Morgunblaðið - 05.10.1996, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór
Gömul vél í gömlum búningi
Fegurðarsamkeppni
Norðurlanda
Harpa Rós
í 2. sæti
HARPA Rós Gísladóttir úr
Garðabæ varð í 2. sæti í Fegurðar-
samkeppni Norðurlanda sem fram
fór í Finnlandi í gærkvöldi. Halla
Svansdóttir frá Akranesi varð í
4. sæti.
Tíu stúlkur tóku þátt í keppn-
inni og hlutskörpust varð finnsk
stúlka, Lola Odusoga, en hún varð
fyrir nokkru í 3. sæti í keppninni
Ungfrú Alheimur.
Olafur Laufdal veitingamaður á
Hótel íslandi var formaður dóm-
nefndar.
LANDGRÆÐSLUVÉLIN Páll
Sveinsson hefur verið máluð í
hinum gömlu litum Flugfélags
íslands. Var það gert vegna töku
kvikmyndarinnar Maríu, sem
fjallar um þýzka stúlku sem kom
hingað til lands eftir stríðiðtil
að gerast ráðskona í sveit. A
þeim tíma notaði Flugélag ís-
lands þessa sömu flugvél í innan-
landsflugi, en hún er af gerðinni
DC-3. Vélin hefur áður verið
máluð í sömu litum. Það var gert
vegna kvikmyndar Stuðmanna,
Hvítír mávar.
Sjálfstæðisflokkurinn
í Hafnarfirði
Þórarinn
Jón end-
urkjörinn
ÞÓRARINN Jón Magnússon var
endurkjörinn formaður stjórnar fuli-
trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í
Hafnarfírði á aðalfundi síðastliðið
fímmtudagskvöld. Þórarinn Jón
hlaut 59 atkvæði en mótframbjóð-
andi hans, Kristinn Andersen, 40
atkvæði. Einn seðill var auður.
Fundurinn stóð fram á nótt og
ítrekaði Þórarinn Jón þá afstöðu sína
að hann teldi óeðlilegt að þeir sem
ættu í samstarfí við pólitíska and-
stæðinga Sjálfstæðisflokksins gætu
á sama tíma gegnt trúnaðarstörfum
í flokknum. Sagði hann ekki trúlegt
að flokksmaður, sem starfaði í bæj-
arstjóm sem pólitískur samheiji Al-
þýðuflokksins, gæti jafnframt setið
í kosningastjóm Sjálfstæðisflokksins
fram að næstu bæjarstjómarkosn-
ingum þvi Ijóst væri að unnið yrði
af mestri hörku gegn Alþýðuflokkn-
um. Sem kunnugt er klufu bæjarfull-
trúarnir Jóhann G. Bergþórsson og
Ellert B. Þorvaldsson sig úr bæjar-
stjórnarflokki sjálfstæðismanna i
fyrra og hófu meirihlutasamstarf við
Alþýðuflokkinn.
Vill sjá meiri skoðanaskipti
umborin í flokknum
Kristinn Andersen sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að þeir 40
sem greiddu honum atkvæði sitt
vildu sjá ákveðnar breytingar í starfí
flokksins. „Ég vildi leggja áherslu á
að meiri skoðanaskipti verði umborin
í flokknum en stundum hefur verið,“
segir hann. Hann vili ekki meina að
úrslitin þýði að Sjálfstæðisflokkurinn
í Hafnarfírði sé klofínn í tvær fylk-
ingar og segir það verða að koma í
ljós hvemig samstarfíð muni ganga
fyrir sig. „Flokksstarfíð í vetur mun
standa og falla með þvi hvemig for-
maður fulltrúaráðsins og stjómin
haga sínum störfum," segir Kristinn.
Heilbrigðisnefnd samþykk undanþágu frá hávaðareglum vegna Kirkjusandshúsa
Fulltrúi R-listans hyggst
segja sig úr nefndinni
HElLBRIGÐISNEFND samþykkti í gær að ásætt-
anlegt yrði að veita undanþágu frá viðmiðunar-
mörkum fyrir umferðarhávaða í mengunarvarna-
reglugerð vegna nýbygginga við Kirkjusand 1-5.
Nefndin samþykkti að hljóðstig mætti reiknast
allt að 60 dB með 'h dB fráviki að vissum skilyrð-
um uppfylltum. í mengunarvarnareglugerð frá
1994 er miðað við að hávaði fari ekki yfir 55 dB
á nýbyggingarsvæði. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna og var tillagan
því samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.
I heilbrigðisnefnd sitja fímm manns og veittu
tveir fulltrúar R-listans tillögunni samþykki sitt.
