Morgunblaðið - 07.12.1996, Side 8
8 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
■.iirmi;r.ir.u.TH
Kvótaveðsetningm
stendur í Framsókn
Þjófnaður aldarinnar
Innan tíðar mun ríkisstjómin frcista þcss að lögfesta í citt skipti
i fGrfiAuldO
JÁ en Davíð, þú varst búinn að lofa mér fagmanni . . .
Lyfsali ósáttur við lyfjabúðir í næsta nágrenni
Sýkna af kröfu um
ógildingu lyfsöluleyfa
HÆSTIRETTUR hefur sýknað
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra af kröfum Vigfúsar Guð-
mundssonar, eiganda Borgarapó-
teks, um ógildingu á tveimur nýj-
um lyfsöluleyfum í Lágmúla og
Skipholti. Ennfremur voru þau
Ingi Guðjónsson og Guðríður Ein-
arsdóttir, sem hlutu þessi leyfi,
sýknuð af kröfum um að þau yrðu
ógilt. Dómurinn staðfestir niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í
júlí sl.
Vigfús tók við rekstri Borg-
arapóteks 1. janúar 1995. Haust-
ið 1995 varð ljóst að áformað
væri að stofna nýja lyfjabúð í
Lágmúla, eða í innan við 200
metra fjarlægð frá Borgarapó-
teki. Vigfús lýsti því yfir gagn-
vart heilbrigðisráðherra að veit-
ing nýs lyfsöiuleyfis svo nærri
Borgarapóteki yrði til þess að
kippa fótunum undan rekstri fyr-
irtækisins. Borgarráð lagðist ekki
gegn þessu lyfsöluleyfi á þessum
stað né heldur að veitt yrði lyf-
söluleyfi í Skipholti. Voru leyfin
veitt í apríl sl.
Vigfús höfðaði mál á hendur
heilbrigðisráðherra og þeim Inga
og Guðríði í júní og krafðist ógild-
ingar á umræddum lyfsöluleyfum.
Var málshöfðunin byggð á því að
ákvarðanir heiibrigðisráðherra um
veitingu lyfsöluleyfanna brytu í
bága við það ákvæði lyfjalaga þar
sem fjallað er um fjarlægð milii
lyfjabúða.
Engar
leiðbeiningar
í dómi Hæstaréttar segir, að í
lyfjalögum sé ekki að finna sér-
stakar leiðbeiningar er lúta að
íbúafjölda að baki væntanlegri
lyfjabúð og fjarlægð hennar frá
næstu lyfjabúð. Sveitarstjórn geti
mælt gegn veitingu leyfis á grund-
velli slíkra sjónarmiða, ef hún telji
þau einhveiju skipta. Ráðherra
fari hins vegar með sjálfstætt mat
og ákvörðunarvald. „Verður að
telja að hann hafi við veitingu
Elizabeth Arden
kynning verður í dag
í Top Class, Laugavegi 45.
Kynntur verður nýi ilmurinn, Chloe Innocence.
Spennandi tilboð og 20% afsláttur af öllum
vörum frá Elisabeth Arden.
Laugavegi 45,
sími 551 2128
þeirra lyfsöluleyfa, sem hér um
ræðir, litið til þess meðal annars,
að borgarstjórn Reykjavíkur sá
ekki ástæðu til að gera athuga-
semdir við_ staðsetningu nýrra
lyljabúða. Áfrýjandi hefur ekki
sýnt fram á, að ákvarðanir ráð-
herra hafi verið haldnar þeim ann-
mörkum, að varðað geti ógildingu
þeirra.“
Hæstiréttur dæmdi Vigfús til
að greiða samtals 300 þúsund
krónur í málskostnað. Dóminn
kváðu upp hæstaréttardómararnir
Pétur Kr. Hafstein, Garðar Gísla-
son, Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur
Torfason og Hrafn Bragason.
Hjörtur skilaði sératkvæði, þar
sem segir m.a. að umsögn borgar-
stjórnar hafi farið fjarri að tæma
þau álitaefni, sem skoða átti sam-
kvæmt lögum og hafi ráðuneytinu
mátt vera það ljóst. Veiting lyf-
söluleyfanna hafi því átt sér stað
án fullnægjandi undirbúnings og
þannig farið í bága við ákvæði
laganna. Því bæri að ógilda hana.
Dalvíkur-
prestakall
auglýst
BISKUP íslands hefur auglýst laust
til umsóknar Dalvíkurprestakall,
Eyjaíjarðarprófastsdæmi. Sóknir
prestakallsins eru Valla-, Urða-,
Tjarnar- og Upsasóknir.
Sem kunnugt er mun sr. Jón
Helgi Þórarinsson taka við embætti
sóknarprests í Langholtsprestakalli,
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
Umsóknum um embættið ber að
skila til biskups íslands fyrir 15.
janúar 1997.
Fyrirlestur um hjálparhugtakið
Hvernig birtist
hjálpsemin í
velferðarkerfinu?
SIÐFRÆÐISTOFN-
UN og Framtíðar-
stofnun boða til fyr-
irlesturs fyrir almenning á
mánudagskvöldið 9. des-
ember klukkan 20:15 í
stofu 101 í Odda, þugvís-
indahúsi Háskóla íslands,
um hjálpar- og velferðar-
hugtakið. En á síðustu
árum hefur borið á gagn-
rýni á velferðarkerfin í
Evrópu og jafnvel orð fallið
um að þau hafí brugðist
hlutverki sínu. Fyrirlesari
er Jón Bjömsson fram-
kvæmdastjóri menningar-,
uppeldis- og félagsmála í
Reykjavík.
