Morgunblaðið - 29.03.1996, Síða 18
I
18 FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Gunnar M. Hansson, forstjóri Nýherja hf.
Sáttur við að hætta
GUNNAR M. Hansson,
forstjóri Nýheija hf., seg-
ist mjög sáttur við þá
ákvörðun sína að hætta
störfum hjá fyrirtækinu á
þessu ári. Ástæðan sé ein-
faldlega sú að hann vilji
nú hægja á ferðinni hjá
sjálfum sér. Eins og fram
hefur komið skýrði Gunn-
ar hluthöfum frá þessu á
aðalfundi félagsins á miðvikudag.
„Ég er búinn að vera í mjög
erfiðu starfi frá því ég lauk há-
skólanámi árið 1969 og við hjónin
höfum oft rætt um það okkar á
milli hvenær rétt væri að setja
punktinn. Við tókum þessa
ákvörðun um síðustu áramót og
ég tilkynnti ákvörðun mína í stjórn
fyrirtækisins og IBM. Hún mætti
miklum skilningi og ég var raunar
spurður hvort ég vildi ekki þá taka
við stjórnarformennsku í fyrirtæk-
inu er núverandi starfi Iyki. Ný-
heija gengur vel og það er mjög
bjart framundan."
Engin ákvörðun hefur verið tek-
in um ráðningu eftir-
manns Gunnars en hann
hættir störfum hjá Ný-
heija síðar á árinu.
Fréttaflutningur
Stöðvar 2 botninn í
fréttamennsku
Gunnar kvaðst hins
vegar vera afar óánægður
með fréttaflutning Stöðv-
ar 2 á miðvikudag af þessari
ákvörðun sinni. „Fyrrverandi
markaðsstjóri Stöðvar 2 keypti
hlutabréf í Nýheija nokkrum dög-
um fyrir aðalfundinn að nafnvirði
4.500 krónur. Hann mætti síðan
á fundinn og gagnrýndi þar fjár-
festingu Nýheija í Stöð 3. Lét
hann í það skína að ég hefði einn
tekið ákvörðun um það. Árni Vil-
hjálmsson stjórnarformaður kom
strax upp í pontu og las upp fund-
argerð þar sem fram kom að
stjórnin ijallaði um þessi mál. í
þeirri fundargerð kom sérstaklega
fram að stjórnin gerði sér grein
fyrir því að mikil áhætta væri sam-
fara þessari fjárfestingu. Stjórnin
teldi þetta hins vegar tilheyra
starfsemi Nýheija í dag.
Síðan mætti Stöð 2 með frétta-
mann á staðinn og birti frétt um
málið án þess að tala við kóng eða
prest. Þar var látið að því liggja
að ég væri að hætta vegna þess
að Nýheiji hefði orðið undir í slag
við Tæknival. Við erum hins vegar
ennþá með meiri veltu en Tækni-
val enda þótt reikningarnir sýni
lægri veltutölu. Við bókfærum
aðeins umboðslaun frá IBM en
ekki söluna. Veltufé frá rekstri
hjá okkur á síðasta ári var miklu
meira hjá Nýheija en hjá Tækni-
vali.
Nýheiji er einstaklega stöndugt
og gott fyrirtæki. Ég myndi aldrei
fara frá fyrirtæki nema geta litið
stoltur til baka yfir mínu starfi.
Þetta er botninn í fréttamennsku
hjá Stöð 2. Þarna var aðeins verið
að koma höggi undir beltisstað
vegna þess að við erum að keppa
við þá gegnum Stöð 3,“ sagði
Gunnar M. Hansson.
Allir nýta forkaupsréttinn í hlutaij'árútboði Borgeyjar
Bærinn kaupir lihiía-
bréf til að selja aftur
ALLIR stærstu hluthafar Borgeyj-
ar hf. á Höfn í Hornafirði hafa nú
ákveðið að nýta sér forkaupsrétt
að nýju hlutafé í félaginu. Nú síð-
ast ákvað Hornafjarðarbær að nýta
sinn rétt en ákvað samhliða að
selja bréf fyrir jafn háa upphæð á
árinu. Vonast bæjarstjórinn til að
hagnast á þessum viðskiptum og
ná meiru upp í það tap sem bærinn
varð á sínum tíma fyrir vegna
þátttöku í fyrirtækinu.
Á aðalfundi Borgeyjar var
ákveðið að auka hlutafé félagsins
um 60 milljónir kr. og bjóða hlut-
höfum það á genginu 1,25 sem
þýðir að söluverðið er 75 milljónir
kr. Markmiðið með útgáfu nýs
hlutafjár er að fjármagna nýjar
framkvæmdir á vegum félagsins,
meðal annars sérhæfða kola-
vinnslu, og að stuðla að dreifðri
eignaraðild en félagið ráðgerir að
sækja um skráningu hlutabrefa á
Verðbréfaþingi Islands innan
þriggja ára.
í útboðslýsingu kemur fram að
útlit sé fyrir að árið 1996 verði
metár í sögu félagsins. Hagnaður
er áætlaður liðlega 97 milljónir kr.
sem er tvöfalt meiri hagnaður en
á síðasta ári.
Ná til baka tapi
Núverandi hluthafar hafa for-
kaupsrétt fram á daginn í dag.
