Morgunblaðið - 09.06.1996, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
V axandi þungi í baráttunni
Segja má að ákveðin tímamót
hafi orðið í kosningabaráttu fram-
bjóðendanna fimm til embættis
forseta íslands með því að þeir
eru í vaxandi mæli gestir í um-
ræðuþáttum og framboðskynn-
ingum í útvarpi og sjónvarpi.
Kosningastjórar og aðrir tals-
menn frambjóðendanna eru sam-
mála um að vaxandi þungi verði
í kosningabaráttunni á þeim
þremur vikum sem eru fram að
kosningunum. Þeir eru einnig
sammála um að kosningabaráttan
hafi verið háð á drengilegan hátt
og vona að svo megi verða áfram.
Hallur Þorsteinsson og Þór-
mundur Jónatansson heimsóttu
kosningaskrifstofurnar fyrir helg-
ina og ræddu við þá sem þar eru
við stjórnvölinn.
Fríðarvökur um
allt landíð
Morgunblaðið/Ásdís
ÖNUNDUR Björnsson fjölmiðlafulltrúi framboðs Ástþórs Magn-
ússonar Wium.
• •
NUNDUR Björnsson §öl-
miðlafulltrúi framboðs Ast-
þórs Magnússonar Wium
segir að friðarboðskapur Ástþórs
verði rauður þráður í kosningabar-
áttu hans. í því skyni að kynna
málflutning hans verði haldnar frið-
arvökur um allt land. „Ástþór hefur
þá trú,“ segir Önundur, „að hann
geti unnið betur að baráttu fyrir
friði sem forseti."
Önundur segir að lítill tími hafi
gefist til að undirbúa kosningabar-
áttuna fyrir framboðstilkynningu
Ástþórs að öðru leyti en því að safna
tilskildum meðmælendafjölda.
„Þannig háttaði til að Ástþór ætl-
aði ekki í framboð. Hann lýsti eftir
stuðningi frá þeim frambjóðendum
sem þegar voru komnir fram við
friðarmálstað sinn en það felur
m.a. í sér að haldinn verði sameigin-
legur fundur þjóðarleiðtoga og trú-
arleiðtoga alls staðar að úr heimin-
um árið 2000 á þúsund ára afmæli
kristni," segir Önundur. Hann segir
að Ástþór hefði helst viljað styðja
eða styrkja einhvern annan fram-
bjóðanda en þar sem enginn hafi
svarað kalli hans hafi legið beinast
við að hann gæfí kost á sér til
embættis forseta.
Engin eiginleg
„kosningaherferð"
Önundur segir að ákvörðun hafi
verið tekin um að leggja ekki út í
eiginlega kosningaherferð. „Mál-
flutningur Ástþórs hefur ekki stefnt
að því að berja sér á bijóst sem
manneskjan Ástþór heldur mun
fremur að leggja áherslu á þá
friðarumræðu sem honum finnst
hann vera kallaður til,“ segir Ön-
undur. Hann segist ekki sjá betur
en að kynningarátak Friðar 2000
og síðar framboð Ástþórs hafi þeg-
ar haft umtalsverð áhrif með því
að aðrir frambjóðendur hafi tekið
það upp eftir honum að leggja
áherslu á friðarmál.
Friðarvökur hafa þegar verið
haldnar í Reykjavík, Vestmannaeyj-
um, Hveragerði, Akureyri og á
Austurlandi. Önundur segir að í
undirbúningi sé að halda vökur á
Vestfjörðum, Suðurlandi og víðar.
Kosningamiðstöð Ástþórs er í
Tryggvagötu 26 en kerfisbundið er
unnið með tenglum um
allt land að sögn Önund-
ar. „Okkar fólk hefur
unnið gott starf fyrir
þennan málstað en við
ætlum einnig að nýta
okkar alla nútíma kynningartækni,
þ.á m. sjónvarp og útvarp að
ógleymdum vefnum, en þar erum
við með heimasíðu."
Kostað verður því sem til þarf
Önundur segir að því verði kostað
til sem þurfi í kosningabaráttu Ást-
þórs. „Það hefur ekki verið gerð
nein sérstök fjárhagsáætlun. Ast-
þór Magnússon hefur einn staðið
straum af þessari baráttu úr eigin
sjóðum. Fyrirtækið Friðarland var
stofnað um rekstur framboðsins og
þá kynningarherferð sem á undan
er gengin,“ segir hann. Aðspurður
segir Önundur að engra styrkja
hafi verið leitað en bætir við að
öllum sé frjálst að leggja framboð-
inu lið með fijálsum framlögum.
Aðspurður segir Önundur einnig að
ekki verði leitað í sjóði samtakanna
Friðar 2000 sem Ástþór stýri. Hann
tekur fram að þær upphæðir sem
nefndar hafi verið í tengslum við
kostnað vegna kynningarherferðar
og kosningabaráttu Ástþórs séu
stjarnfræðileg staðleysa.
Önundur kveðst ekki geta séð
annað en að kosningabaráttan sé
drengileg, að minnsta kosti af
hálfu frambjóðendanna. Hann seg-
ir ýmsa hafa verið með
efasemdir eða_ getgátur
um manninn Ástþór en
þær væru ekki svara-
verðar. Hann kveðst ekki
geta merkt að framboð
Ástþórs fái ósanngjarna umfjöllun
í fjölmiðlum.
