Morgunblaðið - 07.12.1996, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 61
i
i
i
<
<
I
I
j
I
BRÉF TIL BLAÐSINS
Minningar frá
liðnu sumri
Frá Bryndísi Jónsdóttur:
NÚ þegar skammdegið hellist yfir
er gott að eiga ljúfar ferðaminning-
ar frá liðnu sumri. Minningar sem
hægt er að blása í lífi í hvert sinn
sem myndir eru teknar fram, hlust-
að á fagra tónlist og maður sér
fyrir sér heimahéruð hlutaðeigandi
tónskálda eða söngvara og jafnvel
staðinn þar sem upptakan fór fram,
eins og í La Scala í Mílanó. Og
þegar dregnar eru fram lista-
verkabækur; að uppgötva að maður
hafi staðið fyrir framan tiltekin
listaverk og bergt þau eigin augum.
Gengið næstum í fótspor Dantes,
Marco Polos, Galileos og staldrað
við á torginu, sem Bruno var forðum
brenndur. Farið um sömu göturnar,
sem kynslóðir árþúsunda hafa
gengið, allt frá Rómveijum fram
til okkar daga.
Ferðin sem er mér svo minnis-
stæð, var farin til Ítalíu með Heims-
klúbbi Ingólfs og spannaði allt frá
Mílanó, umhverfis Gardavatnið,
Veróna, Padúa, Feneyjar, Pisa,
Flórens, San Geminiano, Siena,
Perugia, Assisi, Róm og þaðan til
baka með viðkomu í Bologna.
Ítalía sem var mér ekki með öllu
ókunnug áður, hefur nú breyst í
vitund minni, því með góðri leiðsögn
var landslagið klætt þeirri sögu sem
hefur þróast þar í árþúsundir, allt
frá dögum Etrúska. Menningar-
straumum sem bárust í kjölfar
valdabaráttu, hvort sem var milli
þjóðflokka, höfðingja eða ríkja, með
kaupmönnum, allt var útskýrt
þannig að ferðin var ein samfelld
söguslóð, sem við upplifðum bæði
í fortíð og nútíð.
Einstök og ómetanleg leiðsögn
Leiðsögn Ingólfs Guðbrandsson-
ar var einstök og ómetanleg og
stundum göldrum líkust þegar við
t.d. stóðum aftarlega í fólksmergð
í kirkjum eða söfnum, en fyrr en
varði vorum við orðin fremst, án
átroðslu eða stimpinga. Gátum við
því notið þess sem fyrir augum bar
ósnortin af því margmála mannhafi
sem umhverfis var, en hlustað sem
Sjöljósa-
stikan
Frá Helga Sigfússyni:
NÚ LÝSA jólaljósin óðum heimilin
hvert af öðru. Sjöljósastikurnar eru
farnar að loga í gluggum heimilanna.
Og það er einmitt málið - það eru
sjöljósastikur en ekki aðventuljós,
eins og svo margir nefna þau. Að-
ventuljósin verða tendruð eitt af öðru
út aðventuna - hvern sunnudag.
Eitt sinn var útlendingur hér á
landi í desembermánuði. Hann furð-
aði sig á því hvað margir gyðingar
byggju í Reykjavík. Hann taldi það
vera svo út af öllum „aðventuljósun-
um“ í gluggum húsanna.
Skoðum nánar sjöljósastikuna.
Hún er eitt elsta tákn gyðingsdóms-
ins. Á Títus-boganum í Róm er lág-
mynd sem sýnir sigurreifa róm-
verska hermenn árið 70 sem bera
fjársjóði musterisins í Jerúsalem eft-
ir herleiðinguna. Mest ber á stórri
sjöarma ljósastiku á þessari lág-
mynd. Þá er sjöarma ljósastikan
ævinlega á borðum gyðinga á pásk-
um ásamt ósýrða brauðinu. Þessi
sjöarma stika táknar m.a. sjö daga
sköpunarsögunnar hjá gyðingum.
HELGI SIGFÚSSON,
Austurvegi 25, Hrísey.
í akademíu á orð_ leiðsögu-, lista-
og fræðimanns. Á tveimur vikum
lærði ég meira en á einni til tveim-
ur önnum í listasögu, tónmennt og
sagnfræði.
Hér er aðeins stiklað á mjög
stóru, því af mörgu er að taka.
Hver dagur bauð upp á slíkan fjöl-
breytileika að jafnaðist á við vikur
ef ekki mánuði, a.m.k. hjá undirrit-
aðri, því ýmsar spennandi og
óvæntar uppákomur biðu okkar
sumstaðar í leyni.
Við lögðum upp í þessa viðburða-
ríku ferð með gott vegarnesti, því
Ingólfur bauð okkur væntanlegum
ferðafélögum og áhugafólki tvisvar
til fundar á Hótel Sögu, áður en
ferðin var farin, til að kynna ferðina
og okkur ferðafélagana innbyrðis
og einnig til að kynna óperuna
Nabucco eftir Verdi, sem við sáum
í Arenunni í Veróna. Víst hafði ég
heyrt mikið um Arenuna talað, óper-
urnar og listamennina sem þær
fluttu, en að sitja í mannhafinu í
þessu stóra hringleikhúsi, sem byggt
var fyrir um 2000 árum, sjá og
heyra slíka snilld, sem þar fór fram,
verður ekki með orðum lýst og ekki
heldur að taka þátt í gleðibylgju um
25.000 áhorfenda þegar hljómlista-
mennirnir birtust aftur eftir regnúða
og séð var að óperan gat haldið
áfram, sem hún og gerði allt til enda.