- Hvert er efni fyrirlest-
ursins?
„Hann er um hjálpar-
hugtakið en ekki síður um
velferðarkerfið. Víða hafa
menn velt því fyrir sér hvort vel-
ferðarkerfið virki eins og því var
ætlað að gera. Margir efast um
það og hafa komið með ásakanir
á hendur því sem_ styðjast við
raunveruleg dæmi. Eg mun í mín-
um lestri koma með mögulega
skýringu á því hvers vegna kerfið
virkar ekki sem skyldi.
Raunverulegt hjálparsamband
milli tveggja einstaklinga byggir
á alkunnum forsendum. Eg er
hinsvegar að velta fyrir mér
hvernig velferðarkerfið, sem
skriffinnskukerfi milli hópa í sam-
félaginu, standi gagnvart þeim
þáttum sem era augljósir í
hjálparsambandi einstaklinga.
Ég mun líka skoða hjálparhug-
takið og sögulega þróun sam-
hjálpar, þ.e.a.s. á hveiju hún
byggist núna og hefur byggt á
hinum ýmsu tímum og til hvers
menn hafa ætlast af samhjálpinni
á þróunarskeiðum samfélagsins.
- Getur þú nefnt dæmi um
hvað þú átt við?
„Já, til að einn hjálpi öðrum
þarf hann að búa yfir viija til að
hjálpa, það þarf að vera einhver
hvöt sem liggur hjálpinni að baki,
annars leggur hann ekki á sig
orku og erfiði til þess að hjálpa
öðrum manni. Menn greinir á um
hvers konar hvati þetta er: Er það
kærleikur eins og hjá miskunn-
sama Samveijanum, mannúð eða
er það bara dulbúin eigingirni?
Hvatinn þarf nauðsynlega að vera
fyrir hendi, hvers eðlis sem hann
á hinn bóginn er.
Spurningin er hvort þessi hvöt
er jafnsjálfgefin þegar málið
snýst um að greiða skatt til óper-
sónulegs kerfis eins og t.d. al-
mannatrygginga og heilbrigðis-
þjónustu. Er það lík hvöt og mis-
kunnsami Samveijinn fann til
þegar hann hjálpaði manninum
sem féll í ræningjahendur? Með
öðrum orðum: Hvernig er hvatinn
sem Ieiðir til hjálpsemi -------
tryggður í velferðar-
kerfinu?
Ég er að reyna að
skoða tiltekna þætti í
hjálparsambandinu og
kanna hvernig það virkar. Getur
sá sem hjálpar, til dæmis, verið
viss um að það sem hann leggur
til samfélagsins nýtist til góðs
fyrir náungann? Erum við nógu
viss um að skattgreiðslurnar komi
að góðum notum og skili sér í
velferð þeirra sem minna mega
sín? Þarf maður að vita hvort svo
sé til að geta haldið áfram að
taka þátt í því?“
- Hvað með skylduna að hjálpa
öðrum?
„Við höfum ráðið fólk til að
Jón Björnsson
► Jón Björnsson er Austur-
Húnvetningur, fæddur árið
1947. Hann var nemandi í
Menntaskólanum á Akureyri
og stúdent þaðan árið 1966.
Hann stundaði nám í sálar-
fræði í Freiburg í Þýskalandi
árin 1968-1974. Jón starfaði á
Félagsmálastofnun Reykja-
víkurborgar í rösk tvö ár að
námi loknu, en tók síðan við
starfi félagsmálasljóra á Ak-
ureyri haustið 1976. Árið 1995
var hann ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri menningar-,
uppeldis-, og félagsmála hjá
Reykjavíkurborg. Hann er
kvæntur Stefaníu Arnórsdótt-
ur kennara við Kvennaskólann
í Reykjavík.
Vantar hvatn-
ingu til hjálp-
semi í kerfið?
sinna vandræðum annarra og
getum í siðmenntuðum vestræn-
um samfélögum gengið skeyt-
ingarlaus framhjá flestum
vandamálum í vissunni um að
það sé einhver á kaupi við að
leysa þau. Skyldunni höfum við
því að mörgu leyti bætt inn í
kerfið með því að ráða fólk til
að sjá um hana. Við borgum fyr-
ir skylduna og þannig er eins og
okkur komi bjargarleysi annarra
ekki lengur við. Þetta er einmitt
ein gagnrýnin sem sett hefur
verið fram á velferðarkerfið, eða
að það geri okkur hirðulaus um
heill náungans.
Með því að setja skriffínnsku-
kerfi á milli okkar og náungans
glatast sambandið á milli, segja
sumir. Mörg okkar sakna hins
beina hjálparsambands sem ríkti
milli fólks en aðrir telja engan
missi að því.
í velferðarkerfinu er fé flutt frá
þeim sem eru aflögufærir til
þeirra sem eru hjálparþurfi. Menn
voru upphaflega mjög bjartsýnir
með kerfin en hafa orðið fyrir
vonbrigðum. Ég er ekki að segja
-------- að velferðarkerfið sé
ónýtt, heldur að það
þurfi að taka meira til-
lit til sálfræðilegra raka
í einstaklingnum ef það
á að virka.“
- Viltu gera eins og Platón,
að færa þekkinguna á mannssál-
inni yfir á kerfið?
„Þótt það sé glæfralegt að
manngera kerfið eða ætla því eig-
inleika fólks, held ég að ef kerfið
sem fólk býr við stangast of mik-
ið á við innri rök mannsins hætt-
ir það að taka þátt í því. Það
væri því vissulega í anda Forn-
grikkja að segja að það þýddi
ekkert að vera með kerfi sem
stangaðist á við náttúru manns-
ins.“