Morgunblaðið - 05.10.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.10.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU ERLENT Hal Carper, forstjóri Iceland Seafood Mikilvægt forskot á keppinauta okkar „ÞETTA er mikil ákvörðun og afar krefjandi og spennandi viðfangsefni. Að lokinni byggingu nýju verksmiðj- unnar höfum við tryggt okkur ákveðið forskot á sjávarafurðamark- aðnum í Bandaríkjunum og aukið sóknarfæri okkar til muna. Þetta verður fullkomnasta sjávarafurða- verksmiðja vestan hafs, þar sem margar nýjungar munu líta dagsins ljós,“ segir Hal Carper, forstjóri Iee- land Seafood, dótturfyrirtækis ÍS í Bandaríkjunum, í samtali við Morg- unblaðið. Byggingu nýju verksmiðjunnar verður lokið á tímbilinu ágúst/sept- ember næsta haust. Framleiðsla þar hefst þá strax, en gamla verksmiðjan á Camp Hill verður keyrð líka, þar til nýja verksmiðjan hefur náð fullum afköstum. Að því loknu verður henni lokað. Markið sett hátt „Við settum markið hátt og réðum ráðgjafar- og hönnunarfyrirtækið Webber/Smith til að hanna verk- smiðjuna, en það fyrirtæki stendur fremst í hönnun verksmiðja til fram- leiðslu matvæla. Markmið okkar voru að lækka launakostnað, taka í notkun helztu nýjungar á sviði þess- arar framleiðslu og auka afköstin. Öllum þessum markmiðum verður náð með nýju verksmiðjunni og við það skapast ný tækifæri á mörkuð- Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar VMSI „Ætlum ekki að kokgleypa áróður atvinnurekenda“ unum, sem um leið munu koma framieið- endum á íslandi til góða. Mikil sjálfvirkni dregur úr mannaflaþörf og á þessu svæði eru laun lægri en í Harris- burg. Við erum aðeins 15 mílur frá höfninni í Norfolk og vel tengdir við helztu flutningaleið- ir inn í landið líka. Það bætir stöðu okkar og lækkar flutningskostn- að á hráefni að verk- smiðjunni. Þá verður launkostnaður mun lægri en áður og við samkeppnisfær- ari á markaðnum, sem krefst bæði betri vöru og lægra verðs. Meiri framleiðni en áður gefur okkur svo mjög mikilvægt forskot á keppinauta okkar auk þess að bæta afkomuna." Ná forskoti „Framleiðsla sjávarafurða í Bandaríkjunum hefur staðnað und- anfarin ár og margir stórir framieið- endur eru ýmist að hætta þessari framleiðslu eða halda að sér hönd- um. Við lítum hins vegar á að við slíkar aðstæður sé rétt að vera hug- rakkur og taka stór skref fram á við. Þegar lifnar yfir markaðnum á ný, höfum við náð forskoti, sem keppinautar okkar munu eiga erfitt með að vinna upp. Við, stjórnendur Ice- land Seafood, settum okkur fyrir nokkrum misserum það lang- tímamarkmið að sækja á og gera betur en aðr- ir. Gamla verksmiðjan hefur staðizt þær kröf- ur, sem gerðar eru til framleiðslu sjávaraf- urða í Bandaríkjunum, en hún hefur ekki gefíð okkur tækifæri til þess að sækja fram. Fram- leiðslukostnaður hefur verið of hár og sveigjanleika og nýjungar hefur skort.