Morgunblaðið - 09.06.1996, Side 6
6 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Borg friðarins eða sláturhús trúarbragðanna?
í Jerúsalem er
lykillinn að friði
STRANGTRÚAÐIR gyðingar við Grátmúrinn.
GÖTULÍF í vesturhluta Jerúsalem.
í Jerúsalem koma sam-
an pílagrímar úr röðum
kristinna manna, gyð-
inga og múslima. Borg-
in er á mörkum austurs
og vesturs, þar mætast
ólíkir menningarheimar
og telur Karl Blöndal
að framtíð friðarferlis-
ins fyrir botni Miðjarð-
arhafs velti ekki síst á
því hvemig Israelum og
Palestínumönnum tak-
ist að miðla málum í
deilunni um hið sögu-
lega tilkall til að gera
borgina helgu að sínum
höfuðstað.
• •
rlög Jerúsalem og horfur
friðar fyrir botni Mið-
jarðarhafs eru eitt. Þegar
Yasser Arafat hitti Hussein Jórd-
aníukonung og Hosni Mubarak,
forseta Egyptalands, í Aqaba við
Rauða hafið á miðvikudag sagði
hann að „enginn gæti stöðvað“
stofnun frjáls ríkis Palestínu með
höfuðborg í Jerúsalem. Orðum
þessum var beint til Benjamin
Netanyahus, verðandi forsætisráð-
herra ísraels, sem svaraði um
hæl: „Aidrei."
Bæði Palestínumenn og ísraelar
kveðast eiga sögulegt tilkall til
Jerúsalem, sem á hebresku nefnist
Yerushalayim, sem þýtt hefur ver-
ið „borg friðarins" og á arabísku
heitir al-Quds eða „hin heilaga".
Helg í hugum kristinna,
múslima og gyðinga
í Jerúsalem eru fleiri helgidagar,
en dagar í árinu. Þar mætast öll
helstu trúarbrögð mannkyns og ber
hæst eingyðistrúarbrögðin: kristni,
gyðingdóm og íslam. Saga borgar-
innar ber því vitni að hún stendur
á krossgötum trúarbragðanna auk
þess sem það fer ekki fram hjá
neinum í hinu daglega lífi því að
eldsnemma á morgnana er kallað
til fyrstu bænar múhameðstrúar-
manna, því næst ganga gyðingar
til bænastundar og þegar kirkju-
klukkur kveðja kristna til bænar
er sólin enn ekki komin á loft.
Annars staðar í ísrael líta marg-
ir á Jerúsalem sem byrði. Borgin
skiptist í raun í þrennt. í austur-
hluta Jerúsalem búa arabar, en í
hverfinu Mea She’arim eru strang-
trúaðir gyðingar í meirihluta. Þess-
ir tveir hópar eiga það sameiginlegt
að líta ísraelsstjórn hornauga, þótt
ekki séu forsendurnar þær sömu.
Þegar 3000 ára afmæli Jerúsalem
var fagnað í ár lögðust til dæmis
báðir hóparnir gegn hátíðahöldun-
um.
í þriðja hluta borgarinnar búa
gyðingar, sem lítið leggja upp úr
trúnni. Þar fækkar fólki ört og er
búist við að strangtrúaðir gyðingar
og arabar verði 60 af hundraði íbúa
árið 2010.
Flestir eru helgistaðirnir í Jerú-
salem á Musterishæðinni, sem er
afgirt með múrum á einum ferkíló-
metra í gamla hluta Jerúsalems,
og er oft svo þröngt á milli þeirra
að veggur er við vegg.
I hugum kristinna manna framdi
Kain fyrsta morð mannkynssög-
unnar í Jerúsalem þegar hann
myrti Abel bróður sinn. Þar prédik-
aði Jesús, þjáðist og dó.
Múslimar segja spámanninn
Múhameð hafa komið til Jerúsalem
og er hún í trú þeirra þriðja helg-
asta borgin á eftir Mekka og Med-
ínu.
