Morgunblaðið - 25.06.1996, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1996 51
ÍDAG
^rjARA afmæli. I dag,
I V/þriðjudaginn 25. júní,
er sjötugur Guðmundur
Þorsteinsson, útgerðar-
maður og bóndi, til heimil-
is í Hópi, Grindavík. Hann
og eiginkona hans Árný
Enoksdóttir taka á móti
ættingjum og vinum íu veit-
ingahúsinu við Bláa Lón-
ið, föstudaginn 28. júní nk.
milli kl. 18 og 21.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
í ÆFINGAMÓTI landslið-
anna um síðustu helgi
freistuðu nokkur pör gæf-
unnar í sex tíglum í þessu
spili:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ G
V 52
♦ ÁKD1092
♦ ÁKG5
Vestur
♦ 9763
V ÁD4
♦ 4
♦ D10632
Austur
♦ D5
V 109863
♦ G53
♦ 974
Suður
♦ ÁK10842
V KG7
♦ 876
♦ 8
Tígulslemman vinnst ef
ekki kemur út hjarta, og
auðvitað alltaf ef suður er
sagnhafi! Sem gerðist á
einu borði, þar sem Jón
Baldursson og Sævar Þor-
björnsson héldu á spilum
NS. Þeir spila biðsagna-
kerfi (Iccrclay) og suður
varð fyrir tilviljun fyrri til
að nefna tígul, sem var við
spurnarsögn norðurs. Önn-
ur pör urðu að lúta því að
spila slemmuna -í norður. •
A.einu borði fengu NS
viðvörun, þegar vestur do-
blaði fyrirstöðusögn suð-
urs í hjarta. Þar áttust við
landsliðsmennirnir í yngri
flokknum, Magnús Magn-
ússon og Sigurbjörn Har-
aldsson, og kvennalandsl-
iðskonurnar Hjördís Sigur-
jónsdóttir og Ragnheiður
Nielsen:
Vestar Norður Austar Suður
M.M. H.S. S.H. R.N.
Pass 1 tígutl Pass 1 spaði
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass 4 tlglar Pass 4 hjðrtu
Dobl Pass Pass 4 grönd
Pass 6 lauf Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: Lauftvistur.
Ekki er slemman góð,
en spilið tapast þó a.m.k.
ekki í fyrsta slag! Magnús
hitti á hvasst útspil, en
Ragnheiður spilaði upp á
besta möguleikann þegar
hún svínaði laufgosa. Sam-
gangurinn er svo slæmur
að ekki dugir að spila aust-
ur upp á drottningu þriðju
í spaða. Drottningin verður
að vera önnur og því er
þörf á viðbótarslag á lauf.
Draumalegan var til staðar
og Magnús ej farinn að
ógna Sverri Ármannssyni
í baráttunni um titilinn
„óheppnasti spilari lands-
ins“.
Árnað heilla
GULLBRÚÐKAUP. í dag, þriðjudaginn 25. júní, eiga
fimmtfu ára hjúskaparafmæli hjónin Kristín Gunnlaugs-
dóttir og Ólafur Þ. Stefánsson, frá Víðihóli á Fjöllum,
nú til heimilis á Miðvangi 22, Egilsstöðum.
Bama- og fjölskylduijósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 8. júní í Dómkirkj-
unni af séra Jakobi Hjálm-
arssyni Unnur Árnadóttir
og Sigurður A. Jónsson.
Heimili þeirra er á Blöndu-
bakka 13, Reykjavík.
Bama- og fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní í Háteigs-
kirkju af séra Tómasi
Sveinssyni Sæunn Óla-
dóttir og Viðar Daníels-
son. Heimili þeirra er að
Fýlshólum 8, Reykjavík.
Barna- og fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní í Háteigs-
kirkju af séra Tómasi
Sveinssyni Dagbjört Hlín
Sigurjónsdóttir og Guð-
mundur Geir Valdimars-
son. Heimili þeirra er að
Gullsmára 6, Kópavogi.
Bama- og fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní í Lágafells-
kirkju af séra Jóni Þor-
steinssyni Kristín Ásta
Hafsteinsdóttir og Ingólf-
ur Tómas Jörgensson.
Heimili þeirra er að Barr-
holti 29, Mosfellsbæ.
HÖGNIHREKKVÍSI
Og hann,
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Glaðlyndi oggóðvild
greiða götu þína og afia
þér vinsælda.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) fl* '
Gefðu þér nægan tíma til
umhugsunar áður en þú tek-
ur mikilvæga ákvörðun í dag.
Réttast væri að hafa samráð
við fagmenn.
Naut
(20. april - 20. maí)
Þú átt annríkt í dag, og lítill
tími gefst til að umgangast
vini. Reyndu að einbeita þér
svo þú getir slakað á í kvöld.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Ferðalangar geta orðið fyrir
töfum í dag, og þurfa að
áætla sér nægan tíma til að
ná áfangastað. Samband ást-
vina er náið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf)
Þú færð góða ábendingu
varðandi vinnuna, sem nýtist
þér vel í framtíðinni. Breyt-
ing verður til batnaðar á fyr-
irætlunum þínum.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þú ættir ekki að hafa hátt
um fyrirætlanir þfnar í við-
skiptum, því einhver gæti
misnotað sér þær. Mundu að
sparsemi er dyggð.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú nýtur þín í fjölmenni, og
ættir að þiggja spennandi
heimboð, sem þér berst. En
mundu að hafa gott samráð
við ástvin.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vinátta og viðskipti fara ekki
vel saman í dag. Varastu
óhóflega gagnrýni ! garð
þinna nánustu, og hafðu
hemil á eyðslunni.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þróun mála á bak við tjöldin
í vinnunni er þér hagstæð,
og starfsfélagar veita þér
góðan stuðning. Gættu hófs
í kvöld.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú hefur ástæðu til að gleðj-
ast yfir góðu gengi í vinn-
unni, og ættir að láta það
'eftir þér að bjóða ástvini út
í kvöld.
