Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREIIMAR „Allir geta lært og lært mikið, ef þeim er kennt vel“ ÞETTA fullyrti Rósa rafvirki í samnefndri kvikmynd sem fjallaði um vinnuframlag kvenna í Banda- ríkjunum á þeim tíma sem vopnfær- ir karlar stríddu á vígvöllum seinni heimsstyijaldarinnar. Nú eins og þá krefjast breyttir þjóðfélagshættir nýrrar leikni og annarrar þekkingar en þeirrar sem áður nægði fólki til að sinna daglegum störfum. Til þess þarf fólk að geta sótt sér menntun allt lífið, en ekki einungis á fyrsta þriðjungi þess. Fyrir nokkru gafst almenningi kostur á að heimsækja marga skóla og kynnast. starfinu sem þar fer fram. Eins og vænta má og eðlilegt kann að vera, er úrvalið aðallega í Reykjavík. Það vekur hins vegar upp þá spurningu, hvort og hversu vel því Iandsbyggðarfólki sem aldrei fór suður eins og Bubbi kvað, eða er ófarið enn, nýtast þessi tilboð? Af þeim rúmlega 65% landsmanna sem eru á aldrinum 20 til 79 ára, teljast tæplega 70 þúsund eða nær 40% búa utan höfuðborgarsvæðisins (I). Samkvæmt úrtakskönnun í nóv- ember 1994 (II) var áætlað að tæp- lega 60 þúsund landsbyggðarmanna á aldrinum 16 til 74 ára væru á vinnumarkaði. „Bara húsmæður“ flokkast ekki þarna með. Ef ályktað er af úrtakinu, skiptust þeir sem höfðu grunnmenntun nokkuð jafnt milli Iandsbyggðar og Reykjavíkur- þéttbýlisins. Hér fengist þó væntan- lega önnur mynd ef yngsta fólkið væri undanskilið skoðun. Um fimmt- ungur þeirra sem höfðu háskólapróf bjó utan Reykjavíkur og nágrennis, og rúmlega 36% af þeim sem höfðu starfsmenntun eða framhaldsskóla- próf. Einn er sá skóli sem starfað hefur í 55 ár þar sem ekki er krafist inn- tökuskilyrða. Hann hef- ur auk þess þá sérstöðu að hafa alla tíð einvörð- ungu verið fjarkennslu- skóli. Þetta er Bréfa- skólinn. í upphafi árs 1996 voru um 500 nem- endur skráðir þar í námi, sem er svipaður flöldi og skráður er til náms í „litlu“ fram- haldsskólunum á höfuð- borgarsvæðinu. Um 80% nemenda Bréfa- skólans búa utan höfuð- borgarsvæðisins. Með- alaldur þeirra er 40 ár og eru konur í meiri- hluta. Nemendur geta sent úrlausnir sínar með pósti, bréf- síma, hljóðsnældum eða tölvupósti. En ef litið er á könnun ÍM Gall- ups (III), notar tæpur helmingur landsmanna á aldrinum 15 til 74 ára ekki tölvur. Sama könnun sýnir að tölvunotkun er nokkru meiri á höfuð- borgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Hún sýnir einnig að heimilistölvan er mest notuð af fólki sem er á aldr- inum 15 til 24 ára, þ.e. af þeim sem eru á fyrsta þriðjungi ævinnar. Að öllum líkindum munu margir þeirra sem eldri eru aldrei nota tölvu. Flest- ir hljóta að vera sammála um að tölvunotkun þarf ekki og má ekki verða skiiyrði þess að fólk geti notið formlegrar menntunar á fullorðinsá- rum. Það sama á við um búsetu. Nú er það hvoru tveggja almenn reynsla og vísindaleg þekking að byijendur í námi þurfa nánari leið- sögn en hinir sem eru vanir náms- menn. Byijendur geta verið á öllum aldri, átt heima hvar sem er og haft hug á ýmsum greinum, s.s. réttritun og reikningi. Ekki er ósennilegt að þeir sem komnir eru á miðjan aldur þurfi ítar- lega leiðsögn um það hvernig best er að bera sig að við námið. Leið- sögn og stuðningur þurfa einnig að haldast í hendur við tímann sem liðinn er frá því að einstaklingurinn var í skóla, hversu