hefur skótahreyfingin selt sígrœn
eðaltré í hœsta gœðaflokki og hafa þau prýtt
mörg hundruð heimili. Svo eðlileg eru trén að
fuglar gœtu átt það til að gera sér hreiður í
greinum þeirra. Sígrœnu jólatrén frá skátunum eru
grœn og falleg jól eftir jól.
t,
%
%
%
%
%
r-pft • Skátahúsið, Snorrabraut
Sýningarsalur Heklu, Laugavegi
10 ára ábyrgð
8 stœrðir, 90 - 305 cm
Stálfótur fylgir
Eldtraust
íslenskar leiðbeiningar
Jólatré með skrauti - 3 gerðir
zl6,i
Skeifunni 13
108 Reykjavík
568 7499
Norðurtanga 3
600 Akureyri
462 6662
Reykjavíkurvegi 72
220 Hafnarfjörður
565 5560
Holtagörðum
v/Holtaveg
104 Reykjavík
588 7499
t-
Sjöundi hlmlnn