Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 13
LANDIÐ
Ný áhalda-
o g tækjageymsla
Siglufirði - Björgunarsveitin
Strákar á Siglufirði tók form-
lega í notkun nýbyggða áhalda-
og tækjageymslu um sl. helgi.
Hús þetta, sem stendur við Þor-
móðsbúð, mun gjörbreyta allri
aðstöðu björgunarsveitarinnar.
Þar verða m.a. hýst þau tæki
og tól sem eru í eigu sveitarinn-
ar og mun björgunarbátur verða
staðsettur á sérstökum sleða
sem liggja mun út í sjó.
Öll vinna við tækjageymsluna
hefur verið unnin í sjálfboða-
vinnu af björgunarsveitarmönn-
um og velunnurum. Einnig hafa
ýmis fyrirtæki í bænum stutt
dyggilega þessa framkvæmd og
má þar sérstaklega nefna Véla-
verkstæði Jóns og Erlings.
Við vígslu hússins voru m.a.
viðstaddir forseti Slysavarnafé-
lags íslands, Einar Siguijónsson,
og framkvæmdastjóri félagsins,
Ester Guðmundsdóttir, og færðu
þau björgunarsveitinni skel með
beisli að gjöf. Einnig fékk sveit-
in við þetta tækifæri fjárstyrk
til tækjakaupa frá Sigluijarð-
arbæ.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
EINAR Siguijónsson, forseti Slysavarnafélags íslands, og
Birgir Steindórsson, formaður Björgunarsveitarinnar Stráka.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
KRAKKARNIR sem þátt taka í keppninni ásamt Mínervu, skólastjóra Tónlistarskóla Norður-Hér-
aðs. Talið frá vinstri Mínerva M. Haraldsdóttir, skólastjóri og stjórnandi keppninnar, Sigríður Sig-
urðardóttir, Heiðdis A. Þórðardóttir, Snjólaug E. Þorvaldsdóttir, Sigrún A. Pálsdóttir, Sólveig A.
Guðgeirsdóttir situr framar, Frosti Sigurðsson, Ragnar B. Jónsson, Gunnhildur A. Sigurðardóttir
og Ragnhildur I. Jónsdóttir.
Kontrapunktur í Brúarási
Vaðbrekku, Jökuldal - Nemend-
ur Tónlistarskóla Norður-Héraðs
hafa undanfarið keppt í þekk-
ingu á sígildri tónlist í keppni
sem er uppbyggð á svipaðan hátt
og Kontrapunktur í sjónvarpinu.
Krakkarnir í Tónlistarskóla
Norður-Héraðs spurðu af hveiju
ekki væri haldin keppni í anda
Kontrapunkts í skólanum og í
framhaldi af því ákvað Mínerva
Haraldsdóttir, skólastjóri Tón-
listarskólans, að slá til og halda
slíka keppni meðal nemenda
skólans.
Það var síðan í tilefni af degi
Tónlistarskólanna sem keppnin
Kontrapunktur fór af stað í
Brúarási. Krakkarnir, sem taka
þátt í keppninni, eru á aldrinum
fjórtán og fimmtán ára og er
skipt niður í þrjú þriggja manna
lið. Keppt er þrisvar sinnum í
liðum en fjórða keppnin verður
milli tveggja stigahæstu einstak-
linganna. Dregið er saman I liðin
áður en hver liðakeppni hefst svo
aldrei eru sömu krakkarnir sam-
an í liði og þannig er hægt að
finna stigahæstu einstaklingana.
Keppnin i Brúarási gengur út
á að þekkja stíltegundir sígildrar
tónlistar, greina hana niður í
timabil og þekkja höfunda og
tónverk. Mínerva segir að krakk-
arnir hafi verið lítið inn í þessari
tónlist í upphafi keppninar, en
ótrúlegt sé hve þau séu fljót að
komast inn í að þekkja tímabil
og fleira varðandi þessa tónlist.
Gaman að glíma við þrautirnar
Að sögn Snjólaugar Þorvalds-
dóttur, eins nemanda Tónlistar-
skólans og þátttakanda í keppn-
inni, þekkti hún dálítið til sígildr-
ar tónlistar, hafði hlustað dálítið
á hana og lesið sér til. Sagðist
hún þekkja eitt og eitt verk sem
fram kæmi í keppninni og það
sé gaman að glíma við þrautirnar
er fram koma í tónlistinni.
Snjólaug sagði að hún og
krakkarnir hefðu rosalega gam-
an að keppninni og henni kom á
óvart hvað margir krakkar tóku
þátt í henni. Sagðist hún hafa
lært af keppninni og það mætti
vera meira af slíku.
Mínerva segir þessa keppni
virka miklu betur við að læra að
þekkja sígilda tónlist en að sitja
í skólastofu og hlusta á þessa
tónlist. í þessari keppni komi líka
til skoðanaskipta um tónlistina
sem geri námið meira lifandi.
Útsala - þrek - útsala
ÍÞRÓTTASKÓR, fyrir aerobic, hlaup,
körfubolta og innanhúss frá Adidas,
Nike, Puma, Reebok o.fl.
HLAUPABAND
- GÖNGUBAND.
Fótdrifiö með hæöar-
stillingu og fjölvirkum
tölvumæli, verð aðeins
kr. 14.900, stgr. 14.155
Rafdrifið með hæðarstillingu
og fjölvirkum tölvumæli, verð
aðeins kr. 58.500, stgr. kr. 55.575
Handlóð og
lóðasett á
frábæru verði,
margar gerðir
og þyngdir.
ÞREKSTIGI
- KLIFURSTIGI
Verð aðeins
kr. 18.900,
stgr. 17.955.
Fjölvirkur
tölvumælir
og stillanlegt
ástig.
Fjölnota æfingabekkur
Bekkpressa, niðurtog, fluga og tví-
virkt fótaæfingatæki, 9 þyngdarstig.
Verð aðeins kr. 13.650, stgr. kr. 12.970
10-50% afsláttur
+ 5% stgr afsláttur
ÞREKHJÓL. Verð aðeins frá
kr. 12.900, stgr. kr. 12.255. Þrek-
hjól m/púlsmæli og 13kgkast-
hjóli kr. 17.500, stgr. 16.625.
Bæði hjólin eru með tölvumæli
sem mælir tíma, hraða og vega-
lengd, stillanlegu sæti og stýri
og þægilegri þyngdarstillingu.
LÆRABANINN kominn aftur. Verð aðeins
kr. 690 með æfingaleiðbeiningum. Margvis-
legar æfingar fyrir læri, brjóst, handleggi,
bak og maga. Þettta vinsæla og handhæga
æfingatæki er mikið notað í æfingastöðvum.
ÞREKPALLUR-AEROBIC-STEP.
Það nýjasta í þjálfun. Þrek, þol og
teygjur fyrir fætur, handleggi og
maga. Þrjár mismunandi hæðar-
stillingar, stöðugur á gólfi,
æfingaleiðbeiningar.
Verð aðeins kr. 3.900, stgr. 3.705.
ÞREKSTIGI - MINISTEPPER.
Litli þrekstiginn gerir næstum sama gagn og stór
en er miklu minni og nettari. Verð með gormum
kr. 2.095, með dempurum og tölvumæli
kr. 5.600, stgr. 5.320.
Einnig fyrirliggjandi stórir þrekstigar,
verð frá kr. 19.900, stgr. 18.905.
Greiðslukort og
greiðslusamningar
Símar: 553 5320
568 8860
Ármúla 40