Morgunblaðið - 01.06.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ1996 49
MESSUR A MORGUN
Guðspjall dagsins;
Kristur og Nikódemus.
(Jóh. 3.)
ÁSKIRKJA: Guðstajónusta kl. 11.
Hrafnista Guðsþjónusta kl. 13.
Arna Grétarsdóttir syngur ein-
söng. Árni Bergur Sigurbjörnsson
BÚSTAÐAKIRKJA: Sjómanna-
messa kl. 11. Ræðumaður Guðjón
Ármann Eyjólfsson, skólastjóri
Stýrimannaskólans. í messunni
verður flutt tónlist Sigfúsar Hall-
dórssonar helguð íslenskri sjó-
mannastétt. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Kammerkór Dómkirkjunnar syng-
ur. Organleikari Kjartan Sigurjóns-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11 á sjómanna-
degi og í tilefni af setningu Lista-
hátíðar í Reykjavík. Sr. Karl Sigur-
björnsson og sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Tóm-
as Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Kór Lang-
holtskirkju (hópur IV) syngur. Kaffi-
sopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Félagar úr Kór Laug-
arneskirkju syngja. Organisti
Gunnar Gunnarsson. Guðsþjón-
usta kl. 14 í Sjálfsþjargarhúsinu,
Hátúni 12. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Org-
el og kórstjórn: Reynir Jónasson.
Sr. Halldór Reynisson. Aðalsafnað-
arfundur Nessóknar á morgun
mánudag kl. 18.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Hildur Sigurðar-
dóttir. Organisti Violetta Smid.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Beðið sérstaklega
fyrir sjómönnum og starfi þeirra.
Organleikari Þóra Guðmundsdótt-
ir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Samkoma Ungs
fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jón-
asson.
I DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Smári Óla-
son. Gunnar Sigurjónsson.
FELLA- OG HOLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur Hreinn
Hjartarson. Organisti dr. Pavel
Smid. Prestarnir.
Fermingar
á sunnudag
FERMING í Hjálpræðis-
hernum. Fermd verða:
Alex Ramos,
Mánagötu 23.
Hrafnhildur Jóhannesdóttir,
Bræðraborgarstíg 13.
Margrét Magnúsdóttir,
Njálsgötu 55.
FERMING í Álftaneskirkju,
Borgarprestakalli. Prestur
sr. Þorbjörn Hlynur Árna-
son. Fermd verða:
Ólafur Lárus Gylfason,
Miðhúsum.
Svanhvít Pétursdóttir,
Sveinsstöðum.
Þröstur Reynisson,
Leirulækjarseli.
FERMING í Ólafsvalla-
kirkju. Prestur sr. Axel
Árnason. Fermd verða:
Jan-Henrik Winter,
Borgarkoti, Skeiðahreppi.
María Ósk Ólafsdóttir,
Björnskoti, Skeiðahreppi.
KÓPAVOGSKIRKJA
GRAFARVOGSKIRKJA: Sjó-
mannadagsmessa kl. 11. Sigurður
Grétar Helgason guðfræðingur
prédikar og Lilja Kristín Þórisdóttir
guðfræðingur aðstoðar. Organisti
Ágúst Ármann Þorláksson. Prest-
arnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
fellur niður í Hjallakirkju vegna
sumarleyfis starfsfólks. Sóknar-
börnum er bent á guðsþjónustu
afleysingaprests í Breiðholtskirkju.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Sjómanna-
guðsþjónusta kl. 11. Organisti Örn
Falkner. Aðalsafnaðarfundur Kárs-
nessóknar verður haldinn að lok-
inni guðsþjónustu í Borgum, safn-
aðarheimili sóknarinnar. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Ath. breyttan messutíma. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Ár-
nesingakórinn í Reykjavík syngur
undir stjórn Sigurðar Bragasonar.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík:
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðar-
árstíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8. Messa á þýsku kl. 18. Messa
á ensku kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FHadelf-
ía: Brauðsbrotning kl. 11. Almenn
samkoma kl. 20. Ræðumaður Hafl-
iði Kristinsson. Allir hjartanlega
velkomnir. Ath. breyttur sam-
komutími.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Ferming-
arsamkoma sunnudag kl. 11. Elsa-
bet Daníelsdóttir talar.
MOSFELLSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Mosfellskirkju kl. 14.
Kirkjudagur hestamannafélagsins
Harðar. Prédikun: Sigurður Ragn-
arsson, guðfræðinemi. Sr. María
Ágústsdóttir þjónar fyrir altari.
Trompetleikur Ragnar Sigurðsson.
Ei'nsöngur Hjálmar P. Pétursson.
