Morgunblaðið - 07.12.1996, Page 72
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Bíl ekið á Hamra-
borgarbrú í Kópavogi
Farþegi
alvarlega
slasaður
UMFERÐARSLYS varð við Hamra-
borgarbrú í Kópavogi í gærkvöldi.
Tvennt var i bifreið sem ók á brúar-
stólpa og slasaðist hvort tveggja
mikið. Að sögn læknis á slysadeild
er farþeginn alvarlega slasaður.
Meiðsl ökumanns voru ekki fullrann-
sökuð í gærkvöldi, en hann var ekki
talinn í bráðri lífshættu.
Bíllinn var á leið suður Hafnar-
fjarðarveg þegar ökumaðurinn
missti vald á honum og lenti á grjóti
norðan við Hamraborgarbrú. Við
það snerist bifreiðin á veginum,
skall á brúarstöpul og stöðvaðist
sunnan við brúna.
Ökumaður og farþegi voru fastir
í bílnum þegar lögregla kom á slys-
stað. Kallað var á tækjabíl frá
slökkviliði sem losaði þá úr bílnum.
Ökumaður var fluttur meðvitundar-
laus á slysadeild.
Loka varð umferð suður Hafnar-
fjarðarveginn í um klukkutíma
meðan lögregla og sjúkraflutninga-
menn aðstoðuðu hina slösuðu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gengið frá kaupum SH, Burðaráss og hóps fjárfesta á 24,3% hlutabréfa í ÚA
Keyptu hlutabréf í ÚA
fyrir 1205 milljónir
VIÐSKIPTI áttu sér stað í gær
með hlutabréf í Útgerðarfélagi
Akureyringa að upphæð samtals
1205 milljónir króna. Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna keypti 13% hlut
í félaginu af Akureyrarbæ fyrir
660 milljónir og hópur fjárfesta
undir forystu Burðaráss, eignar-
haldsfélags Eimskipafélags ís-
lands, keypti 11,3% hlut Kaupfé-
lags Eyfirðinga í félaginu fyrir 545
milljónir króna. Báðir aðilar
keyptu hlutabréfin á genginu 5,25.
Meirihluti bæjarráðs Akureyrar
samþykkti á aukafundi sem hald-
.inn var í gærkvöld að ganga að
'tilboði Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna. Bæjarstjóra var veitt
fullt umboð til að ganga frá sölu
bréfanna. Akureyrarbær á áfram
um 20% hlutafjár í ÚA, rúmlega
GRÝLA
120 milljónir að nafnvirði eða um
960 milljónir miðað við gengi bréf-
anna.
Á fundinum var einróma sam-
þykkt viljayfirlýsing sem er þess
efnis að Ákureyrarbær og SH sem
stórir hluthafar í ÚA myndu kanna
hagkvæmni þess að byggð yrði
upp veiðafæragerð á Ákureyri í
samstarfi við Kaupfélag Eyfírð-
inga og Samherja og hugsanlega
fleiri aðila. Jafnframt var sam-
þykkt að þessir aðilar, auk Háskól-
ans á Akureyri og fyrirtækja í
bænum, könnuðu áfram mögu-
leika á að komið yrði á fót mat-
vælastofnun á Akureyri.
Viðunandi verð að mati
bæjarstjóra
Jakob Björnsson bæjarstjóri
sagði eftir fundinn að hann væri
sáttur við söluna og verðið sem
fyrir bréfin fékkst væri viðunandi.
Bæjarstjóri sagði að ekki hefði
verið um samflot Akureyrarbæjar
og KEA að ræða við sölu bréf-
anna, „en menn vissu hver af öðr-
um, hver var að tala við hvern.
Við höfum verið meðeigendur í
þessu félagi í fjöldamörg ár og
fylgdumst því að að því marki, en
þeir áttu sín viðskipti og við okk-
ar. Það voru ekki nein skilyrði í
gangi varðandi sölu okkar bréfa.
