Morgunblaðið - 29.03.1996, Side 41

Morgunblaðið - 29.03.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 41 MINNINGAR ömmu og fleirum, enda var hún myndarhúsmóðir. Eg man jólatréð, gjósandi ljósin og pakkana. Þessi aðfangadagskvöld voru augnablik á himnum, augnablik sem tengdust ömmu og í dag finnst mér að jólum beri að vera eins og þau voru hjá ömmu í þá tíð. Þá eru ótalin gaml- árskvöld, jólaböll, leikir með frænd- systkinum og fleiri góðar minning- ar sem seint líða mér úr minni. Amma átti lengi við erfiðan sjúk- dóm að stríða sem óhjákvæmilega breytti lífi hennar mikið. Sjaldan hef ég.þó þekkt eins sterkan vilja og þann, sem amma geymdi í fórum sínum og notaði óspart_ í einvíginu við Parkinson veikina. Án efa hafa þessir erfiðleikar styrkt hana sem persónu á margan hátt og ég er fyllilega sannfærður um að þann ávinning getur hún notað sér þó síðar verði. Vissulega var öllum ljóst að amma væri ekki ódauðleg frekar en aðrar mannverur, en samt kom það mér skringilega á óvart þegar mér var sagt að amma væri haldin á vit nýrra ævintýra í öðrum heimum. Ég efast ekki um að hún hafi fagnað lausn frá þeim hlekkjum er bundu hana hér, en eigingirni mín hefði gjarnan viljað halda í hana örlítið lengur. Sem betur fer ræður sú eigingirni ekki ferðinni; lífið hefur sína framrás. Því vil ég að lokum kveðja þig kæra amma og lifðu heil uns fund- um ber saman á ný. Ingimar Guðni Haraldsson. Með þessum fáu orðum langar mig að minnast elskulegrar ömmu minnar, sem lést 21. mars sl. Ég hefði viljað kynnast henni betur en ég gerði. En þar sem við bjuggum á Akureyri þegar ég var yngri og síðar í Miami, Flórída, þá hitti ég hana ekki eins oft og vilji var til. Ferðirnar sem við fjölskyldan fór- um til Reykjavíkur eru samt ógleymanlegar. Þá eru jólin í „gamla daga“ efst í huga mér. Þau voru engu lík. Það var eitthvað svo notalegt þegar öll heila fjölskyldan í Reykjavík var saman komin hjá ömmu og afa í Fýlshólunum. Þetta er algjörlega ólýsanleg tilfinning sem er gott að eiga í minningunni. Amma var fyrirmyndarhúsmóðir og allt var glæsilegt sem hún gerði. Hún var algjör listakona hvað varð- ar saumaskap og föndur, og matur- inn hennar var algjört lostæti. Kvöldin eru líka ógleymanleg þegar við frændsystkinin sátum með ömmu í sjónvarpsherberginu og borðuðum mandarínur og drukkum gos saman. Það var alltaf allt einstaklega fallegt í kringum ömmu Siggu, hvort heldur það var klæðnaðurinn, húsið eða garðurinn. Garðurinn hjá henni var alveg einstaklega glæsi- legur. Ég man til dæmis eftir því að sumarið 1994 var hún á fullu í garðinum þrátt fyrir heilsuleysi. Hún amma var hörkudugleg kona. Jólin 1988 kom hún til dæm- is í heimsókn til okkar í Miami, alein í hjólastólnum! Hún ferðaðist með okkur um alla Miami, fór með okkur á ströndina og í öll helstu söfn og garða. Ég man sérstaklega eftir því hvað henni fannst gaman í páfagaukagarðinum, enda hænd- ust fuglarnir að henni. Alveg frá því að ég man eftir mér hefur amma verið haldin Parkinson sjúk- dómnum. Hún kvartaði aldrei og bar sig ótrúlega vel. Þegar ég hugsa til baka get ég ekki annað en dáðst að henni fyrir það hvernig hún tók þessum hræðilega sjúk- dómi. Ég þakka ömmu fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig. Ég kveð hana með söknuði en gleðst yfir því að nú sé hún frísk og komin til afa Inga. Kristbjörg T. Haraldsdóttir. Elsku amma Sigga, mig langar að þakka þér fyrir allar góðu sam- verustundirnar sem við'áttum sam- an og óska þér all hins besta á nýjum slóðum. Elskulega amma, njóttu eilíflega Guði hjá, umbunar þess, er við hlutum, ávallt þinni hendi frá; þú varst okkar ungu hjörtum, eins og þegar sólin hlý vorblómin með vorsins geislum vefur sumarfegurð í. Hjartkær amma, far í friði, föðurlandið himneskt á, þúsundfaldar þakkir hljóttu þínum litlum vinum frá. Verþi sæl um allar aldir, alvaldshendi falin ver, inn á landið unaðsbjarta, englar Drottins fylgi þér. (Höf. ókunnur.) Ég kveð þig með söknuði. Þitt barnabarn, Sigríður Jóhanna Haraldsdóttir. Fallegir fermingarskartgripir á frábæru verði <§ull&g>tlfur Laugavegi 35 inmriiiáitir 1)1 II) 1 SMTOund hátaiarar Þeir sem kaupa Trusl Pentium 1OO MHz margmiðlunartölvu fyrir páska fá í kaupbæti 300 W 3D Surround hátalara aö verómæti kr. 13.900 í staö 15W hátalara. canan lpo-460 laserpreoiarl M goo npi - q ms. Din 15 W hátalarar Megapak 3 (12 CD meö leikjum) Heiiptu tðluo og Dú gastlr lengíS u ■j j 4 r n |j i M Hrlr llðra i haupisti I TÖIMIKJÖR FflKAfEm 5 SÍMI533 2323 FAK 533 2329 lOlUUHÍOP@Íln.ÍS - á réttu uerði lurir DiQ! Þeir uiOshipiauinir ohkar sem haupa töluu lurir i. maí næsthomandi lá nain sin í luhhupott. Þann t. mai ueröur dregiö út nain elns uiöshiptauinar oo hlylur tiann að launum uihulerö tyrir lióra til Maiiorca með PIÚSfBrffUID að uerðmæti ur. 169.200. Þú íærff líha iiiulÍlilJ frá Mónu í hauphæti! Já. Dragðgolt páshaegg trá mónu í haupuætj. sumlr uerða heppnarl en aörir og lá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.