Einar Sveinn Ingólfsson, fjármála-
stjóri fyrirtækisins, segir að allir
stóru hluthafarnir hafi ákveðið að
vera með og einnig margir þeirra
smærri. Mesta óvissan var um
Homafjarðarbæ sem á 11,58%
hlut. Bærinn hefur nú ákveðið að
nýta sér forkaupsrétt sinn. Kaup-
verð bréfa bæjarins er um 8,7
milljónir kr. Jafnframt var ákveðið
að selja hlutabréf sem þessu nemur
á þessu ári, til heimamanna ef
þeir vilja. Sturlaugur Þorsteinsson
bæjarstjóri segir að með þessu sé
bærinn að veija hagsmuni sína.
Hornafjarðarbær lagði á sínum
100 milljóna kr. hlutafé í Borgey.
Það hlutafé tapaðist að verulegum
hluta við niðurfærslu hlutafjár við
endurskipulagningu fjárhags fé-
lagsins. Síðan bætti bærinn við 25
milljónum kr. Sturiaugur segir að
til mikils hafi verið að vinna, til
að bjarga helsta atvinnufyrirtæki
bæjarins frá gjaldþroti. Hann segir
að bærinn hafi fengið hluta af tapi
sínu til baka með arðgreiðslum og
hækkun markaðsverðs þess hlut-
afjár sem eftir er og stefnt sé að
ná meiru til baka með því að kaupa
og selja hlut bæjarins í aukning-
unni nú. Rökstyður hann það með
því að benda á að söluverð bréfa
í Borey á Opna tilboðsmarkaðnum
sé hærra en kaupgengið í útboðinu.
Sturlaugur tekur það fram að
stefna bæjarstjórnar sé að selja
hlutabréfin í Borgey þegar rétti
tíminn rennur upp. Bendir hann á
að í þriggja ára fjárhagsáætlun
bæjarins sé gert ráð fyrir sölu bréf-
anna en salan ekki nánar tímasett.
íslensk sýndarveru-
leikaverslun á alnetinu
KERFISGERÐIN hefur hannað
verslunarmiðstöð í sýndarveru-
leika á alnetinu, þá fyrstu sinnar
tegundar, að sögn Eyjólfs Kol-
beins Eyjólfssonar, eiganda fyr-
irtækisins. Hann segir að þegar
séu komnar tvær úgáfur af versl-
unarmiðstöðinni sé sú þriðja í
vinnslu og sé hún væntanleg á
næstunni.
Að sögn Eyjólfs hefur fjöldi
fólks heimsótt verslunarmiðstöð-
ina þrátt fyrir að hún liafi ekki
verið opnuð fyrr en 1. mars sl.
Samkvæmt mælingum séu heim-
sóknir nú komnar yfir 7.000 og
fari þeim ört fjölgandi. Þá séu
daglegar heimsóknir nú komnar
yfir 700. Eyjólfur segir þessa
talningu gefa nokkuð góða mynd
af fjölda þeirra sem skoði versl-
unina því hver notandi sé einung-
is talinn einu sinni, er hann kem-
ur fyrst inn.
Hann segir að í annarri útgáfu
sé talsverð hreyfing í umhverf-
inu en enn sé hins vegar ekkert
hljóð. Það sé hins vegar ætlunin
að koma því á og stefnan sé að
fólk geti jafnvel hist í verslun-
inni. Tækniþekkingin sem til
þurfi sé til staðar.
I dag eru aðeins vörur Álafoss
á boðstólum í versluninni en Eyj-
ólfur segir að viðræður standi
hins vegar yfir við innlend og
erlend fyrirtæki um vistun á
verslunum þeirra á netinu. Þess
má geta að Kerfisgerðin hlaut á
síðasta ári lof tímaritsins .net
fyrir heimasíðu Álafoss, sem fyr-
irtækið hannaði og kom fyrir á
netinu. Tímaritið sérhæfir sig í
umfjöllun um alnetið og er gefið
út í 27 milljónum eintaka.
Slóðin á verslunarmiðstöðina
er http://www.isttiennt.is/fyr—
stofn/kerfisg.
All Leisure með flug
til Kaupmannahafnar
BRESKA flugfélagið All Leisure,
dótturfélag Translift Airways á Ir-
Iandi, hefur ákveðið að hefja flug
tvisvar í viku milli Keflavíkur og
Kaupmannahafnar næsta sumar.
Félagið rekur 6 Airbus A320 flugvél-
ar sem eru 1-3 ára gamlar og taka
þær 180 farþega í sæti. Fyrsta flug-
ið verður 15. maí og verður flogið
til loka október á miðvikudögum og
laugardögum.
Almennt fargjald aðra leiðina
verður 11.900 krónur með flugvall-
arskatti eða 23.800 fram og til baka.
Ákveðinn sætaflöldi verður seldur á
sérstöku tilboðsverði, 9.900 krónur
aðra leiðina. Engar hömlur verða á
dvalar- eða bókunartíma og áhersla
rmrnmmmm. [ —i
FYRIR
WINDOWS 95
H KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
lögð á að hafa sölúkerfið sem ein-
faldast.
Að sögn Hilmars A. Kristjánsson-
ar, framkvæmdastjóra Bingo ehf.
umboðsaðila flugfélagsins, mun
ferðaskrifstofan Wihlborg Rejser í
Kaupmannahöfn annast farmiða-
sölu. Þangað geta íslendingar hringt
til að bóka sæti í sumar og greiða
fyrir farseðla. Hann sagði að unnið j
væri að því að ná samningum við
íslenskar ferðaskrifstofur um að
annast sölu farseðla.
All Leisure er ellefta flugfélagið
sem tilkynnir um reglubundið flug
milli Islands og annarra landa í sum-
ar, að því er segir í fréttatilkynningu
Bingo.