Morgunblaðið - 31.08.1996, Side 1

Morgunblaðið - 31.08.1996, Side 1
80 SÍÐUR B/C 197. TBL. 84.ÁRG. LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sagt að nikótínmagni sé stjórnað á laun Slysið á Svalbarða FBI stefnir tóbaksfyrirtæki New York. Reuter. BANDARÍSKA dómsmálaráðu- neytið hefur hafið rannsókn á meintum svikum er varða nikótín- magn í sígarettum, að því er banda- ríska sjónvarpsstöðin CBS greindi frá í gær. Hart hefur verið deilt á tóbaksfyrirtækin að undanförnu og í liðinni viku ákvað stjórn Bills Clintons forseta að skilgreina tóbak sem fíkniefni er skyldi því heyra undir Matvæla- og lyfiaeftirlitið (FDA) til að auðvelda baráttu gegn reykingum barna og unglinga. Að sögn CBS hefur bandaríska alríkislögreglan (FBI) birt fram- kvæmdastjórum tóbaksfyrirtækis- ins Philip Morris stefnur þar sem þeim er gert að bera vitni fyrir kviðdómi í Washington til þess að skera megi úr um hvort ákærur skuli birtar. Þá hefur fyrirtækinu einnig verið gert að láta af hendi skjöl er varða framleiðslu þess. I frétt CBS segir að samskonar stefn- ur kunni að verða birtar öðrum tó- baksfyrirtækjum innan tíðar. Sígarettureykingar og meintar afleiðingar þeirra hafa verið ofar- lega á baugi hjá bandarískum lög- fræðingum, en dómsmálaráðuneyt- ið hefur ekki sinnt þessu máli fýrr en nú. í frétt CBS segir að birting stefnanna sé augljóst merki um að saksóknarar í ráðuneytinu kunni að hafa í hyggju að birta ákærur. Ávaninn magnaður? Ekki kom fram í fréttinni að hvaða þáttum rannsókn ráðuneytis- ins mundi beinast í smáatriðum. Fréttaskýrendur benda hinsvegar á að í síðasta mánuði höfðaði Connecticut-ríki mál á hendur tó- baksfyrirtækjum og gaf þeim að sök að stjórna á laun nikótínmagni í sígarettum til þess að magna ávana neytenda. Einnig voru þau sögð fela niður- stöður rannsókna, sem gerðar hefðu verið á vegum framleiðendanna og bentu til að nikótín væri ávanabind- andi, hafa bundist samtökum um að ná tangarhaldi á börnum með markaðssetningu sem beint var að þeim og loks um að stjórna nikótín- magninu. Handtak í Jerúsalem Reuter Lebed semur við Tsjetsjena Reuter Kúarekstur í París JACQUES Chirac, forseti Frakk- lands, hét því í gær á fundi með bændum í París að styðja þá og styrkja eftir megni en ótti við kúariðu og ódýr innflutningur frá Austur-Evrópu hafa valdið því, að verð á nautakjöti er nú um 20% lægra en fyrir ári. Um 1.500 bændur frá öllum héruðum landsins komu saman við Eiffel- turninn til að mótmæla ástand- inu og höfðu þeir með sér 26 kýr, sem sumar höfðu verið reknar allt að 350 km á þremur vikum. „Við sögðum honum, að við töpuðum 40.000 kr. á hverj- um grip en hann kvaðst ekki geta bætt okkur það allt vegna fjárlagarammans," sagði Nat- halie Telemaque, sem tók þátt í mótmælunum. Svarti kassinn fundinn Ósló. Morgunblaðið. NORSK og rússnesk yfirvöld eru ekki á einu máli um hvernig eigi að standa að því að finna og bera kennsl á lík þeirra sem fórust með þotu rússneska Vnúkovo-flugfélagsins á Svalbarða á fímmtudag. Norðmenn vilja flytja líkin til Tromso þar sem úrskurðað verði um dánarorsök en Rússar eru því andvígic, telja að það verði einungis til að gera aðstand- endum enn erfiðara fyrir. Flugriti Túpolov-þotunnar, „svarti kassinn“ svonefndi, sem reyndar er rauður á litinn, fannst í gær og vona menn að upplýsingar í honum leiði í ljós orsök