Þriðji fulltrúi R-listans, Gunnar Ingi Gunnarsson,
greiddi atkvæði á móti og hefur hann ákveðið
að segja sig úr nefndinni. „Það lá fyrir álit lög-
fræðings hjá Heilbrigðiseftirlitinu sem taldi að í
þessu tilfelli væri ekki hægt að beita 53. grein
mengunarvarnareglugerðar. Þar með strandar
afgreiðsla málsins að mínu mati þegar í upp-
hafí,“ segir Gunnar Ingi. I 53. grein mengunar-
vamareglugerðar segir að heilbrigðisnefnd geti
vegna „sérstakra og óviðráðanlegra ástæðna og
að höfðu samráði við Hollustuvernd ríkisins leyft
að á ákveðnum afmörkuðum svæðum megi há-
vaði vera yfir viðmiðunarmörkum".
Þijú skilyrði tilgreind
í tillögu heilbrigðisnefndar eru tilgreind þijú
skilyrði fyrir því að undanþága fáist veitt, það
er að hljóðstig innandyra fari ekki yfir 30 dB,
að hljóðstig á lóð og svölum fari ekki yfír 55 dB
og að hljóðstig utan við glugga að minnsta kosti
heimings íveruherbergja hverrar íbúðar fari ekki
yfír 55 dB. „Mér finnst framhaldið engu að síður
óviðunandi, það er að verið sé að samþykkja að
hljóðstig fyrir utan helming íveruherbergja í íbúð
megi vera yfír viðmiðunarmörkum, eða 55 dB,“
segir Gunnar Ingi ennfremur.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram bókun á
fundinum þar sem meirihlutinn er gagnrýndur
fyrir „fljótfærni og vandræðagang“ í meðferð
umsókna um byggingu Kirkjusands 1-5 og að þau
vinnubrögð séu „varla næg rök til þess að víkja
frá ákvæðum mengunarvarnareglugerðar". Hulda
Ólafsdóttir, formaður heilbrigðisnefndar, lagði
jafnframt fram bókun þar sem segir að samkvæmt
skilyrðum nefndarinnar sé engin undanþága veitt
fyrir hljóðstig innandyra, á lóð eða svölum. „Hér
er einungis verið að veita undanþágu á hljóðstigi
utan við glugga í allt að helmingi íveruherbergja
hverrar íbúðar. Það liggja fyrir gögn meðal ann-
ars frá Hollustuvernd ríkisins sem telja að 60 dB
hávaði utan við vegg sé ásættanlegt.“
Hulda segir tillögu nefndarinnar svar við fyrir-
spurn frá verktakanum, það er Ármannsfelli, og
að líta megi á hana sem viljayfirlýsingu. „Verktak-
inn verður síðan að meta hvort hann ræðst í að
leita formlega eftir undanþágu. Þetta er ekki
endapunkturinn," segir Hulda.
Tilfinningar
bomar á torg
Morgunblaðið/Kristinn
„ Anna Kristín Arngrímsdóttir túlkar prímadonnuna
Maríu Callas af mikilli fagmennsku."
LEIKUST
íslcnska óperan
Maria Callas: Master Class eftir
Terrence McNalIy. Islensk þýðing:
Ingunn Ásdísardóttir. Leikarar og
söngvarar: Anna Kristín Amgríms-
dóttir, Bjöm Karlsson, Ellen Frey-
dis Martin, Marta Guðrún Halldórs-
dóttir, Stefán Stefánsson. Leik-
stjóri: Bjami Haukur Þórsson. Leik-
mynd og búningar: Hulda KrLstín
Magnúsdóttir. Ljós og hljóð: Bene-
dikt Axelsson. Sýningarstjóri:
Kristín S. Kristjánsdóttir.
MARIA Callas: Master Class er
spennandi leikverk og uppbygging
þess bæði sniðug og vel útfærð
hjá höfundinum, Terrence McNa-
lly, sem hefur áður sannað sig sem
frumlegt og gott leikskáld, til að
mynda með hinu frábæra leik-
verki: Koss köngulóarkonunnar.
Hér eru á skemmtilegan hátt sam-
nýttir hæfíleikar leikara og óperu-
söngvara og útkoman er listaverk
sem gleður bæði huga og heym.
Rammi verksins er kennslu-
stund hjá Maríu Callas þar sem
þrír ungir söngvarar fá leiðsögn
hennar við píanóundirleik. Dívan
er miskunnarlaus við nemenduma
og tekur þá í kennslustund sem
þeir gleyma aldrei. En hún á einn-
ig til rausn þegar henni fínnst það
eiga við. Anna Kristín Arngríms-
dóttir túlkar prímadonnuna Maríu
Callas af mikilli fagmennsku, sýn-
ir okkur konu sem man fífíl sinn
fegri og er að miklu leyti fangi
eigin minninga. Persónulýsing
Maríu kemur á óvart, andstæður
í persónu hennar em skarpar; hún
á til mikla viðkvæmni og næmi
en getur áður en minnst varir
breyst í ragnandi klámkjaft - sem
að miklu leyti má rekja til sam-
bands hennar við gríska skipa-
kónginn Aristoteles Onassis, ef
marka má verkið. Reyndar er
gefið í skyn að samband Maríu
við Onassis sé harmleikur lífs
hennar, leiðarstef verksins er að
fyrir hann hafi hún öllu fórnað.
