Morgunblaðið - 16.05.1996, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1996 61
MINNINGAR
í stórum systkinhópi úti í Grímsey,
en auk hennar fjölskyldu voru þá
að alast upp í Grímsey mörg frænd:
systkini hennar og jafnaldrar. í
gegnum sögur sem Ella sagði frá
æskuárunum í Grímsey hef ég
skynjað vel hversu merkilegt sam-
félag þetta hefur verið. Ættmóðirin
Inga Jóhannesdóttir, móðuramma
Ellu, hélt um taumana og fylgdist
með öllum sínum ættingjum, ekki
aðeins þá heldur alla tíð, en hún
varð 100 ára gömul og ættingjar
dreifðir um land allt.
Síðastliðið sumar var haldið fjöl-
sótt ættarmót afkomenda Ingu og
hennar systkina. Þar kom glöggt
fram samheldni þeirra sem ólust
upp með Ellu í Grímsey. Þetta var
glaðvær hópur sem hafði margt að
rifja upp og frá mörgu að segja og
entist vart sólarhringurinn til. Það
eru einmitt slíkar myndir af Elínu
sem allir sem þekktu hana munu
geyma með sér, þar sem hún var
hrókur alls fagnaðar í söng og frá-
sögn. Sögur af lífinu í Grímsey og
vísur sem voru ortar þar um menn
og málefni, og ekki allar dýrt kveðn-
ar, voru í sérstöku uppáhaldi hjá
henni.
Elín var vinnusöm manneskja og
rösk til allra verka. Það voru allir
hlutir í röð og reglu í kringum hana.
Hún var mikil ræktunarmanneskja
og hefur garðurinn við húsið þeirra
á Borgarholtsbrautinni margoft
fengið verðlaun fyrir góða ræktun
og hversu fallegur hann er. Umhirð-
an um garðinn og húsið var verk
þeirra hjóna beggja, Odds og Elín-
ar, og góður vitnisburður um sam-
starf þeirra. Það var gæfa Elínar
að eignast jafn traustan lífsföru-
naut og Oddur Brynjólfsson er. Það
var líka gæfa okkar sem tengdumst
ijölskyldu þeirra að geta átt þau
að og notið samvista við þau, hvort
sem var yfir vöfflunum hans Odds
á rólegum helgarmorgni með heim-
spekilegum vangaveltum um lífið
og tilveruna; á hlýjum sumardegi í
garðinum eða þegar næddi um og
þörf var fyrir skjól í sviptivindum
lífsins. Alltaf var athvarf til reiðu
og stuðningur eins og þörf var fyrir.
Það er mikill sjónarsviptir að
Elínu Jakobsdóttur. Hennar munu
margir sakna, ekki síst barnabörnin
sem alltaf áttu vísan stuðning og
skjól hjá afa og ömmu. Missir þeirra
Odds og Elínar litlu er þó mestur
en minningin um fórnfúsa ömmu
og mikilhæfa konu mun hjálpa þeim
á næstu misserum.
Jóhann Antonsson.
Heimili ömmu og afa hefur alltaf
verið fastur punktur í lífi mínu. Ég
nánast fæddist þar, ólst þar upp
að verulegum hluta og dvaldi þar
langdvölum langt fram eftir aldri.
í raun og veru vildi ég hvergi ann-
ars staðar vera en hjá ömmu. Svo
rammt kvað að þessu að ég hélt
því staðfastlega fram þegar ég sem
lítill strákur bjó erlendis að Island
væri hvergi annars staðar en hjá
ömmu og afa. Þá var ég vanur að
segja þegar við nálguðumst húsið
þeirra: „Jæja, þá erum við komin
til íslands."
Oft var ég að þvælast í kringum
þau ömmu og afa þar sem þau
voru úti í bílskúr að skera af net-
um. Ég lét afa kenna mér að ná biti
í hníf og eftir það var amma vön
að kalla á mig og fá mig til að
brýna fyrir sig; sagði að ég væri
svo hraðlyginn. Ég var að berjast
við að gera niður teinana með þeim
og að drösla til netum og teinum
en ég held að ekki hafi verið mikil
hjálp í mér við það.
