Morgunblaðið - 25.10.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar
Hlutafé aukið
um 40 milljónir
ÓlafsfjBrður. Morgunblaðið.
SAMÞYKKt var á hluthafafundi
sem haldinn var í gær að auka hlut-
afé í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar um
40 milljónir króna. Einnig var sam-
þykkt að minnka eldra hlutafé um
80% til ráðstöfunar á móti tapi.
Rekstrartap síðasta árs nam
rúmum 27 milljónum króna og
fyrstu 7 mánuði þessa árs er tap
af rekstri rúmar 26 milljónir króna
sem er nokkru meira en 10% af
veltu og því er eigið fé fyrirtækis-
ins nær uppurið.
Fyrr í haust ákvað stjórn fyrir-
tækisins að leggja niður bolfisk-
vinnslu fyrirtækisins um næstu
áramót og var öllu starfsfólki í
frystingunni sagt upp störfum en
uppsagnirnar taka gildi um næstu
áramót.
Forsvarsmenn HÓ hafa unnið
að því að undanfömu að fmna eitt-
hvað í staðinn fyrir bolfiskvinnsl-
una og er tilraunavinnsla á rækju
hafín, en hún stendur í þtjár vikur.
Ekki er vitað til að slík tilraun
hafi áður verið gerð hér á landi.
Afköst loðnuverk-
smiðjunnar aukin
Um þessar mundir er unnið að
því að gera breytingar á loðnuverk-
smiðjunni og er verið að fjárfesta
í tönkum og öðrum tækjabúnaði.
Verið er að ljúka við stækkun á
þróarrými og getur verksmiðjan
tekið á móti mun meira hráefni en
var, eða um 1500 tonnum í stað
780 áður.
Lýsistankur hefur verið tekinn í
notkun og er geymslurými lýsis um
1300 tonn en var áður 500 tonn.
Einnig er unnið að því að auka
afkastagetu verksmiðjunnar og í
byijun desember verður settur upp
nýr gufuketill, við það aukast af-
köst verksmiðjunnar í fyrstu um
40 tonn eða frá 110 í 150 tonn á
sólarhring.
Nú er búið að taka á móti 10
þúsund tonnum af loðnu og síld
hjá verksmiðjunni á þessu ári. Er
það mesta magn frá upphafi. Enn
er vonast eftir því að fá milli 200
og 300 tonn til viðbótar fram að
áramótum.
Morgunblaðið/Kristján
Kattamatargerð í Laxá
FÓÐURVERKSMIÐJAN Laxá á
Akureyri hefur hafið fram-
leiðslu á kattafóðri, sem fyrir-
tækið hyggst selja undir nafninu
Cató og er væntanlegt á markað
um næstu mánaðamót.
Bjá Laxá hefur verið unnið
að því að þróa þetta fóður sl.
þijú ár í samvinnu við Iðntækni-
stofnun íslands og fleiri. Fyrir-
tækið hefur samið við Islensk-
ameríska um dreifingu á vör-
unni, sem til að byija með verð-
ur boðin á innlendum markaði
en stefnt er að útflutningi í fram-
tíðinni.
Á myndinni er Einar Sveinn
Ólafsson, framleiðslustjóri, við
vélastæðu sem notuð er við
pökkun á fóðrinu.
Veitustjórn samþykkti fjárhagsáætlun Hita- og vatnsveitu
Gjaldskrá hitaveitu
lækkar um tæp 2%
Nissan Sunny SLX 4x4 station ‘91, blásans., 5
g., ek. aðeins 46 þ. km., rafm. í rúðum, hiti í
sætum, toppgrind o.fl. V. 1.040 þús.
MMC Galant GLSi ‘92, rauður, sjálfsk., ek. 78 þ.
km., rafm. í rúðum, hiti í sætum o.fl. V. 1.130 þús.
STJÓRN veitustofnanna samþykkti fjárhagsáætlun Hita- og vatnsveitu
Akureyrar fyrir árið 1997 á fundi sínum í vikunni. Jafnframt var sam-
þykkt að lækka gjaldskrá hitaveitunnar frá og með næstu áramótum.
Tonnið af heitu vatni lækkar úr 110 krónum í 108 krónur, eða um tæp
2%. Tekjur Hita- og vatnsveitu á næsta ári eru áætlaðar um 605 milljónir
og rekstrargjöld um 180 milljónir króna. Hagnaður án fjármunatekna og
gjalda er áætlaður 125,2 milljónir króna og rekstrarhagnaður um 4,3,
milljónir króna.
Að sögn Franz Ámasonar, fram-
kvæmdastjóra Hita- og vatnsveitu,
er áætlað að veija um 60 milljónum
króna til beinna framkvæmda á
næsta ári. Þar af er kostnaður við
12 km röralögn, dælur og fleira,
vegna niðurdælingar vatns á
Laugalandi í Eyjafjarðarsveit, rúm-
ar 22 milljónir króna. Annar stór
liður í framkvæmdaáætlun næsta
árs er endurnýjun á varmadælum
veitunnar og er áætlað að kosti um
10 milljónir króna.