Við hinkruðum til að sjá hveiju
fram yndi í málinu,“ sagði Jakob
en eftir að línur skýrðust í gær
var gengið frá sölu bréfanna.
í HÓPNUM „aðrir hluthafar“
á enginn stærri hlut en 2%
Fulltrúar minnihlutans, Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks,
óskuðu á fundinum eftir skriflegri
greinargerð frá bæjarstjóra um
það hvers vegna ekki hefði verið
hægt að afgreiða tilboð SH fyrr
en á aukafundi í bæjarráði, en til-
boðið er frá 28. nóvember síðast-
liðnum.
Gengið var frá kaupum hóps
fjárfesta, undir forystu Burðaráss,
dótturfyrirtækis Eimskips, á
11^3% hlut Kaupfélags Eyfirðinga
í ÚA síðdegis í gær. Ekki liggur
endanlega fyrir hveijir skipa hóp-
inn með Burðarási, en fyrir á
Burðarás um 11,5% hlutafjár í
ÚA. Samtals á þessi hópur,
Burðarás, SH og fjárfestar, nú
ríflega þriðjung hlutafjár í ÚA og
hefur greitt fyrir þann hlut um
1,5 milljarð króna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var það skilyrði sett fyrir
sölunni á hlut Akureyrarbæjar í
ÚA til SH, að Burðarás keypti
hlut KEA í ÚA. Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, formaður stjórnar
KEA, segist ánægður með þá nið-
urstöðu, sem náðst hafi í þessu
máli. Andvirði hlutabréfanna í ÚA
verði notað til að styrkja efnahag
kaupfélagsins og efla eigin útgerð
þess og fiskvinnslu.
Dreifð eignaraðild
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarsviðs Eim-
skips, segir að unnið hafi verið að
þessum kaupum í náinni samvinnu
við KEA. Hann segir að ekki sé
endanlega hægt að segja til um
hvetjir skipi þann hóp, sem nú
hefur sameinazt um kaup á hlut
KEA, en ljóst sé að Burðarás
muni ekki eiga nema hluta hluta-
fjárins. Kaupendur komi víða af
landinu og eignaraðildin sé tölu-
vert dreifð.
„Við höfum áhuga á því að
styrkja atvinnureksturinn í bæn-
um og teljum þetta öllum viðkom-
andi aðilum til góðs,“ segir Þor-
kell Sigurlaugsson.
EES-reglur um
umbúðamerkingu
Áhrif á
bandarísk-
ar vörur
REGLUR Evrópska efna-
hagssvæðisins um umbúða-
merkingar matvæla verða
teknar upp hér á landi um
mitt næsta ár. Hingað til hef-
ur ísland fengið undanþágu
frá reglunum vegna þess að
vörur, sem hingað hafa verið
fluttar frá ýmsum löndum
utan EES, þar á meðal
Bandaríkjunum, hafa ekki
uppfyllt þessar reglur.
Um er að ræða reglur um
upplýsingar á umbúðum um
innihald, geymsluþol og sið-
asta söludag. Guðmundur
Bjarnason umhverfisráðherra
sagði að bandarískar umbúða-
merkingar væru öðruvísi upp-
byggðar en þær evrópsku og
einhveijir innflytjendur vöru
frá Bandaríkjunum hefðu
þegar aðlagað sig evrópsku
reglunum. En aðrir teldu of
dýrt að breyta vöruumbúðum
fyrir íslenskan markað þar
sem hann væri of lítill.
Ekki hjá reglunum komist
„Við höfum átt viðræður
við Kaupmannasamtökin um
hugmyndir þeirra til að leysa
málið, svo sem um hillumerk-
ingar, dreifimiða og upplýs-
ingabæklinga; og við höfum
sent þær til Brussel til
skoðunar og freistað þess að
fá þær samþykktar. En niður-
staðan er ótvírætt sú, að við
munum ekki komast upp með
það lengur að fylgja ekki evr-
ópsku reglunum,“ sagði Guð-
mundur Bjarnason.