Amma var söngelsk í meira lagi
og oft sátum við saman inni á dívan
og hún spilaði á gítarinn og við
sungum saman. Seinna tókst hún
á við það tafsama verk að kenna
mér að spila á gítarinn og svo fór
að ég var kominn a.m.k. með tærn-
ar þar sem hún hafði hælana. En
í performans við gítarleik og söng
hafði ég ekki roð við henni. Amma
söng reyndar með öllum barnabörn-
um sínum sem hún kom höndum
yfir til þess og lagði mikið upp úr
því að kenna þeim vísur og lög.
Ég minnist þess sérstaklega á niðja-
mótinu í Grenivík síðastliðið sumar
þegar við Elín frænka mín komum
fram saman; ég spilaði á gítar og
hún söng. Amma var á nálum áður
en við komum fram, en eftir flutn-
inginn var hún greinilega hrærð og
ánægð með okkur.
Amma virtist alla tíð hafa trú á
mér, hvort sem ég hafði innstæðu
fyrir því á hverjum tíma eða ekki.
Hún hafði óbilandi trú á tæknikunn-
áttu minni og handlagni og ósjaldan
tíndi hún fram eitthvað sem þurfti
viðgerðar við þegar ég kom til henn-
ar. Hún var líka ákveðin í að ég
væri mikill tunguinálamaður og
fékk mig oft til að þýða fyrir sig
hitt og þetta eða skrifa fyrir sig
jólakort og slíkt á útlensku. Hún
hringdi líka oft í mig til að bera
undir mig ýmis álitamál í íslensku,
þá gjarnan eitthvað sem hún hafði
heyrt í útvarpinu eða verið að deila
um í vinnunni. Hún var mikill
áhugamaður um íslenska tungu og
vandaði sig við að tala og leiðrétti
aðra í gríð og erg.
Það var gott að heimsækja þau
afa og ævinlega fórum við Hafdís
heim frá þeim mett; frá þeim fór
enginn svangur; klyfjuð af gjöfum,
matvælum eða blómum. Ef það
dróst að við heimsæktum þau
hringdi hún gjarnan í okkur og
spjallaði. Amma átti aldrei í neinum
erfiðleikum með að tala og ef vel
lá á henni mátti maður hafa sig
allan við að skjóta inn orði og orði.
Hún var mjög lagin við að segja
sögur og sagði sögur af öllum sköp-
uðum hlutum og oft tókst henni svo
vel upp að ekki var annað hægt en
að veltast um af hlátri.
Elsku amma, ég vil þakka þér
allt sem þú hefur gefið mér og
kennt mér og allar þær stundir sem
við áttum saman.
Pétur.
Elsku amma mín.
Ég vil þakka þér allar góðu
stundirnar sem við höfum átt saman
og allt sem þú hefur gert fyrir mig.
Takk fyrir að leyfa mér að búa hjá
þér í Kópavoginum í vetur. Ég mun
alltaf muna eftir þér sem yndislegri
manneskju sem vildi alltaf hjálpa
öðrum. Þú hefðir átt að lifa lengur
en ég vil kveðja þig með þessu ljóði
sem ég samdi handa þér:
Þú ert sem neisti í hjarta minu
minningar sem ég ber
og allt sem þú hefur kennt mér.
Ég vona að þú sofir og hvílist
þar til ég ferðast með þér.
Tinna Hrund.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SUMARLIÐI BJÖRNSSON,
Litluhlíð,
Skaftártungu,
sem lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 9. maí, verður jarðsunginn frá
Grafarkirkju laugardaginn 18. maí kl. 14.00.
Þórgunnur Guðjónsdóttir,
Guðgeir Sumarliðason, Anna S. Þorbergsdóttir,
Bjarndís Sumarliðadóttir, Birgir Hjaltason,
Valgerður Sumarliðadóttir, Árni R. Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
JÓN JÓSEFSSON
frá Núpi,
Laugarnesvegi 106,
Reykjavík,
sem lést á sjúkradeild Hvítabandsins
7. maí, verður jarðsunginn frá Kvenna-
brekku; Miðdölum, laugardaginn 18. maí
kl. 14.00.