„Við höfum unnið á jákvæðum
forsendum í kosningabaráttunni og
munum gera það jafnvel þótt skoð-
anakannanir gefi enn til kynna lítið
fylgi,“ segir Önundur. „Við erum
himinlifandi með það fylgi sem unn-
ist hefur. Friður er að okkar viti
málefni sem hver einasti maður
ætti að geta tekið undir og þess
eðlis að hann á að vera gleðimegin
í lífinu. Hann á ekki undir neinum
kringumstæðum að vera rekinn á
öðrum nótum.“
Önundur sagði að kjósendur
mættu búast við jákvæðri og lifandi
kosningabaráttu en vildi ekki lýsa
nánar í hveiju það fælist.
Höfum unnið á
jákvæðum
forsendum
VIÐ LEGGJUM höfuðáherslu
á að kynna Guðrúnu Agn-
arsdóttur eins og hún kem-
ur fyrir auk þess sem við bregðum
ljósi á reynslu hennar og allt það
sem hún hefur áorkað," segir Sæ-
mundur Norðfjörð kosningastjóri
Guðrúnar Agnarsdóttur um kosn-
ingabaráttu hennar. Af þeim sökum
snúist kosningastarfið einkum um
það að fólk fái tækifæri til að hitta
eða sjá Guðrúnu á óformlegum
vinnustaðafundum eða í heimsókn-
um víða um land.
Allt á floti síðustu 2 vikurnar
Kosningastjórinn kveðst telja að
kosningabaráttan hafi verið
drengileg en umfang hennar eigi
enn eftir að aukast. Sæmundur
segir að fjölmargir sjálfboðaliðar
vinni að framboðinu en síðustu
daga hafi áhugi fólksins aukist
mikið. „Það verður allt á floti síð-
ustu tvær vikurnar fyrir kosningar
en sjálfboðaliðum hefur fjölgað
stöðugt í takt við aukið álag,“ seg-
ir hann.
Baráttu Guðrúnar Agnarsdóttur
er stýrt úr kosningamiðstöðinni í
Ingólfsstræti 5 en að sögn Sæ-
mundar er kosningastarfinu skipt
á nokkra vinnuhópa. I hópunum
Sjálfboðaliðum
stöðugtfjölgað
Morgunblaðið/Kristinn
SÆMUNDUR Norðfjörð kosningastjóri Guðrúnar Agnarsdóttur.
sé unnið að kynningu, fjáröflun, stofu og samskiptum við tengla og
útgáfu, móttöku á kosningaskrif- loks sé starfandi skemmtinefnd
sem sjái um allar uppákomur og
skemmtanir.
Fyrirhugað er að opna kosninga-
skrifstofur á nokkrum þéttbýlis-
stöðum en skrifstofur hafa þegar
verið opnaðar á Akureyri og í
Stokkhólmi. „í Stokkhólmi er kosn-
ingabaráttu okkar á Norðurlöndum
stýrt en Guðrún hefur lagt sig eftir
því að ná til |slendinga í nágranna-
löndunum. í því skyni --------------------
höfum við einnig dreift FÓIk sýnir
upplýsingum á heimasíðu kosningunum
framboðsins. Gestir mikinn áhuga
heimasiðu okkar geta
meðal annars boðið
annars boðið sig
fram sem sjálfboðaliðar og fengið
úthlutað verkefni við þeirra hæfi,“
segir Sæmundur.
Mikill áhugi greinilegur
Hulda Finnbogadóttir sér um að
skipuleggja ferðir Guðrúnar um
landið og heimsóknir á vinnustaði.
„Guðrún hefur þegar farið víða og
ferðir okkar um landið hafa verið
einstaklega lærdómsríkar. Það er
sama hvert komið er, móttökur eru
miklar og góðar og greinilegt er
að fólk sýnir kosningunum mikinn
áhuga,“ segir Hulda. „Á ferðum
okkar höfum við fremur kosið
óformlega fundi þar sem Guðrún
kynnir sig stuttlega en gengur síðan
á milli borða og ræðir við fólkið.
Við teljum að Guðrún nái betur til
fólksins með þessum hætti en með
fastmótuðum fundahöldum."
Sæmundur segir að kostnaður
vegna framboðsins hafí í upphafi
verið áætlaður á bilinu 10-13 millj-
ónir króna. Nú stefni aftur á móti
í að hann verði nær 10 milljónum
enda væri áhersla lögð á
að reka hófsama kosn-
ingabaráttu. „Vegna
fjármögnunar höfum við
leitað til einstaklinga og
fyrirtækja um styrki en
Glæsileg sending
af sófasettum og hornsófum
(D Valhúsgögn
ARMULA 8, SIMAR 581 2275 og 568 5375
einnig er nokkuð um fijáls framlög.
Þá erum við með happdrætti í gangi
og loks má nefna að við höfum feng-
ið að gjöf listaverk en ágóði af sölu
þeirra rennur óskiptur í kosninga-
sjóð.“
Aðspurður segir Sæmundur fyr-
irhugað að auglýsa í sjónvarpi en
þegar hafi verið gefið út blað og
bæklingur. „Við erum að vinna
sjónvarpsauglýsingar en við mun-
um ekki kaffæra landsmenn í þeim
efnum.“ Að öðru leyti verði vinnu-
staðafundum framhaldið en einnig
sé fyrirhugað að Guðrún heimsæki
Akureyri, Snæfellsnes, Vestmanna-
eyjar og staði á Norðausturlandi svo
nokkuð væri nefnt.
Skoðanamyndandi kannanir
Sæmundur sagði skoðanakann-
anir hafa verið talsvert skoðana-
myndandi. „Hjá okkur var lengi á
brattann að sækja en síðustu 3 vik-
ur hefur fylgið aftur á móti verið
stígandi. Kannanir staðfesta að
Guðrún er í sókn en marktækari
staðfesting þess er hve margir bjóða
sig fram til aðstoðar í baráttunni
og hversu góð viðbrögð Guðrún fær
í heimsóknum sínum," segir Sæ-
mundur.