“ Betur búnir til að svara kröfum markaðsins „Við búum hins vegar yfir mik- illi markaðsþekkingu og með hana að vopni ásamt tækifærunum sem nýja verksmiðjan gefur okkur, mun- um við ná langt. Markaðurinn vill lágt verð, sveigjanleika og nýjung- ar. Við verðum nú betur búnir til þess en aðrir að svara þessum kröf- um. Við sættum okkur ekki við kyrrstöðu, heldur ætlum okkur að verða eftirsóttasti framleiðandi sjávarafurða í Bandaríkjunum," segir Hal Carper. Iffílíl „VIÐ teljum orðið tímabært að blása til ráðstefnu nú um málefni fiskverkafólks í ljósi þeirrar um- ræðu, sem verið hefur í þjóðfélaginu að undanförnu. Samningar eru lausir um næstu áramót og mikil óvissa er víða í frystihúsum um framtíð fiskvinnslu í landi. Víða er verið að brjóta mjög alvarlega á fólki í fiskvinnslunni auk þess sem framkoma atvinnurekenda hefur víða verið fyrir neðan allar hellur, að okkar mati,“ segir Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnslu- deildar Verkamannasambands Is- lands, sem er stærsta deild innan sambandsins. Á annað hundrað manns hvað- anæva af landinu höfðu látið skrá sig í gær á ráðstefnu fiskverkafólks Fast sótt að réttindamálunum sem haldin verður kl. 9.00-17.00 í dag á Hótel íslandi. Aðalsteinn sagði að rætt yrði um þá þætti, sem brenna hvað heitast á fiskverkafólki í dag, m.a. kjaramál og starfsmenntunar- mál. „Það er ekki nóg með að físk- verkafólk búi við mjög mikið starfsó- öryggi, heldur er nýjasta útspil sjáv- arútvegsráðherra það að hann hyggst skera niður í núll fjárveiting- ar til starfsfræðslunámskeiða sem er mjög alvarlegt mál. Óneitanlega spyija menn sig að því hvort stjóm- völd séu meðvitað að vinna að því að leggja fiskvinnslu af í landi enda hefur verið sótt fast að okkar rétt- indamálum, bæði af atvinnurekend- um og stjórnvöldum." Aðalsteinn sagði í samtali við Verið í gær að það væri svolítið bros- legt að á sama tíma og atvinnurek- endur væru að tala um þann mikla vanda, sem við væri að etja, stæði fy'öldi fyrirtækja það vel að menn kepptust um að fjárfesta í þeim. Á sama tíma hefðum við í fyrra sett íslandsmet í veiði upp á tvær milljón- ir tonna og fyrir það hefði fengist 92 milljarða króna útflutningsverð- mæti. „Við ætlum að minnsta kosti ekki að kokgleypa þann áróður at- vinnurekenda að ekkert verði við ráðið. Staðan sé svo slæm og ekki sé neitt svigrúm til kauphækkana í ljósi þeirra staðreynda, sem blasa við.“ Ljósmynd/Lárus Ægir Guðmundsson ÓLAFUR Magnússon HU 54 kemur til heimahafnar á Skaga- strönd í fyrsta sinn. Nýr vertíð- arbátur í flotann NÝR bátur, Ólafur Magnússon HU 54, bættist í flota Skagstrendinga nú í byrjun september. Það er Jökull ehf., í eigu hjónanua Sigríð- ar Gestsdóttur og Stefáns Jósefs- sonar, sem á bátinn. Ólafur Magnússon er 125 tonna yfirbyggður stálbátur og er hann keyptur frá Höfn í Hornafirði þar sem hann hét Þórir SF 77. Bátur- inn var smíðaður 1972 en yfir- byggður árið 1986. Hann er al- hliða vertíðarbátur en mun verða að mestu gerður út til rækjuveiða. Kaupverð Ólafs Magnússonar var um 80 milljónir króna. Honum fylgir veiðileyfi en engar afla- heimildir. Leiðtogafundur Evrópusambandsins DAGARNIR fyrir leiðtogafund ESB hafa einkennzt af tvíhliða fund- um ieiðtoganna, sem vilja ekki koma með óleystar tvíhliða deilur til Dubiin. í gær hittust þeir Jacques Chirae, forseti Frakklands, og Romano Prodi, forsætisráðherra Italíu, í Napólí. Franska og ítalska stjórnin hafa deilt um það hvort Ítalía geti uppfyllt skilyrði fyrir þátttöku í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU). Vonazt eftir nýj- um drifkrafti á Dublin. Reuter. ÓREGLULEGUR leiðtogafundur Evrópusambandsins hefst í Dublin á írlandi í dag. Boðað er til fundarins til að ræða ýmis mál, sem eru til umfjöllunar á ríkjaráðstefnu sam- bandsins. Ekki er búizt við neinum ákvörðunum, heldur er fyrst og fremst vonazt til