Hita- og vatnsveitan hefur keypt
gufuveituna á Gleráreyrum og tekið
við rekstri hennar en veitan sér
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
567-1800
Löggild bílasala
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
Opið laugard. kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-18
Chevrolet Blazer S-10 4.3 Thao ‘92, vínrauður,
sjálfsk., ek. 90 þ. km., rafm. í rúðum, álfelgur,
leðurinnr. o.fl. Gott eintak. V. 2.250 þús.
Nissan Sunny 1.6 SLX ‘92, 3ja dyra, rað ur,
sjálfsk., ek. aðeins 28 þ. km., rafm. í rúðum, hiti
í sætum. V. 830 þús. stgr.
Suzuki Swift GLi 3ja dyra ‘93, rauður, 5 g., ek.
40 þ. km. V. 640 þús.
Suzuki Baleno GLX ‘96, 4ra dyra, grænn, 5 g.,
ek. 8 þ. km., spoiler, rafm. í rúðum, dráttarkúla
o.fl. V. 1.280 þús.
MMC Pajero langur diesel Turbo ‘88, 5 g., ek.
164 þ. km. V. 860 þús.
Mazda 323 GLXi 1600 Sedan ‘92, sjálfsk., ek.
aðeins 58 þ. km., rafm. í öllu, hiti í sætum o.fl. V.
850 þús. Skipti.
Volvo 740 GL station ‘87, grásans., sjálfsk., ek.
176 þ. km. Gott eintak. V. 730 þús.
MMC Pajero langur V-6 ‘90, sjálfsk., blásans.,
ek. 110 þ. km., 31“ dekk, álfelgur, sóllúga o.fl.
V. 1.490 þús.
Toyota Corolla XL Hatsback ‘89, sjálfsk., 5
dyra, steingrár, ek. 89 þ. km. V. 530 þús.
Ford Explorer XLT ‘94, blár, sjálfsk., ek. aðeins
33 þ. km, upph., 35" dekk, álfelgur, rafm. í öllu
o.fl. Toppeintak. V. 2.790 þús.
Subaru Legacy 1.8 GL Station ‘91, 5 g., ek. 87
þ. km. V. 1.080 þús. Sk. ód.
Toyota Corolla GLi Liftback ‘93, 5 g., m/öllu,
ek. 80 þ. km. Tilboðsv. 990 þús.
Suzuki Sidekick JXi ‘92, 5 dyra, rauður, sjálf-
sk., ek. 85 þ. km., álflegur, rafm. i rúðum o.fl.
V. 1.350 þús.
Honda Accord EXSi Sport '87, rauður, 5 g., ek.
106 þ. km., 2000 vél, sóllúga, rafm. í öllu, alfelg-
ur o.fl. V. 550 þús.
Opel Astra 1.4i station ‘94, rauöur, 5 g., ek. 36
þ. km. V. 1.240 þús.
V.W. Golf 1.4 CL 3ja dyra '94, rauöur, 5 g., ek.
30 þ. km. V. 930 þús.
Ath. eftirspurn eftir árg.
‘93-’97. Vantar slíka bíla á
skrá og á staðinn.
Ford Econoline 250 XL ‘91, ek. 78 þ. km., Ijós-
blár, 9 manna, 6 cyl., 4900i, sjálfsk. V. 1.480 þús.
Fallegur bíll. Sk. ód.
Nissan Sunny SLX Sedan ‘92, sjálfsk., ek.
aðeins 55 þ. km., rafm. í rúðum, spoiler, álfelgur
o.fl. V. 890 þús. Bein sala.
Toyota Corolla XLi Sedan ‘96, sjálfsk., ek. 11
þ. km., rafm. í rúðum o.fl. Sem nýr. V. 1.380 þús.
Suzuki Sidekick JX 16v ‘95, 5 dyra, blár, 5 g.,
ek. 28 þ. km., upph., 30“ dekk, álfelgur, þjófa-
vörn, dráttarkúla o.fl. V. 1.790 þús.
Daihatsu Charade TS 3ja dyra ‘91, hvítur, 4 g.,
ek. aðeins 40 þ. km. V. 490 þús.
Nissan 100 NX 2000 ‘92, 2ja dyra m/topp,
rauður, 5 g., ek. 79 þ. km., álfelgur, rafm. í öllu.
V. 1.180 þús.
Nissan Primera 2000 GLX ‘93, raður, sjálfsk., 5
dyra, ek. 40 þ. km., rafm. í öllu, sóllúga. V. 1.300
þús. Sk. ód.