Kveðjur og þakklæti
Við hjónin sendum ferðafélögum
okkar frá í sumar sem tóku þátt í
ferðinni „Töfrar Ítalíu" bestu kveðj-
ur og þakklæti fyrir allar góðu sam-
verustundirnar og ekki síst þegar
við hittumst á Hótel Sögu í okt. sl.
þar sem hver miðlaði öðrum minn-
ingum í máli og myndum úr ferðinni.
Ingólfi Guðbrandssyni verður
aldrei nógsamlega þakkað fyrir óeig-
ingjarna leiðsögn, upplýsingar og
glæsilegan aðbúnað, þar sem höfð-
ingslundin sat hvarvetna í öndvegi.
BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR,
Ægisíðu 92, Reykjavík.
Það er gaman að grilla á nýju
„MÍNÚTU-SNERTIGRILLIINUM"
Nýju „mínútu-snertigrillin"
frá Dé Longhi eru tilvalin
þegar þig langar í gómsætan
grillmat, kjöt, fisk, grænmeti
eða nánast hvað sem er.
Þú getur valið um 2 stærðir á
stórgóðu jólatilboðsverði,
k, 7.990,-eðakr 8.990,-
/?onix
HÁTÚNI6A REVKJAVlK SÍMI 552 4420
IL Turtafjull
r ' ■llársnyrtivörur^^^
' J'l %/ Jólatilboð
t3L-L IS«L Fjársjóður fyrir liárið úr náttúru íslands
Útsölustaðir: Apótek, heilsuvöruverslunum og
hársnyrtistofum um allt land.
Staðreyndir
miimingaima
Frá Thor Vilhjálmssyni:
VARLA var ég lentur eftir stutta
Frakklandsferð, sat nóttina eftir
flugið heim við dagblaðahrúgu sem
hafði safnazt á meðan. Þá þeyttist
að mér hnúta í Velvakandabréfi í
Morgunblaðinu frá 27.11., og ber
yfirskriftina: Rangfærslur Thors.
Þar er lesendum Velvakanda
bent á að ég sé að rangfæra fótar-
mein Ása í Bæ og kalla að hann
hafi haft berkla í fæti en hafi verið
beináta. Ég vissi ekki betur, annars
hefði ég sagt hitt. Ég veit að ýms-
ir fleiri sameiginlegir vinir okkar
Ása voru í þessari sömu trú. Ég
held að það sé óþarft að leikmenn
séu að þrasa um læknisfræðilegar
skilgreiningar, ég var í góðri trú
en legg til að bréfritari beri það
undir læknisdóm hvort það sé rangt
hjá mér að beináta verði iðulega
rakin til berkla. Upphaf sé oft að
berklagerlar komist á viðkvæman
stað og valdi beinhimnubólgu sem
snúist við ólinnandi ertingu í bein-
átu.
Einnig hafi ég yerið helzt til fljót-
fær að taka af Ása fótinn fyrr en
verið hafi og gefið í skyn að hann
hafi einfættur orðið aflakóngur. Ég
var ekki að semja annála heldur
reyna að sýna þá mynd sem Ási á
í huga mér. Aflakóngur varð Ási
þrátt fyrir bæklun, hver sem hún
var og hefði hvort heldur var haml-
að minni mönnum. Ég vissi af hans
eigin frásögnum hve langkvalinn
hann var af þessu fótarmeini sem
hófst í æsku, hver æviraun var og
ögrun til dáða, að fara fram úr
öðrum í stað þess að láta hefta sig.
í örum minningastraumi kann að
hafa víxlast eitthvað með tímasetn-
ingu á því hvenær hann varð afla-
kóngur og hvort hann fékk gervifót-
inn áður eða síðar. Ég man hann
ljóslifandi hvort var með gervifót
eða það sem hefur verið kallaður
staurfótur sem þýðir að honum
nýttist ekki sem öðrum liðamót um
hné, og ætti að vera fljótséð hver
hemill slíkt væri flestum skapminni
mönnum en Ása. Ég man að annar
fóturinn var styttri svo hann hafði
sérsmíðaða skó og staf, ég sé hann
fyrir mér hvernig hann hoppaði til
þegar var staurfóturinn og hnéð
stíft eða kominn gervilimur fyrir
hinn sem angraði hann og kvaldi
löngum. Mig langaði einfaldlega að
sýna Ása einsog ég sá hann.
Bréfritari getur þess ennfremur
til að hnekkja mínu máli að Ási
hafi ekki sagt sér neitt frá draum ■
konu sinni. Eg get ekki tekið þátt
í því máli hans né bætt honum það
frekar upp en ég gerði með frásögu
minni. Ég veit ekkert hvað þeir
töluðu saman. Ég veit bara hvað
Ási talaði við mig um þau mál. Og
sé hann ennþá fyrir mér í ham þeg-
ar þetta og margt annað kom upp
á okkar fundum. Sú mynd er mér
svo kær að ég reyndi að bregða upp
fyrir aðra. Og Ási var mjög sann-
færandi sögumaður.
THOR VILHJÁLMSSON,
rithöfundur.
Efni og tæki fyrir wíieé
járngorma innbindingu.
KÓPAVOGSBÚARí
4 iótetrénu
***■ zTJ "nabæiar
i Hamraborg, 84 ð
N
. 15.00.
VERSLANIRI HAMRABORG VERÐA OPNAR
SUNNUDAGINN 8. DESEMBER
MEÐ ÝMIS SÉRTILBOÐ í GANGI.