Kirkjukór Lágafellssóknar. Organ-
isti Guðmundur Sigurðsson. Jón
Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kór Vídalínskirkju syngur. Org-
anisti Gunnsteinn Ólafsson. Bragi
Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Sjómanna-
messa kl. 11. Athöfnin hefst við
minnismerki um horfna sjómenn
kl. 10.45. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta á sjómannadag í tengsl-
um við Vordaga kl. 11. Fjölskyldum
barna sem verið hafa á Vordögum
sérstaklega boðið. Báðir prestarnir
þjóna og leiðtogar Vordaga taka
virkan þátt ásamt börnunum. Grill-
veisla á kirkjuhlaði eftir guðsþjón-
ustuna. Ath. breyttan messutíma.
Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sjó-
mannamessa sunnudag kl. 13. Sjó-
menn taka þátt í athöfninni. Ein-
söngur Guðmundur Ólafsson. Org-
anisti Siguróli Geirsson.
KEFLAVIKURKIRKJA: Sjómanna-
messa kl. 11. Prestur sr. Sigfús
Baldvin Ingvason. Kór Ytri-Njarð-
víkurkirkju syngur. Organisti Stein-
ar Guðmundsson. Blómakrans
verður lagður að minnisvarða sjó-
manna í lok messu. Leiksýningin
„Heimur Guðríðar" kl. 20.30. Kven-
félag Keflavíkur sér um kaffi í
Kirkjulundi eftir sýningu og þar
mun Steinunn Jóhannesdóttir, rit-
höfundur, segja frá rannsóknum
sínum á ævi Guðríðar Símonar-
dóttur.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Messa á sjó-
mannadaginn kl. 13.30. Sóknar-
prestur.
HVALSNESKIRKJA: Messa á sjó-
mannadaginn kl. 10 árdegis. Sókn-
arprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 10.30. Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sjómanna-
messa kl. 11 árdegis. Sjómenn
aðstoða og lesa í messunni. Org-
anisti Ester Hjartardóttir. Svavar
Stefánsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl
11. Úlfar Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
13.30. Úlfar Guðmundsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj
um: Sjómannamessa kl. 13. Sr.
Harold Holtermann frá útgerðar
bænum Stamsund í Norður-Noregi
prédikar, og flytur kveðju frá söfn-
uði sínum. Fulltrúar sjómanna
flytja ritningarlestra. Að lokinni
guðsþjónustu verður athöfn við
minnismerkið um hrapaða og
drukknaða. Kl. 20.30 „Guðfræði
sjávarútvegsins". Harold Holter-
mann flytur erindi og svarar fyrir-
spurnum. Heitt á könnunni.
HOLTSPRESTAKALL, Önundar-
firði: Sjómannadagsmessa kl. 11
í Flateyrarkirkju. Gengiö í skrúð-
göngu frá bryggju að kirkju kl
10.45. Gunnar Björnsson.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
vegno sumarleyfis
safnaðarprests.
Næsta guðsþjónusta verður 16. júni.
Nánari upplýsingar í síma 551-4579.
BREF • FORSETAKJOR
„Að verma sitt hræ
við annarra eld...“
Frá Sigurði Helgasyni:
í TÍMARITINU Séð og heyrt, nr.
1 1996, sem nú nýlega kom fyrir
augu mín, er frásögn Ólafs Ragn-
ars Grímssonar af brúðkaupi á
vegum aðalræðismanns íslands í
New Delhi í Indlándi, Nand
Khema. Ólafur var boðinn í brúð-
kaup þetta ásamt konu sinni. Þar
segir svo: „Að frumkvæði Ólafs
Ragnars og Sigurðar Helgasonar,
fyrrum forstjóra Flugleiða, var
Khemka gerður að aðalræðismanni
íslands á Indlandi."
Þegar ég las þessa frásögn kom
mér til hugar hending úr kvæði
Einars Benediktssonar, Fróðar-
hirðin, sem hljóðar svo:
Að verma sitt hræ við annarra eld
að eipa sér bráð, sem af hinum var felld,
var grikkur að raumanna geði.
Ólafur Ragnar hitti Nand
Khemka ekki fyrr en hann var
orðinn aðalræðismaður íslands í
New Delhi. Átti hann. því engan
þátt í útnefningu hans sem ræðis-
manns. Við Nand sátum saman i
stjórn International House í New
York (stofnsett af John D. Rocke-
feller, Jr.) og kom með upplýsing-
um um Nand Khemka til utanríkis-
ráðuneytisins. Mælti ég eindregið
með honum þar sem ég þekkti vel
til hans og vissi hve áhrifamikill
hann var í heimalandi sínu.
