Morgunblaðið - 20.12.1996, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Skírnis-
mál í
Ráðhúsinu
KAMMERSVEIT Reykjavíkur og Roy Goodman á æfingu í Áskirkju. Morgunbiaðið/Árni Sæberg
Bach o g synir í Askirkju
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
heldur jólatónleika í Áskirkju
sunnudaginn 22. desember kl.
17.00. Tónleikarnir bera yfir-
skriftina „Bach og synir“ en á
efnisskránni er Sinfónía í D-dúr
Wq 183 eftir Carl Philipp
Emanuel Bach, Kvintett í D-dúr
op. 11 nr. 6 eftir Johann Christ-
ian Bach, Konsert í D-dúr BWV
1064 fyrir 3 fiðlur og kammer-
sveit og Brandenburgarkonsert
nr. 1 í F-dúr BWV1046 eftir
Jóhann Sebastian Bach. Sljóm-
andi og einleikari á tónleikunum
er fiðluleikarinn og sljórnandinn
Roy Goodman en hann hefur
verið mikilvirkur í hinni miklu
vakningu á flutningi barokktón-
listar sem orðið hefur í heiminum
undanfarin 15 ár, svo sem fram
kemur í kynningu.
Goodman hóf tónlistarnám
sem kórdrengur í King’s College
í Cambridge. Seinna nam hann
fiðlu- og orgelleik í Royal College
of Music i Lundúnum. Hann hóf
hljómsveitarstjóraferil sinn 1974,
aðeins 23 ára gamall. Frá 1986
til 1994 var hann aðalstjórnandi
Hannover Band hljómsveitarinn-
ar og stjórnaði henni í hljóðritun-
um og á tónleikum, m.a. á 7 tón-
leikaferðum til Bandaríkjanna,
þ.á m. í Carnegpe Hall og Lincoln
Centre. Frá 1988 hefur Goodman
verið tónlistarstjóri Barokk-
hljómsveitar Evrópu og stjórnað
henni víða. Á ferli sinum hefur
hann stjórnað fjölmörgum öðrum
hljómsveitum víðsvegar um Evr-
ópu en auk þess er hann eftirsótt-
ur óperustjórnandi. Eftir hann
liggja um 100 geisladiskar m.a.
með verkum eftir Monteverdi,
Bach, Handel, Haydn, Mozart og
Beethoven. Síðstliðið sumar tók
Roy Goodman við stöðu aðal-
stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar-
innar í Umeá sem er aðsetur
Norðuróperunnar í Svíþjóð.
Aðrir einleikarar á tónleikum
Kammersveitar Reykjavíkur á
sunnudaginn eru fiðluleikararnir
Rut Ingólfsdóttir og Hildigunnur
Halldórsdóttir, óbóleikararnir
Daði Kolbeinsson, Eydís Franz-
dóttir og Peter Tompkins og
hornleikararnir Jósef Ognibene
og Þorkell Jóelsson.
STÚDENTALEIKHÚSIÐ og
Freysleikar, leikfélag Ásatrúar-
manna flytja Skírnismál í Ráðhúsi
Reykjavíkur við sóihvörf laugar-
daginn 21. desember kl. 18.30.
„Verkið fjallar um ást Freys á
hinni fögru jötunmey Gerði og
bónorðsför Skírnis, sendiboða
hans til Jötunheima. Þetta er
dæmisaga (allegoría) um göngu
sólarinnar og stysta dag ársins,
ásamt loforðinu um komandi vor.
Að líkum er þetta það sem kallað-
ir voru Freysleikar til forna og var
hápunktur hinnar fornu jólahátíð-
ar. Hér er því um mennningar-
sögulegan viðburð að ræða þar
sem Skírnismál eru að öllum lík-
indum elsta varðveitta leikverk
Evrópu, að Grísku helgileikunum
einum undanskildum", segir í
kynningu.
Ný uppsetning
Hér er ekki um að ræða sömu
sýningu og sett var upp á síðasta
ári, þótt textinn, það er kvæðið
Skírnismál, sé að sjálfsögðu
óbreyttur. Þetta er ný uppsetning
í leikstjórn Margrétar Guttorms-
dóttur. Búningar og leikmynd eru
gerð af Jörmundi Inga. Tjarnarsal-
ur Ráðhússins verður skreyttur
myndum sem lýsa Skírnismálum.
Þær eru unnar af Hauki Halldórs-
syni og Jörmundi Inga eftir mynd-
um úr Ásubergsskipinu, en í því
fundust veggteppi sem lýsa göml-
um norrænum helgiathöfnum.
Á undan sýningunni verður
blásinn jólafriður á trélúðra eins
og tíðkuðust á víkingaöld.
’á'as**inar *heSMagnÍ’ fla"a,’anbí' °g **mmto bðrmmum og |*ito ímisleg. gáðg^ j | "
• • • • • • • •
Country verslunin
Laugavegi 92 (Við hliðina á Stjörnubíói) Sími 562-5660
Ný verslun
á horni Hverfisgötu
og Snorrabrautar.
Vandaöur
fatnaöur.
Lítið inn.
Man
Hverfisgötu 108 sími 551-2509
Ol^IO
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
6
«Yfirhafnir
e
e
e
15% stgr.afsl.
/ dag og á morgun
• Pelsar, víðir
og aðsniðnir.
Opið sunnudag kl. 13-18 Laugavegi 54 - Sími 552 5201