lengi hann var þar og hvern- ig honum gekk. Það er hins vegar ekki víst að fullorðnum byijendum henti það alltaf vel að setjast á skólabekk hveijir með öðrum, hvað þá með ungling- um eða öðru skólavönu fólki. A hinn bóginn bendir ýmislegt til að fjar- kennsla með bréfaskiptum henti mörgum þeirra mjög vel. Fjarkennsla getur haft marga kosti er lúta að vinnutilhögun nem- enda og kennara. Af þeim má nefna að nemandinn hefur námið þegar hann vill, er út af fýrir sig og vinn- ur á þeim hraða sem honum einum hentar. Starf kennarans breytist úr því að hlýða nemendum yfir og lesa þeim fyrir, í að verkstýra sívirkum einstaklingi. Góð tæki geta sannar- lega auðveldað nýtt og betra verk- lag, en þau tryggja það ekki. Aukinn fróðleikur, fjölbreytni og sú góða skemmtun sem hafa má af samspili mynda, texta og tækja, svokölluð margmiðlun, nægir ekki ein og sér til að nemandinn læri fljótt og vel. Svo það megi verða, þarf hann m.a. að vera gerandi í glímunni við náms- efnið, nokkuð sem augljóst er í íþróttum, list- og verkmenntagrein- um. Hvert nýtt verkefni þarf að byggjast á því sem nemandinn er Fjarkennsla getur haft marga kosti, segir Guðríður Adda Ragn- arsdóttir, er lúta að vinnutilhögun nemenda og kennara. þegar fær um að gera. Vel samið fjarkennsluefni er ekki ólíkt góðri einkakennslu. Námsefni sem matreitt er þannig að framvinda þess ræðst af athöfn- um nemandans, auðveldar allar mælingar á vinnusemi og væntan- legum framförum hans. Mælingarn- ar staðfesta árangur jafnt og þétt og þær hjálpa nemanda og kennara til að fýlgjast með námsferlinu og grípa inn í áður en í óefni er komið. Þegar ferðin yfir námsefnið stýrist af vinnuhraða nemandans, getur hann tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið hvar sem er í námsefn- inu, svo fremi að hann viti alltaf nákvæmlega hvað það er sem-hann á að gera og hvernig. Góð fyrir- mæli auka líkur á að vel takist til. Ekki er síður mikilvægt að nemand- inn viti síðan jafnóðum hvernig til tókst, og að umbun fylgi vel unnu verki. Umbunin eykur líkur á því að nemandinn haldi áfram að vinna. Tíminn sem líður frá athöfn að umb- un, er eitt áhrifaríkasta stjórntækið sem kennarinn hefur til að viðhalda vinnusemi nemanda. Vinnu byijand- ans verður að umbuna oft og um- svifalaust. Áhersla í almennri umræðu um fjarkennslu á undanförnum árum hefur snúist um tölvur og önnur Guðríður Adda Ragnarsdóttir Slys á börnum í umferðinni SLYS á bömum í umferðinni em alvar- íegust bamaslysa. Fleiri böm þurfa að leggjast inn eftir umferðarslys en önnur slys. Umferð- arslysum barna má skipta í þijá hópa, þ.e. böm sem em gangandi og verða fyrir bifreið, böm sem eru á hjóli og detta eða verða fyrir bifreið og böm sem em farþegar í bifreiðum sem lenda í árekstri. Gangandi og hjólandi böm sem verða fyrir bíl slasast yfirleitt mest þar sem þau era mjög illa varin. Gangandi börn Um þriðjungur allra gangandi vegfarenda sem verða fyrir bifreið em böm. Flest þeirra era á aldrinum 5-9 ára en næstflest em 10-14 ára. Bömin verða aðallega fyrir bifreið á götum í íbúðarhverfum. Flest slysin verða á daginn. Bömin verða mjög oft fyrir bíl á haustin í upphafi skóla. Hjá gangandi á aldrinum 15-30 ára verða flest slys á kvöldin í Reykjavík niðri í miðbæ. Um eitt af hverjum tíu bömum þarfnast inn- lagnar á sjúkrahús. Slysin