Morgunblaðið - 07.12.1996, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.12.1996, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Móðir mín, t GUÐNÝ BJÖRNSDÓTTIR frá Eskifirði, Grænuhlíð 16, Reykjavík, er látin. Björn Karlsson. t Systir okkar og mágkona, STEINUNN ÁGÚSTSDÓTTIR, andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn 4. desember. Kveðjuathöfn verður í Fossvogskapellu mánudaginn 9. desember kl. 10.30. Jarðsett verður frá Sæbólskirkju laugardaginn 14. desember kl. 14.00. Fyrir hönd vina og ættingja, Guðmundur Ágústsson, Guðni Ágústsson, Jónína Ágústsdóttir, Pétur Þorkelsson. t Ástkær eiginmaður, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTINN SKÚLASON, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju mánudaginn 9. desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á heimahlynningu, Skógarhlíð 8. Anna Lísa Jóhannesdóttir, Heiðveig Björg Árnadóttir, Kristrún Sigurðardóttir, Jens Þorsteinsson, Elsabet Sigurðardóttir, Hörður Sævar Hauksson, Skúli Sigurðsson, Ragna Þorvaldsdóttir, Erla K. Sigurðardóttir, Bjarki Þ. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir og bróð- ir, BJARNI JÓNSSON tæknifræðingur, 18515-42 PL-W, Lymwood Wa 98037, lést í Arisona miðvikudaginn 4. desember. Sólveig Ölversdóttir, Ölver, Matthildur og Margrét, GeirJónsson, Arnbjörg Jónsdóttir, GuðmundurJónsson, JónasJónsson. t Útför föðir okkar og tengdaföður, ARINBJARNAR SIGURÐSSONAR, Snorrabraut 56, Reykjavík, fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 9. desember kl. 13.30. Sigurður Örn Arinbjarnarson, Halldóra Ingjaldsdóttir, Júli'us Roy Arinbjarnarson, Helga Stefánsdóttir, Robert Arinbjarnarson, Arthúr Arinbjarnarson, Svanur Arinbjarnarson, Magnús Arinbjarnarson, Sigurbjörg Sigurbjarnadóttir, Elísabet Sævarsdóttir, Guðbjörg Erlíngsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆMUNDUR SIGURÐSSON málarameistari, Ferjuvogi 15, sem lést sunnudaginn 1. desember, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánudaginn 9. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Orgelsjóð Langholtskirkju. Sigrfður Þórðardóttir, Inga Rúna Sæmundsdóttir, Hafsteinn Pétursson, Koibrún Sæmundsdóttir, Björn Ardal, Auður Stefanía Sæmundsdóttir, Sigurður Rúnar Sæmundsson, Anna María Steindórsdöttir, barnabörn og barnabarnabörn. RAGNHILDUR G UÐJÓNSDÓTTIR + Ragnhildur Guðjónsdóttir húsfreyja að Rauðafelli, Austur- Eyjafjallahreppi, var fædd að Rauf- arfelli í sömu sveit 1. júní 1912. Hún lést á Ljósheimum, dvalarheimili aldr- aðra á Selfossi 29. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Guðjón Tómasson, bóndi, Selkoti, Austur- Eyjafjallahreppi, og Ingveldur Jónsdóttir frá Lambafelli, Austur-Eyjafjalla- hreppi. í júní 1938 gekk Ragnhildur í hjónaband með Jónasi Hjör- leifssyni frá Skarðshlíð, Aust- ur-Eyjafjallahreppi. Jónas var fæddur 2. janúar 1909 og dó 30. september 1991. Þau eign- uðust 5 börn: 1) Guðrún Anna, fiskverkakona, Hornafirði, f. 4. nóvember 1939, gift Hilmari - Arnasyni, ritsímaritara. Börn þeirra: 1. Jónas Ragnar í sam- búð með Friðlaugu Guðjóns- dóttur. Dóttir þeirra Matthild- ur Sara. Fyrir átti Jónas Jón Hilmar og Oldu Guðrúnu. Son- ur Friðlaugar er Alexander Marinó. 2. Guðrún. 3. Reynir í sambúð með Svölu Björk Krist- jánsdóttur, dóttir þeirra Anna Mekkín. 