Morgunblaðið - 07.12.1996, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 63
I DAG
BRIDS
llmsjón (iurtmuiMlur l’áll
Arnarson
SAMNINGAR á 4-3-sam-
legu eru oft erfiðir í úr-
vinnslu. Lesandinn ætti að
skyggja á hendur AV og
gera síðan upp við sig
hvernig best sé að spila sex
iauf í suður. Útspilið er tíg-
ulkóngur.
Norður
♦ ÁD7B3
V ÁDG
♦ 9
♦ DG74
Vestur
♦ 108
* 7642
♦ KD6
+ K632
Austur
♦ G542
V 983
♦ G853
♦ 85
Suður
♦ K9
y K105
♦ Á10742
♦ Á109
Styttingur fundinn! í
góðri legu gætu unnist sjö
lauf, en þá þarf spaðinn að
falla og laufkóngur að vera
annar eða þriðji réttur. En
það eru ströng skilyrði og
mun líklegra er að annar
eða báðir svörtu litirnir
brotni 4-2.
í sæti suðurs var ítalinn
Pietro Forquet. Hans áætl-
un gekk út það að hjartað
lægi 4-3 í vörninni, en á því
eru um það bil 62% Iíkur.
Hann drap á tígulás og
trompaði strax tígul. Síðan
tók hann spaðaás og kóng
og stakk tígul aftur. Þrír
efstu í hjarta fylgdu í kjöl-
farið og þegar enginn
trompaði hjartakónginn var
stærsta hindrunin yfirstig-
in.
í blindum átti sagnhafl
nú D76 í spaða og DG í
laufí. Heima var Forquet
með tvo tígla og Á109 í
laufi. Hann spilaði tígli og
trompaði í borði þegar vest-
ur henti hjarta. Síðan
trompaði hann spaða með
laufás og spilaði síðasta
tíglinum, sem hann gat
trompað með drottningu
blinds. Vestur fékk því að-
eins einn slag á laufkóng.
Pennavinir
ENSKUR 23 ára háskóla-
nemi með mikinn íslandsá-
huga:
Richard MacDonald,
4 York Buildings,
London,
WC2N 6JN,
England.
SAUTJÁN ára finnsk stúlka
vill skrifast á við 16-20 ára
pilta og stúlkur:
Hanna Rinne,
Auringonkatu 6A3,
02210 Espoo,
Finland.
FIMMTÁN ára sænsk stúlka
með áhuga á tónlist, bréfa-
skriftum o.fl.:
Johanna Ljungblom,
Brogatan 19,
733 33 Sala,
Swedcn.
FRÁ Japan skrifar 23 ára
stúlka með áhuga á frí
merkjum og póstkort-
um,tónlist, íþróttum o.fl.:
Shiho Murakami,
1-7-3-601 Jyosei-cho,
Marugame-shi,
Kagawa,
763 Japan.
NÍTJÁN ára norsk stúlka
með áhuga á tónlist o.fl.:
Camilla Aarö,
Marcus Thranes Gt. 17,
3045 Drammen,
Norway.
TUTTUGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga á
tísku, kvikmyndum, tónlist,
kvikmyndum, ferðalögum
o.fl.:
Natalia Datson,
P.O. Box 117,
Oguaa Town,
Central Region,
Ghana.
Árnað heilla
nro
I O r
ÁRA afmæli. A
morgun, sunnudag-
inn 8. desember verður sjö-
tíu og fimm ára Sigurður
G. Ingólfsson, fyrrver-
andi flugvirki.
/? #AÁRA afmæli. í dag,
Ovflaugardaginn 7. des-
ember, er sextug Þóra VaJ-
gerður Antonsdóttir,
Smyrlahrauni 15, Hafnar-
firði. Hún og eiginmaður
hennar, Friðþjófur Sig-
urðsson, taka á móti gest-
um á heimili sínu í kvöld
milli kl. 20 og 23.
pf /\ÁRA afmæli í dag, laugardaginn 7. desember, er
O U fimmtugur Karl Orn Karlsson, tanniæknir, Há-
teigsvegi 26, Reykjavík. Kona hans, Kristín Blöndal,
myndlistarkona, verður fimmtug þann 9. desember nk.
Þau taka á móti gestum eftir kl. 20.30 í kvöld.
Með morgunkaffinu
*
FINNST þér skordýrin ekki svolítið
stór miðað við árstíma?
COSPER
MAÐURINN minn er svo gleyminn að þegar hann
kyssir mig á öxlina gleymir hann alltaf að taka
út úr sér vindilinn.