geta orðið mjög alvarleg vegna þess að börnin era illa varin. Algengustu áverkar era beinbrot og höfuðáverkar. For- varnarstarfí þarf að beina að börn- um, foreldrum og skólayfírvöldum. Reiðhjólaslys Um þtjú hundruð slasaðir úr reið- hjólaslysum koma á Slysadeild á hveiju ári. Um 60% þeirra sem slasast í reiðhjólaslys- um era böm. Flest era þau á aldrinum 10-14 ára. Um eitt af hveijum tiu bömum sem slasast á reiðhjóli verða fyrir bíl. Flest slysanna hjá börnum verða á götum í íbúðarhverfum á vorin og sumrin. Tæplega eitt af hveijum tíu börnum sem slasast á reiðhjóli þarf að leggja inn. Al- gengustu innlagnará- stæður era beinbrot og höfuðáverkar. Hjálma- notkun er óalgeng og hjálm notuðu aðeins um 16% allra sem leituðu á Slysadeild árið 1994 vegna afleiðinga reiðhjólaslysa en í aldurshópnum 0-9 ára er hjálma- notkun þó 40%. Eftir 15 ára aldur er hjálmanotkun óalgeng og nánast undantekning (sjá mynd). Rannsókn á slösuðum úr reiðhjólaslysum sem komu á Slysadeild leiddi í ljós að enginn þeirra sem notaði hjálm hlaut alvarlegan höfuðáverka (sjá töflu). Alvarlegir höfuðáverkar geta leitt til ævarandi örkumlunar. Til þess að hjálmurinn hindri alvarlegan höfuðá- verka verður ytra byrðið að vera úr harðri plastskel og að auki verður hann að sitja rétt. Frauðplasthjálmar gera lítið ef nokkurt gagn. Það væri verðugt verkefni fyrir Neytendasam- tökin og Umferðarráð að fylgjast með því að aðeins séu á markaði viðurkenndir hjálmar með hörðu ytra byrði. Bryryólfur Mogensen Hjálmanotkun Reykvíkinga sem slösuðust 6 reiðhjóli árið 1994 § ;o 0T ■ óvarinn □ Með hjálm Aidur Bifreiðaslys Börn sem era í bifreiðum og lenda I umferðarslysi sleppa yfirleitt mjög vel ef þau eru í góðum vel festum barnastól og með öryggisbeltin spennt. Því miður er ennþá alltof algengt að öryggi barnanna er ekki tryggt með öryggisbeltum. Barn án beltis í bifreið sem lendir í árekstri eða veltur hendist til og getur flogið út um gluggann. Það getur hlotið mjög alvarlega áverka sem Ieiða til dauða eða mikils örkumls. Stundar- kæraleysi getur haft skelfilegar af- leiðingar í för með sér, Af öllum tæknibúnaði eru öryggisbeltin al- besta vömin gegn slysum í umferð- inni. Það er því mjög mikilvægt fyr- ir foreldra að nota góða viðurkennda barnastóla, festa stólana vel og spenna alltaf öryggisbeltin. Ætti enginn að leggja af stað í ökuferð nema allir í bifreiðinni, þar með talin börnin, séu búnir að spenna beltin. Forvarnarstarf Það er íhugunarefni að slys á börn- um skuli vera algengari á Islandi en í Noregi og Svíþjóð. Mikið hefur áunnist en við verðum að gera bet- Til þess að hjálmurinn hindri alvarlegan höf- uðáverka verður ytra byrðið að vera úr harðri plastskel og að auki verður hann að sitja rétt, segir Brynjólfur Mogensen. Frauðplast- hjálmar gera lítið ef nokkurt gagn. ur. Við hin eldri erum fordæmi fyrir börnin. Við verðum að kenna börnun- um að varast götumar eftir því sem tök eru á og ekki leika sér úti á götu. Leggja meiri tíma og fjármuni í umferðarfræðsiu. Alþingi þarf að setja lög um notkun reiðhjólahjálma. Fuilorðnir á hjóli eiga að nota hjálma og sýna gott fordæmi. Heildarþróun- in er þó jákvæð og börnunum til sóma. Innflytjendur ættu að sjá sóma tæki þeim tengd. Góð kennsluforrit eru hins vegar forsenda þess að tölv- ur nýtist vel sem kennsluvélar (sjá nánar