Morgunblaðið - 30.03.1996, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.03.1996, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Heilsársúlpur og sumarjakkar í miklu úrvali. Mörg snið. Verð kr. 4.900. Mörkin 6 - simi 588 5518 (við hliðina á Teppalandi) • Bílastæöi vi<3 búðarvegginn • Pósteendum AÐSENDAR GREINAR Sérstaða ríkisins sem atvinnurekanda ÍSLENSKA ríkið er stærsti atvinnurekand- inn hér á landi og rekur margar stofnanir. Margar þeirra eru einu stofnanirnar sem veita tiltekna þjónustu og arðsemi hennar er oft erfitt að meta út frá mælistikum fjár- magnseigenda. Þeir sem nýta þjónustuna mæla nytsemi hennar frá öðrum forsendum, oft áhrifum á lífsgæði, og líta þá bæði til dags- ins í dag og væntan- legra áhrifa síðar meir. Æðsta vald um Martha Á. Hjálmarsdóttir rekstur ríkisstofnana er í flestum tilvikum í höndum handhafa fram- kvæmdavaldsins, ríkisstjórnarinn- ar. Meiri hluti löggjafarþingsins veitir henni þetta vald. Á þennan hátt hefur ríkið sem atvinnurekandi vald sem er einstakt á vinnumark- aðinum. Þessi atvinnurekandi getur lagt fyrir Alþingi stjórnarfrumvörp sem snerta enga aðra landsmenn en eigin starfsmenn. Þetta vald er vandmeðfarið enda gera þau lög sem varða kjör starfsmanna ríkis- ins ráð fyrir samnings- ferli sem felst í sam- ráði milli starfsmann- anna og ríkisins áður en tillögur um breyt- ingar eru lagðar fyrir Alþingi. Ríkisstjórnin hefur nú lagt fyrir Alþingi frumvörp til breytinga á lögum um réttindi og Eyjaslóð 9 um helgina PAPiDCL 2VANDAÐIR SVEFNPOKAR FRÁ J^ango FYLGJA FRÍTT MEÐ ÖLLUM VÖ PORTLAND BY PENNINE Heitt á könnunni og rjómavöfflur! ÞAR SEM FERÐALAGiÐ BYRJAR! TRIGANO TJ ALDVAG N AR SEQLAQERÐIN lómstrar ognunum 5 fráÆGI 2200 Eyiaslóð Reykiavík s. 5 I I Eyjaslóð 9 Reykjavík s. 511 2203 skyldur starfsmanna ríkisins og um stéttarfélög og vinnudeilur. Einnig hefur hún kynnt ríkisstarfsmönnum drög að frumvarpi til breytinga á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Forsætisráðherra hefur að vísu lýst því yfir að það frumvarp verði ekki þvingað í gegn í and- stöðu við ríkisstarfsmenn. Jafn- framt hefur hann lýst því yfir að hann sé sammála fjármálaráðherra um efni þess og það að breyta lög- unum eins og lagt er til í frumvarps- drögum fjármálaráðherra. Erfitt er að sjá annað á þessum yfirlýsingum en að um stundarsakir hafi verið gert hlé á aðför að lífeyrisréttindum ríkisstarfsmanna. Þingmenn sem um málin fjalla og ákveða hvort frumvörpin verða að lögum eða ekki, eiga heimtingu á því að fá að vita að þess hefur alls ekki verið gætt að hafa eðlilegt samráð við ríkisstarfsmenn við gerð frumvarpanna hvað svo sem ráð- herrar segi oft að svo hafi verið gert. Efni þeirra er í andstöðu við vilja ríkisstarfsmanna og skerðir samningsbundin kjör okkar. Þannig hefur samráðsskyldan sem lögin mæla fyrir um verið brotin. Ákvæð- ið um samráð hlýtur að hafa verið ætlað til að tryggja að fram- kvæmdavaldið þröngvi ekki upp á starfsmenn sína breytingum að eig- in geðþótta og er því í raun ætlað til að draga úr hættu á misnotkun valds þess. Ríkisstjórnin hefur haldið því fram undanfarið að hún muni nú eftir að tvö frumvarpanna hafa verið lögð fram hafa áframhaldandi samráð meðan þau eru til umfjöll- unar á þinginu. Áframhald er varla hægt að hafa á því sem ekki er, en að þvi slepptu er það ekki á valdi framkvæmdavaldsins að stjórna þingmálum. Hornsteinn lýð- ræðis í landinu byggist á þrískipt- ingu valds og takmörkunum á af- skiptum eins þáttar valdsins af öðr- um. Með öðrum orðum þá hefur framkvæmdavaldið ekki rétt til að hafa afskipti af gerðum löggjafar- valdsins. Að sjálfsögðu mun Alþingi óska eftir sjónarmiðum þeirra aðila sem hlut eiga að máli nú sem endra- nær og alþingismenn