Morgunblaðið - 16.05.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 29
LISTIR
Manuela Wiesler með Sinóníuhljómsveit íslands
Verk eftir Þorkel,
Haydn o g Sibelius
Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands í Háskólabíói á morgun
föstudag kl. 20 verða flutt verk eftir
Þorkel Sigurbjömsson, Josef Haydn
og Jean Sibelius. Hljómsveitarstjóri
er Petri Sakari. Einleikari Manuela
Wiesler.
Það er mikið fagnaðarefni fyrir
Sinfóníuhljómsveitina að fá flautu-
leikarann Manuelu Wiesler sem ein-
leikara á tónleika eftir nokkurra ára
hlé. Manuela fæddist í Brasilíu en
flutti ung til Austurríkis þar sem hún
ólst upp. Hún lauk prófi frá tónlistar-
háskólanum í Vín árið 1971. Síðar
nam hún hjá Alain Marion, James
Galway og Auréle Nicolet. Manuela
flutti til Íslands árið 1973 og bjó hér
til ársins 1983.
Árið 1976 vann hún til fyrstu verð-
launa í Norrænau kammertónlistar-
keppninni í Helsinki og hefur síðan
átt einstæðan feril sem alþjóðlegur
listamaður. Auk þess að halda ein-
leikstónleika í Skandinavíu, Bret-
landi og Þýskalandi hefur Manuela
komið fram sem einleikari með flest-
um sinfóníuhljómsveitum Norður-
landa. Hún hefur leikið bæði ein-
leiks- og hljómsveitarverk inn á fjöl-
marga geisladiska. Manuela hefur
spilað mikið af nútímatónlist og hafa
mörg tónskáld sérstaklega samið
verk fyrir hana.
Petri Sakari gegnir nú stöðu aðal-
gestastjórnanda S.í. Síðan hann lét
af störfum sem aðalhljómsveitar-
stjóri S.I. árið 1993 hefur hann
stjórnað helstu hljómsveitum Norð-
Petri Sakari Manucla Wiesler
urlanda auk hljómsveita í Þýska-
landi, Hollandi, Englandi, Ungveija-
landi og Rúmeníu. Hann hefur starf-
að mikið í óperuhúsunum í Stokk-
hólmi, Gautaborg og Helsinki. Petri
Sakari er nú aðalhfjómsveitarstjóri
Lohja hljómsveitarinnar í Finnlandi.
Að loknum tónleikunum á föstu-
daginn hyggst Petri Sakari ferðast
um Island í vikutíma til þess að safna
kröftum fyrir hljóðritanir sem hann
mun stjórna fyrir NAXOS útgáfufyr-
irtækið, en nú eru að hefjast fyrstu
upptökur af verkum Sibeliusar en
áætlað er að taka upp öll hljómsveit-
arverk hans á næstu 3 árum fyrir
NAXOS.
Tónleikarnir hefjast á Sinfóníu nr.
22 eftir Haydn. Hún þykir sérstæð
fyrir óvanalega hljóðfæraskipan en
hún er skrifuð fyrir 2 englahorn, 2
horn og strengjasveit.
Flautukonsertinn Evridís eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson er skrifaður fyrir
Manuelu Wiesler. Höfundur segir um
verk sitt „þessi konsert varð til fyrir
áeggjan Manuelu Wiesler og Páls
P. Pálssonar. Heitið bendir til að hér
sé á ferðinni enn ein „musica'rap-
prestentiva" um þekktu goðsögnina-
og að þessu sinni frá sjónarhóli Evri-
dísar. Ekki þarf að rekja kunnan
söguþráðinn. Reynt er að fylgja hon-
um. Þar sem heimildum sleppir, er
Manuela eiginlega ein tii frásagnar
- og það gerir hún orðalaust.“
Tónleikunum lýkur á Lemminkain-
en svítunni eftir Sibelius.
Tjarnarkvartettinn Kristján
Hjartarson, Kristjana Arn-
grímsdóttir, Hjörleifur Hjart-
arson og Rósa Kristín Bald-
ursdóttir
Tjarnar-
kvartettinn í
Gerðubergi
TJ ARNARK V ARTETTINN heldur
tónleika í Gerðubergi næstkomandi
laugardag kl. 17. Á efnisskránni eru
meðal annars ný sönglög eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson samin
fyrir kvartettinn og einnig ýmsar
nýstárlegar útsetningar á íslenskum
söng- og dægurflugum allt frá Sig-
valda Kaldalóns til Spilverks þjóð-
anna. Allt efni er flutt án undirleiks
„a capella".
Tjarnarkvartettinn er skipaður
þeim Kristjáni Hjartarsyni bassa,
Kristjönu Arngrímsdóttur alt , Hjör-
leifi Hjartarsyni tenór og Rósu Krist-
ínu Baldursdóttur sópran. Þau hafa
starfað saman í sjö ár og á þeim tíma
komið viða fram bæði hér á landi
og erlendis, sungið í útvarpi og sjón-
varpi og sent frá sér tvo hljómdiska.
„Sjónvarpsþáttur um Tjarnar-
kvartettinn sem sýndur var í Ríkis-
sjónvarpinu nú á dögunum vakti
mikla athygli og munu eflaust marg-
ir höfuðborgarbúar taka því fagnandi
að fá tækifæri til að hlýða á söng
hans nú um helgina," segir í frétt
frá Gerðubergi.
------»—♦—«-----
Fjórir kórar að
Laugalandi
FJÓRIR kórar koma fram í Lauga-
landi í Holta- og Landssveit næst-
komandi laugardag kl. 15.
Kórarnir eru Samkór Oddakirkju,
Karlakór Rangæinga, Kvennakór
Hafnarfjarðar og Kór eldri Þrasta.
Kórarnir eiga það allir sameiginlegt
að vera stjórnað af Halldóri Oskars-
syni. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
------» 4------
Sigga Vala
sýnir á 22
SIGGA Vala opnar sýningu á veit-
ingahúsinu Laugavegi 22 laugardag-
inn 18. maí kl 17.
Allir velkomnir.
víötal víð Hn
Blomsterber
Guðrún Agnar;
Einar Gtprídal og Guðrún Guðmundsi
rún K. Einarsdóttir í Saudi Arabí
6906:
Hitrvi
1 “A Cfá % IfslÉlvwfr