slyssins. Ekki er að fullu Ijóst hversu marg- ir voru um borð, en talið er að þeir hafi verið 140 eða 141. í gær var sagt að 69 farþegar hefðu verið frá Ukraínu og hinir hefðu verið Rúss- ar. Lýst var yfir þjóðarsorg í Úkra- ínu í gær vegna slyssins. Rússar sendu í gær tvær flutn- ingavélar til Longyear-bæjarins til að flytja líkin til Rússlands og með vélunum komu einnig björgunar- menn og þjálfaðir fjallgöngumenn. Afar erfítt er að komast að braki og iíkamsleifum er lentu að hluta til í bröttum klettahlíðum. ■ Aðflugið/22 Eplaveisla hjá öpunum Tókýó. Reuter. UM 100 apar, sem lifa villtir vestur af Tókýó, hafa tekið upp á því að ræna eplum frá bænd- um í grennd við borgina. Aður létu dýrin sér nægja að hnupla kartöflum og gulrótum. Eplin þykja mikið hnossgæti og seljast fyrir sem svarar 180 kr. stykkið. „Nokkrir apar sáust í júlí hafa á brott með sér epli í plastpokum," sagði embættis- maður á svæðinu. Samkvæmt shinto-trú Jap- ana eru apar heilagir sendiboð- ar guðanna og því ekki ráðlegt að skjóta þá. PALESTÍNSKUR drengur í fylgd föður síns grípur í byssuhlaup hjá ísraelskum landamæraverði í gamla borgarhlutanum í Jerúsal- em í gær. Yasser Arafat, forseti heimastjórnarinnar, kallaði Pal- estínumenn til bænahalds í gær til þess að mótmæla stefnu Isra- ela varðandi Jerúsalem og land- nám gyðinga á Vesturbakkanum. Israelska lögreglan var með sér- stakan viðbúnað og hindraði menn í að komast inn í borgina. Fundur fulltrúa ísraelsstjórnar og Palestínumanna um ágrein- ingsmálin á fimmtudag bar engan árangur. um að fresta sjálfstæðinu Khasavjúrt í Dagestan, Moskvu. Reuter. ALEXANDER Lebed, yfirmaður öryggisráðs Rússlands, náði í gærkvöldi samningum við helsta stríðsleiðtoga uppreisnarmanna í Tsjetsjníju, Asl- an Maskhadov, um að frestað yrði ákvörðun um fullt sjálfstæði Kákasushéraðsins þar til í lok ársins 2000. Viktor Tsjernomyrdín, forsætisráð- herra Rússlands, sagði fyrr í gær að Borís Jelts- ín forseti hefði lagt blessun sína yfir friðarhug- myndir Lebeds sem kom á vopnahléi Rússa og Tsjetsjena fyrir skömmu. Samningafundurinn fór fram í Dagestan, grannhéraði Tsjetsjníju. „Við vorum að undirrita yfirlýsingu og þar er kveðið á um grundvallar- atriði í sambúð Rússneska ríkjasambandsins og Tsjetsjenska lýðveldisins,“ sagði Lebed er hann ræddi við fréttamenn í gærkvöldi. „Þetta er búið, stríðinu er lokið. Síðan munum við, af fullri skyn- semi, rólega og með raunsæi í fyrirrúmi, koma samskiptum okkar í lag.“ Lebed, sem Jeltsín fékk víðtæk völd til að binda enda á stríðið, hætti viðræðum um pólitíska lausn á deilunni um síðustu helgi til að ræða lagalegar hliðar hennar við stjórnina og tryggja sig gagn- vart ónefndum andstæðingum sínum í Moskvu. Tsjernomyrdín forsætisráðherra kvaðst hafa átt langt samtal við forsetann í síma í gær og gæti því staðfest, að hann hefði fallist á áætlun Lebeds. /tar-Tass-fréttastofan sagði að Lebed hefði rætt við Jeltsín í síma fyrir brottförina til Dagestan og staðfesti hinn fyrrnefndi það en sagði ekkert um hvað þeim hefði farið á milli. Stríðið í Tsjetsjníju hefur staðið í 20 mánuði og kostað meira en 30.000 manns lífið. Rúss- neski herinn hefur beðið margan auðmýkjandi ósigur fyrir aðskilnaðarsinnum sem réðu að mestu yfir höfuðstaðnum Grosní er samið var vopnahlé.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.