Morgunblaðið - 07.12.1996, Side 44

Morgunblaðið - 07.12.1996, Side 44
44 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR A MORGUN Guðspjall dagsins: Teikn á sólu og tungli (Lúk. 21.) ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl 11. Börn úr I I I -starfinu sýna helgileik. Guðsþjónusta kl. 14. Arni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr Oddfellowstúkunni Þórsteini að- stoða við messuna. Ræðumaður Jón Ólafur Ólafsson. Pálmi Matthí- asson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriks- son. Fundur í safnaðarheimilinu eft- ir messu. Helgistund á aðventu kl. 14. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmars- son. Fermingarbörn bjóða foreldr- um og gestum til samkomunnar. Barnasamkoma kl. 15. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Dagur skírn- arinnar. Allir, sem skírðir hafa verið í Dómkirkjunni sérstaklega boðnir velkomnir. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Lárus Halldórsson messar. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. Vígsla Grensáskirkju kl. 10.30. Biskup íslands herra Olafur Skúlason annast vígslu kirkjunnar. Þjónusta við altari: Sr. Halldór S. Gröndal, sr. Kjartan Örn Sigur- björnsson, sr. Ragnar Fjalar Lárus- son, prófastur, sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sr. Miyako Þórðarson og sr. Hjalti Guðmundsson. Kórbæn les Ásgeir Hallsson, formaður sókn- arnefndar. Ritningalestur annast: Herra Jónas Gíslason, vígslubiskup, sr. Felix Ólafsson, frú Kristín Hall- dórsdóttir, frú Kristrún Hreiðars- dóttir og Árni Arinbjarnason, organ- isti. Kirkjukór og Kammerkór Grens- áskirkju syngja. Strengjasveit leikur ásamt Lárusi Sveinssyni, Hjördísi E. Lárusdóttur, llku Petrovu Benkova og Halldóru Ingimarsdótt- ur. Orgelleikari og stjórnandi Árni Arinbjarnarson. Kórstjóri Kammer- kórs Margrét Pálmadóttir. Vígslu- tónleikar verða í kirkjunni kl. 17. Atventutónleikar Fílharmóníukórs- ins kl. 20.30. HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam- koma og messa kl. 11. Jónas Þóris- son framkvæmdastjóri Hjálpar- stofnunar kirkjunnar prédikar. Karlakór Reykjavíkur syngur. Stjórn- andi Friðrik S. Kristinsson. Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. HÁTEIGSKIRKJA: BarnLguðsþjón- usta kl. 11. Messa kl. 14j. Organisti Pavel Manasek. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Prestar sr. Jón Helgi Þórarinsson og sr. Tómas Guðmundsson. Org- anisti Jón Stefánsson. Kór Lang- holtskirkju og Gradualekór syngja. Hljóðfæraleikur. Fermingarbörn og foreldrar þeirra hvött til að mæta. Kaffisopi eftir messu. Barnastarf kl. 13 í umsjá Lenu Rósar Matthías- dóttur. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Félagar úr Kór Laugarneskirkju syngja. Organisti Gunnar Gunnars- son. Barnastarf á sama tíma. Guðs- þjónusta kl. 14 í Sjálfsbjargarhús- inu, Hátúni 12. Ólafur Jóhannesson. NESKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Opið hús frá kl. 10. Sr. Frank M. Halldórs- son. Frostaskjól: Barnastarf kl. 11. Húsið opnar kl. 10.30. Sr. Halldór Reynisson. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir. Organisti Viera Mana- sek. Barnastarf á sama tíma í um- sjá Hildar Sigurðardóttur, Erlu Karlsdóttur og Benedikts Her- mannssonar. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Aðventu- kvöld kl. 20.30. Endurkomukvöld. Zbigniew Dubik leikur á fiðlu og Martial Nardeau á flautu. Kórsöng- ur undir stjórn Péturs Máté organ- ista kirkjunnar. Hátíðarræðu flytur Ómar Ragnarsson, fréttamaður. Kaffi og smakk á smákökum eftir stundina. ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Aðventuhátíð kl. 20.30. Þuríður Sig- urðardóttir syngur einsöng. Barna- kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Margrétar Dannheim. Sr. Heimir Steinsson útvarpsstjóri flyt- ur ræðu. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Kristínar G. Jónsdóttur org- anista. Fermingarbörn lesa ritning- arlestra. Stutt hugleiðing og að- ventuljósin tendruð. Boðið verður upp á veitingar í safnaðarheimilinu að athöfninni lokinni. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altar- isganga. Gerðubergskórinn syngur. Kaffisala kirkjukórsins eftir messu. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Jólaball sunnu- dagaskólans kl. 11. Aðventuhátíð kl. 20.30 í umsjá sr. Hjálmars Jóns- sonar. Kór Snælandsskóla og kór Digraneskirkju syngja. Blikastelpur lesa ritningarlestra. Organisti Sól- veig Sigríður Einarsdóttir. ÍSLENSKT MÁL PRÓF. Baldur Jónsson sendir mér þessa skemmtilegu og lær- dómsríku dæmisögu: „Ég var að taka til í óreiðu- haugum hér í vinnuhorni mínu og rakst þar á riss á blaði þar sem ég hafði skrifað efst „Hvern- ig menn eru hærðir“. Undir þeirri fyrirsögn hafði ég hripað þetta: „Eitt sinn hringdi maður til málstöðvarinnar og kvartaði undan því að hjá embætti lög- reglustjórans í Reykjavík væri nú skrifað í vegabréf að maður væri „brúnhærður", þar sem standa ætti „skolhærður" eða „ljósskolhærður". I helstu prentuðum orðabók- um um íslenskt nútímamál, orðabók Blöndals og orðabók Menningarsjóðs, er ekkert þessara orða að fínna, hvorki brúnhærður, skolhærður né ljósskolhærður, og þau eru ekki heldur í fornmálsorðabók- um Fritzners og Guðbrands Vigfússonar.“ Lengra náði rissið ekki, en ég man að þetta vakti með mér nokkra undrun og forvitni, og jafnframt rifjaðist upp gamalt atvik frá viðskiptum sjálfs mín við embætti lögreglustjóra. Mér dettur nú í hug að þú getir e.t.v. gert þér einhvern mat úr þessu í Morgunblaðinu, og þér er það þá velkomið. Ég man ekki í svipinn eftir neinu safni lýsingarorða um háralit manna og hárafar, en það gæti verið býsna fróðlegt, og væri gott ef einhver legði í að taka það saman. Samkvæmt bakstöðuskrá sem ég lét gera úr orðabók Blöndals eru þar 55 lýsingarorð sem enda á -hærð- ur, líklega flest höfð um menn en varla öll; ég hefí ekki athugað það. En mér kom sérstaklega á óvart að orðið skolhærður skyldi hafa skotist undan bæði við gerð orðabókar Blöndals og Árna Böðvarssonar. Nú kemur í ljós að þetta orð virðist vera mjög ungt. Guðrún Kvaran segir mér að í ritmáls- safni Orðabókar Háskólans séu 135 lýsingarorð sem enda á -hærður, en þar eru engin dæmi um brúnhærður, né ljósskol- hærður og aðeins tvö dæmi um skolhærður, hið eldra úr bók eftir Jónas Árnason, sem út kom 1954 (Fólk. Þættir og sögur). Umsjónarmaður Gísli Jónsson 878. þáttur Eins og þú veist er ég orðinn gráhærður fyrir löngu, og jafn- vel hvíthærður, og enn lengra síðan ég fór að verða hæruskot- inn. Einhvern tímann þegar ég var á því aldursskeiði þurfti ég að endurnýja vegabréfið mitt, eins og maðurinn sem hringdi til málstöðvarinnar. Og mér fór líkt og honum. Þegar ég fékk nýja vegabréfið gat ég búist við að vera sagður hæruskotinn og hefði sætt mig við það. En það var nú ekki svo vel; ég var grá- sprengdur! Næstu árin gekk ég um með opinber skilríki upp á það að ég væri grásprengdur. Ég sá fyrir mér að ég yrði látinn fara gráskjóttur þegar ég kæmi næst! Mér féll þetta ekki vel og hugðist afla mér samúðar með því að segja kunningjum söguna. En þá tók ekki betra við. Þeir fáu sem þóttust þekkja orðið hæruskotinn töldu að það merkti eitthvað allt annað en grásprengdur. Mér skildist að hið síðarnefnda ætti svo ágæt- lega við mig! Nú skaltu ekki halda að ég ýki söguna mjög. Hvernig held- urðu að Blöndal þýði orðið hæru- skotinn? Auðvitað með danska orðinu grásprængt. Og Frey- steinn vissi hvað hann söng. Hann segir (1926): „graa- sprængt hæruskotinn, úlfgrár, gráýróttur" (einnig svo í útg. 1973). En í nýjustu dönsk- íslensku orðabókinni (1992) er aðeins ein þýðiiíg við danska orðið grásprængt, sem sé „grá- sprengdur"! Er nokkur furða þó að ég sé orðinn gráhærður? Blessaður ævinlega." Og kærar þakkir ævinlega, segir umsjónarmaður. ★ Út spyrst um hauður að Isfeld sé dauður, allmargt sem kunni. Snikkari var hann, snoturt sig bar hann, snar í viskunni. Ektavíf kætti ’ann, þótt erfiði sætti ’ann af öllum lífs grunni. Bækumar las hann og brennivínsglas hann bar sér að að munni. (Hermann Jónsson