Morgunblaðið - 16.05.1996, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
Ferdinand
Stundum dýfir fuglinn kleinu- Stundum dýfir klcinuhringurinn
hringnum ofan í... fuglinum ofan í...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Stöðvum
söluna
Frá Hruhd Sigurbjörnsdóttur:
ÞAÐ er ein vara sem hefur mikla
sérstöðu, hún fæst víðar en nokk-
ur önnur vara og er jafnframt lög-
legt fíkniefni. Það er að segja fyr-
ir þá sem eru eldri en 16 ára en
þeir sem eru yngri virðast í engum
vandræðum
með að kaupa
efnið. í tveimur
könnunum
æskulýðsráðs
Hafnafjarðar í
janúar og mars
sl. reyndust yfir
níutíu prósent
sölustaða selja
unglingum und-
ir lögaldri tób-
ak. Hvaða skilaboð eru það til
barna og unglinga?
Stórhættulegt að byrja ungur
Nikótín er mjög ávanabindandi
fíkniefni ekki síður en kókaín og
heróín. Mjög margir örkumlast
og deyja af völdum þess. Flestir
sem reykja vilja hætta því og það
sýnir kannski best hversu ávana-
bindandi það er, því að allt of
fáum tekst það. Við vitum að því
yngri sem maður er þegar maður
byijar að reykja því hættulegra
er það. Líkami og líffæri í vexti
eru sérlega viðkvæm fyrir eitur-
efnum tóbaks. Hætta á krabba-
meini af krabbameinsvaldandi
efnum eykst eftir því sem áreiti
þessara efna byija fyrr á mann-
sævinni. Þeim sem byija ungir
er hættara en öðrum við að verða
stórreykingamenn. I bandarískri
rannsókn kemur fram að þeir sem
byija 14 ára eða yngri fimmtán-
falda hættuna á að fá lungna-
krabbamein miðað við þá sem
aldrei hafa reykt og svo má lengi
telja.
Skilaboð samfélagsins
í ljósi þessarar vitneskju ættum
við að gera allt til þess að forða
unglingnum frá tóbaki. Það er
öflug forvörn að hefta aðgengi og
draga þannig úr líkum á að unga
fólkið nái auðveldlega í efnið - það
verður erfiðara að byija. Við erum
með 16 ára aldurstakmark til tób-
akskaupa á íslandi (mjög víða er-
lendis er það 18 ár og í frumvarpi
til breytinga á-tóbaksvarnalögum
sem liggur fyrir alþingi er gert ráð
fyrir þeim lágmarksaldri), en því
miður er það lítið virt. Lágmarks-
aldur er líka til þess að vernda
börn fyrir því að þurfa að kaupa
tóbak fyrir vandamenn, það á ekki
að vera sjálfsagt að kaupa tóbak
eins og mjólk. Það er ógeðfellt
fyrir barn, sem veit að þetta er
jafnvel lífshættulegt fíkniefni, að
kaupa það fyrir mömmu. Við verð-
um að virða lágmarksaldurinn og
senda börnum þannig skýr skila-
boð samfélagsins um skaðsemi
tóbaksneyslu.
Frábært framtak!
Heilsugæslan og æskulýðsyfir-
völd í Garðabæ fengu verslunar-
eigendur og vímuvarnanefnd í
bæjarfélaginu í lið með sér og
hengdu upp á öllum sölustöðum
tóbaks veggspjald sem áréttar lág-
marksaldur til tóbakskaupa.
Verslunareigendur hafa þannig
tekið höndum saman og ákveðið
að framfylgja landslögum við sölu
tóbaks. Geta ekki fleiri fetað í
þeirra fótspor?
HRUND SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Fálkagötu 27, Reykjavík.
Hrund
Sigurbjörnsdóttir
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
$
SÝNUM SflMUÐ
Berum sorgar- og samúðarmerkin við minninearathafnir
og jarðarfarir og almennt þegar sorg ber að nöndum.
Sölustaðir: Kirkjuhúsið, Laugavegi,
bensínstöðvar og blómabúðir um allt land.ij
Þökkum stuðnínginn. "
35
Kmwa
Ókeypis félags- og lögfræöileg ráðgjöf
fyrir konur. Opib þribjudagskvöld
kl. 20-22 og fimmtudaga kl. 14-16.
Sími 552 1500.
-kjarni málsins!