Morgunblaðið - 05.10.1996, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.10.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FYRIRTÆKI LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 29 FJÖLMENNI var í afmælishófi Ingvars Helgasonar hf., sem haldið var í gær. kaupum á umboðum frá Jötni hf., áður bifreiðadeild Sambandsins. Með því bættust ýmis umboð í hóp- inn eins og Opel, Izusu, General Motors og Ferguson dráttarvélar svo eitthvað sé nefnt. Hús fyrirtækisins er úr límtré og nokkuð ólíkt húsum annarra bif- reiðaumboða hérlendis. Ingvar segir að það sé hagkvæmt og skemmti- legt byggingarefni og hafí því verið valið. „Límtréð er ódýrt og það tek- ur skamman tíma að byggja úr því. Innan hússins eru engir stólpar eða burðarveggir og það gerir sýn- ingarsalina miklu opnari og skemmtilegri en ella. Hægt er að breyta og bæta á alla enda og kanta án þess að standa í meiri háttar fram- kvæmdum.“ Blanda af skynsemi og vinnusemi Það er óhætt að segja að fjörutíu ára saga Ingvars Helga- sonar í viðskiptum hafí einkennst af stöðugum uppgangi og vel- gengni. A þessum tíma hafa ótal aðilar reynt fyrir sér í bifreiðainn- flutningi en ýmsum orðið hált á svellinu, ýmist orðið gjaldþrota eða a.m.k. lent í miklum erfiðleikum. Það er því ekki úr vegi að spyrja hver galdurinn á bak við þennan árangur sé og hvort Ingvar Helga- son hf. hafi aldrei staðið tæpt. Ingvar segir að það sé enginn galdur á bak við velgengni fyrirtæk- isins heldur góð blanda af skynsemi og vinnusemi enda hafi það skilað hagnaði öll árin. „Frá upphafi gerði ég mér grein fyrir því að þetta yrði gífurleg vinna og að ég mætti aldrei slaka á klónni. Ég hef líka ætið gert mér far um að sjá yfir alla þætti rekstrar- ins og ráðast ekki í meira en fyrirtækið þoldi hveiju sinni. Ég hef horft á marga í rekstri fara flatt á því að ímynda sér að lausnin á vanda þeirra sé að taka fé að láni. Það er hinn mesti misskilningur og ég hef gert mér far um að halda slíku í lágmarki. Ég vandi mig við reynd- ar við það snemma á ferlinum því þá lá lánsfé ekki á lausu og maður fékk ekki lán þótt maður vildi. Það kenndi mér að efla reksturinn og reyna að ná meiru út úr honum ef mig vantaði fé en treysta ekki á einhvern bankastjóra úti í bæ.“ Ekki á leið á hlutabréfamarkað Það virðist hafa gengið sæmilega að treysta reksturinn. Ingvar Helgason hf. er nú stærsti bílainn- flytjandi landsins og er markaðs- hlutdeildin tæp 23%. Starfsmenn eru um sextíu og segir Ingvar að velta fyrirtækjanna hafí numið 4,6 milljörðum í fyrra og verði miklu meiri í ár. Ingvar Helgason hf. er ósvikið fjölskyldufyrirtæki. Kona Ingvars, Sigríður Guðmundsdóttir, stjórnar elsta hluta fyrirtækisins, leik- fanga- og gjafavörudeildinni ásamt dætrunum Elísabetu og Guðrúnu og er fyrirtækið stærsti innflytj- andi á leikföngum að hennar sögn. Júlíus Vífill sér um rekstur Bíl- heima og sinnir lög- fræðistörfum, Helgi sér um sölu á Nissan og Subaru en Guðmundur um fjármálin. Fimm af átta börnum þeirra hjóna eru því í fullu starfi hjá fyrirtækinu og hin taka einnig til hendi í því af og til ásamt barnabörnunum. Engar áhyggjur af framtíð fyrirtækisins Ingvar er orðinn 68 ára og hann segist vera farinn að minnka við sig störfín innan fyrirtækisins enda eigi hann spræk börn, sem hann treysti fullkomlega fyrir rekstrin- um. Fyrirtækinu hefur þegar að einhveiju leyti verið skipt upp milli hans og barnanna en hann segir að það sé fjarri honum að gera fyrirtækið að almenningshlutafé- lagi. „Þetta gengur vel eins og er og því er best að halda þessu innan fjölskyldunnar. Oðru máli gegndi ef það vantaði fé inn í fyrirtækið en þá gæti vel verið að við efndum til hlutafjár- útboðs." Oft er sagt að skipta megi ferli margra ís- lenskra fyrirtækja í þrjú skeið eftir því hvaða kynslóð er við stjórn. Fyrsta kynslóðin ryðji brautina og festi blóm- legan rekstur í sessi. Önnur kyn- slóðin haldi í horfínu en þriðja kyn- slóðin klúðri málunum. Er Ingvar nokkuð hræddur um að þannig fari eftir að hann dregur sig í hlé úr rekstrinum? Ingvar skellihlær og segir síðan: „Ég verð löngu dauður áður en tími þriðju kynslóðarinnar rennur upp þannig að ég ætla nú ekki að fara að hafa áhyggjur af því. En í al- vöru talað þá treysti ég alveg börn- um mínum og barnabörnum til að reka fyrirtækið í þeim anda og með þeim aðferðum, sem ég hef brýnt fyrir þeim.“ Þau eru lokaorðin. Jónas efað- ist um ótak- markaðan samvinnu- rekstur Treysti á reksturinn en ekki bankastjóra úti í bæ LAUGARDAGSKVOLP kTvíti ísc’Si 11 ‘Yorréttur: 'Rjómalöguð sjávarréttasúpa. skðaíréttur: TLldsteiHtur lambavöðvi meðgljáðu grænmeti, djúpsteidtum jarðeplum og sólberjasósu. ŒLýtirréttur: ‘Terskjuís í brauðkörfu með keitri karamellusósu. Verð kr. 4.800 á kvöldverð og sýningu. Verð kr. 2.200 á sýningu. TIJL-BOÐ A HOTEL- GISTINGU SIXTIES leikur fyrir dansi í aðalsal eftir sýningu. mrn Mlða* 09 borðapafítanlr (t\m yta-ym PERLUR SJÖUNDA ÁRATUGARINS í flutningi frábaerra söngvara, dansara og 10 manna híjómsveitar Gunnars Þórðarsonar SÖNGVARAR: Ari lónsson, Bjami Arason, Björgvin Halldórsson, Pálmi Gunnarsson og Söngsystur in I)a gshrúna j OPIÐ HUS að Skipholti 50 d sunnudaginn kl. 14.00-17.00 Sunnudaginn 6. október verður opið hús fyrir Dagsbrúnarmenn í nýjum húsakynnum félagsins í tilefni af opnun skrifstofu og félagsaðstöðu að Skipholti 50d. * Veitingar • Bubbi Morthens kl. 15:30 VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN Verió velkominl Skipholti 50 d • 105 Reykjavík • Sími: 552 5633 Fax: 552 5729
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.