Hulda Guðbjörnsdóttir
og systkinabörn hins látna.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JENS KRISTINN SIGURÐSSON
skipstjóri,
verður jarösunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 17. maí kl. 15.00.
Sigrún Jensdóttir,
Jens S. Jensson,
Anna Jensdóttir,
Helga Jensdóttir,
Karl Jensson,
Guðrún Elísabet Jensdóttir,
Hilmar Guðjónsson,
Kristín Sigurgeirsdóttir,
Páll Jensson,
Rúnar Gunnarsson,
Guðrún Sturlaugsdóttir,
Baldur Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ELÍN JAKOBSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 17. maí kl. 13.30.
Oddur Brynjólfsson,
Svanfríður Jónasdóttir, Jóhann Antonsson,
Margrét Jónasdóttir, Brynjar Kristmundsson,
Brynjólfur Oddsson, Sandra Barbosa,
Vilborg Kr. Oddsdóttir, Alan James,
Jakob Oddsson, Ragnheiður R. Ólafsdóttir
og barnabörn.
+
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐRIK Þ. JÓNSSON
fyrrv. verkstjóri,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði föstudaginn 17. maí
kl. 15.00.
Guðbjörg J. Guðmundsdóttir,
Marvin H. Friðriksson, Kolbrún Sigurbjörnsdóttir,
Hilmar Friðriksson, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Jón Örn Friðriksson,
Guðbjörg M. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona,
frænka og dótturdóttir,
SANDRA DRÖFN BJÖRNSDÓTTIR,
Kárastfg 8,
Hofsósi,
sem lést af slysförum mánudaginn
13. maí sl., verður jarðsungin frá Hofs-
óskirkju laugardaginn 18. maí nk.
kl. 14.00.
Sigrún ívarsdóttir, Björn ívarsson,
Kristfn S. Björnsdóttir, Skúli Skúlason,
Aðalbjörg J. Björnsdóttir, Valur Júlíusson,
Hafdís Hrönn Björnsdóttir, Valdimar Júliusson,
Björn Emil Jónsson,
Kolbrún Sif Skúladóttir,
Kristín Sigurjónsdóttir, ívar Antonsson.
+
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUÐNI GRÍMSSON
fyrrv. skipstjóri og útgerðarmaður,
Herjólfsgötu 14,
Vestmannaeyjum,
sem lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja
þann 9. maí sl., verður jarðsunginn
frá Landakirkju laugardaginn 18. maí
kl. 14.00.
Sigurður Guðnason, Lilja Ársælsdóttir,
Laufey Sigurðardóttir, Gunnar Rafn Einarsson,
Lovisa Sigurðardóttir, GuðmundurSv. Hermannsson,
Guðni Sigurðsson, Olga Sædís Bjarnadóttir
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, dóttur, mágkonu
og tengdadóttur,
KRISTÍNAR LÁRU
RAGNARSDÓTTUR,
Tjarnargötu 14,
Reykjavík.
Hörður Harðarson,
Guðrún Harðardóttir,
Oddgeir Harðarson,
Guðrún Guðjónsdóttir, Sigurður Ólafsson,
Áslaug Harðardóttir, Guðjón Þór Ragnarsson,
Guðrún Björg Ragnarsdóttir, Lárus Kristinn Ragnarsson,
Málfriður Sigurðardóttir, Hörður Þorgilsson.
+
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem auðsýndu okkur hlýhug, vin-
áttu og samúð vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns,
fósturföður, afa og langafa,
DANÍELS JÓELSSONAR,
Laugavegi 132,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar Krabbameins-
félagsins.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Þorvarðardóttir,
Sigrún Þóra Indriðadóttir, Kristín Þórsdóttir,
Rannveig Þórsdóttir, Hjörtur Skúlason,
Sigrún Halldórsdóttir, Þórður Guðmundsson,
Thelma Dögg Haraldsdóttir, Daniel Þór Valdimarsson,
Guðmundur Vignir Þórðarson.
Lokað
Lokað föstudaginn 17. maí frá kl. 12.00 vegna
útfarar ELÍNAR JAKOBSDÓTTUR. -
/ Bakarí Friðriks Haraldssonar/
Ömmubakstur,
Kársnesbraut 96, Kópavogi.