Morgunblaðið - 25.10.1996, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
I LOONDER IF IT'S MY IMA6INATION..YOU DON T
5EEM TO BE A5 CRABBY A5 YOU U5EDTO..
Skyldi það vera ímyndun mín ... þú virðist
ekid vera eins hortug og þú varst vön að vera ...
MÉR ER EKKI AÐ FÖRLAST!!
BREF
UL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylgavík • Sirni 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Eru vogir sjúkra-
húsanna á biðlista?
Frá Sigurði Magnússyni:
í FRÉTT sem lesin var í ríkissjón-
varpinu 22. ágúst 1996 þess efnis
að menn frá Löggildingarstofunni
þurfi að fara á
öll sjúkrahús- og
heilsugæslu-
stöðvar landsins
til að stilla vogir
þessara stofn-
ana samkvæmt
EES-reglugerð
um ósjálfvirkan
vogarbúnað,
reglan dagsett
28. febrúar 1994
og er nr. 143.
Þar stendur samkvæmt 2. kafla
a) 4. grein: „ákvörðun massa í lækn-
ingastörfum við vigtun sjúklinga
vegna eftirlits með heilbrigði, vegna
sjúkdómsgreiningar og læknismeð-
ferðar“.
Það kemur einnig fram í fréttinni
í samtali við Bolla Ólafsson, fram-
kvæmdarstjóra Héraðssjúkrahússins
á Blönduósi, að dýrt sé fyrir sjúkra-
húsið að borga reglulega tugi þús-
unda fyrir löggildingu á baðvogum.
Hann segist heldur ekki skilja hver
hafi efni á að borga kostnað sem
hafi hverfandi áhrif. Síðar í fréttinni
kemur fram að Hrafn Hilmarsson
hjá Löggildingarstofunni segir að
löggilding læknavoga sé veruleg
neytendavernd. Það sé mikilvægt
atriði að vogir séu rétt stilltar þar
sem þær veiti mikilvægar upplýs-
ingar um heilsu manna þar sem al-
menningur hafi ekki sérþekkingu á
,þessu sviði og því sé nauðsynlegt að
tryggja rétta mælingu og að almenn-
ingur geti treyst því að vogin sýni
rétt.
Mér datt þessi frétt í hug er ég
las ritstjómargrein í Morgunblaðinu
22.október síðastliðin, þar sem fyr-
irsögnin er „3000 sjúklingar á bið-
lista“. Þó það standi ekki í greininni
hvarflaði það að mér hvort Löggild-
ingarstofan sé ekki búinn að stilla
vogir allra sjúkrastofnana svo hægt
sé að vigta, vega og meta hvaða sjúk-
dómsgreiningu hver og einn fær
samkvæmt EES-staðli.
Ég vil svo biðja þá ráðamenn þjóð-
arinnar, sem hafa staðið fyrir þessu
EES-samkomulagi að þeir endurmeti
gildi þess og hugsi meir um al-
manna- og þjóðarhag, en ekki EES-
skoðunarstofuiðnaðinn sem tekur
milljarða til sín. Milljarða sem betur
væru komnir í ríkiskassann til sam-
eiginlegra nota okkar sem borgum
þetta allt að lokum.
SIGURÐUR MAGNÚSSON,
fv. yfirrafmagnseftirlitsmaður,
Skólavörðustíg 16a, Reykjavík.
Þjóðargrafreiturinn
á Þingvöllum
Frá Torfa Guðbrandssyni:
NÝLEGA var í Ríkisútyarpinu rakin
saga af flutningi beina þjóðskáldsins
Jónasar Hallgrimssonar frá Kaup-
mannahöfn til Þingvalla fyrir 50
árum. Ekki verður sú ráðstöfun gerð
að umtalsefni hér, heldur hitt, hvort
nokkuð skorti á að gengið hafi verið
frá legstað beinanna með viðeigandi
hætti. Athugum þá fyrst hvað blasir
við augum í þjóðargrafreitnum. Þar
er reyndar engan minnisvarða að sjá,
hins vegar liggja þama tvær stórar
steinhellur kylliflatar & jörðinni og eru
byijaðar að tærast. Á annarri þeirra
stendur Jónas Hallgrímsson, en á
hinni Einar Benediktsson. Ekkert
annað, ekki einu orði meira. Tómlegt
það og tómið verður ennþá átakan-
legra vegna þess hve hellumar eru
víðáttumiklar. Úr þessu þarf og verð-
ur að bæta og betra er seint en aldr-
ei. Að sjálfsögðu á að gera grein fyr-
ir nöfnunum. Hvað höfðu þessir menn
afrekað, sem varð þess valdandi að
þjóðin vildi heiðra minningu þeirra
með þeim einstaka hætti að varðveita
líkamsleifar þeirra á helgasta sögu-
stað landsins?
Hver voru fæðingarár þeirra og
dánardægur?
Þetta eru upplýsingar sem gefa
grafskriftinni aukið gildi. Og ekki
myndi það spilla ef þar mætti finna
valdar ljóðlfnur úr verkum þeirra eins
og t.d. þessar á leiði Jónasar skálds
og náttúrafræðings:
Traustir skulu homsteinar
hárra sala;
í kili skal lqörviður;
bóndi er bústólpi
- bú er landstólpi -
því skal hann virður vel.
(Úr Alþingi hið nýja.) _
Eftirfarandi brot úr kvæðinu Á
Njálsbúð gæti hentað vel sem graf-
skrift á leiði skáldsins og hugsjóna-
mannsins Einars Benediktssonar:
Sá Njáll, sem búð við björgin reisti,
hann byggði á þegnsins viti og hreysti.
Vér þurfum stjórnar,
vér þurfum fórnar
alls þvergirðings, ef land skal standa,
alls öfugstraums og einráðs vanda.
TORFI GUÐBRANDSSON,
fv. skólastjóri,
Bogahlíð 12, Reykjavík.
Hvað skai segja? 47
Væri rétt að segja: Billinn stöðvaði á blábrúninni.
Svar: Sögnin að stöðva er áhrifssögn (að stöðva eitthvað).
Þess vegna þarf hér að nota miðmyndina, stöðvast (stöðva sig)
og segja: Bfllinn stöðvaðist á blábrúninni. Einnig mætti segja:
Bíllinn nam staðar á brúninni.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt f upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.