Morgunblaðið - 20.12.1996, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÆJ) SILFURBÚÐIN
vJL/ Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066
- ÞarfcerÖu gjöfina -
skeiöin
Iftkmnr’kað
niatjn
Guli oy sillur-
smiðjan Ema
Skinhoili 3
Sillurhúðin
Krimjlunni
Gull oy silfur
Lauyaveyi 35
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Tilbúinn
stídu
eyöir
Dreifing: Hringás ehf.,
Langholtsvegi 84, s. 533 1330.
Það er gaman að grilla á nýju
„MÍNÚTU-SNERTIGRILLUNUM"
Nýju „mínútu-snertigrillin"
frá Dé Longhi eru tilvalin
þegar þig langar í gómsætan
grillmat, kjöt, fisk, grænmeti
eða nánast hvað sem er.
Þú getur valið um 2 stærðir á
stórgóðu jólatilboðsverði,
kr 7.990,-eðakr 8.990,-
iFOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
Féll í byrjanagildru
og vann örugglega!
SKÁK
I þróttahúsið við
Strandgötu
2. GUÐMUNDAR ARASON-
AR MÓTIÐ. 13.-21. DES.
Teflt kl. 17 í dag, kl. 14 á morgun.
Aðgangur ókeypis. Daninn Bjarke
Kristensen er óstöðvandi á Guð-
mundar Arasonar mótinu í Hafnar-
firði. Hann hefur vinningsforskot á
næstu menn.
ÞRÍR íslendingar eru í hópi átta
efstu. Það eru þeir Jón Garðar Við-
arsson, Áskell Örn Kárason og
Bragi Halldórsson. í sjöttu umferð-
inni á miðvikudagskvöld sigraði
Bragi Hollendinginn Albert Blees,
sem varð efstur á þessu sama móti
í fyrra. Sú viðureign var söguleg.
Bragi féll í þekkta byijanagildru í
Caro-Kann vörn, en Hollendingur-
inn varð þá fullsigurviss. Honum
yfirsást hótun Braga og drottning
hans lokaðist inni og féll. Bragi
stóð því snemma upþi með vinnings-
stöðu sem hann tefldi hratt og ör-
ugglega til sigurs.
Eftir frábæra byijun hafa þeir
Guðmundur Gíslason og Kristján
Eðvarðsson heldur betur misst flug-
ið. Báðir hafa þeir tapað þremur
skákum í röð. Enn eru þó þijár
umferðir eftir og hægt að lagfæra
þetta. Ef þeir ná sér á strik eiga
þeir möguleika á áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli vegna þess
hversu öflugum andstæðingum þeir
hafa mætt.
Við skulum líta á viðureign
Braga Halldórssonar, kennara við
Menntaskólann í Reykjavík, og sig-
ALBERT Blees t.v. og Bragi Halldórsson.
urvegarans frá því í fyrra, Alberts
Blees. Það er með ólíkindum að
Bragi skuli hafa fallið í þessa
þekktu gildru, því hann hefur teflt
Caro-Kann vörnina allt frá blautu
barnsbeini. En það er stundum gott
herbragð að láta andstæðinginn
halda að hann sé að vinna!
Hvítt: Albert Blees
Svart: Bragi Halldórsson
Caro-Kann vörn
1. e4 - c6 2. Rc3 - d5 3. Rf3 -
dxe4 4. Rxe4 - Bf5? 5. Rg3 -
Bg6 6. h4 - h6 7. Re5 - Bh7
8. Dh5 - g6
Svona ljótum leikjum leika menn
aðeins af illri nauðsyn. Nú kemur
vel til greina að leika 9. Bc4! — e6
10. De2 með sterkri hótun 11.
Rxf7. En Blees fetar í fótspor sjálfs
Emanúels Laskers, fyrrverandi
heimsmeistara.
9. Df3 - Rf6 10. Db3 - Dd5 11.
Dxb7 — Dxe5+ 12. Be2 — e6
Endurbætir taflmennsku svarts
í skákinni Lasker—G. Múller í
Zúrich 1934. Eftir 12. — Dd6 13.
Dxa8 - Dc7 14. A4 - Bg7 15.
Ha3 — 0—0 16. Hb3 vann Lasker
örugglega.
13. a4?! - Bc5 14. Dxa8 - 0-0
Ævintýri i svtitinni
Sagan um Alla, sem sendur er
í sveit til ókunnugra.
Myndskreyting á bókarsíóum: Guðný Svava Guðjónsdóttir Strandber
„Ævintýri í sveitinni"
er fyísta bókin í bókaflokknum
um Alla.
Næsta bók heitir
„ Strokufanginn "
Þar leysa Alli, Elsa og Steini
gátuna um strokufangann.
Hann var séndur í sveit til
ókunnugra. Vröi fólkið gott við
hann eöa vont?
