Morgunblaðið - 29.03.1996, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1996 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
Opið bréf til
Jóns Stefánssonar
organista
Þvottur á snúru
- helvíti á jörð
Frá Ólöfu Guðnýju
Valdimarsdóttur:
KÆRI JÓN!
Mig langar til að senda þér
nokkrar línur ef það gæti orðið þér
stuðningur í þeim miklu hremm-
ingum _sem þú hefur lent í undan-
farið. Ég hef haft þá skoðun um
nokkurn tíma (þó mest fyrir sjálfa
mig) að kirkjan sé á villigötum og
prestar séu smám saman að loka
kirkjum landsins fyrir fólkinu. Þó
finnst mér ekkert hátíðlegra eða
auðga andann meir en góð helgi-
stund með innihaldsríkri ræðu þar
sem orðið er upphafið með fallegri
kirkjutónlist. Slík helgistund er
mannbætandi í alla staði. Það má
öllum vera ljóst að þú hefur verið
einn af þeim mönnum sem hvað
mestan þátt hafa átt í að kynna
almenningi fegurð kirkjutónlistar.
Verk þín hafa talað og löngu gert
þig landskunnan. Það vita allir sem
nálægt tónlist koma að slíkt starf
er ekki launþegavinna heldur hug-
sjón.
Það er engin nýjung að kirkjan
sé afturhaldssöm. í gegn um ald-
irnar stóð hún framþróun þjóða
jafnvel fyrir þrifum. En þá var
almenningur bæði illa upplýstur
og illa menntaður og andans menn
hafnir yfir hann. En nú er öldin
önnur. Boðskapur og siðfræði kris-
tinnar trúar á fullt erindi við okkur
í dag. En það er alls staðar hægt
að rækta og boða kristna trú. Til
þess þarf í raun hvorki kirkju né
prest.
Ég var að glugga að gamni
mínu í bókina Handan góðs og ills
eftir þýska heimspekinginn Fried-
rich Nietzsche á dögunum. Hann
var uppi á síðustu öld og velti trú-
málum mikið fyrir sér. Þar segir
meðal annars:
„...Hafa endaskipti á gildismati
— það urðu þeir að gera. Og brjóta
hina sterku á bak aftur, draga
mátt úr glæstum vonum, kasta
rýrð á hamingjuna í fegurðinni,
niðurlægja alla reisn, karl-
mennsku, sigurgleði, drottnunar-
vilja, allar eðlishvatir sem búa í
þessari æðstu og glæsilegustu gerð
„mannsins", og hrinda henni út í
óvissu, samviskuneyð og sjálfstor-
tímingu og umturna allri ást á því
sem jarðneskt er og drottnun yfir
jörðinni í hatur á jörðinni og öllu
því sem jarðneskt er — þetta gerði
kirkjan að markmiði sínu og varð
að gera þangað til „heimsfirring",
„hlutfirring" og „hinn æðri maður“
runnu í hennar augum saman í
eina tilfinningu..."
Þessi texti flaug í gegn un\huga
mér þegar ég sá glefsur úr sunnu-
dagsmessu í Langholtskirkju í
fréttatíma sjónvarps, þar sem búið
var að dreifa kirkjukórnum um
kirkjuna og draga úr honum allan
mátt. Það er sem betur fer ekki
oft sem svo víðtæk andleg kúgun
sést í verki.
Þessu bréfi fer senn að ljúka en
það er von mín að þú fáir styrk
og kraft tii að halda áfram að
standa upp úr meðalmennskunni.
ÓLÖFGUÐNÝ
VALDIMARSDÓTTIR,
arkitekt og áhugamanneskja um
mannrækt.
Frá Þuríði Guðmundsdóttur:
EITT sinn sagði við mig kona, sem
hafði kynnt sér árangur af vinnu
sjálfshjálparhópa Stígmóta: „Þegar
ég byijaði að kynna mér þessi mál
fannst mér eins og það opnuðust
dyr og ég sæi inn í helvíti".
Þessi orð hennar komu mér í hug
þegar ég skoðaði sýningu Stíga-
móta „Þvottur á snúru“.
Skilaboð barna og unglinga, þol-
enda kynferðislegs ofbeldis, sem
skrifuð eru á boli og barnanærföt,
eru átakanleg. Dagblaðaúrklippur
sýna einkenniiega væga fangelsis-
dóma fyrir að eyðileggja mannslíf.
Ljóðin á sýningunni lýsa vel sál-
arlífi þeirra sem eru að reyna að
vinna sig út úr sortanum, reyna að
vinna sig út úr helvíti á jörð. Þegar
ég kom út af sýningunni fannst
mér eins og ég hefði verið stödd á
vígvelli þar sem hið fagra og góða
hafði verið myrt, þ.e.a.s. trúnaðar-
traust barnssálarinnar.
Þetta er sterk sýning. Ég hvet
þá sem tök hafa á að sjá hana og
velta fyrir sér þessari spurningu:
Hvort er refsiverðari glæpur að
stela nokkrum milljónum úr banka
eða að eyðileggja mannslíf á þennan
hátt?
Þeir sem unnu að því að setja
upp þessa sýningu eiga þakkir og
virðingu skilið fyrir að vekja at-
hygli á þessari þjóðarsmán.
Sýningin er í Gallerí Geysi,
8.-24. mars.
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Ásvallagötu 40, Rvík.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
BYLTINGARKENND
NÝJUNG
gl KERFISÞRÓUN HF.
1 Fákaleni 11 - Sími 568 8055
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Lausar stöður
Sinfóníuhljómsveit íslands auglýsir lausar
eftirfarandi stöður frá 1. september 1996:
- Staða uppfærslumanns í víóludeild
til eins árs.
- Almenn staða í sellódeild til eins árs.