IV), hvort sem hugbúnaðurinn er notaður í staðkennslu eða fjarná- mi. Kennsluforrit sem markvisst stýrir frammistöðu nemandans í átt að fyrirfram skilgreindum árangri, lýtur í grundvallaratriðum hliðstæð- um reglum um fyrirmæli og umbun og bréfanámsefni gerir, sem hannað er með sömu markmið í huga. Með öðrum orðum, meginreglur í kennslutækni og hönnun námsefnis geta verið þær sömu, þótt miðlarnir séu margvíslegir. Ef símenntun er hluti af opinberri stefnu, býður okkar mikil vinna í námsefnisgerð fyrir fullorðna. Þar er, á meðal annarra, að finna þá sem ekki nutu skólagöngu á fyrri hluta ævinnar, og einnig hina sem nú eru að hverfa frá skóla og fá ekki vinnu. Þorra námsefnisins verður að ætla til fjarkennslu, og hanna með það fyrir augum að nemendurnir sjái sem allra fyrst árangur af náminu og geti notað áunna leikni sér að gagni í nýju starfi, sem í gömlu við breytt- ar aðstæður. í stuttu máli sagt, þá vantar í dag íjarkennsluefni fyrir þá Iandsmenn sem eru á öðru og þriðja æviskeiði, hafa takmarkaða skólagöngu, eru búsettir á landsbyggðinni og vinna ekki á tölvu. Fjarkennsluefni fyrir konurnar og karlana sem hvað brýn- ast er að njóti símenntunarársins 1996. Heimildir: I Mannfjöldi 1. desember 1995 eftir kyni og fæðingarári, sveitarfélögum og byggðarstigi. Bráðabirgðatölur. Hag- stofa íslands. Óbirt handrit. II Menntun atvinnuþátttakenda eftir búsetu. Óbirt handrit. Byggt á vinnu- markaðskönnun 1994. Hagstofa ís- lands. Hagskýrslur íslands III, 26. III Heimilið er helsta vígi tölvupnar. Styrmir Guðlaugsson tók saman. Tölvu- heimur 1996 (janúar) bls. 16-17. IV Guðríður Adda Ragnarsdóttir, 1993. Fjarkennsla með tölvusamskiptum. Les- bók Morgunblaðsins 19.júní, bls.10. Höfundur er kennnri og atferlisfræðingur. sinn í því að flytja aðeins inn viður- kennda hjálma með hörðu ytra byrði. Neytendasamtökin og Umferðarráð þyrftu að beita sér fyrir því að að- eins séu fluttir inn góðir hjálmar. Allir sem kaupa hjálm þyrftu að fá upplýsingar um notkun og nauðsyn- legt er að hjálmurinn sé mátaður á bamið. Hjálmurinn þarf að sitja þétt án of mikilla lausra púða. Lögreglan og Umferðarráð þarf að vera með kröftuga fræðslu á vorin þegar börn- in byija að taka út hjólin sín. Nauð- synlegt er að leggja áherslu á meiri umferðarfræðslu, rétta hjálmanotk- un og meðferð hjóla. Á haustin þarf að gera aðra herferð til að hindra umferðarslys á gangandi börnum. Algengustu og alvarlegustu umferð- arslys barna eru í íbúðarhverfum á götum þar sem umferð ætti að vera með minnsta móti. Borgaryfirvöld verða að loka meira hverfunum en gert er en til eru mjög slæm dæmi um umferðarómenningu. Borgaryfir- völd verða að grípa í taumana. Slys- um á bömum í umferðinni má fækka verulega ef beitt er markvissum for- varnaraðgerðum. Þar þurfa að koma til foreldrar, hverfasamtök, skólar, lögregla, Umferðarráð, Slysavarna- ráð og ekki síst borgar- og sveitarfé- lög. Ef við sýnum áhuga og vinnum saman fækkum við slysum á börnum í umferðinni. Það er óþarfi að bíða eftir slysunum heldur er skynsamleg- ast að byrgja brunninn áður en barn- ið dettur ofan í. Höfuðáverkar með og án hjálma Áverki Með Án hjálm hjálms Lítill 12 59 Nokkur 7 35 Alvarlegur 0 5 Mjög alvarl. 0 4 Lífshættul. 0 1 Pjöldi 19 104 Höfundur er yfirlæknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.