Gyðingar líta til þess að í Jerúsal-
em hafi Davíð sameinað þjóðflokka
Israels fyrsta sinni og Salómon
reist musteri hinna heilögu. Jerú-
salem er nefnd á 657 stöðum í
Gamla testamentinu.
Tákn vonarinnar um
heimkomuna
Jerúsalem er miðstöð gyðing-
dóms og hefur verið tákn vonar
gyðinga, sem dreifðir voru um allar
jarðir, um heimkomuna. Hvar sem
gyðingur reisti sér hús í heiminum
skyldi skilinn eftir ókláraður vegg-
ur til marks um það að aðeins
væri um tímabundið húsnæði að
ræða.
Davíð tók Jerúsalem herskildi
og gerði að höfuðborg ríkis síns
um þúsund árum fyrir krist og af
því tilefni fagna ísraelar nú þrjú
þúsund ára afmæli borgarinnar.
Lítið er lagt upp úr því að byggð-
ar á þessum stað er getið í egypsk-
um textum, sem taldir eru vera frá
1900 til 1800 f.kr, er Egyptar réðu
þar ríkjum. Fyrstu merki um
mannabyggðir þar sem nú er Jerú-
salem eru taldar vera frá um 3000
f.kr., eða um það leyti þegar brons-
öld hófst.
40 orrustur hafa verið háðar um
borg friðarins og rithöfundurinn
Aldous Huxley kallaði hana
„sláturhús trúarbragðanna".
„Þjóðernishyggja og trúarbrögð
mynda hér ákaflega eldfima
blöndu,“ skrifar rithöfundurinn
Amos Elon í bók um Jerúsalem.
„Jerúsalem er táknræn fyrir vald
minnisins yfir örlögum mannkyns.“
Davíð lagði Jerúsalem undir sig
og braut vald Fílisteanna á bak
aftur. Við honum tók Salómon, sem
reisti múra umhverfís borgina.
Mikið er gert úr hans þætti í Bibl-
íunni, en Kóraninn lofar hann einn-
ig fyrir visku og nefnir hann Sulei-
mann.
Nebúkadnesar 3. Babylóníukon-
ungur lagði borgina í rúst árið 586
f.kr. og íbúarnir voru herleiddir.
Niðurlægingunni lauk ekki fyrr en
hálfri öld síðar þegar Kýrus 2.
Persakeisari lagði Babýlon undir
sig og leyfði gyðingum að snúa
aftur til Jerúsalem.
Einn af marskálkum Alexanders
mikla lagði Jerúsalem undir sig 198
f.kr. og var það upphaf innrása frá
Vesturlöndum.
Rómveijar héldu innreið sína
þegar Pompeius lagði borgina und-
ir sig árið 63 f.kr. og þandist borg-
in út í tíð Heródesar, sem var kon-
ungur í 36 ár.
I tíð Títusar, herstjóra Rómveija,
gerðu gyðingar uppreisn og sátu
Rómverjar um borgina. Árið 70 var
gert áhlaup og enn á ný var Jerú-
salem jöfnuð við jörðu. Áðeins hluti
vesturmúrsins var eftir og heitir
nú Grátmúrinn. Árið 135 hugðist-
Hadríanus þurrka Jerúsalem út úr
minningunni og sögubókunum með
því að brenna borgina til grunna.
Árið 638 tóku Persar borgina á
ný og reyndist sambúð múslima og
gyðninga byggð á nokkru umburð-
arlyndi.
Krossfarar valda blóðbaði
Öðru máli gegndi um gyðinga
og kristna menn. Þegar krossfar-
arnir gerðu árás árið 1099 upp-
hófst mikið blóðbað. Þeir höfðu
borgina á valdi sínu í 88 ár, 18
árum lengur en Davíð og Salómon.
Lengst var borgin þó á valdi araba,
1300 ár, en aldrei var hún höfuð-
borg arabaríkis.
