Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 1

Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 1
88 SÍÐUR B/C 292. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter NOKKRIR gíslanna í bústað japanska sendiherrans í Lima í Perú. Myndin er tekin inn um glugga úr mikilli fjarlægð. Arangurslausar tilraunir til að fá gísla lausa í japanska sendiráðinu í Perú Varaðir við valdbeit- ingri í Lima la. Reuter. SAMNINGAR hófust í gær við vinstrisinnaða skæruliða, sem haldið hafa tæplega 500 gíslum í bústað japanska sendiherrans í Lima, höf- uðborg Perú, frá því á þriðjudags- kvöld að staðartíma. Enginn árangur varð af tilraunum til að fá gíslana látna lausa enda megináhersla við- ræðnanna við skæruliða á að tryggja allan tímann greið aðföng vista, mat- væla og annarra nauðsynja. Pjórir gíslar voru látnir lausir í gærkvöldi, en talið var að þeim hafí verið sleppt svo þeir kæmust undir læknishendur þar sem þeir gengu hægt frá sendi- ráðinu og virtust dasaðir. Tveir skot- hvellir heyrðust frá lóð sendiráðsins seint í gærkvöldi en engar frekari upplýsingar um atvikið lágu fyrir. Tveir fulltrúar Rauða krossins voru inn á lóðinni er það átti sér stað. Fujimori beiti sér Ríkisstjórnir víða um heim hvöttu perúsk yfirvöld til þess að forðast valdbeitingu gegn skæruliðum í lengstu lög. Bill Clinton Bandaríkja- forseti lýsti áhyggjum sínum vegna gíslanna en a.m.k. sex bandarískir stjómarerindrekar eru taldir vera í hópnum. Sendi Bandaríkjastjórn sveit öryggisráðgjafa til Lima í gær til að vera bandaríska sendiherranum til aðstoðar í málinu. Þýska stjórnin hvatti Alberto Fuji- mori, forseta Perú, til þess að reyna að finna friðsamlega lausn sendiráðs- tökunnar og hafna í því sambandi ekki þeim möguleika að ræða við fulltrúa skæruliða. I gær höfðu skæruliðamir ekki látið verða af ítrekuðum hótunum um að taka af lífi gísla yrði ekki orðið við kröfum þeirra um að láta lausa fangelsaða félaga þeirra í Tupac Amaru byltingarsamtökunum. Michel Minning, svissneskur full- trúi Rauða krossins, var útnefndur aðalsamningamaður í viðræðum við skæruliðana í gær. Hefur hann séð um að flytja drykkjarföng og mat- væli inn í sendiráðið síðustu daga. Auk hans mynduðu fjórir sendiherr- ar, sem látnir voru lausir í fyrradag, milligönguiióp sem ætlað er að halda opnum samskiptum milli sendiherra- bústaðarins og perúskra yfirvalda. Kanadíski sendiherrann, Anthony Vincent, dvaldi í hálftíma í bústaðn- um í gærmorgun og tjáði blaðamönn- um eftir á að þar gætti mikillar still- ingar, bæði meðal skæruliða og gísla. Hermt var að gíslunum hefði verið stíað í sundur í bústaðnum og haldið í hópum í nokkrum her- bergjum þar sem uppreisnarmenn vopnaðir vélbyssum og hand- sprengjum gættu þeirra. ■ Ástandið innandyra/22 Fylgst með veiðum úr geimnum Brussel. Reuter. SAMKOMULAG náðist á fundi sjávarútvegsráðherra ríkja Evrópusambandsins (ESB) í gær um að hefja gervi- hnattaeftirlit með fiskiskipum á miðju ári 1998 í þeim til- gangi að fylgjast með veiðum og koma í veg fyrir ólöglegar veiðar. Málið komst í höfn er Italir létu af andstöðu við það, eftir að hafa fengið loforð um 300 milljóna ECU-styrk á þremur árum, jafnvirði 28 milljarða króna, til þess að auðvelda ít- ölskum sjómönnum að hætta sverðfiskveiðum í reknet á Miðjarðarhafi. Með afstöðubreytingu ítala dugar