2) Guðný Ingunn, fisk- verkakona, Reykjavík, fædd 26. mars 1942. Var gift Sigurði Benjamínssyni sjómanni, en þau slitu samvistum. Þeirra börn: 1. Hlynur Orn, í sambúð með Ragnheiði Sig- urðardóttur. 2. Inga Berglind, í sambúð með Gesti Arnarsyni, sonur þeirra Hlynur Orn. Stjúpsynir Guðnýj- ar eru 1. Albert Sig- urðsson, kona hans er Kristín Einars- dóttir, dóttir þeirra Guðrún. Fyrir átti Albert dæturnar Guðlaugu Ingi- björgu og Sædísi Hörpu. 2. Jónas Karl, kona hans er Eiríka Olafsdóttir, börn þeirra Sigurður, Fanney og óskírð. 3) Þórhildur húsmóðir, Vest- mannaeyjum, f. 9. febrúar 1945. Hún er gift Ólafi Má Sigmunds- syni, útgerðarmanni. Þeirra börn: 1. Stefán, í sambúð með Helenu Árnadóttur, dóttir þeirra er Þórhildur Ósk. Fyrir átti Helena soninn Sigurð Árna. 2. Hörður Ársæll, í sambúð með Þuríði Henrýsdóttur. Þau eiga tvo syni, Ólaf Má og Henrý. 3. Ragnhildur, í sambúð með Ragnari Waajg Pálmasyni, dótt- ir þeirra er Olöf Marín. 4) Þor- steinn, bóndi, Rauðafelli, Aust- ur-Eyjafjallahreppi, f. 5. janúar 1951. Kona hans er Árný Guð- laugsdóttir húsmóðir. Þeirra börn eru: 1. Vignir. 2. Þóra Hjördís. 3. Harpa Dögg. 4. Berglind Björk. 5) Guðni Rún- ar, sjómaður, f. 6. febrúar 1952. Útför Ragnhildar verður gerð frá Eyvindarhólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku mamma, nú ert þú farin frá okkur á fund feðranna. Við kveðjum þig með trega og tár á kinn og þökkum þér fyrir allt sem þú varst okkur. Minninguna um þig geymum við í hjörtum okkar. Hvíl þú í friði. Þessi dagur nú úti er en náttar tíð að höndum fer. Guð minn góður, ég gef mig þér, gættu nú enn í nótt að mér. Almáttug hönd og ásjá þín enn hefur náð og séð tii mín. Lof sé þér Guð fyrir lán og hag, lífið heilsu og vemd í dag. Ég vil ganga til náða nú, nú bið ég, Guð, mig geymir þú. Vertu hér minni hvílu hjá, hjá mér vak’ þú og að mér gá. (S. Jónsson frá Presthólum) Guðrún Anna, Guðný Ingunn, Þórhildur, Þorsteinn og Guðni Rúnar. Ragnhildur Guðjónsdóttir er lát- in, 84 ára að aldri. Mig grunar að Ragga eins og ég kallaði hana allt- af, hafi verið hvíldinni fegin að loknu dtjúgu dagsverki. Ragga var ein af hvunndagshetjunum, vann verk sín í hljóði, af myndarskap og rausn, kom upp fimm mannvænleg- um börnum og var manni sínum stoð og stytta gegnum lífið. Ekki var Ragga víðförul eða sótt- ist eftir metorðum, heldur undi sér best heima við innan um það sem henni var kærast, Jónas, börnin, barnabörnin og síðast en ekki síst dýrin. Metnaður hennar fólst í því að hugsa sem best um allt þetta og víst er að Röggu tókst það vel. Oft sagði ég við hana að ég hefði gjarnan viljað vera hann Smali, sem var síðasti hundurinn hennar en undravert þótti mér hvað Jiún gat stjanað kringum hundinn. Á sumrin komu barnabörnin í sveitina til afa síns og ömmu og var oft líf og fjör í tuskunum. Myndaðist milli þeirra mikill kærleikur og barnabörnin báru mikla virðingu fyrir afa sínum og ömmu. Tel ég víst að börnin muni búa að kynnum sínum við gömlu hjónin alla sína tíð. Gestkvæmt var oft á Rauðafelli og öllum tekið þar opnum örmum. Óteljandi voru ferðir mínar upp að Rauðafelli og ég ævinlega talinn mikill aufúsugestur. Margar voru þær stundirnar sem setið var í eld- húsinu á Rauðafelli þar sem ætíð ríkti mikil gleði og kærleikur og var gasprað og hlegið oft dátt. Ragga tók ekki mikinn þátt í þessu frjáls- lega tali heldur sat frekar hjá, brosti og sussaði hæglátlega á menn þeg- ar henni þótti nóg um. Ragga var sérstaklega vönduð kona til orðs og æðis og bar