Það hefur aldrei þótt góður siður
að eigna sér annarra verk — og
þær kröfur verður að gera til fram-
bjóðenda til embættis forseta ís-
lands að hann sé sannsögull og
vammlaus.
Mér eru enn í fersku minni ham-
farir Ótafs Ragnars gegn Flugleið-
um á árinu 1980, en þá barðist
fyrirtækið fyrir lífi sínu í kjölfar
olíukreppunnar sem leiddi af sér
stórfelldan taprekstuur. Málefni
félagsins voru til meðferðar Al- í
þingis — þar lét Ólafur Ragnar-
mörg og stór orð falla um hvers-
konar skúrkar við værum, sem þá .’
veittum félaginu forystu. Þar var
margt sagt ósatt. Við vorum varn- ‘
arlausir vegna þinghelgi Ólafs
Ragnars.
Ef ætlunarverk Ólafs Ragnars
og félaga hans um að þjóðnýta '
félagið hefði orðið að veruleika, i
sætum við hugsanlega enn uppi
með enn eitt ríkisbáknið. Og framf-
arir í flugmálum og ferðamanna- >
þjónustu hefðu orðið allt aðrar og ;
minni en reyndin er í dag.
Ég er í miklum vafa um hvort
þjóðinni verður greiði gerður með
því að velja Ólaf Ragnar forseta
landsins — ég efast stórlega um
heiðarleik hans og vammleysi.
SIGURÐUR HELGASON,
Skildinganesi 52, Reykjavík.
Skilaðu kveðju til
Yigdísar forseta
Frá Ásgeiri R. Helgasyni:
í ÞAU rúm fjögur ár sem ég hef
búið meðal frænda okkar Svía hef
ég merkt svo ekki verður um villst
að hér eru menn afar hrifnir af frú
Vigdísi Finnbogadóttur. Svíum er
algerlega fyrirmunað að skilja hvers
vegna þessi „glæsilega, virðulega
og greinda kona" ákveður nú að
draga sig í hlé. Ég held nefnilega
að margir hér telji sig eiga svolítið
í henni og séu stoltir þegar hún
kemur fram opinberlega á erlendri
grund.
Við á kosningaskrifstofu Guð-
rúnar Agnarsdóttur hér í Stokk-
hólmi höfum orðið þess vör að
Svíum finnst mikið til þess koma
að nú skuli vera tvær konur í fram-
boði sem væntanlegir arftakar
hennar, „Þið hljótið að vera komin
langt í jafnréttismálum." Ég kinka
bara kolli og brosi og forðast allar
frekari umræður um kynjahlutföllin
á Alþingi og í öðrum valdastöðum
heima.
Guðrún og Guðrún
Þar sem við rekum einu opinberu
kosningaskrifstofu frambjóðanda á
Norðurlöndum hafa fjölmiðlar og
almenningur snúið sér nokkuð til
okkar með ýmiskonar fyrirspurnir
um forsetakosningarnar og fram-
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónusta Jyrir
brúðkaupiö
P
bjóðendur. Við reynum að svara
öllu eftir bestu getu og gæta hlut-
leysisþegar þetta ber á góma. Hins-
vegar hef ég orðið var við að menn
eiga erfitt með að skilja milli Guð-
rúnar og Guðrúnar. Það sló því út
á mér köldum svita þegar einhver
stakk uppá því hér í blaðinu um
daginn að Guðrún Helgadóttir færi
líka í framboð. Ekki það að ég hafi
eitthvað á móti Guðrúnu Helgadótt-
ur, ég held bara að það yrði mér
um megn að svara fyrirspurnum
um þijár Guðrúnar.
Annars var efni þessa bréfs fyrst
og fremst að koma til skila til frú
Vigdísar og þjóðarinnar allrar þeim
fjölmörgu kveðjum og vinsamlegu
ummælum sem ég hef verið beðinn
fyrir til frú Vigdísar. Ég hitti Vig-
dísi nú um daginn í móttöku í
Borgarminjasafninu í Stokkhólmi
Og sá hana síðan í sjónvarpsviðtali
ásamt nokkrum konum í valdastöð-1
um (vonandi hefur íslenska sjón-'
varpið sýnt þann þátt). Að mínumi
dómi hefur hún aldrei verið betrii
en einmitt nú. Hún hefur virkilegaí
vaxið með embættinu og ég er inni- í
lega sammála sænsku þjóðinni í i
því að það er mikill sjónarsviptir
að frú Vigdísi Finnbogadóttur.
ÁSGEIR R. HELGASON,
Stokkhólmi.
Glœsileg
kristallsglös
í miklu
úrvali
i SILFURBUÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þar fœröu gjöfina -