að það veiti ríkja- ráðstefnunni nýjan pólitískan drif- kraft að stjómmálamenn í æðstu valdastöðum ræði málefni hennar. Enn er því ekki kominn sá tími að leiðtogarnir þurfi að leysa sín á milli þau mál, sem lenda í sjálfheldu á ríkjaráðstefn- unni. Hins vegar er búizt við að sumir leiðtogam- ir vilji nota tæki- færið til að minna hægfara starfs- bræður sína, ekki sízt John Major forsætisráðherra Bretlands, á það hversu mikið sé í húfi að ráðstefnan hristi upp í stofn- anakerfi ESB. írska stjómin, sem situr nú í for- sæti ráðherraráðs ESB, vonast til að fundurinn ýti undir að það mark- mið náist að leggja drög að breyting- um á stofnsáttmála sambandsins fyrir reglulegan leiðtogafund í des- ember. Major í vanda Leiðtogafundurinn er haldinn á óheppilegum tíma fyrir John Major. Dragi hann úr andstöðu sinni við ýmsar breytingar á ESB, ekki sízt afnám neitunarvalds einstakra aðild- arríkja í mörgum málum, munu and- stæðingar ESB í íhaldsflokknum út- hrópa hann á flokksþinginu, sem hefst í næstu viku. Haldi hann hins vegar fast við ósveigjanlega afstöðu sína, stefnir hann árangri á ríkjaráð- stefnunni í hættu. Mörg aðildarríki ESB telja nauðsynlegt að afnema neitunarvaldið í öllum málum nema þeim allra viðkvæmustu, eigi ákvarð- anataka sambandsins að verða skil- virk eftir að aðildarríkjunum hefur fjölgað um meira en tug. Flestir eru sammála um að ekki verði hægt að ljúka ríkjaráðsCefnunni fyrr en eftir næstu þingkosningar í Bretlandi, sem líklegt er að Verka- mannaflokkurinn vinni. Ekki er hins vegar víst að kosningamar verði fyrr en í maí og telja sumir að ný ríkisstjórn muni þurfa tíma fram á síðari helming næsta árs til að ljúka samningaviðræðum á ríkjaráðstefnunni. Engu að síður ítrekaði John Bruton, forsætisráð- herra írlands, það tvisvar í fundar- boðinu til hinna leiðtoganna, að Ijúka yrði viðræðunum fyrir reglulegan leiðtögafund ESB í Amsterdam í júní á næsta ári. Helmut Kohl, kanzlari Þýzka- lands, sagði fyrr í vikunni að það yrði ekkert „stórslys" þótt nokkur atriði viðræðnanna yrðu geymd þar til síðar. Virtist kanzlarinn gefa í skyn að um sumar breytingar á stofnunum ESB mætti semja eftir að viðræður við væntanleg aðildar- ríki hæfust, en gert er ráð fyrir að það verði sex mánuðum eftir lok ríkjaráðstefnunnar, eða í lok næsta árs. Ahugi Finna á ESB minnkar Helsinki. Morgunblaðið. SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun, sem birt var í Finnlandi á mánudag, hafa aðeins sjö prósent Finna tals- verðan áhuga á málefnum sem varða Evrópusambandið (ESB). Fyrir fáein- um árum sögðust 25% Finna hafa mikinn áhuga á ESB. Þykir þetta fremur lök niðurstaða því það eru aðeins þrjár vikur þar til kosningar til Evrópuþingsins eiga að fara fram. í skoðanakönnuninni kemur fram að tveir af hveijum þremur eru þeirr- ar skoðunar að ESB-aðild Finna hafi varla breytt neinu. Eina jákvæða breytingin sem nefnd er er að verð á matvælum hafi lækkað. Áhugaleysi Finna hvað varðar ESB kemur skýrt fram í því hversu lítinn áhuga menn sýna kosningabar- áttunni. Almenningur segist ætla að greiða atkvæði í kosningunum en fáir hafa samt gert sér grein fyrir því um hvað starfsemi ESB-þingsins snýst í raun og veru. Þá hefur mörg- um flokkum reynst erfítt að finna góða frambjóðendur. I I > > > \ \ I \ I \ \ \ \ \ 6 I I I I i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.