heimilið þess vott. Aldrei varð ég var við að þar félli styggðaryrði um nokkurn mann. Ragga og Jónas voru mjög sam- hent og dugleg. Á fyrstu búskapar- árum þeirra á Rauðafelli var þröngt í búi og sótti Jónas sjóinn meðan Ragga sá um börn og bú af miklum dugnaði. Aldrei heyrði ég hana t Eiginmaður minn, JÓN GUNNAR KRAGH, Árskógum 8, er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurli'n Gunnarsdóttir. kvarta þó hún hafi ekki alltaf verið heilsuhraust síðustu árin. Með Röggu er gengin einhver sú vandaðasta kona sem ég hefi kynnst. Það eru forréttindi að fá að kynnast fólki sem þeim hjónum og ber að þakka það. Bömum Röggu og fjöl- skyldum þeirra sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Sigurður Jónsson, Varmahlíð. Hún elsku amma okkar er dáin. Amma dvaldist á hjúkrunarheimil- inu Ljósheimum á Selfossi í tæp 2 ár. Við vitum að hugur hennar var ætíð heima í sveitinni á Rauðafelli enda var amma alla tíð mjög heima- kær. Hvergi undi hún sér betur en einmitt heima hjá sínu fólki og sín- um dýrum. Amma var ekki mjög félagslynd kona og ekki var hún mikið fyrir flakkið en gott þótti henni að vera heima að sjá um sig og sína. Og það gerði hún svo sann- arlega þegar við vorum hjá henni í sveitinni, þá sá hún alltaf vel um að við fengjum nú örugglega nóg að borða. Við vorum iðulega ein- hveijum kílóum þyngri eftir dvöl- ina, enda alltaf nóg á boðstólum. Okkur er sérstaklega minnisstætt hvað brauð með osti og matarkex var alltaf vinsælt hjá ömmu, eitt- hvað sem þýddi ekki að bjóða okkur upp á annars staðar. Það var nú líka alltaf gott að hafa ömmu til staðar ef maður var svo óheppinn að týna einhveiju, því þá var ekki annað en að kalla í hana og fyrr en varði birtist hún með einmitt glataða hlutinn. En hún amma hugsaði ekki ein- ungis vel um börnin sín því alla tíð var hún dýravinur mikill og sannað- ist það á útliti þeirra dýra sem hún átti í gegnum tíðina. Síðustu árin átti hún hundinn Smala sem hún hugsaði um eins og barnið sitt. Það var eins og einn heimiiisvinurinn sagði í einni af sínum fjölmörgu heimsóknum. „Ja, mikið held ég að það sé gott að vera hundur hjá henni Ragnhildi." Og það voru al- veg ábyggilega orð að sönnu því alltaf er við heimsóttum hana á Ljósheima spurði hún um Smala sinn, sveitina sína, sem og allt fólk- ið sitt. Það var tómlegt að koma í sveit- ina eftir að amma fór á Ljósheima, enginn sem tók á móti manni og stóllinn hennar í eldhúsinu auður. Þetta var mikil breyting fyrir okkur krakkana. Alveg frá því við munum eftir okkur var kapphlaup um að komast fyrstur út úr bílnum og í fangið á ömmu sem beið með bros á vör á tröppunum. Oft voru bíl- dyrnar meira að segja opnaðar áður en bíllinn náði að stoppa. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stn'ð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Allar stundir okkar í sveitinni hjá ömmu eru okkur ógleymanlegar og eiga aldrei eftir að líða úr hjörtum okkar. Eitt er víst, elsku amma, að þú skilur mikið eftir þig. Við munum aldrei gleyma þeirri hlýju og ástúð sem þú veittir okkur. Þó við kveðj- um þig með söknuði þá er það okk- ur huggun að vita af þér hjá afa. Allt er að þakka þér það gott, sem hljótum vér um allar aldaraðir, eilífi ljóssins faðir. Ég veit, að aldrei dvín ástin og mildin þín, því fel ég mig og mína, minn Guð í umsjá þína. (H. Andrésd.) Þín barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.