Morgunblaðið - 16.05.1996, Síða 68

Morgunblaðið - 16.05.1996, Síða 68
>8 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ BREF • FORSETAKJOR Guðrún Agnarsdóttir sameinar kosti allra frambjóðenda Frá Ásgeiri Helgasyni: VALUR Pálson, leiðandi ^ kontrabassaleikari í Fílharmoníunni 'X okkar hér í Stokkhólmi, skrifaði í jibréfi til blaðsins fyrir nokkru að k hann styddi Guðrúnu Agnarsdóttur a til forseta íslands öðrum fremur, ; vegna þess að hún væri eini fram- '.bjóðandinn sem hefði pólitíska f Vreynslu án þessa að vera bundin á þann hægri-vinstri bás sem skipað hefur þjóðinni í fylkingar í ára tugi. | Þó erfitt sé að vera ósammála jVal um þetta tel ég að aðrir kostir ■Guðrúnar Agnarsdóttur vegi ekki jsíður þungt á metunum. Guðrún jsameinar nefniléga í einni konu alla jþá kosti sem hinir frambjóðendum- |ir vilja lyfta fram sem sínum sér „einkennum. Hún hefur pólitíska ’reynslu Ólafs Ragnars án þess þó |að hafa bendlað sig við hægri- | vinstri togstreituna eins og Valur ‘sbendir á. Hún hefur stefnufestu Guðrúnar Pétursdóttur (sem Guð- rún Pétursdóttir hefur óneitanlega fram yfir Ólaf Ragnar) og síðast en ekki síst þá hefur hún alla burði til að vera það sameiningartákn á erfíðum tímum sem Pétur Hafstein vill markaðssetja sig með. Það er eitt helsta persónuleikaeinkenni Guðrúnar Agnarsdóttur að vilja sætta og sameina stríðandi öfl. Að lokum vil ég benda á að stuðn- ingsmenn Guðrúnar Agnarsdóttur hafa opnað kosningaskrifstofu á Norðurlöndum með aðsetur í Stokk- hólmi. Að sjálfsögðu höfum við sett upp heimasíðu á alnetinu þar sem hægt er að senda inn fyrirspumir og fræðast um persónu og stefnu- mál Guðrúnar Agnarsdóttur. Slóð heimasíðunnar er hér innan sviga (http://www.met.kth.se/ mattek/gifs/ Agnarsdottir.html). ÁSGEIRR. HELGASON, Svíþjóð. Forsetaframboð! ;] Frá Karli Ormssyni: ÞAÐ eru margir sem velta fyrir sér þessa dagana hvem þeir vilja fá sem næsta forseta íslenska lýðveldisins. Það ætti ekki að vera vandasamt að velja sér forseta úr þeim hópi sem nú hefur tilkynnt framboð sitt. Það hefur öllum forsetaframbjóð- endunum verið gefinn kostur á að koma fram í smáyfírheyrslu í Dags- ljósi sjónvarpsins. Miðvikudaginn 17. apríl síðastliðinn talaði Logi Bergmann Eiðsson við frambjóð- andann Pétur Kr. Hafstein. Undir lokin sagði Logi Bergmann: „Pétur, nú hefur þú einn frambjóðenda ver- ið sagður alveg vammlaus að öllu leyti. Ekkert hefur verið hægt að segja misjafnt um þig, þú hefur ekki verið stjórnmálamaður né umdeildur að neinu leyti. Og þá segir fólk að þú sért kannski nokk- uð stífur og ekki nógu spennandi, hvernig viltu svara því?“ Pétur svar- aði þessu á sinn einstaklega hóg- væra hátt: „Það er ekki mitt að dæma um hvort ég sé spennandi en ég er bara svona.“ Það var nefnilega svona, Pétur Kr. Hafstein er bara vammlaus svo ekki er hægt að segja neitt mis- jafnt um hann. Nú vill svo til að undirritaður er alæta á fjölmiðla og þekkir að auki vel til Péturs, ég þekkti föður hans ákaflega vel, hann var einstakur öðlingsdrengur sem ekki mátti vamm sitt vita í neinu. Ég þekkti líka föðurbróður hans, Jakob, sem nú er látinn, og Hannes Þ., sem lengi var forstjóri Slysavarnafélags íslands, hef ég þekkt af öllu góðu í áratugi. Ef það er ekki kostur fyrir forseta að vera svo vammlaus að ekkert sé misjafnt hægt að segja um hann þá er illa farið fyrir okkar þjóð, varla vill ábyrg þjóð fá einhvern og einhvern sem forseta, bara ef hann er spenn- andi? Ég þekki menn úr öllum stjórnmálaflokkum sem styðja Pét- ur Kr. Hafstein í komandi kosning- um, einmitt fyrir hans drenglyndi sem þeir þekkja hann af. Fráleitt væri að halda að Pétur væri skap- laus maður, það getur enginn haft þann feril