- Almenn staða í víóludeild.
- Almenn staða í 1. fiðludeild.
- Almenn staða í 2. fiðludeild.
- Almenn staða trompetleikara.
Hæfnispróf verða haldin í lok maí nk.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Nánari upplýsingar eru veittar af starfs-
mannastjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar
í Háskólabíói og í síma 562 2255.
Sinfóníuhljómsveit Islands.
Staða
héraðsdýralæknis
Laus er til umsóknar staða héraðsdýralækn-
is í Þingeyjarþingsumdæmi vestra. Sett verð-
ur í stöðuna til tveggja ára, frá 1. maí 1996.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir
20. apríl nk.
Landbúnaðarráðuneytið,
27. mars 1996.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
BÍSN
Aðalfundur Bandalags íslenskra sérskóla-
nema verður haldinn í húsi Sjómannaskólans
við Skipholt laugardaginn 30. mars nk.
kl. 16.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt
14. gr. laga BÍSN.
Allir BÍSN-félagar velkomnir.
Matreiðslumenn
Aðalfundur Félags matreiðslumanna verður
haldinn í Þarabakka 3 miðvikudaginn 10. apríl
1996 kl. 14.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Sameining lífeyrissjóða.
Félagar fjölmennið.
____________________________Stjórnin.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Lítið einbýlishús
íVesturbætil leigu
Til leigu er ca 70 fm nýuppgert einbýlishús
í Vesturbænum.
Upplýsingar í síma 557 4856.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Jörðin Þjórsárholt, Gnúp., þingl. eig. Helga Óskarsdóttir og Árni
ísleifsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki íslands og Landsbanki
islands, 0152, þriðjudaginn 2. apríl 1996 kl. 11.00.
Sýslumaöurinn á Selfossi,
28. mars 1996.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi 15,
Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 11. aprfl 1996 kl. 09.30 á eftirfar-
andi eign:
Heiðarvegur 22 (50%), Vestmannaeyjum, þingl. eig. Jóna Þorbjörns-
dóttir, geröarbeiðendur Glóbus hf. og Landsbanki íslands, Langholt.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
28. mars 1996.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrifstofu
embættisins, Hafnarstræti 1, ísafirði, sem hér segir:
Eyjalín sknr. 6753, þingi. eig. Djúpferðir hf. c/o Jón Sigfús Sigurjóns-
son hdl., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og íslandsbanki hf.,
Isafirði, mánudaginn 1. apríl 1996 kl. 10.30.
Lúna ÍS, eignarhl. Jóns Ólafs Þórðars. 22,5%, sknr. 1539, þingl.
eig. Jón Ólafur Þórðarson, Sigurður Ásgeirsson, Sverrir Örn Sigur-
jónsson, Tómas G. Ingólfsson og Þóröur Júlíusson, gerðarbeiðendur
sýslumaðurinn í Hafnarfiröi og tollstjórinn í Reykjavík, mánudaginn
1. apríl 1996 kl. 10.00.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér seqir:
Túngata 9, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, mánudaginn 1. apríl 1996 kl. 13.30.
Sýslumaðurinn á ísafirði,
28. mars 1996.
YMISLEGT
idagsbroni Verkamannafélagið
DAGSBRUN
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kjör fulltrúa félagsins á
38. þing Alþýðusambands íslands 20.-24.
maí nk.
Tillögum með nöfnum 29 aðalfulltrúa og 29
varafulltrúa ber að skila á skrifstofu Dags-
brúnar, Lindargötu 9, fyrir kl. 12.00 þriðju-
daginn 2. apríl 1996. Tillögum ber að fylgja
meðmæli minnst 75 félagsmanna og mest
100 félagsmanna.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
auglýsirigar
FERÐAFÉLAG
% ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir Ferðafélagsins
sunnudaginn 31. mars:
Kl. 10.30 Bláfjöll - Kleifarvatn,
skíðaganga.
Kl. 13.00 Sveifluháls - Krýsuvik
(Seltún), gönguferð.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Ath.: Sjálfboðavinna fyrir lag-
tækt fólk laugardaginn 30. mars
á Stórhöfða 18.
Ferðafélag íslands.
Frá Guðspeki-
félaginu
l.ngólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
I kvöld kl. 21 flytur Páll J. Einars-
son erindi „Tengsl skammta-
fræðinnar, vitundarinnar og dul-
spekinnar" ( húsi félagsins, Ing-
ólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús frá
kl. 15-17 með fræðslu og um-
ræðum í umsjón Páls J. Einars-
sonar.
Á sunnudögum kl. 17 er hug-
leiðslustund.
Starf Guðspekifélagsins er
ókeypis og allir velkomnir.
I.O.O.F. 12 = 1773298V? = SP
I.O.O.F. 1 = 1773298'h =
TM-hug-
leiðsla
Er TM-hugleiðsla áhrifaríkasta
heilsuvernd sem þú átt völ á?
Nýjar rannsóknir, sem eru viðbót
við um 350 birtar rannsóknir,
sýna m.a. að iðkun TM-hug-
leiðslu skilaði sjö sinnum meiri
árangri við lækkun blóðþrýstings
en hópur, sem stundaði líkam-
lega hreyfingu og „hollara" mat-
aræði og tvisvar sinnum meiri
árangri en slökun.
Kynningarfyrirlestrar verða á eft-
irtöldum stöðum:
Risinu, Hverfisgötu 105, laug-
ard. 30. mars kl. 13. Grindavik:
Sjómannastofan Vör, sunnud.
31. mars kl. 14.00. Keflavík: Flug
Hótel (minni salur) sunnud. 31.
mars kl. 16.30.
TM-kennslumiðstöðin -
(slenska íhugunarfélagið