STJÖRNUSPA
eftir I'ranccs Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefurgott vit á viðskiptum
og kemur vel fyrir þig orði.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl) iHft
Þér tekst að ganga frá hag-
stæðum samningum fyrri hluta
dags. Síðdegis verður fjöl-
skyldan í sviðsljósinu og á góð-
ar stundir saman.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einkamálin eru ofarlega á
baugi í dag og einhugur ríkir
hjá ástvinum. Þú eignast mjög
áhugaverða kunningja í kvöld.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Þú nýtur þín í félagslífinu í dag
og átt góðar stundir í vina-
hópi. Eftir annasama vinnu-
viku átt þú skilið að slaka á í
kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gættu þess að verðskynið sé í
lagi þegar þú kaupir inn til
heimilisins. Þú ert hvíldar þurfi
og ættir að vera heima í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nokkur tími fer í það i dag að
ljúka verkefni sem þú tókst
heim úr vinnunni. Svo ættir
þú að ihuga að bjóða heim
gestum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) n
Ráðamaður gerir þér tilboð,
sem getur leitt til batnandi
afkomu í framtíðinni. Ástvin-
um er boðið t samkvæmi í
kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Hagsmunir ástvina og fjöl-
skyldu eru í sviðsljósinu í dag
og vinur þarf á aðstoð að halda,
sem þú ert vel fær um að veita.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér eru allir vegir færir í dag
og þú nýtur mikilla vinsælda í
félagslífinu. Þegar kvöldar bíð-
ur þín ánægjuleg afþreying.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú kemst í góð sambönd í
mannfagnaði síðdegis og færð
óvænt tækifæri til að auka
tekjurnar. Sinntu ástvini í
kvöld.
Steingeit
(22.des. - 19.janúar)
Vinur gefur þér góð ráð sem
reynast vel í viðskiptum dags-
ins. Þér berst spennandi boð
sem getur leitt til ferðalags.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú ert að íhuga meiri háttar
fjárfestingu vegna heimilisins
á næstunni. Kannaðu málið vel
og hafðu samráð við fjölskyld-
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Ástvinir þurfa tima útaf fyrir
sig og ráðgera að skreppa sam-
an í stutta helgarferð. Góðar
fréttir berast af fjármálunum.
SKOLAf ÖRÐfHnmilINI
IfejWllllJ i llUii
OPIÐ f DAG
Laugardag frá kl. 10
og á morgun sunnudag frá
Dúndurtilboð á
þægilegum og fallegum fötum
sem endast og endast.
Sendum í póstkröfu - sendum
bæklinga út á land ef óskað er.
BARNASTIGUR
BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955
SKÓLAVÖRÐUSTIG 8 SÍMI 552 1461
.KOLAPORTIÐ
Opið um helgar kl. 11-17
Qpið VIRKA DAGA kl. 12-18
jólapakkann
hennar mömmu
á^..í jólapakkann
hans pabba
..í jólapakkann
hja ömmu og afa
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
®..í jólapakkann
hja krökkunum
Skartgripir
Leikfong
Tískufatnaður
Austurlensk vara
Skófatnaður
Snyrtivörur
Ilmvötn
Antikhúsgögn
. Geisladiskar
Glervara
Matvæli ..og ótal
margt fleira
Gottverð
Mikil gæði
®..í jólamatinn
handa öllum ____________
..og þetta er aðeins
sýnishorn af vöruúrvalinu.
OKökugcrd Sigrúnar
Jólabrauðið er komið - þið ættuð að smakka
’ Hún Sigrún er mætt mcð rjúkandi jólabrauðið alla lcið frá Ólafsfirði.
smákökurog
söludagur Sigmnar fyrir jól i
..sem sló eftirminnilega i gegn um jólin í fyrra
Benni er um þessa helgi með áskorun til þeirra sem vilja feitt og saltað
hrossakjöt -á meðan birgðir endast. Hann er iíka með reykt og söltuð svið,
hangilærin góðu, áleggið ljúfa, ostafylltu lambaframpartana, hangiböggl-
ana, nýju Dalakoff áleggspylsuna og núna Dalahangikjötið góða.
(0 Þorlúksmessuskata
k - Þú kaupir eitt kíló af ýsuflökum og færð annað frítt
• Hrefhukjöt, höfrungakjöt, saltað hvalspik og glænýr lax. Um helgina
verður boðið upp á glænýja rauðsprettu, sólþurrkaðan saltfisk og úrval af
fiskiréttum, fiskbökum og fiskibollum. Einnig glænýr steinbítur,
. þorskhrogn, reyktur gulllax, linuýsa, reykt grásleppa, kriddsíld og saltsíld.
* Komdu í Kolaportið -jL-
-þar sem allt fæst í jólapakkann r\
og jólamatinn á góðu verði
KOLAPORTIÐ ~k
-líka IIWffilBHBíffRSlHHkam tii jóia