sem hann nema að vera ákveðinn, traustur og kjarkaður. Að lokum vildi ég skora á fólk að kynna sér störf og mannkosti Pét- urs Kr. Hafstein. Þá er ég ekki hræddur um að fólk verði í vafa um hvern frambjóðendanna þeir eigi að velja. KARL ORMSSON Gautlandi 5, Reykjavík. FLOTT FoT 'A FÍNU VÍRÐÍ i A K/AKKA ENGLABORNIN Bankastræti 10 • Sími 552 2201 «»1» HUGBÚNAÐUR FYRIR WINDOWS Tölvufyrirtækið OZ valdi Stólpa bókhaldskerfið H KERFISÞRÚUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! Trefjagifsplötur til notkunar á veggi, loft og gólf * ELDTRAUSTAR * HLJÓÐEINANGRANDI * MJÖG GOn SKRÚFUHALD * UMHVEFISVÆNAR PLÖTUR VIÐURKENNDAR AF BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS Þ. ÞORGRÍMSSON &CO ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK SÍMI 553 8640/560 6100 I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Þakkir til Alþingis MIG LANGAR að koma á framfæri þókkum til Al- þingis fyrir að samþykkja ný nafnalög. Þá langar mig að spyija þá sem eru á móti lögunum hvað þeir geti haft á móti því að ís- lendingar beri t.d. íslensk ættamöfn. Er það óís- lenskara en endingin sonur og dóttir? Ragnheiður Dónaleg framkoma ÉG OG vinkona mín kom- um í Gleraugnasöluna, Laugavegi 65, á sólríkum sumardegi til að skoða sól- gleraugu. Við vorum ný- komnar inn og ég fer að máta gleraugu. Ég set upp ein, síðan önnur og set þau á sinn stað á eftir. Þá kem- ur til mín maður og spyr hvort hann geti aðstoðað mig. Ég spurði hvort hann gæti mælt með einhveiju sérstöku en hann benti autt pláss í hillunni og spurði hvort ég væri með gleraugun sem hefðu átt að vera á þessum stað. Ég sagði það ekki svo og benti á gleraugun sem ég hafði mátað og baðst velvirðing- ar ef ég hefði sett þau á rangan stað. Hann sagði okkur þá að það vantaði gleraugu í rekkann og spurði ítrekað hvort ég hefði ekki mátað þessi til- teknu gleraugu. Ég varð mjög hissa og sagði honum að ég hefði ekki snert þau. Ég hélt kannski að hann hefði misskilið mig, því hann talaði ekki fullkomna íslensku, og reyndi að út- skýra betur hvaða gleraug- um ég hafði haft hönd á og hvar ég hefði sett þau. Þá spurði vinkona mín hvort hann væri að þjóf- kenna okkur og sagði hann svo vera. Mér var mjög brugðið, rétti honum jakk- an minn og bað hann vin- samlega að leita í honum til að hreinsa mig af áburð- inum. Hann sagðist þá trúa því að ég hefði ekki tekið nein gleraugu og vildi ekki leita. ítrekað bað ég hann að leita í jakkanum mínum svo ég gæti gengið út úr búðinni án þess að vera með þjófstimpil á bakinu en hann vildi það alls ekki. Þá kom að annar maður og fóru þeir tveir að tala saman og virtu okkur ekki meir viðlits. Við fengum enga afsökunarbeiðni og vorum skildar eftir eigin- lega í lausu lofti þama á gólfínu. Ég var svo miður mín vegna þessa áburðar og dónalegu framkomu að ég get ekki orða bundist. Sveindís Jóhannsdóttir, Blöndubakka 7, Reykjavík. Tapað/fundið Fjallahjól tapaðist TAPAST hefur nýlegt 18 gíra Caprieorn-fjallahjól. Það var horfíð frá Kjarr- hólma 36 að morgni sum- ardagsins fyrsta. Ef ein- hver hefur séð hjólið er hann vinsalega beðinn að hafa samband í síma 564-1614. Fundarlaun. Veski og bankabók SVART veski með þremur bankabókum tapaðist við strætisvagnabiðstöð í Mjódd, í Kaupgarði eða við Landspítalann. Veskið var vafíð innan í tvo hvíta plastpoka. Hafi einhver fundið veskið er hann beð- inn að hringja í síma 587-0624. Lyklar fundust LYKLAR fgndust á Sunnuveginum fyrir nokkru. Kippan er merkt Toyota. Upplýsingar í síma 581-2201. Gleraugu fundust KVENGLERAUGU fund- ust laugardaginn 4. maí sl í Bókabúð Steinars, Berg- staðastræti 7. Upplýsingar í síma 551-2030 milli kl. 13 og 18. SKÁK Omsjón Margeir Pétursson Hvítur leikur og vinnur STAÐAN kom upp á stór- móti sem nú stendur yfir í Madrid á Spáni. Fremsti skákmaður Spánveija, Miguel Illescas Cordoba (2.635), var með hvítt og átti leik, en Viktor Kortsnoj, 64 ára, hafði svart. 