Morgunblaðið - 07.12.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.12.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Golli Varð undir marki Mikil veikindi í skólum Viðvarandi pestar- ástand ÓVENJUMIKJÐ hefur verið um for- föll í skólum og dagvistarstofnunum höfuðborgarinnar í vikunni vegna veikinda. Greinst hafa tveir stofnar inflúensu og auk hennar er um að ræða gubbupest, niðurgang og flensu. Einnig er að ganga pest með höfuðverkjum, hita, beinverkjum, augnverkjum og einkennum í öndun- arvegi, samkvæmt upplýsingum Lúðvíks Ólafssonar, héraðslæknis í Reykjavík. I Steinahlíð við Suðurlandsbraut hafa verið óvenjumikil veikindi að undanförnu og eru enn, að sögn Amínu Sumarliðadóttur aðstoðar- leikskólastjóra. Þar eru 33 börn á tveimur deildum og vantaði um það bil helminginn á annarri deildinni. Ástandið var eitthvað skárra hjá eldri börnunum en meira en helming- urinn af starfsfólkinu var fjarver- andi vegna veikinda. í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi voru 50 nemendur af 219 veikir á miðvikudag en eitthvað færri í gær og fyrradag, að sögn Gísla Ellerup, aðstoðarskólastjóra. Atli Árnason, yfirlæknir á heilsu- gæslustöðinni í Grafarvogi, segir að þar sé mikið að gera og viðvarandi pestarástand. Hann segir fulla ástæðu tii að fólk fari eftir hinum gömlu og góðu húsráðum að fara varlega með sig og halda sig heima verði það veikt og láta lækni líta á sig. Það gildi jafnt fyrir börn og fullorðna. ÞAÐ skal tekið fram að gefnu til- efni, að auglýsingablað í gær, frá verslunum og þjónustufyrirtækjum í Skeifunni, var aðeins borið til kaupenda á Suðvesturhominu. TÍU ára gömul stúlka varð undir handboltamarki í íþróttahúsinu við Austurberg í fyrradag og fékk talsverða áverka í andliti. Meðal annars nefbrotnaði hún. Að sögn Gunnars Haukssonar forstöðumanns íþróttahússins höfðu verið fest upp badmintonnet í salnum og til að fjölga þeim hafði snúra verið fest við þverslá á markinu. „Þegar stúlkurnar voru að fara úr salnum ákvað ein þeirra að róla sér í snúrunni, með þeim af- leiðingum að markið hvolfdist yfir hana. Það hefur þurft talsverðan rykk til að markinu hvolfdi. Þetta leit mjög illa út í fyrstu en við brugðumst fljótt við og sjúkrabif- reið var komin á staðinn eftir ör- skamma stund,“ segir hann. Hann kveðst ekki telja hættu stafa af markinu sem slíku, þar sem þau séu stöðug að öllu jöfnu, en röng staðsetning snúrunnar og hnykkurinn sem komið hefur á markið við tiltæki stúlkunnar hafi valdið óhappinu. Hann segir að settar verði upp viðvaranir til þeirra sem nota íþróttahúsið, til að reyna að koma í veg fyrir að óhappið endurtaki sig, auk þess sem bannað verði að klifra eða hanga í mörkunum. Þijátíu lífshættuleg slys á fjórtán árum Aðspurður um þyngd umræddra marka, segir Gunnar þurfa þijá fullburða menn til að haída á þeim. „Þetta er að sjálfsögðu hræðilegt slys og ég lít mjög alvarlegum augum á það, en mér skilst þó að betur hafi farið en á horfðist í fyrstu,“ segir hann. Að sögn Herdísar Storgard, barnaslysavarnafulltrúa Slysa- varnafélagsins, hafa þijátíu lífs- hættuleg slys orðið á síðustu fjór- tán árum vegna marka sem ekki hafa verið nægilega vel fest niður. „Flest þessara slysa verða utan- dyra, en þau tvö síðustu urðu hins vegar innanhúss. Við byijuðum að ýta á eftir þessum málum fyrir fimm árum og smávægileg átak hefur verið gert, en úrbætumar eru litlar miðað við það hversu mikið höfum reynt að vekja at- hygli á þessu. í þessu tilviki var markið ekki í sínum réttu festing- um. Gagnrýnisraddir meðal sjálfstæðismanna vegna breytinga á Leifsstöð Hafa efasemdir um aðild að Schengen-samkomulaginu NOKKRIR þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa látið í ljós efasemdir um væntanlega aðild ís- lands að Schengen-samkomulaginu og þann kostnað, sem henni muni fylgja. Ástæðan er ekki sízt sú, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins, að þingmennirnir eru andsnúnir tillög- um um að 60 milljónir króna verði teknar af flugmálaáætlun til að greiða hluta kostnaðar við breytingar og stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, en það fé rynni ella til flugvalla á landsbyggðinni. Flugmálaáætlun er m.a. fjár- mögnuð með flugvallarskatti í Keflavík. Fleiri atriði varðandi Schengen eru gagnrýnd. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Vestfírð- inga, tók málið upp á þingflokksfundi Sjálf- stæðisflokksins í síðustu viku og tóku Einar Oddur Kristjánsson, Egill Jónsson og Halldór Blöndal samgönguráðherra undir athugasemd- ir hans, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Einar segir að sér finnist margt óljóst í málinu og upplýsingar vanti. Sér sé ávinningur- inn af Schengen-aðild ekki ljós, heldur hafí verið gefnar frekar óljósar yfírlýsingar um að norræna vegabréfafrelsið sé einn af hornstein- um íslenzkrar-iitanríkisstefnu. „Almennar yfír- lýsingar af því tagi nægja mér ekki,“ segir Einar. Þá segir hann að Ijóst sé að sjálfstætt til- efni sé til stækkunar og breytinga á Leifsstöð vegna aukinnar umferðar, en ekki nógu skýrt hversu stór hluti kostnaðar sé vegna Schengen- aðildar. Nú hafi komið fram upplýsingar í efna- hags- og viðskiptanefnd Alþingis um að fjár- festar og aðilar í verzlun, sem vilji koma vörum sínum á framfæri í Leifsstöð, séu tilbúnir að taka þátt í fjárfestingunni, eða a.m.k. leigja stærra rými en gert sé ráð fyrir á þeim teikn- ingum af stækkun, sem fyrir liggi. „Ef þessar uppiýsingar eru réttar virðist hin fjárhagslega hlið á málinu vera allt önnur og léttbærari," segir Einar. Hann segir loks að fyrirtæki í ferðaþjón- ustu, til dæmis flugfélögin, hafí efasemdir um gagnsemi Schengen-aðildar og óttist að af henni geti hlotizt kostnaður. Flugstöðin njóti eigin tekna Ríkisstjómin samþykkti í ágúst að endurfjár- magna 4,2 milljarða króna langtímaskuldir Leifsstöðvar, og að leggja 800 milljónir í við- byggingu við flugstöðina og endurbætur í nú- verandi byggingu, einkum vegna þess að flug- stöðin er orðin of lítil, en einnig vegna þeirra breytinga, sem Schengen-aðild krefst. Heildar- skuldir flugstöðvarinnar verða því fímm millj- arðar króna og er gert ráð fyrir að rekstur hennar standi undir greiðslu þeirra. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að sér sýnist að gagnrýnendur málsins í Sjálf- stæðisflokki blandi saman mörgum mismun- andi málum. „Spurningin er fyrst og fremst sú hvort það sé eðlilegt að flugstöðin njóti í engu þeirra tekna, sem þar koma inn,“ segir hann. „Þarna hefur verið safnað upp óreiðu- skuldum og þegar farið var aðtalajimað flug- stöðin ætti að njóta þess tekjuauka'sem þar kæmi í gegn, var það fyrst og fremst til að reyna að greiða eitthvað af þessum skuldum, sem enginn hefur viljað horfast í augu við.“ Halldór segir að stækka verði flugstöðina burtséð frá Schengen-aðild. „Þar kemur aftur upp sú spurning, hvort flugstöðin eigi í engu að njóta tekna af fríhöfn eða umferð þar í gegn,“ segir hann. Halldór segir að utanríkisráðuneytið hafí lagt áherzlu á að hafa framkvæmdina sem minnsta, en að hún þjóni samt sínum tilgangi. „Það hefur komið fram áhugi á að byggja miklu stærra til að koma fyrir miklu verzlunar- plássi. Það yrði mun dýrara og efasemdir eru um að það stæði undir sér. Það er líka álita- mál að hve miklu leyti á að flytja verzlun innan- lands á Keflavíkurflugvöll. Það virðist sem sumir hafí þá skoðun að þar eigi að setja upp eitthvað svipað og Kringluna í Reykjavík. Eg hef miklar efasemdir um það.“ Spurning um þátttöku eða einangrun Halldór segir aðalatriðið hvort ísland ætli að taka þátt í fijálsum flutningum fólks á milli landa eða vera einangrað. „Norræna vega- bréfasambandið hefur þjónað okkur vel í 40 ár og ég held að það þurfi ekki frekari sannan- ir en reynslu 40 ára. Ef við færum út úr því myndi ísland hafa algera sérstöðu og að mínu mati myndi það bæði hafa skaðleg áhrif á ferðamannastraum til jandsins og valda mikl- um óþægindum fyrir íslendinga, sem ferðast til útlanda," segir Halldór. Skíðasvæðið í Blá- fjöllum opnað í dag Góð veðurspá oggott skíðafæri SKÍÐASVÆÐIÐ í Bláfjöllum verður opnað í dag. Þrjár Iyft- ur verða í notkun, stólalyftan og tvær toglyftur. Opið verður frá kl. 11-15. Þorsteinn Hjalta- son fólkvangsvörður segir veð- urútlit og skíðafæri gott. „Það er víða þunnur snjór en hann heldur ágætlega. Ef menn fara með gætni er þetta ekkert vandamál.“ Viðræður standa nú yfir um að Bláfjallanefnd taki við rekstri skíðasvæðisins í Hamragili. Undanfarin ár hef- ur hann verið í höndum Iþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og íþróttafélag- anna ÍR og Víkings. Að baki Bláfjallanefnd standa sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. „Tilgangur- inn er að reyna að samræma reksturinn og ná hagræðingu,“ segir Þorsteinn. „Það verður haldinn fundur í næstu viku þjá Bláfjallanefnd og sennilega verður gengið frá þessu þar.“ Snjóbrettakappar á mynd- inni komu í Bláfjöll fyrst fyrir tveimur vikum og létu sig hafa það að vera lyftulausir. ---» ♦ ♦- Útafakstur í Ölfusi • • Okumaður alvarlega slasaður FÓLKSBÍLL með Ijórum ung- mennum á leið frá Hveragerði til Selfoss fór út af veginum til móts við bæinn Ingólfshvol í Ölfusi um klukkan tíu í gærmorgun. Öku- maðurinn slasaðist mikið og var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Hann fékk alvarlegan höfuð- áverka og liggur nú í öndunarvél. Tveir farþeganna liggja á Sjúkra- húsi Suðurlands á Selfossi með minni meiðsl en einn slapp ómeidd- ur. Mikil hálka var á veginum þegar slysið varð. Bíllinn er talinn gjörónýtur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.