fjalla um málin óbundnir af nokkru öðru en eigin sannfæringu. Samtök opinberra starfsmanna hafa ítrekað bent á að verið er að fjalla um hluta af kjörum ríkis- starfsmanna. Þó svo að ríkisstarfs- menn hafi ekki haft samningsrétt þegar lögin um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins voru sett voru þau gerð í fullu samráði við BSRB, einu samtök ríkisstarfsmanna á þeim tíma, í samræmi við sam- skiptahætti sem þá tíðkuðust á vinnumarkaðinum. Ýmsar breyt- ingar á lögum sem varða ríkis- starfsmenn hafa síðan verið gerðar í tengslum við gerð kjarasamninga, t.d. voru veigamiklar breytingar gerðar á lögum um lífeyrisréttindi ríkisstarfsmanna í kjarasamningum 1980 og skilyrði gildistöku þeirra var að ríkisstarfsmenn samþykktu fyrst kjarasamningana. Við gerð kjarasamninga hefur það ekki brugðist að samninga- nefnd ríkisins hafi góðfúslega bent samninganefndum stéttarfélaga ríkisstarfsmanna á það að ríkis- starfsmenn búi við betri réttindi en aðrir og það verði að teljast með þegar fjallað er um kröfur um bætt kjör. Einnig notar kjaranefnd þess- ar forsendur þegar hún ákveður laun þeirra sem hafa ekki þau mannréttindi að geta samið um kjör sín. Því er krafa ríkisstarfsmanna sjálfsögð og eðlileg: Endurskoðun laga um réttindí og skyldur ríkis- starfsmanna sem og um Lífeyris- sjóð starfsmanna ríkisins fari ekki fram öðru vísi en í tengslum við gerð kjarasamninga og að ekki verði þá búið að skerða samnings- rétt okkar. Áformin um breýtingar á ráðn- ingarréttindum ríkisstarfsmanna eru í hróplegu ósamræmi við yfir- lýstar forsendur um nauðsyn breyt- inga, en þær eru m.a. að laga lögin Flestar þær tillögur sem gerðar eru um breyting- ar, segir Martha Á. Hjálmarsdóttir, færa okkur marga áratugi aftur í tímann. ■ að nútímanum. Sem dæmi um „nú- tímalega“ hugsun frumvarpshöf- unda má geta þess að samkvæmt frumvarþinu teljast það sérstök réttindi hluta starfsmanna ríkisins að stéttarfélög þeirra geri kjara- samninga um laun þeirra og launa- kjör og hinum er bannað að viðlögð- um íjársektum að tjá sig um verk- föll ríkisstarfsmanna. Ekki verður betur sé en að flestar þær tillögur sem gerðar eru um breytingar færi okkur marga áratugi aftur í tím- ann, að minnsta kosti aftur fyrir þann tíma sem lögin um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins voru upphaflega sett. í raun fjallar frumvarpið meira og minna um stjórnun rekstrar og verkefna ríkis- stofnana, þar sem ákvarðanataka er í auknum mæli færð frá starfs- mönnum til forstöðumanna stofn- ananna og frá þeim til ráðuneyta, einkum fjármálaráðuneytis. Við ríkisstarfsmenn eru orðin hundleið á sífelldum aðdróttunum um að við vinnum ekki störf okkar vel, séum byrði á skattgreiðendum og þess vegna verði að breyta þeim lögum sem okkur varða og aðlaga nýjum tímum. Almennt vinnum við verk okkar vel og erum stolt af. Vinnuskilyrði okkar eru víða léleg, viðfangsefnin oft erfið og arðsemi vinnu okkar oft illmælanleg með mælistikum íjármagnseigenda. Laun okkar eru lægri en þeirra sem vinna sambæri- leg störf annars staðar á vinnu- markaðinum og við greiðum svo sannarlega okkar skerf til samfé- lagsins með sköttum. Við höfum þegar greitt ríkulega fyrir réttindi okkar og í heildarkjör- um stöndum við að baki sambæri- legum hópum. Við sættum okkur því engan veginn við að fram- kvæmdavaldið beiti valdi sínu og ætli Alþingi að taka það að sér að standa að stórfelldri skerðingu á heildarkjörum okkar. Við erum hins vegar enn sem fyrr reiðubúin til að vinna að því að aðlaga lög breyttum tímum í tengslum við gerð kjara- samninga þar sem aðilar ganga sem jafningjar til samninga. 'I J Höfundur er varaformaður Bandalags háskólamamm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.