27. Rxg6! og Kortsnoj gafst upp, því eftir 27. - Kxg6 28. gxf5 - gxf5 29. Dg4+ - Bg5 30. Hxf5 er hann varnar- laus með öllu. Staðan eftir fjór- ar umferðir á mótinu var þannig: 1. Gelfand, Hvíta-Rússlandi, 3 v., 2.-3. Salov, Rússlandi, og II- lescas, Spáni, 2'U v„ 4.-8. Topalov, Búlgaríu, Adamst Englandi, Azmajparashvili, Georgíu, Shirov, Lettlandi, og Morosjevitsj, Rússlandi, 2 v., 9. Kortsnoj l‘/2 v. 10. San Segundo, Spáni, ‘/2 v. HÖGNIHREKKVÍSI Víkveiji skrifar... VÍKVERJA var bent á það í til- efni frétta af Óslóarferð Önnu Mjallar Ólafsdóttur, söngkonu, að það væri tímanna tákn að skömmu eftir að við fögnuðum því að 25 ár voru frá heimkomu handritanna, sendi ríkissjónvarpið íslenzka til keppni lag, sem heitir Sjúbídú. Og það sem meira væri, ekkert annað dygði en að fá bandarískar bak- raddir til að tryggja íslenzka laginu brautargengi. Allt um það óskar Víkveiji söng- konunni ungu góðs gengis í Ósló. xxx VÍKVERJA hefur borist eftir- farandi bréf frá Kristjáni Pálssyni alþingismanni sjálfstæðis- manna í Reykjaneskjördæmi: „í Víkveija fyrir nokkru voru til umfjöllunar fyrirhugaðar fram- kvæmdir við Reykjanesbraut og gert lítið úr nauðsyn lýsingar og talið nær að leggja þá peninga til hliðar fyrir tvöföldun. Ég vil upplýsa Víkveija um það að ef litið er á eina einstaka fram- kvæmd með tilliti til kostnaðar þá er ódýrasta og jafnframt fljótleg- asta leiðin til að auka öryggi á brautinni að lýsa hana. Ef að líkum lætur þá mun lýsing kosta um 120-140 millj. kr. og allt það öryggi á brautinni um 30% miðað við erlenda öryggisstaðla. Það var því talið við núverandi aðstæður vera eina aðgerðin sem gæti skilað umtalsverðum árangri í öryggismálum á brautinni, fyrir þá _peninga sem til eru. Ég er einn af þeim sem sé enga aðra varanlega lausn á öryggismál- um á brautinni en að tvöfalda hana. Slík framkvæmd kostar um 1,5 milljarða króna og mun auka ör- yggið um 80%, miðað við sömu staðla. Að leggja út í slíkan kostn- að er að mínu mati fyllilega rétt- lætanlegt og fjöldinn af rökum sem mæla með því önnur en öryggis- málin. Til að nefna einhver þá eru Suð- urnesin með rúmlega 20 þúsund íbúa, þegar herstöðin á Keflavíkur- flugvelli er meðtalin. Þar er nánast allt millilandaflug landsins og far- þegar um 200 þúsund á ári. Suður- nesin eru einnig að verða mikill ferðamannastaður með Bláa lónið og fjölda annarra áhugaverðra staða fyrir ferðamenn að skoða. Á Suðurnesjum eru einnig tvær stærstu verstöðvar landsins og stærstu vinnustaðir landsins hjá verktökum á Keflavíkurflugvelli og hjá Flugleiðum. Höfuðborgarsvæðið og Suður- nes eru orðin eitt atvinnusvæði þar sem fólk fer á milli til vinnu sinnar daglega. Á Suðurnesjum er einnig eitt stærsta gufuforðabúr landsins og það eina sem er það nálægt höfn að hagkvæmt geti talist að virkja hana til stóriðju. Það verður því áfram forgangs- verkefni að tvöfalda Reykjanes- brautina. Á meðan aflað er fjár- magns til þess eru minni fram- kvæmdir nauðsynlegar og við sem keyrum Reykjanesbrautina dag- lega, í öllum veðrum í svartasta skammdeginu, vitum hve erfitt það er. Ég bið höfund Víkverja að taka þetta til athugunar og minnast þess að á mestu álagstímum er umferðin um veginn sennilega um 14.000 bílar á sólarhring og þegar slydda, myrkur og saltaustur fara saman þá er Reykjanesbrautin hættulegasti vegur landsins. Lýs- ing er því sannkölluð himnasend- ing, ljós í myrkrinu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.