Næstu aldir var barist um borg-
ina, en 1517 varð Jerúsalem hluti
Tyrkjaveldis og það var ekki fyrr
en 400 árum síðar að Bretar náðu
henni úr höndum þeirra með Ed-
mund Allenby herforingja í broddi
fylkingar. Jerúsalem varð höfuð-
borg á ný og var á valdi Breta.
Þar bjuggu þá 80 þúsund manns,
um helmingur gyðingar og restin
kristnir menn og múslimar. Borgin
dafnaði þrátt fyrir skærur milli
araba og gyðinga allt fram að
heimsstyrjöldinni síðari.
Árið 1947 blossaði upp ófriður
á ný og 1948 ákváðu Bretar að
hafa sig á braut. Sameinuðu þjóð-
irnar ákváðu að skipta Palestínu í
tvennt. Jórdanar náðu gamla hluta
borgarinnar á sitt vald ásamt því
svæði, sem ætlað hafði verið Pal-
estínuaröbum, en ísraelar héldu
hinum hlutanum og lýstu hann
höfuðborg Ísraelsríkis.
ísraelar hröktu Jórdana á braut
árið 1967 og náðu þá allri borginni
á sitt vald. Þremur vikum síðar var
því lýst yfir í þinginu, Knesset, að
Jerúsalem hefði verið sameinuð.
ísraelar létu mótmæli Sameinuðu
þjóðanna sem vind um eyru þjóta.
Sameinuð Jerúsalem lýst
höfuðborg ísraels
Þegar Knesset lýsti sameinaða
Jerúsalem opinberlega höfuðborg
ísraels árið 1980 var því harðlega
mótmælt um allan heim og fjöldi
ríkja neitaði að viðurkenna höfuð-
borgina.
David Be_n-Gurion, fyrsti forsæt-
isráðherra ísraels, ákvað að sætta
sig við skiptingu Palestínu og Jerú-
salem árið 1947 því að í hans aug-
um var hún óhjákvæmileg fórn,
sem færa þurfti til að draumurinn
um gyðingaríkið rættist.
Þegar Israelar og Frelsissamtök
Palestínu (PLO) undirrituðu friðar-
samkomulagið 1993 var samþykkt
að staða Jerúsalem yrði meðal þess,
sem yrði rætt í framhaldsviðræð-
um. Þar með höfðu dyrnar verið
opnaðar fyrir þeim kosti að Israelar
kæmu til móts við kröfur PLO um
Jerúsalem.
Shimon Peres og Verkamanna-
flokkurinn samþykktu í síðasta
mánuði að láta af andstöðu við
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu
og telst slík samþykkt marklítil án
vilja til samninga um Jerúsalem.
Peres hafði það að leiðarljósi að
vilja tryggja öryggi og frið um ísra-
elsríki.
Tónninn í Netanyahu er annar.
Hann leggur áherslu á „andstöðu
við stofnun palestínsks ríkis með
Jerúsalem að höfuðborg" og bætir
við að staða ísraela sé sú „að Jerú-
salem verði aldrei skipt aftur og
verði áfram sameinuð undir stjórn
ísraels“.
Sú afstaða samræmist ekki mál-
flutningi Arafats, leiðtoga Palest-
ínuaraba, sem í yfirlýsingu sinni á
miðvikudag kallaði Jerúsalem arab-
íska nafninu: „Sú stund nálgast og
er mjög nærri að við lýsum Palest-
ínu sjálfstætt ríki og al-Quds höfuð-
borg hennar. Það er vilji palest-
ínsku þjóðarinnar."
Heimildir: Newsweek, Reuter og
Der Spiegel.
LISTHUS
í LAUGARDAL
Glæsilegar gjafir fást hjá okkur
4
afbragðs
verslanir
undir sama þaki.
LIST
Gallerí
sími S53 2886
z
W
irF-ust
sími 553 1580
sími 568 3750
KATEl
myndir, innrömmun
sími 568 0969
1
|
>
>
>
!
i
I
I
I
l
»
f