andstaða Dana, Spán- verja, Hollendinga og Svía gegn gervihnattaeftirlitinu ekki lengur til að koma í veg fyrir það. ■ Sagður vera/24 Tyrkir og íranir treysta viðskiptin Ankara. Reuter. AKBAR Hashemi Rafsanjani íransforseti kom í gær í fjögurra daga opinbera heimsókn til Tyrklands. Tilgangurinn er að auka og efla viðskipti landanna, sem vekur athygli þar sem Tyrkir eru bandamenn Bandaríkjamanna í Atlantshafsbandalaginu (NATO) en Bandaríkjamenn hafa reynt að einangra írana. Tekið var á móti Rafsanjani með viðhöfn á flug- vellinum í Ankara. Var honum heilsað með fallbyss- um og síðan kannaði hann heiðursvörð hermanna í fylgd Suleymans Demirels Tyrklandsforseta. Fullyrt er að heimsóknin sé bandarískum stjórn- völdum þyrnir í augum vegna NATO-aðildar Tyrkja en Bandaríkjamenn hafa reynt að einangra íran á þeirri forsendu, að hryðjuverkamenn hafi átt þar öruggt skjól og þegið mikla aðstoð. Gert er ráð fyrir að Necmettin Erbakan, forsætis- ráðherra Tyrklands, sem er múslimi, og Rafsanjani undirriti nokkra nýja viðskiptasamninga og stofni sameiginlegt verslunarráð. í heimsókn Erbakans til írans í ágúst sl. sömdu ríkin tvö um smíði rúmlega 1.100 km gasleiðslu frá Dogubeyazit í íran til Cey- han á Miðjarðarhafsströnd Tyrklands. Reuter SULEYMAN Demirel Tyrklandsforseti tekur á móti Akbar Hashemi Rafsanjani íransforseta (t.v.) á flugvellinum í Ankara í gær. Á undanförnum árum hefur það valdið erfiðleikum í sambúð grannríkjanna tveggja, að Tyrkir hafa haldið því fram, að kúrdískir aðskilnaðarsinnar hafi notað Iran sem stökkpall til árása í suðausturhluta Tyrklands. Svíþjóð Halda fast við lokun orkuvera Stokkhólmi. Reuter. ÁGREININGUR sænsku stjórnarflokkanna um lokun kjarnorkuvera þykir ógna stöðu sænsku stjómarinnar. í gær hafnaði Miðflokkurinn tillögu Anders Sundströms orkuráð- herra um að fresta lokun vera fram á næstu öld. J afnaðarmannaflokkurinn hafði heitið lokun fyrsta kjarn- orkuversins af 12 fyrir haustið 1998. Minnihlutastjórn flokks- ins nýtur þingmeirihluta með stuðningi þingmanna Mið- flokksins. Þeim er lokunin afar mikilvæg og veltur stuðningur flokksins við stjórnina á því hvernig málið fer. Sundström er undir miklum þrýstingi orkufrekra iðnfyrir- tækja um að loka ekki stöðv- unum fyrr en kjamaofnar þeirra eru úr sér gengnir, eða um 2020-2025. Bresti samstarf jafnaðar- og miðflokksmanna yrði stjórnin að treysta á annan flokk til að tryggja sér þingmeirihluta. Páfí þiggur boð Arafats Rómaborg. Reuter. YASSER Arafat, leiðtogi Palest- inumanna, sagði í gær, að Jóhann- es Páll páfi hefði þegið boð um að heimsækja fæðingarstað Jesú í Betlehem árið 2000. Arafat skýrði frá þessu eftir fund með páfa í Vatikaninu í gær en í tilkynningu, sem páfagarður gaf út um viðræður þeirra, var ekki minnst á heimsóknina eða heimboð Arafats. Þar sagði einungis, að leiðtog- arnir hefðu rætt um undirbúning hátíðahalda i Betlehem í tilefni tvöþúsundustu ártíðar Krists og upphafs þriðja árþúsunds kristn- innar. Arafat hefur sagt það draum sinn, að árið 2000 haldi páfi ásamt trúarleiðtogum gyðinga og músl- ima sameiginlega bænastund í Jerúsalem og Betlehem. Páfi hefur sömuleiðis sagst hafa áhuga á að vera viðstaddur hátíðahöld í landinu helga sem ætlað er að marka upphaf þriðja árþúsunds kristninnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.