Morgunblaðið - 07.12.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.12.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 41 AÐSENDAR GREINAR ÁRIÐ 1991 hófst starfsemi Tinda sem tilraunaverkefni til 3 ára. Þegar nær dró lok- um tilraunatímans var Hagsýslu ríkisins falið að gera úttekt á með- ferðarúrræðum fyrir unga _ vímuefnaneyt- endur. í þeirri skýrslu er flaliað um lélega nýtingu Tinda og að meðferðarþörf hafi ver- ið mjög ofmetin. Þar segir m.a.: „í opinberri umræðu hefur verið talið að hundruð ungl- inga þyrftu á vímu- efnameðferð að halda. Þessar áætlunartölur virðast hafa verið úr lausu iofti gripnar." Árið 1993 fól félagsmálaráðu- neytið Hagsýslunni að gera úttekt á stjórnsýslu, skipulagi og rekstri í málefnum barna og ungmenna. Nið- urstöður hennar var þungur áfellis- dómur; „meðferðarkerfi ríkisins er gallað, rekstur ósveigjanlegur, nýt- ing meðferðarheimila ófullnægjandi og rekstrarform meðferðarheimila óhagkvæmt.“ Sérstaklega fengu Tindar slæma einkunn í þeirri skýrslu. Hagsýslan vann síðan áfram að málinu í samráði við þáver- andi stjórnarnefnd Unglingaheimilis ríkisins. Árið 1994 lögðu þessir aðil- ar til að Tindar yrðu sameinaðir tveimur öðrum meðferðardeildum i eina, sem nú eru Stuðlar, jafnframt því sem langtímameðferðarrýmum yrði fjölgað. Þessar tillögur voru gerðar eftir ítarlega umfjöllun fag- fólks og í samráði við starfsfólk meðferðarheimila. Af ofangreindu má ráða að lokun Tinda haustið 1995 átti sér langan aðdraganda og ákvörðunin byggðist á faglegum og fjárhagslegum rök- um. Nánast allar forsendur sem menn gáfu sér í upphafi um starf- semi Tinda voru rangar. Lítum á nokkrar staðreyndir: 1. Gert var ráð fyrir því að 150-160 einstaklingar myndu leita eftir meðferð árlega. Raunin varð sú að 39 einstaklingar innrituð- ust árlega í meðferð að meðaltali, eða um íjórðungur af því sem áætlað hafði verið. 2. Gert var ráð fyrir 15 rýmum í upphafi. Vegna slakrar nýtingar var rýmum fækkað í 10 árið 1993. Nýtingin var mest 7,3 rými það ár og var komin niður í u.þ.b. 5 síðasta árið í starfseminni. 3. Innlagnir ungl- inga undir 18 ára voru orðnar fleiri hjá SÁÁ en á Tindum þrátt fyrir að Tindar væru sérstaklega ætlaðir yngsta aldurshópnum. 4. Mikill meirihiuti þeirra sem innlagðir voru í meðferð hlupust á brott áður en lágmarks dvalartíma lauk. 5. Tindar reyndust aldrei úrræði fyrir verst stöddu vímuefnaneytend- urna, svo sem upphaflega var áætl- að, heldur hafa þeir fengið meðferð á öðrum heimilum. Var vandinn einungis rekstrarlegur? Það gefur augaleið að þar sem starfsrammi Tinda var miðaður við mikið umfang kostaði reksturinn mikla fjármuni, 50-60 milljónir kr. á ári, eða um 25% af heildarútgjöld- um ríkisins tii barnaverndarmála, þ.m.t. rekstur allra meðferðarstofn- ana. Kostnaður á legudag var orðinn um 24 þús. kr. eða sex til átta sinn- um meira en sólarhringurinn í áfengismeðferð hjá SÁA. Fyrir þetta fé var unnt að veita allt að þrisvar sinnum fleiri börnum með- ferð á hveijum tíma en voru á Tind- um, sé miðað við rekstrarkostnað