í Firði, 1749-1837; leónískur háttur.) ★ Á fyrra hluta þessarar aldar tóku menn að skíra meyböm „öldunöfnum“, svo sem Alda, Bára, Bylgja, Dröfn, Dúfa og Hrönn. Elst munu vera Bára (frá 1901) og Dröfn (frá 1909). Meira e.t.v. um þau nöfn síðar. Fátítt mun vera að börn séu skírð eftir ljóðabókum, en hér kemur dæmi þess. Elsta Hrönn, sem ég hef fundið, fæddist á Siglufirði 4. janúar 1918. For- eldrar hennar, Helga Jóhannes- dóttir og Jón Gíslason, áttu þá saman sín önnur jól, rétt áður en mærin fæddist. Þau voru bæði ljóðelsk og fengu í jólagjöf bókina Hrannir eftir Einar Benediktsson (frumpr. 1913). Og þau ákváðu að nefna dóttur sína eftir bókinni. Sr. Bjarni Þorsteinsson tónskáld samþykkti það fúslega. Konum, sem báru nafnið Hrönn, fjölgaði ekki mjög hratt. Voru t.d. aðeins sjö skírðar þessu nafni 1921-1930. En svo komst nafnið í tísku, og í þjóðskrá 1989 voru 942. Meiri hluti þeirra heit- ir svo að síðara nafni, enda fellur nafnið vel inn í stuttnefnatísku síðustu áratuga. Ég þakka Hrönn Jónsdóttur frá Siglufirði fyrir að mega segja frá þessu. Ef einhver hefur eldri dæmi, væri mér þökk á að fá vitneskju um það. ★ Hlymrekur handan kvað: Ef höfðu menn húsmynd með frú í, ef höfðu þeir fjósmynd með kú í, þeim var ekki vært, ef veður var fært, fyrir valdsmannaskríl í Bangui. ★ „Málfar hefur breyst, en það sem mér finnst e.t.v. skipta mestu máli er að við höldum samhenginu, missum ekki þráð- inn heldur tengjum unga fólkið við eldri tíma - bókmenntir og sögu þjóðarinnar. Það skiptir höfuðmáli og það geta skólarnir ekki ef heimilin gera það ekki líka og allt samfélagið." (Vilborg Dagbjartsdóttir.) Auk þess fær Félag verslun- ar- og skrifstofufólks á Akureyri stig fyrir að auglýsa í fund- arboði afgreiðslutíma, ekki „opnunartíma", sjá og Akur- eyrarsíðu þessa blaðs í gær. FELLA- OG HOLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Lenka Máté- ová. Barnaguðsþjónusta á sama tíma í umsjón Ragnars Schram. Kirkjurútan gengur eins og venju- lega. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 í umsjón Hjartar og Rúnu. Aðventukvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Davíð Oddsson for- sætisráðherra. Kirkjubarna- og unglingakór Grafarvogskirkju syngja undir stjórn Harðar Braga- sonar og Áslaugar Bergsteinsdótt- ur. Ragnar Ingi Aðalsteinsson flytur frumsamið aðventuljóð. Fermingar- börn flytja helgileik. Nemendur úr Tónlistarskóla Grafarvogs spila og skólahljómsveit Grafarvogs leikur undir stjórn Jóns Hjaltasonar. Emil- iana Torrini syngur við undirleik Jóns Ólafssonar. Eiríkur Örn Páls- son leikur einleik á trompet og Guð- laug Ásgeirsdóttir á þverflautu. Prestarnir. HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Krakkar úr Æsku- lýðsfélagi og TTT-starfi Hjallakirkju aðstoða. Barnaguðsþjónusta kl. 13 í umsjá írisar Kristjánsdóttur. Að- ventuhátíð kórs Hjallakirkju kl. 20.30. Sigríður Gröndal syngur ein- söng. Stjórnandi Oddný J. Þor- steinsdóttir. Boðið verður upp á kakó og smákökur. Sóknarprestur. KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Litli- og miðkór Kársnesskóla syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur kórstjóra. Einnig syngja börn úr barnastarfi kirkjunnar. Örganisti Örn Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Hanna Björk Guðjónsdóttir syngur ein- söng. Organisti Kjartan Sigurjóns- son. Sóknarprestur. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug- ardag: Messa kl. 8 og kl. 14. Sunnu- dag: Hámessa kl. 10.30, messa kl. 14, messa á ensku kl. 20. Mánu- dag: Maríumessa (flekklaus getnað- ur Maríu). Kl. 8. messa. Kl. 18. Hátíðarmessa. Messur kl. 8 og kl. 18. þriðjud. til föstud. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Sam- koma á morgun kl. 17. Ræðumaður Friðrik Hilmarsson. Aldursskiptar samverur fyrir börn og unglinga. Matsala eftir samkomuna. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11 á sunnudögum. HVÍTASUNNUKIRKJAN FHadelfía: Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu- maður Friðrik Schram. Niðurdýfing- arskírn. Allir hjartanlega velkomnir. MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár- stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl. 20. Altarisganga öll sunnudags- kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al- menn samkoma kl. 11. Ræðumaður Ásmundur Magnússon. Fyrirbæna- þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan- lega velkomnir. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM- ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Bænastund kl. 19.30. Aðventusamkoma kl. 20. Katrín Eyjólfsdóttir talar. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Altarisganga. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organ- isti: Guðmundur Ómarr Óskarsson. Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11. Jón Þorsteinsson. REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Að- ventukvöld Reynivallasóknar verður í Félagsgarði sunnudag kl. 20.30. Á dagskrá verður m.a. söngur kirkju- kórsins, lestur jólasögu og söngur barna. Ólafur Magnússon syngur einsöng, börn í Ásgarðsskóla flytja helgileik og loks verður almennur söngur. Aðventukvöldinu lýkur með því að borið verður fram heitt súkk- ulaði og piparkökur. Gunnar Krist- jánsson. BESSASTAÐAKIRKJA: Aðventu- samkoma kl. 20.30. Æskufólk ásamt Álftaneskórnum tekur þátt í athöfninni. Bragi Friðriksson. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Hofstaðaskóli tekur þátt í athöfninni. Sunnudagaskóli í Kirkju- hvoli á sama tíma. Sunnudagaskóli kl. 13 í Hofstaðaskóla. Bragi Frið- riksson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu- dagaskóli í Hafnarfjarðarkirkju kl. 11. Umsjónarmenn: Séra Þórhildur Ólafs, Katrín Sveinsdóttir og Natelia Chow. Sunnudagaskóli í Hvaleyrar- skóla kl. 11. Umsjónarmenn: Séra Þórhallur Heimisson, Bára Friðriks- dóttir og Ingunn H. Hauksdóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Prestar: Séra Þórhallur Heimisson og séra Þór- hildur Ólafs. Kirkjukaffi í Strand- bergi eftir Guðsþjónustuna. Gunn- þór Ingason, sóknarprestur. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Aðventukvöld kl. 20.30. Barnakór og kirkjukór syngja. Petrea Óskarsdóttir og María Ced- erborg leika á flautur. Örn Arnarson syngur einsöng. Sr. Árni Pálsson flytur hugleiðingu. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 og fer hann fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Börn sótt að safnaðarheimilinu kl. 10.45. Aðventusamkoma kl. 17 og mun Kirkjukór Njarðvíkur syngja undir stjórn Steinars Guðmundssonar organista. Einsöngvarar eru: Birna Rúnarsdóttir, Haukur Þórðarson, Kristján Jóhannsson og Sveinn Sveinsson. Barn borið til skírnar. Ræðumaður er Jón Benediktsson læknir. YTRI-NJARÐVIKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Baldur Rafn Sig- urðsson. KÁLFATJARNARKIRKJA: Aðventu- samkoma kl. 17. Æskufólk ásamt kór kirkjunnar tekur þátt í athöfn- inni sem er í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Bragi Friðriksson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga- skóli kl. 11. Munið skólabílinn. Létt jólasveifla kl. 20.30. Sr. Sigfús Bald- vin Ingvason flytur hugvekju. Söng og tónlistarflutning annast Rúnar Júlíusson, María Baldursdóttir, Baldur Þórir Guðmundsson, Einar Júlíusson, Ólöf Einarsdóttir og Einar Örn Einarsson, ásamt fleiri hljóm- listarmönnum. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. VÍÐISTAÐAKIRKJA Barnaguðs- þjónusta kl. 11, fjöískylduguðsþjón- usta kl. 14. Barnakórinn syngur og flytur helgispjall. Sigurður Helgi Guðmundsson. HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Heilsustofnun NLFÍ. Messa kl. 11. Altarisganga. Jón Ragnarsson, sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Úlfar Guð- mundsson. EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 14. Þorgils Hlynur Þorbergsson, prédikar. Altarisganga. Úlfar Guð- mundsson. ÞORLÁKSKIRKJA: Aðventutónleik- ar kl. 20. Ath. breyttan tíma. Fjöl- breytt dagskrá með söng og hljóð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.