Steingeit
(22.des. - 19.janúar)
Þú hefur verið eitthvað miður
þfn að undanförnu, en nú
rofar til og bjartsýnin fer
vaxandi. Njóttu kvöldsins
heima með ástvini.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú átt erfitt með að einbeita
þér f dag vegna sífelldra truf-
lana. Engu að síður tekst þér
að ljúka því sem þú ætlaðir
þér.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) tSít
Reyndu að hafa stjórn á
skapinu þótt illa gangi að
leysa erfitt verkefni árdegis.
Þér tekst það áður en vinnu-
degi lýkur.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár a f þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BREF • FORSETAKJOR
„Það var nú og“
Frá^Þórði Reykdal:
ÞETTA orðtak Boga Ólafssonar
heitins kom upp í huga minn við
lestur greinar Kristínar S. Kvaran
í Morgunblaðinu 13. júní. Kristín
telur að Ólafur Ragnar hafi að lík-
indum ákveðið síðastliðið haust að
bjóða sig fram til embættis forseta
íslands. „Þar var nú og“
Vera má, að Ólafur hafi ekki
tekið endanlega afstöðu til forseta-
framboðs, að þessu sinni, fyrr en
iá, þótt allnokkru lengra sé síðan
framkoma hans fór að breytast, og
allt að benda til að hann hygði á
framboð nú. Það eru hins vegar
tuttugu og fimm ár síðan Ólafur
Ragnar Grímsson sagði í sam-
kvæmi: „Ég ætla að verða forseti."
Eflaust mun Ólafur Ragnar, ef
hann ekki reynir að þræta fyrir
letta heit, telja það í gamni sagt,
en öllu gamni fylgir nokkur alvara,
og þarna fer ekki milli mála, að
þetta heit var bláköld alvara.
Að þessu marki hefur Ólafur
Ragnar því býsna lengi stefnt, en
vissulega er það frábær árangur,
að setja sér ungur það takmark að
komast í æðsta embætti þjóðarinnar
og leika af slíkri snilld á strengi
„þjóðarsálarinnar", að endamarkið
virðist nú í sjónmáli. Að lokum, að
íslenzkum sið, tvær smá stökur.
Aldaríjórðungs ásetning
ætlar sér nú upp að fylla.
Engin fyrri ávirðing
endaspretti má því spilla.
Ó, hve verður Óli sæll
er til Bessastaða flytur.
Orðinn svona undur dæll
og allur gleymdur fyrri krytur.
ÞÓRÐUR REYKDAL,
Stekkjarbergi 9, Hafnarfirði.
Forsetinn, karlkynið, nýj
ar brautir o g þjóðarsátt
Frá Hirti Þór Grjetarssyni:
NÚ ER lag að ryðja nýjar brautir.
í fyrsta sinn getur íslenska þjóðin
nú valið karlmann sem bakhjarl á
Bessastaði. Beri þjóðin gæfu til að
ná sáttum um eina forsetafram-
bjóðandann sem allir.geta sætt sig
við og velji Guðrúnu Agnarsdóttur,
verður prófessor Helgi Valdimars-
son, sonur sjómanns og bóndadótt-
ur, fyrsti karlkyns bakhjarl forseta
íslands. Valur Pálsson, tónlistar-
maður í Stokkhólmi, skrifaði hér í
í tilefni for-
setakosninga
Frá Vígþóri H. Jörundssyni:
Fyndist mér það feikna sorg
og fækkar stundum glöðum
ef við tækjum aðeins 0RG
úti á Bessastöðum.
blaðið fyrir nokkru: „Það er sorg-
legt að sjá hvernig barnalegur
sandkassaleikur pólitískra sun-
drungarafla hefur fengið að gegn-
umsýra þessar forsetakosningar.
Ég er sammála þeim sem halda á
lofti þeirri skoðun að forsetakosn-
ingarnar snúist í dag um það hvort
vilji sé fyrir því að breyta embætt-
inu í stíu fyrir pólitískan hanaslag
eða viðhalda því sem sameiningar-
tákni þjóðarinnar." Aldrei hafa
þessi orð verið sannari en einmitt
í dag. Nú þegar Guðrún Pétursdótt-
ir, annar tveggja frambjóðenda sem
við gátum valið á milli sem viljum
frið um embætti forseta íslands,
hefur hrakist burt vegna þessara
pólitísku átaka er valið einfalt.
Látum skynsemina ráða 29. júní
og kjósum hjónin Guðrúnu Agnars-
dóttur og Helga Valdimarsson á
Bessastaði.
HJÖRTUR ÞÓR GRJETARSSON,
Bogahlíð 26, Reykjavík.
í dag koma út ný frímerki
tileinkuö Ólympíuleikunum
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum
um land allt. Einnig er hægt að panta þau frá
Frímerkjasölunni.
auki verður gefin út glæsileg
gjafamappa með Ólympíu-
frímerkjunum. Þar er að finna
fróðleiksmola um þátttöku
íslendinga á Ólympíuleikunum
frá upphafi til dagsins í dag.
PÓSTUR OG SÍMI
FRIMERKJASALAN
PSgjML
Pósthólf 8445, 128 Reykjavík
Heimasíða Frímerkjasölunnar er: http://www.simi.is/postphil/