annarra heimila sem rekin eru skv. barnaverndarlögum. Siðferðilegar spurningar voru þess vegna áleitn- ar; var réttmætt að reka Tinda áfram þegar nýtingin var innan við 50% og fór minnkandi á sama tíma og löng biðröð barna- var eftir dvöl á aðrar meðferðarstofnanir? Með öðrum orðum, var skynsemi í þeirri meðferð opinbers fjár, að veija ijórðungi þess sem kostað var til barnaverndarmála í þetta verkefni eitt, sem mjög fáir nutu góðs af? Við þetta úrlausnarefni var margs að gæta. í fyrsta lagi: Var unnt að lækka kostnaðinn með hag- ræðingu? Á Tindum var starfsemin með vaktavinnufyrirkomulagi og fór fram í þrem aðskildum húsum sem krafðist mikils mannahalds. Kannað var hvor unnt væri að breyta rekstr- Það gefur augaleið að meðferð sem byggist á hóplækningu, segir Bragi Guðbrandsson, í annarri grein um Tinda, getur ekki farið fram við þær aðstæður og stofnunin því óstarfhæf. arformi, m.a. var starfsfólkinu gef- inn kostur á að reka heimilið fyrir minni fjármuni. Þá fóru fram þreif- ingar um hugsanlega yfirtöku SAA á Tindum en án árangurs. Engan þarf að undra það í ljósi yfirlýsingar Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis á ráðstefnu um unglingameðferð ný- lega um að skv. hans útreikningum væru einungis 15-20 ungmenni und- ir 18 ára „meðferðartækir", þar af mætti gera ráð fyrir að unnt væri að halda 10 í meðferð á ári. Því væri ekki rekstrargrundvöllur fyrir sérstaka stofnun fyrir þá. Hann kynnti líka þá skoðun sína að árang- ursríkara væri að blanda unglingum og fullorðnum saman í meðferð eins og gert er hjá SÁÁ heldur en að reka sértæka vímuefnameðferð fyrir unglinga eins og gert var á Tindum. Hver var árangurinn? Annað úrlausnarefnið var að meta árangur meðferðarstarfsins. Við athugun kom í ljós að hátt í 80% þeirra sem voru innlagðir fóru úr meðferð áður en lágmarkstíma lauk. Einungis 22% innskrifaðra lauk lágmarkstíma, a.m.k. tveggja mánaða meðferð. Af heildarfjölda innlagðra batt fjórðungur enda á meðferð sína á fyrstu sex dögum meðferðarinnar. Þetta hlýtur að vera umhugsunarefni, því allar rannsóknir sem gerðar hafa verið á árangri í áfengismeðferð sýna að þeir sem hlaupast úr meðferð ná litlum eða engum árangri. Með hlið- sjón af háu brottfalli úr meðferð annars vegar og að meðalnýting var komin niður í um 5 rými hins veg- ar, liggur ljóst fyrir að á löngum tímabilum var hópurinn sem var í meðferð á hveijum tíma afar lítill. Enda kom það í ljós að á síðasta starfsári Tinda voru skjólstæðingar í meðferð innan við 5 hartnær helm- ing timans og jafnvel 2 til 3 á löng- um tímabilum. Það gefur augaleið að meðferð sem byggist á hóplækn- ingu getur ekki farið fram við þær aðstæður og stofnunin því óstarf- hæf. Greining á þeim unglingum sem leitaði meðferðar á Tinda bendir ekki til að sá hópur hafi verið veru- lega frábrugðinn þeim sem vistaðist til meðferðar á öðrum heimilum. Afar sjaldgæft er að unglingar séu orðnir fíknir, lang flestir eiga við fjölþættan vanda að etja og er neysla áfengis og annarra vímuefna oftast birtingarform félagslegra og