Hyundai Elantra 1.8 GT Sedan ‘94, blár, sjálf-
sk., ek. 28 þ. km., rafm. í öllu, 2 dekkjag. o.fl. V.
1.090 þús.
Grand Wagoneer Ltd. ‘93, grænn, m/viðarkl.,
sjálfsk., ek. 100 þ. km., rafm. í öllu, leðurkl., sól-
lúga, álfelgur o.fl. V. 2,9 millj.
Toyota Corolla XL Sedan ‘92, brúnsans., sjálf-
sk., ek. 66 þ. km., grjótagrind o.fl. V. 790 þús.
Hyundai H-100 sendibíll (vsk bíll) ‘94, 2.4 I vél,
5 g., ek. 42 þ. km. V. 1.030 þús.
MMC Colt GLi ‘93, 5 g„ ek. 59 þ. km. V. 850 þús.
Volvo 940 2.3L GL ‘91, grænsans., sjálfsk., ek.
aöeins 49 þ. km., rafm. i öllu, álfelgur, 2
dekkjag., spoiler o.fl. V. 1.750 þús.
MMC Lancer GLXi station ‘93, hvitur, sjálfsk., ek.
54 þ. km„ rafm. í rúðum, hiti í sætum, 2 dekkjag.,
dráttarkúla. Toppeintak. V. 980 þús. (bein sala).
Dodge Aries ‘87, 4ra dyra, vínrauður, sjálfsk.
Fallegur bíll. V. aðeins 290 þús. Sk. ód.
Subaru Legacy 2.2 station ‘95, 5 g„ ek. 38 þ.
km„ rafm. í öllu. V. 2.050 þús.
Ford Mondeo GLX ‘96, hlaöbakur, hvitur, sjálf-
sk„ ek. 6 þ. km„ geislap., rafm. í öllu, 2 dekkjag.
v. 1.830 þús.
Daihatsu Rocky diesel m/mæli ‘85, steingrár,
5 g„ ek. 145 þ. km. V. 530 þús.
Toyota Hilux Ex Cap V-6 ‘90, 5 g„ ek. 81 þ.
km„ 38“ dekk, lækkuð drif o.fl. Verklegur bill.
V. 1.450 þús.
Plymouth Voyager Grand ‘93, hvítur, ek. 81 þ.
km„ 7 manna, 6 cyl. (3,3). Innbyggð ir barna-
stólar í sætum. V. 1.890 þús. Sk. ód.
Honda Civic GLi Special ‘91, 3ja dyra, rauður,
sjálfsk., ek. 64 þ. km. V. 760 þús.
Opel Astra 1.4i station '94, rauður, 5 g„ ek. 36
þ. km. V. 1.240 þús.
MMC L-200 pickup (Dodge Ram)’88, ek. 95 þ.
km„ hvítur, 4 cyl„ 2600, 5 g. Toppeintak. V. 550
þús. Sk. ód.
Nissan Sunny SLX Sedan ‘92, sjálfsk., ek.
aöeins 55 þ. km„ rafm. í rúðum, spoiler, álfelgur
o.fl. V. 890 þús. Bein sala.
V.W. Golf 1.4 CL 3ja dyra ‘94, rauður, 5 g., ek.
30 þ. km. V. 930 þús.
Einnig: V.W. Polo 1.4 5 dyra '96, blár, 5 g„ ek.
9 þ. km. V. 1 millj.
MMC Colt GLX ‘86, hvítur, 5 g., 3ja dyra, ek.
111 þús. km„ vökvastýri. V. 260 þús. Sk. ód.
bæði Foldu og Skinnaiðnaði fyrir
gufu. „Þessi kaup auka útgjöld veit-
unnar um 12-13 milljónir króna
en á móti aukast tekjumar um
14-15 milljónir króna."
Skuldir lækki um
200 milljónir
Heildarskuldir veitunnar um
næstu áramót eru áætlaðar um
3-3,2 milljarðar króna en það ræðst
nokkuð af gengi krónunnar. Franz
segir að skuldir veitunnar hafi
lækkað um 300 milljónir króna á
þessu og þar af er nokkur hluti
vegna gengisbreytinga. „Við stefn-
um að því að lækka skuldirnar um
tæpar 200 milljónir króna á næsta
ári en til viðbótar eru vaxtagreiðsl-
ur áætlaðar um 170 milljónir króna.
„Við höldum okkur við það mark-
mið að skuldastaða veitunnar verði
komin í viðunandi horf árið 2010,“
sagði Franz.
Forkaupsréttur Akureyringa tii hluta-
bréfakaupa í UA útrunninn í næstu viku
Fjölmargar fyrir-
spurnir en fáir fest
kaup á bréfum
ÍBUAR á Akureyri, 18 ára og eldri
sem boðið er að kaupa hlutabréf í
Útgerðarfélagi Akureyringa, hafa
enn ekki fest kaup á stórum hluta
hlutabréfanna, en fjölmargar fyrir-
spurnir hafa borist Kaupþingi Norð-
urlands sem umsjón hefur með söl-
unni.
