Morgunblaðið - 30.03.1996, Side 42
42 LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Kjördæmamótið
KJÖRDÆMAMÓT BSÍ 1996 fer fram
á Selfossi 25. og 26. maí nk.
Spilað verður í Hótel Selfossi, þar
sem opni salurinn verður ágætlega
rúmgóður, en iokaði salurinn verður
þrengri, en þó ekki þannig að það
verði vandræði út af því. Gisting verð-
ur í boði á tveimur stöðum, þ.e. á
Hótelinu og í Gesthúsum, sem eru
staðsett á tjaldsvæði bæjarins við
Engjaveg.
Kjördæmasambönd eru beðin um
að bóka gistingu fyrir 25. apríl nk.
Eftir þann tíma er ekki hægt að
ábyrgjast að gistipláss sé á lausu.
Frá Skagfirðingum og b.
kvenna í Reykjavík
Gísli Tryggvason og Guðlaugur Ni-
elsen sigruðu aðaltvímenningskeppni
nýs félagsskapar Skagfirðinga og
kvenna í Reykjavík.
Röð efstu para varð:
Gísii Tryggvason — Guðlaugur Nielsen 175
Gunnar B. Kjartanss. — Valdimar Sveinss. 162
Rúnar Lárusson — Lárus Hermannsson 114
Alfreð Kristjánsson — Eggert Bergsson 111
Hermann Friðriksson - Pétur Sigurðsson 92
Á þriðjudaginn kemur, 2. apríl,
verður eins kvölds páskatvímenningur
og að sjálfsögðu verða páskaegg í
boði fyrir efstu pör.
Allt spilaáhugafólk er velkomið í
Drangey, Stakkahlíð 17. Spila-
mennska hefst kl. 19.30.
Bridsfélag byrjenda
Sl. mánudag var spilað að venju,
17 pör mættu, sem er mjög gott. Spil-
aður var Mitchell-tvímenningur og
urðu úrslit þannig:
N.S.-riðill:
Hrafn Loftsson — Kristján Sveinsson 197
Soffía Guðmundsdóttir - Björk Norðdal 179
Jóhann Jóhannsson — Guðni Einarsson 176
A.V.-riðill:
Einar G. Einarsson — Einar Pétursson 198
Hlöðver Ólafsson - Ólafur Tryggvason 195
Vilhjálmur Sigurðss. - Daníel M. Sigurðss.187
Bridsdeild félags eldri
borgara í Kópavogi
Spilaður var Mitchell-tvímenningur
föstud. 22. mars. 22 pör mættu, úr-
slit urðu:
N/S:
Sæmundur Bjömsson - BöðvarGuðmundsson 271
Fróði Pálsson - Haukur Guðmundsson 243
Jón Andrésson - Stígur Herlufsen 242
A/V:
Eysteinn Einarsson - Sigurleifur Guðjónsson 274
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 273
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórsson 249
Spilaður var Mitchell-tvímenningur
þriðjud. 26. mars. 28 pör mættu, úr-
slit urðu:
N/S:
Sæmundur Bjömsson - Böðvar Guðmundsson 394
Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdal 391
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 386
Karl Adolfsson - Þórólfur Meyvantsson 356
A/V:
Þórhildur Magnúsd. - Sigurður Pálsson 402
Helgi Vilhjálmsson - Ámi Halldórsson 357
EysteinnEinarsson-SigurleifurGuðjónsson 330
Garðar Sigurðsson - Hörður Davíðsson 328
Einlitar og röndóttar. Otsölustaöir um land allt!
Heildsolubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. hf. sími 552 4333
Allur borðlHíndður Glæsileg gjdfdvard Briíðarlijtína lislar
VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Þungarokkið lifir
TÖNLIST
Tónabær
MÚSÍKTILRAUNIR
Músíktilraunir, hljómsveitakeppni
Tónabæjar, fjórða og síðasta til-
raunakvöld. Þátttóku Shape, Rúss-
feldur, Sturmandstraume, Stein-
steypa, Stonehenge, Best fyrir og
Moðfisk. Áhorfendur voru um 300
í Tónabæ 28. mars.
