Morgunblaðið - 16.05.1996, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
SKÓLAHLJÓMSVEIT Brúarásskóla flytur lagið Mengunarsjó-
ræninginn eftir þýsku söngkonuna Ninu Hagen. Textann þýddu
nemendur sjálfir og staðfærðu hann.
Mengnnarsj óræningj -
arnir umhverfisverk-
efni í Brúarásskóla
Vaðbrekku, Jökuldal - Nemend-
ur Brúarásskóla hafa í vetur verið
að vinna að umhver'fisverkefni um
lífið í sjónum er nefnist Mengunar-
sjóræninginn eftir lagi er Nina
Hagen gaf út á plötu á sínum tíma
og fjallar lagið eins og nafnið gef-
ur til kynna um mengun.
Öm Þorleifsson, kennari í
Brúarási, var verkefnisstjóri yfir
verkefninu og aðstoðaði krakkana
við efnisöflun og uppsetningu þess
en áttundi bekkur var leiðandi í
því þótt allir bekkir skólans, frá
fyrsta til níunda, væru þátttakend-
ur. Gréta Siguijónsdóttir sá um
að aðstoða krakkana við að setja
upp tónlistina er flutt var samhliða
verkefninu
Krakkarnir tóku lagið Mengun-
arsjóræningjarnir eftir Ninu Hag-
en, þýddu textann við það og stað-
færðu og notuðu hugmyndafræði
textans sem þema við verkefnið.
Verkefnið samþætti margar náms-
greinar við skólann, svo sem
tungumál, íslensku, myndmennt,
líffræði og stærðfræði. Síðan skrif-
uðu krakkamir ritgerðir um flesta
nytjafiska við ísland og máluðu
myndir af þeim og kynntust um
leið hvernig umhverfið tengist dag-
legu lífi og sjálfbærri þróun.
Elduðu
sjávarfang
Það var síðan fyrsta maí síðast-
liðinn sem sett var upp sýning á
vinnu nemenda og niðurstöðu verk-
efnisins. Þar voru meðal annars
sýndar myndir og ritað mál er
verkefninu tengdist, meðal annars
stór veggmynd af flestum nytja-
fiskum við Island. Þá flutti hljóm-
sveit skólans lagið Mengunarsjó-
ræninginn eftir Ninu Hagen með
texta eftir krakkana.
í tilefni dagsins var sjávarrétta-
hlaðborð þar sem Iðunn Kröyer
kokkur og Halldís Hrafnkelsdóttir
matráðskona elduðu alls konar
sjávarfang með aðstoð krakkanna
og starfsfólks skólans. Gestum
fannst gaman að sjá lifandi áhuga
krakkanna á verkefninu og hvað
mikinn metnað þeir höfðu lagt í
það og tónlistina, sem þeir tengdu
svo listilega við verkefnið.
Evrópusambandið styrkir unglinga á Hvammstanga
Tíundi bekkur til Finnlands
Hvammstanga - Allir nemendur
10. bekkjar í Grunnskóla
Hvammstanga lögðu upp í Finn-
landsferð þann 1. maí og dvelja
með finnskum ungmennum í
tvær vikur. Ferðin er vandlega
undirbúin og hafa ungmennin
lagt hart að sér með að afla fjár.
Ein leiðin var að afla áheita
fyrir maraþonsund en þar safn-
aðist verulegur sjóður meðal
staðarbúa og fyrirtækja. Nor-
ræna félagið lagði fram 200
þúsund krónur en mestu munaði
um svonefndan Lingue-styrk frá
ESB og er kenndur við Sókrat-
es. Styrkurinn, sem er 700 þús-
und krónur, er ætlaður til að
efla samskipti meðal ungmenna
með ólík tungumál. Gert er ráð
fyrir að ferðin kosti um 1.100
þúsund krónur.