Bæjarstjórn ákvað í lok septem-
ber að selja 131,2 milljónir króna
að nafnverði eða 650 milljónir króna
að söluverðmæti af hlut sínum í
ÚA og jafnframt var ákveðið að
starfsfólk fyrirtækisins og aðrir
bæjarbúar skyldu njóta forkaups-
réttar að þessum hlut. Frestur bæj-
arbúa til að taka tilboði Akureyrar-
bæjar í hlutabréfin rennur út eftir
viku, 1. nóvember næstkomandi.
Formlegt tilboð var sent heim til
þeirra sem njóta forkaupsréttar fyr-
ir nokkru, en viðbrögðin ekki verið
mikil fram til þessa hvað kaup varð-
ar.
Jón Hallur Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
lands, sagði að mikið hefði verið
hringt og fólk komið og fengið upp-
lýsingar. „Það má búast við að fólk
taki við sér í næstu viku, þegar líð-
ur að því að fresturinn renni út,“
sagði Jón Hallur. „Miðað við undir-
tektir, fjölda fyrirspuma og annað
held ég að Akureyringar hafi áhuga
á að eignast hlut í Utgerðarfélagi
Akureyringa," sagði Jón Hallur.
Ekkert lágmark, en
hámarkið 131 þúsund
Hlutabréfin eru seld á genginu
4,98. Starfsfólki félagins og bæj-
arbúum er boðið að kaupa hluta-
bréf fyrir allt að 131 þúsund krón-
um að nafnvirði, eða 652 þúsund
krónur. Ekkert lágmark er á hluta-
béfakaupunum. Kaupþing Norður-
lands býðst til að lána 70% af kaup-
verði hlutabréfanna til allt að
þriggja ára með Euro-raðgreiðslu-
samningi eða skuldabréfí til allt að
tveggja ára ef greitt er með Visa-
raðgreiðslusamningi.
Félag- áhugafólks
um Alzheimer-
sjúkdóm
Jakob og
Valgerð-
ur gestir
fundarins
FYRSTI fundur Félags
áhugafólks og aðstandenda
sjúklinga með Alzheimersjúk-
dóm og skylda sjúkdóma á
Akureyri og nágrenni, FAAS-
AN, verður á morgun, laugar-
daginn 26. október kl. 13 í
sal Dvalarheimilisins Hlíðar á
Akureyri. Gestir fundarins
verða Jakob Björnsson bæjar-
stjóri og Valgerður Magnús-
dóttir félagsmálastjóri. Þau
munu kynna stefnu Akur-
eyrarbæjar í heilbrigðis- og
öldrunarmálum og svara fyr-
irspumum þar að lútandi.
Fundir
öllum opnir
Félagið var stofnað í apríl
1992 og er helsta markmið
þess að stuðla að fræðslu fyr-
ir ættingja þessa sjúklinga-
hóps svo og að leggja málefni
minnissjúkra allt það lið sem
hægt er á Akureyri og ná-
grenni. Telja félagsmenn
brýnasta verkefnið fyrir ein-
staklinga með heilabilun að
stofna sambýli eða stoðbýli
fyrir þá. Fundir félagsins eru
ekki eingöngu ætlaðir fyrir
félagsmenn, þeir em opnir
öllum þeim sem áhuga hafa
á málefnum minnissjúkra.
Hagyrð-
ingakvöld
haldið á
Hótel KEA
HAGYRÐINGAKVÖLD
verður haldið á Hótei KEA í
kvöld og hefst skemmtunin
kl. 21. Hagyrðingamir Stefán
Vilhjálmsson, Bjöm Ingólfs-
son, Bjöm Þórleifsson og Ingi
Steinar Gunnlaugsson munu
gefa skáidagyðjunni lausan
tauminn en Birgir Svein-
bjömsson mun fara fyrir
hópnum.
Hagyrðingakvöld eiga vax-
andi vinsældum að fagna en
síðast þegar slík skemmtun
var haldin á Hótel KEA, síð-
astliðið vor, var fullt út úr
dymm og komust færri að en
vildu.
Sýningu
Drafnar
að ljúka
SÝNINGU Drafnar Frið-
finnsdóttur í Listasafninu á
Akureyri lýkur um næstu
helgi. Á sýningunni em trér-
istur og málverk og em verk
Drafnar sýnd í öllum þremur
sölum Listasafnsins.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli næstkomandi
laugardag, 26. október kl. 11
í Svalbarðskirkju og kl. 13.30
í Grenivíkurkirkju. Kyrrðar-
og fyrirbænastund í Grenivík-
urkirkju sunnudagskvöldið
27. október kl. 21.