tilfinningalegra vandamála. Þannig er ljóst að unglingar í vímuefna- vanda þurfa flestir á fjölþættri með- ferð að halda. Þó neysla vímuefna sé sjálfstætt vandamál, sem þarf að meðhöndla sérstaklega, þurfa flestir þessara unglinga sömu með- ferð og veitt er á öðrum meðferðar- heimilum. í lokagrein minni mun ég fjalla um á hvern hátt meðferðarkerfi rík- isins hefur verið breytt og hvernig það fjármagn sem sparaðist með lokun Tinda hefur komið fleiri ungl- ingum til góða, bæði þeim sem eiga í vímuefnavanda og öðrum. Höfundur er forsljóri Barnaverndarstofu. Vímuvandi barna og meðferðarþörf Af hverju var Tindum lokað? Bragi Guðbrandsson S]ÓNVARP UM GERVIHNÖTT VERTU ÞINN EIGIN DAGSKRÁRST)ÓRI Einstaklingsbúnaður 1.2 mtr. diskur, DIGITAL Ready nemi, 0.7 dB. Fullkominn stereo móttakari m/fjarstýringu og truflanasíu fyrir veikar sendingar. Verð frá kr. 39.900,- stgr. Erum einnig með búnað fyrir raðhús og fjölbýlishús á qóðu verði elnet Auðbrekka 16, 200 Kópavogur • Sími 554 - 2727 EINI DJÚPSTEIKINGARPOTTURINN MEÐ HALLANDI SNÚNINGSKÖRFU: * Olíunotkun aðeins 1,2 Itr. í stað 2,5 Itr. í venjul. pottum. * Styttri steikingartími, jafnari steiking og 50% orkusparnaður. * Einangrað ytrabyrði og sjálfhreinsihúðað innrabyrði. * Gluggi á loki og 20 mín. tímarofi með hringingu. FALLEGUR FYRIRFERÐARLÍTILL FLJÓTUR. Verð aðeins ffá lcr. 7.690,- til kr. 16.990,- (sjá mynd). iFOnix HÁTÚNI6A REYKJAVlK SlMI 552 4420 ^ótvatepp^ E,nn’g onfð iTnud^g U 13-188 Langur laugardagur SÉRTILBOÐ t.d. kínversk silkiteppi með 40% afslætti Hverfisgata 82 — við hliðina á K 30 gerdir af sœtum sófum b1* \6ia^"a nIeSö / sœtir sofar HUSGAGNALAGERINN Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 SJALFSRÆKTAREFNII Snældur — Staðfestingar — Spáspil Víkingakortin: Víkingakortin eru fyrstu og einu íslensku spáspilin. Þau eru byggð á andlegum hefðum vfkinganna og tengd inn á hinn andlega víking nútímans, sem leitar eftir auknum persónulegum þroska. Kortin eru 32 og með þeim fylgir bók, þar sem kenndar eru lagnir og úrlestur úr þeim og fjallað um túlkun hvers korts fyrir sig. Auðveld og að- gengileg fyrir alla. Hægt er að fá kortin á ensku og þýsku. Höfundur: Guðrún G. Bergmann. Myndskreyting: Ólafur G. Guðlaugsson. Hugleiðslusnældur: Fimm mismunandi gerðir af leiddum hugleiðslum með fallegri tínlist í bak- grunninn. Þær heita: Tré Lífsins - Slökun - Efling orkustöðvanna - Heilun jarð- ar - Elskaðu líkamann. Höfundur: Guðrún G. Bergmann Staðfestingar og verndarenglar: Staðfestingar eru byggðar á jákvæðum orðum, sem endurtekin eru aftur og aftur, þar til meiningin, sem á bak við þau liggur verður að raunveruleika í huga og þar með lífi okkar. Tvær gerðir: Kærleikskorn og elskaðu líkamann og Verndarenglar, sem gera þig meðvitaðri um návist englanna. Höfundur: Guðrún G. Bergmann Okkar markmið er... að hjálpa þér að ná þínu! Dreifing í síma: 567 3240 Brekkubæ, Hellnum, 355 Snæfellsbæ, sími 435 6800, fax 435 6801. LEIÐARLJ*S ehf. Leiðandi í útgáfu á sjálfsræktarefni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.