Óhætt er að segja Anna Krist-
ín skapi persónu sem er ekki allt-
af mjög aðlaðandi í veikleikum
sínum og hégómagirnd. Engu að
síður tekst henni afdráttarlaust
að öðlast samúð áhorfenda og
verður það að teljast nokkuð af-
rek að túlka á svo næman hátt
manneskjuna í öllum sínum lit-
brigðum. Áhorfendur kunnu vel
að meta frammistöðu Önnu Krist-
ínar og fögnuðu henni sem sannri
Dívu við leikslok.
Tónlistarfólkið stendur sig allt
með prýði. Þorsteinn Gauti naut
sín vel sem undirleikarinn; með
látlausum en hárréttum áherslum
náði hann að kitla hláturtaugar
áhorfenda. Stefán Stefánsson var
„tenórinn“ holdi klæddur, raunar
jaðrar það við paródíu hversu „te-
nór-legur“ hann er, bæði í útliti
og framkomu. Söngur hans var
skemmtilegur og röddin falleg.
Aðeins mátti þó greina að um
óvanan leikara var að ræða því
honum hætti til að brosa um of
að eigin töktum. Eða kannski var
persónan bara svona sjálfumglöð?
Hvernig sem því er varið, var
Stefán yndislega kátlegur. Ellen
Freydís Martin er í nokkuð erfiðu
hlutverki þar sem hún fær lítið
ráðrúm til söngs vegna yfirgangs
Dívunnar. En hún skilaði sínum
hlut vel og mann langaði til að
heyra meira í henni en Callas
leyfði það ekki. Marta Guðrún
Halldórsdóttir var frábær í sínu
hlutverki og það var unun að
heyra hana syngja. Ekki var að
sjá að hér færi óvön leikkona því
Marta átti mjög góða takta í
mótleik sínum við Dívuna.
Nemendurnir þrír voru
skemmtilega ólíkir og aríumar
sem þeir sungu kölluðust á klókan
hátt á við atburði þá úr lífi Callas
sem hún rifjaði upp með sönginn
í bakgrunninum.
Ástæða er einnig til að minn-
ast á hlut Ingunnar Ásdísardóttur
þýðanda, en þýðing hennar klikk-
ar hvergi og á vafalaust stóran
þátt í að gera textann eins áhrifa-
mikinn og raun ber vitni.
Björn Karlsson er í litlu hlut-
verki sviðsmanns og skapaði hann
skemmtilega andstæðu við aðrar
persónur.
Sviðmynd Huldu Kristínar
Magnúsdóttur er einföld og lát-
laus og hæfír uppfærslunni vel.
Ekki var ég hins vegar alls kostar
sátt við búninga hennar, sérstak-
lega voru búningar söngnemanna
of ýktir.
Ljós og hljóð eru í umsjón
Benedikts Axelssonar og átti
hann stóran þátt í að skapa sýn-
ingunni rétta stemningu.
Að Master Class standa ungir,
nýútskrifaðir listamenn sem
greinilega láta sér fátt fyrir
bijósti brenna. Leikstjórinn Bjarni
Haukur Þórsson er menntaður
bæði sem leikari og leikstjóri og
lauk hann námi í Bandaríkjunum
fyrir rúmu ári. Hann og félagar
hans hafa sett verkið upp með
góðu fulltingi íslensku óperunnar
og er þeim sómi að.
Einu verð ég þó að kvarta yfir
og það er leikskráin. Hún er afar
lítilfjörleg og hæfir illa sýning-
unni sem að öðru leyti er stór í
sniðum. í leikskrána vantar til
dæmis bitastæða grein um per-
sónuna Maríu Callas og einnig
hefði verið fengur að umfjöllun
um verk Terrence McNally, þ.e.
annað og meira en upptalning á
verkum og verðlaunum. Ljóð er í
leikskránni sem ég get ekki séð
að hafi nokkurn snertiflöt við
verkið og er tilvist þess í skránni
furðuleg. Af leikskránni mætti
jafnvel álykta að leikararnir,
söngvararnir og aðrir aðstand-
endur sýningarinnar væru aðal-
atriði hennar en efni leikverksins
aukaatriði. Þar fyrir utan eru
bæði villur í stafsetningu og stað-
reyndum í skránni. En til að
gæta allrar sanngirni má segja
að leikskráin sé aukaatriði - sýn-
ingin er góð.
Soffía Auður Birgisdóttir