Ungmennin eru 18 og með
þeim þrír fararsljórar og leið-
beinendur. Þau munu dvelja í
grennd við Tammerfors, ferðast
um svæðið, kynnast jafnöldrum
á þeirra heimaslóð og vinna að
verkefnum sem skila þarf, m.a.
til styrkveitenda. Að ári er ráð-
gert að finnsk ungmenni komi
hingað og verði þá heimsóknin
endurgoldin.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
UNGMENNIN ferðbúin í Grunnskóla Hvammstanga.
Grundar-
fjarðarhöfn
gefin björg-
unarvesti
Grundarfirði - Rúnar S.
Magnússon, skipstjóri, færði
Grundarfjarðarhöfn fimm
björgunarvesti að gjöf fyrir
hönd Soffaníasar Cecilssonar
hf. Tilgangurinn með gjöfinni
er að börn og unglingar sem eru
að leik við höfnina komi á hafn-
arvogina og fái björgunarvestin
til að nota á meðan þau dvelja
á hafnarsvæðinu, til að fyrir-
byggja slys. Rúnar afhenti Elísi
Guðjónssyni hafnarstjóra björg-
unarvestin.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Framhaldsskóli
Vestfjarða
Ráðstefna
um skóla og
atvinnulíf
FRÁ minningarathöfninni á Flateyri.
A
Rauði kross Islands
leggur minningar-
blómsvelg á Flateyrí
Flateyri - Falleg og iátlaus athöfn
átti sér stað á Flateyri núna fyrir
skemmstu þegar Rauði kross ís-
lands lagði minningarblómsveig á
grasið fyrir framan Flateyrarkirkju
í minningu þeirra sem létust í snjó-
flóðinu. Með þessu vildi allar deildir
innan Rauða kross íslands votta
þeim látnu hiuttekningu sína og
samúð.
Viðhöfð var þögn í eina mínútu.
Guðjón O. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins, flutti
stutta ræðu þar sem hann lét þess
getið að þáttur Rauða krossins í
neyðarvömum væri mönnum mun
ljósari nú en áður. Hægt væri að
læra af þeirrr reynslu sem orðið
hefði, hversu sársaukafull sem hún
væri, þá væri hún engu að síður
Morgunblaðið/Egill Egilsson
mjög dýrmæt. Reynslan undirstrik-
aði að þegar á reyndi værum við
öll sem ein fjölskylda.
Að lokinni ræðu Guðjóns flutti
Magnea Guðmundsdóttir oddviti
stutta ræðu þar sem hún þakkaði
fyrir allan þann hlýhug sem Rauði
kross hefði sýnt og einnig þá
ómældu aðstoð sem Flateyringum
hefði verið sýnt. Þrátt fyrir þá at-
burði sem orðið hefðu héldu menn
áfram lífinu og vegurinn væri áfram
og hér mundu menn halda áfram
að dafna.
ísafirði - Haldin verður ráðstefna
á laugardag í Framhaldsskóla
Vestijarða um tengsl framhalds-
skólastigsins við atvinnulífið undir
yfirskriftinni: Hvað á framhalds-
skólinn að gera fyrir atvinnulífið?
Ráðstefnan verður í bóknáms-
húsinu frá kl. 13-18. Björn Teits-
son, skólameistari, setur ráðstefn-
una. Björn Bjarnason, mennta-
málaráðherra, flytur ávarp, Gerður
G. Oskarsdóttir, kennslustjóri við
HÍ, fjallar um nýjar leiðir í starfs-
menntun og Gunnar Örn Kristjáns-
son, sjávarútvegsfræðingur, um
menntun fiskvinnslufólks.
Þá ræðir Benedikt Kristjánsson,
formaður Kaupmannasamtak-
anna, um verslun og framhalds-
skóla, Pétur Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands Vestfjarða, um
verkalýðshreyfinguna, framhalds-
menntun og símenntun og Elsa
Guðmundsdóttir, atvinnuráðgjafi,
um framhaldsskólann og ný at-
vinnutækifæri. Að loknum fram-
söguerindum verða pallborðs-
umræður.
(
í
I
k
'
N
I
' v
I
\i
<
\i
i
<
\i
U
i
M
I <
M
I
! <
V
<
<
| <
H
4<