ITvar var bcssi sveit sem hann átti
aö f ai a í . C.ino I-i>- 0 _ 11 ara hnrn
IA JoMWl.
15. c3??
Nauðsynlegt var 15. Db7 og það
er spurning hvort svartur hefur
nægar bætur eftir 15. — Rg4 16.
Hfl — Rxf2 17. Db3! Nú snýr Bragi
skákinni við:
15. - Dc7! 16. Bf3 - Rd5 17. d4
- Rb6 18. Dxb8 - Hxb8 19. dxc5
- De5+ 20. Be2 - Rd7 21. 0-0
- g5
Loksins fær biskupinn hógværi á
h7 að vera með.
22. hxg5 - hxg5 23. b4 - Dxc3
24. Ba3 - f5 25. Hfcl - Df6 26.
Bc4?
Síðasti möguleikinn til að veita
viðnám var 26. Hdl
26. - f4 27. Rh5 - Df7 28. Hel
- Bf5 29. Hadl - Rf8 30. Be2 -
Bg6 31. g4 - f3 32. Bfl - Bxh5
33. gxh5 - Df4 34. Bb2 - Dg4+
35. Kh2 Dxh5+ 36. Kg3 - Hxb4
37. Be5 - Hg4+ 38. Kxf3 -
Hd4+ og hvítur gafst upp.
Jólaskákmót grunnskóla í
Reykjavík
Mótið fór fram nú í desember
og var keppt í tveimur aldursflokk-
um. Umhugsunartíminn var 15
mínútur á skákina.
Það voru Taflfélag Reykjavíkur
og íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur sem stóðu fyrir mót-
inu. Skákstjórar voru Olafur H.
Ólafsson og Gunnar Björnsson.
Úrslit urðu þessi:
Yngri flokkur, 1.—7. bekkur:
Hólabrekkuskóli, A sveit 21 v. af 24
Breiðagerðisskóli, A sveit 20'/2 v.
Ártúnsskóli, A sveit 14'A v.
Breiðholtsskóli 14'/2 v.
Foldaskóli 14'/» v.
Skóli Isaks Jónssonar 13 v.
Melaskóli, A sveit 13 v.
Fossvogsskóli 13 v.
Ölduselsskóli 13 v.
Rimaskóli 13 v.
Seljaskóli 12'/2 v.
Álftamýrarskóli, A sv. 12 v.
Melaskóli, B sveit ll'A v.
Hólabrekkuskóli B sv. 11 '/2 v.
Vesturbæjarskóli 11 v. o.s.frv.
í sigursveit Hólabrekkuskóla
voru þau Guðjón Heiðar Valgarðs-
son, Ingibjörg Edda Birgisdóttir,
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarssun
Bridsfélag Siglufjarðar
NÚ ER lokið tveggja kvölda fyrir-
tækjakeppni og urðu úrslit eftirfar-
andi:
Spariskattur 1013 stig
íslandsbanki og Skeljungur 905 stig
ÁTVR og góðir viðskiptavinir 895 stig
Fljót 895 stig
SjúkrahúsogBerg 895 stig
Einmenningur verður síðan haldinn
mánudaginn 30. desember kl. 19.30 á
Hótel Læk og eru félagar hvattir til
að mæta.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Mánudaginn 16. desember spiluðu
20 pör Mitchell, sem var síðasti spila-
dagur fyrir jólafrí.
NS
Þórarinn Ámason - Bergur Þorvaldsson 257
Júlíus Guðmundsson - Jón Magnússon 248
Karl Adolfsson-EggertEinarsson 245
AV
Sigurleifur Guðjónsson - Óliver Kristófersson 282
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 255
Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 236
Meðalskor 216 stig.
Deildin óskar öllum gleðilegra jóla
og farsæls nýs árs.
Bridsdeild Rangæinga og
Breiðholts
Sl. þriðjudag lauk þriggja kvölda
jólatvímenningi. Röð efstu para:
Guðmundur Karlsson - Kristján Jónasson 498
Friðrik Jónsson - Loftur Pétursson 487
Baldur Bjartmarsson - Halldór Þorvaldsson 445
Geir Róbertsson - Róbert Geirsson 439
Efstu pörin hlutu að launum ljúf-
fengt jólahnossgæti.
Röð efstu para sl. þriðjudag:
Kristján Jónasson - GuðmundurKarlsson 140
Ragna Briem - Þóranna Pálsdóttir 133
Rósmundur Guðmundsson - Brynjar Jónsson 120
Það skyggði aðeins á jólagleði spil-
ara, að þetta verður síðsta spilakvöld
félaganna að sinni, því sú ákvörðun
var tekin að hefja ekki spilamennsku
á nýju ári í nafni félaganna. Þessi
ákvörðun er tekin vegna afskaplega
lítillar þátttöku í haust. Félögin hafa
alls ekki verið lögð niður, heldur bíða
færis að þeirra tími muni koma aftur.