SÍÐASTA tilraunakvöld
Músíktilrauna er jafnan mikið um
sveitir utan af landi, enda hægast
fyrir þær ef þær komast í úrslit
á annað borð; það sparar aðra
ferð í bæinn. Þá vill og mikið
vera um tónlist sem hætt er að
heyrast í höfuðborginni; það er
eins og tískustraumar séu lífseig-
ari þegar komið er austur fyrir
Fjall eða norður fyrir heiðar.
Þannig var það og þetta síðasta
tilraunakvöld, því þungarokkið,
sem sjaldan heyrist hér um slóðir,
var áberandi og reyndar lék besta
sveit kvöldsins, sem kom frá Ak-
ureyri, kröftugt þungarokk, þó
ekki hafi hún sigrað.
Gamaldags þungarokk
Fyrsta hljómsveit á svið var
Shape og lék gamaldags þunga-
popp með ágætri keyrslu á köfl-
um en frekar ófrumleg. Söngvari
sveitarinnar var traustur og gít-
arleikarar hljómuðu oft vel sam-
an.
Þar næst kom sérkennileg
hljómsveit með sérkennilegt
heiti, Rússfeldur. Sú lék einfalt
þriggja hljóma pönk, að minnsta
kosti í fyrstu tveimur lögunum
og gerði sitthvað skemmtilegt þó
nokkuð hafi skort á samæfingu.
í þriðja lagi breytti Rússfeldur
um stefnu og þó það hafi verið
besta lagið þá spillti söngurinn.
Stumandstráume mætti til
leiks án bassaleikara, bara gítar
og trommur, og fyrir vikið var
flutningur hennar all losaralegur
á köflum. Best tókst sveitinni til
þegar hækkað var í gítarnum og
hraðinn aukinn, en það dugði
ekki. Góður bassaleikari myndi
beija í brestina, en einnig er vert
að taka lagasmíðarnar til gagn-
gerrar endurskoðunar.
Steinsteypa lék einnig eins-
konar þungarokk og heldur voru
fyrstu tvö lögin klénn samsetn-
ingur. Lokalag hennar hljómaði
þó ekki illa, enda keyrslan meiri
og hamagangurinn, sem breiddi
yfir misfellur.
Þétt og skemmtileg
Eftir stutt hlé kom svo á svið
alvöru þungarokksveit og sýndi
hvernig átti að gera þetta. Akur-
eyrarsveitin Stonehenge var
geysilega þétt og skemmtileg
með sérdeilis líflegum trymbli.
Sérstaklega var annað lag sveit-
arinnar frábærlega vel heppnað
og sannaði að fátt er skemmti-
legra áheyrnar á tónleikum en
gott þungarokk.
Best fyrir var ekki öfundsverð
að koma á svið strax á eftir svo
sterkri rokksveit og kannski bar
meira á göllunum en ella hefði
orðið. Þannig var söngur í ójafn-
vægi og þó gítarleikari sveitarinn-
ar hafí tekið góða spretti þá voru
þeir oft í litlu samhengi við það
sem aðrir liðsmenn voru að gera.
Lokasveit kvöldsins, Moðfisk,
átti góða spretti, en framan af
var keyrslan stefnulaus, sérstak-
lega í fyrsta laginu og það annað
var reyndar síst betra. í lokalag-
inu tókst Moðfisk þó á flug; gít-
arhljómur var þéttur og söngvar-
inn lék vel í sér heyra.
Shape sigraði nokkuð örugg-
lega, Moðfisk varð í öðru sæti
og dómnefnd fannst ástæða til
að hleypa Stonehenge í úrslit,
sem fóru fram í gærkvöldi.
RUSSFELDUR pönkar.
STURMANDSTRÁUME í skógarferð.
BEST fyrir hékk illa saman.
STEINSTEYPA var lengi í gang.